Morgunblaðið - 29.06.1954, Síða 2
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 29. júní 1954' (
Barnskór Akureyrar.
iftrnikór Akureyrar
prýiilegu tekii í Noregi
Söng í útvarp og víða um landið i
EINS og áður hefur verið skýrt frá fór Barnakór' Akureyrar 1
söngför til Noregs fyrir nokkru. Barnakórinn kom flugleiðiíl
heim á sunnudag eftir hina ágætustu ferð hjá frændþjóð vorri og
mun halda söngskemmtun í Gamla Bíó í kvöld kl-. 7. G'efst Reylc*
víkingum þar tækifæri að hlýða á söng kórsins, en hann er fyrstl
barnakórinn, sem utan fer.
ágæf frammislðid Islendingaiina í Prag:
Friðrik Ólafsson varð ■ 6.
sæti með 1114 vinning
Guðmundur Pálmason hlaul 7 vinninga
j PRAG, 27. júní. — Skákmót- I
inu hér er lokið með sigri |
| Tékkans Pachmanns. Hlaut
i tiann 15 vinninga. Annar varð
j Ungverjinn Szabo msð 14V-j
j vinning, 3. Sliwa, Póllandi,
með 13 vinninga, 3.—5. Stálii-
berg, Svíþjóð, og dr. Filip,
Tékkóslóvakíu, með 1214 hvor
og Friðrik Ólafsson 6. með
' 1114 vinning. — Guðmundur
? Pálmason var með 7 vinninga,
í síðustu umferðinni gerða
þeir jafntefli Stáhiberg og
Friðrik Ólafsson, en Barcza
vann Guðmund Páimason.
— Einar.
o—o
Morgunblaðið átti í gaer tal
Trið Baldur Möller og bað hann
»igja blaðinu álit sitt á skák-
mótinu í Pragh.
Að sjálfsögðu beinist athygli
«kkar ísiendinga fyrst og fremst
ja@ árangri Friðriks Ólafssonar,*
»tgði Baldur. Hann hefur stað-
ferst að frammistaða hans á skák-
mótinu í Hasting á siðastliðnum
vetri var engin tilviljun og hann
skipar nú flokk með þeim skák-
meisturum, sem næstir ganga
biórmeisturunum. — Skákmenn
btða með óþreyju eftir nánari
kynnum á skákum þeim, er Frið-
rik tefldí á Prag-mótinu, en svo
scm Morgunblaðið hefur áður
skýrt frá, létu sigurvegararnir á
mótinu, Pachmann og Szabo í ijós
míkla hrifningu yfir skákstíl
7 JT'FTIRFARANDI grein birt-
m-J ist í blaðinu „Evening
- Telegraph“ mánudaginn 31.
i maí s. 1.:
í prédikun við messu á
! Borgarstjóra-sunnudag í St.
Jame’s kirkju í Grimsby tal-
1 aði sóknarpresturinn síra G.
W. Markham um nauðsyn þess
1 að endurvekja grundvallar-
regiur kristinnar trúar bæði í
einkalífi manna og í viðskipta-
lífinu. Sagði hann að þessar
" xegiur, sem hefðu gleymst,
væru leið til lausnar í deil-
* unni, sem uppi er varðandi
löndun á fiski í Grimsby.
Við messu voru yfir 1000
manns úr ölium stéttum og
samtökum borgarinnar. Sagði
't presturinn að fátt hefði skap-
j að meiri óvirsu né valdið meiri
óróa í Grimsby á s. 1. ári en
löndunardeilan.
Hann sagði að spurningin
um það fcvort leyfa ætti lönd-
nn á islesi7kum fiski eða ekki
* hefði íi'ingai hliðar, og yrði
að ákveóast af sérfræðingum.
En á þtssu sviði eins og öðr-
um myndi vera hagstætt að
taka málið fyrir á nýjum
grundvelli, sem byggja átti á
trúarlegum grundvallarregi-
* um.
„Við getum spurt oss sjálf
að því hvers vegna fiskur var
7 í sjóinn settur í upphafi sköp-
t unarinnar“, sagði hann, „það
1 var gert til hagsældar fyrir
mannkynið, til lífsviðurværis,
j en ekki til þess að verða þrætu
atriði milli stétta né heldur
^ tii þess að skapa millirikja-
deilur um fiskveiðisvæði“. Það
ætti ekki að vera markmið fisk
verzlunarinnar í Grimsby að
4 hrúga auði tii eigendanna né
Friðriks í vinningsskákum hans.
Ætla má að Stálberg hafi eng-
an veginn teflt til jafnteflis í
síðustu umferðinni, þar sem vinn-
ingur hefði tryggt honum einum
f jórða sætið, eða raunar þriðja og
fjórða sætið með Sliwa.
Friðrik Ólafsson hefur fengið
á skákmótinu níu vinninga, finnn
jafntefli og fimm töp. — Hanu
fær því 60,53% og nægir það á
mörgum skákmótum til þriðja og
jafnvel annars sætis. Þrjú töp
sín fær Friðrik í skákum sínum
við þrjá efstu mennina, en fregn-
ir hafa borizt af því, að skák-
ina við Sliwa hafi Friðrik tapað
eftir að hafa átt gjörunna stöðu.
Tvö töp hefur Friðrik svo fengið
á móti mönnum, sem eru skammt
á eftir honum, en hefur verið
mjög öruggur í tafli gegn veik-
ari andstæðingum sínum.
Menn gerðu sér vissulega góð-
ar vonir um frammistöðu Frið-
riks, sagði Baldur Möller, en full-
yrða má að árangur hans sé enn
betri en búast hefði mátt við,
þótt álit skákmanna á Friðriki sé
það mikið að ekki sé hægt að
segja að nein góð frammistaða
hans sé óvænt.
Guðmundur Pálmason fékk sjö
vinninga, fjórar vinningsskákir,
sex jafntefli og níu töp, eða
36,84%. Er það mjög góð útkoma
hjá Guðmundi, sem lítið heíur
teflt undanfarin fimm námsár
sín í Svíþjóð, sagði Baldur Möller
að lokum.
að tryggja stöðuga vinnu lönd-
unarverkamanna. Markið er
háleitara, það er að segja að
útvega öllum fisk að borða og
búa góð lífsskilyrði öllum
þeim sem að því vinna frá há-
setum á dekkinu til fisksendils
ins í landi“, sagði hann.
Hann sagði ennfremur: „Ef
fiskverzlunin er fen, þar sem
stríðandi hagsmunir bítast og
berjast, eins og sumir halda
fram, þá hlýtur henni að halda
áfram að hrörna. Ef augu okkj
ar eru nægilega opin til þess
að sjá íslendinga eins og Guðs
böm, værum við e. t. v. ekki.
eins áfjáðir í að útiloka þá
frá höfninni okkar“.
Meirihlutinn féll í
kosningmum
BONN 28. júní: — Samsteypu-
stjórn Adenauers í Þýzkalandi
missti meirihluta sinn í West-
falen-fylki, einu stærsta fylki
Norður-Þýzkalands við kosning-
ar er þar fóru fram á sunnudag-
inn. Telja stjórnmálafréttaritarar
að sosilisk stjórn verði mynduð i
fylkinu. Meirihlutinn sem féll í
kosningunum hefur sétið við völd
um 7 ára skeið.
Er úrslitin voru kunngjörð kom
í Ijós að stuðningsmenn Aden-
auers höfðu hlotið 99 sæti en and
stæðingar hans 101 sæti á fylkis-
þinginu. Enn er þó flokkur
Adenauers langstærsti flokkur
fylkisins — hlaut 90 sæti í kosn-
ingunum. — Reuter-NTB
-------------------------«■
Aðalfundur Fasi-
eignaelgendafélags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Fasteignaeig-
endafélags Reykjavíkur var hald-
inn í Vonarstræti 4 s.l. mánudags
kvöld, 21. þ.m.
Formaður félagsins, Jón Lofts-
son, forstjóri og framkvæmda-
stjóri, Magnús Jónsson, lögfræð-
ingur, gerðu grein fyrir störfum
stjórnarinnar á síðasta starfsári.
Höfðu mörg mál komið til kasta
félagsins og voru helzt þeirra
húsaleigulagafrumvarpið og
brunatryggingar húsa í Reykja-
vík, þá hafði einnig verið lögð
á það áherzla við bæjarstjórn að
bæla úr vatnsskorti á ýmsum
stöðum í bænum. Félagsblaðið
hafði komið út með ýmsum leið-
beiningum til félagsmanna og
skrifstofa félagsins og fram-
kvæmdastjóri höfðu haft með
höndum margvíslega fyrir-
greiðslu fyrir félagsmenn.
Jón Loftsson baðst eindregið
undan endurkosningu og var Jón
Sigtryggsson, dómvörður, ‘kosinn
formaður í hans stað.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga þeir Jón Sigtryggsson og
Guðjón H. Sæmundsson. húsa-
smíðameistari. Baðst Guðjón und
an endurkosningu. Voru kosnir
í stjórnina þeir Jón G. Jónsson,
umsjónarmaður, og Jón Guð-
mundsson, skrifstofumaður. Fyrir
voru í stjórninni Hjálmar Þor-
steinsson og Friðrik Þorsteinsson
húsgagnasmíðameistarar.
í varastjórn voru kosnir þeir
Valdemar Þórðarson, kaupm.,
Egill Vilhjálmsson, forstjóri og
Sighvatur Einarsson, pípulagn-
ingameistari. Endurskoðendur
voru .kjörnir þeir Ólafur Jó-
hannesson kaupm., og Sigurður
Hólmsteinn Jónssón, blikksmíða-
meistari og til vara Hannes Jóns
son, fulltrúi.
Blinda (élkið þakkar
SÍÐASTLIÐINN sur.nudag bauð
Rebekkustúkan Bergþóra nr. 1
blindu fólki til kaffidrykkju og
er það annálsvert hve systurnar
lögðu sig í framkróka til að
hlynna að þessu blinda fólki og
skemmta því á alla vegu. Þá ber
og að þakka hinum ungu leikur-
um, sem gerðu sitt til að skemmta
fólkinu.
Blinda fólkið flytur systrum
Rebekkustúkunnar og öðrum
sem að skemmtuninni stóðu sín-
ar hjartanlegustu þakkir fyrir
þessar ógleymanlegu gleðistund-
ir og alla hugulsemi í þeirra garð
fyrr og síðar.
Mbl. átti tal við Hannes J.
Magnússon skólastjóra Barna-
skóla Akureyrar í gær, en hann
var með í Noregsförinni.
TVEIR EINSÖNGVARAR
í Barnakór Akureyrar eru 29
börn á aldrinum 10—14 ára. —
Söngstjóri kórsins er Björgvin
Jörgensson kennari, en einsöngv-
arar með kórnum voru þau Anna
G. Jónsdóttir og Arngrímur B.
Jóhannsson. Hefur söngstjórinn
lagt mikla alúð við þjálfun kórs-
ins og hlaut hann mikið hrós í
Noregi fyrir þann árangur, sem
hann hefur náð. Fararstjóri var
Tryggvi Þorsteinsson kennari.
í ÚTVARP
Barnakórinn hélt flugleiðis til
Osló 12. júní og fór þaðan rak-
leitt til Álasunds og kom hann
þangað 27 timum eftir að lagt
var af stað frá Reykjavík. Ála-
sund er vinabær Akureyrar og
hafði hann sérstaklega boðið
kórnum til samsöngs þar. Var
þar tekið á móti kórnum af
mikilli alúð. Mætti honum for-
seti bæjarstjórnar Álasunds,
sendiherra Norðmanna á íslandi
Anderssen-Rysst og Bjarni Ás-
geirsson sendiherra í Osló. —
Bjuggu börnin ýmist á heimilum
út um bæinn eða í unglingaskóla
einum. Annaðist karlakórinn í
Álasundi mótttökurnar og vist-
ina í borginni. Kórinn hélt eina
hljómleika í Álasundi og aðra
þar skammt frá við geysimikinn
fögnuð áheyrenda og komust
færri að en vildu.
HJÁ RÆÐISMANNI
Hinn 17. júní hélt íslenzki
ræðismaðurinn í bænum boð fyr-
ir kórinn. Þar voru staddir menn
frá norska útvarpinu og tóku
þeir upp nokkur lög, sem síðan
var útvarpað um kvöldið 17. júní
frá Osló. Alls dvaldist kórinn 5
daga í bænum og voru hörnin
leyst út með gjöfum, er þau fóru
þaðan.
Þaðan var haldið sjóleiðis til
Bergen, en þar tók barnakór út-
varpsins í bænum á móti íslenzku
börnunum með söng á bryggj-
unni.
i
í KIRKJU ^
Þar var og staddur íslenzlð
ræðismaðurinn Tryggve Rittland*
sem greiddi fyrir kórnum á alli
an hátt. Kórinn söng tvisvar 1
bænum, í Konserthallen og $
skemmtistaðnum Gamle Bergett
við prýðilegar undirtektir. ÞaðaH
var haldið til Voss og söng kóc«
inn þar í bæjarkirkjunni. I
Þá hitti kórinn skömmu seinna
í Osló kórana, sem þátt tóku I
norræna söngmótinu í Osló m. a,
Samkór Reykjavíkur. Söng barnS
kórinn í Folketeatret í Bygdö og
í Bygdö Söbad. Voru undirtektiB
ávallt hinar sömu hvar sem fatw
ið var, hinar hjartanlegustu. 1
í Osló sat kórinn síðan boa
Bjarna Ásgeirssonar sendihercð
og konu hans. 4
W
LÆRDÓMSRÍK FERÐ 1
Flest voru lögin íslenzk á söngi
skránni, 28 alls, en nokkur norsK
og vakti „Sunnudagur SelstúHc-í
unnar“ eftir Olav Bull sérstakð
hrifningu, en í því söng ArngrírtK
ur einsöng bæði á norsku og ís«
lenzku. (
Börnin gátu fljótt gert sig skilJW
anleg við jafnaldra sína, sagfH
Hannes J. Magnússon. Þau hafS
haft mjög gaman að förinni, húö
hefur í senn verið skemmtileg Og
lærdómsrík og örugglega á bocQ
við fjölmarga tíma í kennsliÞi
stofunum. jí
----------------- i
Ferð á hestum wn 1
landið 1
ORLOF gengst fyrir reiðtCtlj
þvert yfir landið frá Akureyri tll
Borgarfjarðar. Alls geta 6 meiU||
tekið þátt í ferðinni. FylgdaíS
maður sem vel þekkir til verðuB
með í ferðinni. Lagt verður a£
stað frá Akureyri hinn 12. júli
og riðið í 4 dagleiðum til KaI-<
manstungu eða í Svignaskarfl
eftir aðstæðum. H
Hestarnir eru allir valdir me8
þessa ferð fyrir augum og séð
verður um heyfeng og allt annað
er að ferðinni lítur. Þeir sen(
óska að taka þátt í ferðinni ge£|
sig fram við Orlof h.f. sem gefus
upplýsingar.
Irezkur presður \ predikunarstól:
Löndunardeiluna á að leysa
á trúarlegum grundvelli