Morgunblaðið - 29.06.1954, Síða 11
Þriðjudagur 29. júní 1954-
MORGUNBLAÐIÐ
II
r ^
Altræðurs
Þórður á Mófellsstóðuon
ÞÖRÐUR á Mófellsstöðum er átt-
ræður í dag. Hann hefur þó
ekki útlit fyrir þann aldur msð j
Sitt beina bak og kviku hreyf- j
ingar. Aðeins heyrnin er favin
að bila en það er vonum baga-
legra en margt annað fyrir blinú-
an mann. Hann getur að vísu
talað við einn mann í einu og
hlustað á útvarpið. En hann á
erfiðaðra með allan umgang. Nú
heyrir hann ekki til hlutanna eins
og aour ryrr. Hann getur ekki.
jgengið beint á dyr, þó að þær
séu opnar eins og hann gerði
áður, eða sagt manni hvort land-
ið sé slétt eða hæðótt fram með
veginum, þegar hann er á ferð,
eins og hann gerði áður eða talið
símastaurana. Þórður var vanur
að fara einsamall til fjárhúsanna
þegar hann átti þangað erindi,
en þau eru nokkur hundruð
jnetra frá bænum, án þess nokk-
urn tíma að villast. Þegar hann
Var að leikjum með systkinum
sínum og börnum frá nágranna-
bænum, reyndu þau stundum að
leiða Þórð fram hjá fjárhúsun-
um án þess að hann tæki eítir
því. En það tókst aldrei, alltaf
þekkti Þórður fjáhúsin.
Þórður var mjög ungur þegar
hann fór að bera á því að hann
væri veikur í augum. Aðeins
Iiokkra vikna gamall.
Þá var fátt um lækna og engir
augnlæknar. Það fór töluvert orð
af séra Magnúsi Andrjessyni á
Gilsbakka fyrir lækningar. Þang-
að fór faðir Þórðar með hann.
Séra Magnús sagði strax að þeita
yrði ekki læknað hérlendis og
Útvegaði engin meðul. Þó sá Þórð-
Ur svo mikið að hann tók eftir
litnum á Hvitá.
Svo þegar Björn Ólafsson kom
á Akranes, var sjón Þórðar ekki
meiri en svo að hann greindi
yarla hvort læknirinn hafði hönd-
ina fyrir ljósinu eða ekki. Björn
hafði mikið orð á sér íyrir lækn-
ingar, svo það olli nokkrum von-
brigðum að hann skyldi ekki geta
Heitt. Utanferð varð ekki af,
þrátt fyrir einhverja viðieitni.
Þórður sá aldrei svo skýrt að
hann sæi mannsandlit. En fjali-
ið, litirnir á himninum og sól-
eyjarnar á vellinum eru óljós
rninning.
Þórður fór snemma að vinna og
hjálpa til við furðu margt af
heimilisverkum. Svo fór hann að
gera við ílát og amboð tilsagnai-
laus og verkiæralaus að kalla.
Verkíæri sín varð hann að búa
til eltir því sem verksfnið krafði
og enn er það svo að flest hans
verkfæri eru eigin smíðii þegar
hann var um eða innan við tví-
tugt, smíðaði hann borvél sem
hann síðan notaði í þrjátíu ái.
Fyrirmyndin var útlendur bor
með sveifluhjóli. (Hjóiið snenst
fram og aftur). Ásinn í þessari
vél var úr gömlu byssuhlaupi en j
gveifluhjólið var stainn, ssm Þórð
ur leitaði uppi í farveg Kaldár.
Þessi vél var bæði fyrir tré- og
járnbora. Járnborana þurfti að
eldbera einstöku sinnum. Það
var löng leið, sem þurfti að fara
til að fá þá harta svo Þóröur
komst upp á lag með að herða
þá sjálfur. Lét hann hita þá og
drepa í vatn. Svo athugaði hann
sjálfur hvort rétt hersla væri
á. Þurfti stundum að hita aftur,
áður en réttri herzlu var náð.
Seinna smíðaði Þórður svo sög-
unarvélina, sem han notar enn. !
Hún er nú rúmlega 40 ára, næsi-
um eins og hann gekk frá henni
í upphafi. Það gekk dálítið erf- •
iðlega að fá biað í sögina, því að- j
eins örfáar sagir voru þá til á
landinu. Ásinn í neðra hjólið
þurfti hann að iáta smíða en í
efra hjólið notaði hann ás úr
saumavélinni hennar Snjáfríðar
á Kroppi. Að öðru leyti smíðaði
hann alit sem til vélarinnar
þurfti. Það kostaði hann margra
mánaða hei.’abrot og vökunætur.
Þessi vél varð honum til ómetan-
legrar hjálpar og flýtis við vinnu
hans, sem varð mæstum einvörð- '
unngu smíðaviima. Þórður smíð- '
aði og smíðar reyndar enn (því
hann er ekki haettur smíðavinnu) |
allskonar hlnts frá amboðum upp
í hestvagna og „funkis" skápa.1
Munu fá heimili í nærliggjandi
hreppum sem ekki geyma ein-
hvern hlut sem Þórður hefur
smíðað. Þar af auki eru þeir j
á strjálingi um allt land, því j
margir vilja eiga grip, sem þessi j
undramaður hefur smíðað. Marg-
ir hafa gert fexð sína að Mó-
fellsstöðum til þess að sjá hann
og vinnu hans.
Þórður var snemma fróðleiks-
fús en fátt var bóka. Þegar hann
var nýfermdur, bað hann séra |
Arnór á Hesti að lána sér bók
eða bækur sem hann hefði gagn
' af að heyra. Síra Arnór lánaoi
! honum Þórarinsbók og Nýjárs-
1 nóttina. Þórði fannst sér opnast
nýr heimur þegar hann heyrði
Alþýðubókina. Síðan hefur hann
heyrt hundrug bóka en enga
aðra, sem opnaði honum nýjan
I heim, heldur urðu þær til að
| auka þekkingu hans, enda ekki
i um annan skóla að ræða.
' Þórður hefur alla æfi átt heima
á Mófellsstöðum. Fyrst hjá for-
j eldrum sínum og síðan hjá Vil-
mundi bróður sínum og Guð-
finnu konu hans, við mikið ást-
ríki og óeigingjarna umönnun.
Einn - ^röar á Mó
fellsstöðum.
Þórð hafa engir harmar svæft
hvorki meðan hann var ungur
og von var til þess að hann fengi
kannske sjón eins og aðrir menn,
en í þann tíma mátti kalla að
væri fornöld á Islandi, né þegar
öld tækninnar er byrjuð. Fagnar
hann henni og hlakkar til þegar
rafmagnið ksmur en þá hefur
hann lifað þrenna tímana hvað
ljós snertir, hafandi ekki not ljósa
sjálfur. En hann heíur alltaf
hugsað um heimilið og ánægju!
annara miðlandi gleði, bjartsýni
og hugrekki en af þessum eigin-
ieikum er hann rikur.
Hann telur sig hamingjusam-
an mann og álítur örlögin haíi
verið sér góð, því að óvíst sé að
hann hefði notið eða notað hæfi-
leika sína betur þótt hann hefði
haft sjón eins og aðrir menn.
Björn Guðmundsson.
„BERGENE"
Sá'puiefnið
fer sigurför land úr landi
og er að leggja undir sig
heiminn. En það er ekki
undarlegt, því að „BERG-
EI\E“-súpur eru óvenju Ijúf-
fengnr, fljótlagaSar og ó-
dýrar. „BERGE1\E“ súpu-
efni cr einnig ágætt í fleiri
rétti og sósur.
Ljúffeng súpa gleSur
inannsins hjarta.
BiSjiS því ávalll um
„B E RG E 1\ E“-súpu.
Söluumboð:
G. Ell\ARSSO!\ &
LUPiDDAL
Ingólfsstræti U. Simi 6U68.
7/móoSs o(c/ /iei/c/verz/utt>
HAFNARHVOLI
SIMAR 8-27-80 OG 1653
LOKAÐ
vegna sumarleyfa frá 5 til 21. júlí .
LOKAÐ
vegna sumarleyfa frá og með 5. til 22. júlí.
Gufuþressan Stjarna h.f.
Laugaveg 73.
Matvöruverzlun.
Höfum kaupanda að matvöruverzlun á góðum stað
í bænum — helzt austurbænum.
Rannveig Þorsteinsdóttir,
Fasteigna- og verðbréfasala,
Tjarnargötu 3 — Sími 82960
sem er talin 311 smálestir er til sölu. — Nánari
upplýsingar veita þeir Björn Ólafs og Þorgils Ingvars-
son bankafulltrúar, Landsbankanum, Reykjavík.
STOFNLÁNAÐEILD SJÁVARÚTVEGSINS