Morgunblaðið - 03.07.1954, Page 2

Morgunblaðið - 03.07.1954, Page 2
2 ) i MORGVnBLABlB Laugardagur 3. júlí 1954 | Byggingarfélag verkamanna Framh. af bls. 1 jnannabústaði breytt með bráða- birgðalögum og Byggingarfélagi -ilþýðu gefinn kostur á að breyta samþykktum sínum í samræmi •við þau. Varð niðurstaðan sú að íéiagið taldi sér það ekki fært. Var Byggingafélag verkamanna í Seykjavík þá stofnað. Hefur það síðan starfað af miklum þrótti, •enda þótt skortur á fjármagni hafi torveldað framkvæmdir þess verulega. BYGGING AFR AM K VÆMDIR MEFJAST Strax eftir stofnun félagsins tók það að undirbúa bygginga- framkværndir. Það sótti þegar •um lóðir fyrir 100 íbúðir í tveggja hæða húsum. Brást bæjarráð og bæjarstjórn vel við þeirri beiðni og út.hlutaði félaginu umbeðnum lóðum. Voru þær í Rauðarárholti norðan Háteigsvegar. I svipaðan mund samþykkti byggingarsjóður •að veita félaginu 500 þús. kr. lán til byggingar verkamannabú- ístaða. Þau hús, sem félagið hefur byggt hefur það öll rcist í Rauð- •arárholti, í þríhyrningi, sem tak- markast af Einholti, Háteigs- vegi, Nóatúni og Skipholti. Er þetta svæði eingöngu byggt verka mannabústöðum að undantekn- Tim nokkrum húsum efst við Stór iiott að norðan. Fyrstu húsin sem félagið byggði voru reist á timabilinu sept. 1939 þar til í ágúst 1940. Vöru reist í þessum flokki 10 hús við Háteigsveg, Meðalholt og Ein- liolt. Voru í þeim 20 þriggja her- bergja íbúðir og 20 tveggja her- bergja íbúðir. Sameiginlegt fyrir Grímur Bjarnason, gjaldkeri allar íbúðirnar í hverju húsi voru miðstöð og þvottahús. En þurrk- Jiús voru 2 í hverju húsi, eitt fyrir hverjar 2 íbúðir. Þriggja berbergja íbúðirnar voru 62 fer- metra og tveggja hebergja íbúð- irnar 52,7 fermetrar. Kostnaðar- verð hinna síðarnefndu var tæpar 16 þús. kr. og bar hverjum íbúð- areiganda að greiða í útborgun 15% af áætluðum kostnaði, áður «n hann fengi umráð yfir íbúð- inni, en mánaðarafborganir af íbúðunum voru ákveðnar kr. •74,70. Þriggja herbergja íbúðirnar iostuðu aftur á móti kr. 18.805,00. Lánsskilmálar voru þeir sömu. HVER BYGGINGARFLOKKUR REKUR ANNAN Eftir að byggingu húsanna í 1. i.1. var lokið varð nokkurt hlé hjá félaginu í framkvæmdum vegna fjárhagsörðugleika. En í júiímánuði árið 1941 hófust þó framkvæmdir að nýju. í 2. flokki vo,-u nú reist 14 hús við Meðal- iiolt og Háteigsveg. Voru þau dekin til notkunar á tímabilinu frá því í ágúst 1942 og þar til í september 1943. Voru þetta jþriggja og tveggja herbergja íbúðir. Svo að segja strax eftir að flutt hafði verið í síðustu húsin í 2. flokki hófust framkvæmdir að byggingu húsa í 3. flokki en þau voru reist við Stórholt og Há- teigsveg. I þessum flokki voru byggð 7 hús. í þeim voru 24 þriggja herbergja íbúðir og 4 tveggja herbergja íbúðir. I júní árið 1945 var enn byrjað á nýjum byggingaflokki, þeim 4. í röðinni. í honum voru 9 íbúðar- Guðmundur í. Guðmundsson, fyrsti formaður félagsins. hús með 36 þriggja herbergja íbúðum og 1 skrifstofu og verzl- unarhús. Hús þessi voru byggð við Meðalholt og Stórholt. Á næsta byggingarflokki var byrjað vorið 1949. í honum voru 10 hús. Standa 9 þeirra við Stang- arholt en 1 við Stórholt. í þess- um húsum eru allt þriggja her- bergja íbúðir en hver íbúð á hæð 80 fermetrar. Kaupverð þessara íbúða varð 169 þús. kr. í apríl árið 1952 hófust svo framkvæmdir við byggingu 6. flokks. í honum eru 5 hús með 20 þriggja herbergja íbúðum og er fyrirkomulag þeirra og stærð hin sama og húsanna í 5. flokki. í fyrstu íbúðirnar í þessum flokki var flutt í ágúst 1953 og í þær síðustu í nóvember sama ár. Á 7. flokki var svo byrjað sum- arið 1953 og mun verða flutt í þær á þessu sumri eða í haust. Eru 4 hús í þessum flokkí með samtals 24 íbúðum, 16 fjögurra herbergja og 8 þriggja herbergja. Er hver fjögurra herbergja íbúð 80 fermetrar en þriggja herbergja- íbúðirna 68 femetrar. Kostnaðar- áætlun íbúðanna í þessum flokki eru 200 þúsund kr. fyrir hinar stærri en 160 þús. kr. fyrir hinar minni. Standa hús þessi við Skip- holt og Nóatún. Samtals eru byggingar Bygg- Bjarni Stefánsson, meðstjórnandi ingafél. verkamanna í Reykjavík 73,4 þús. rúmmetrar. En á næsta ári verða þær orðnar um 78 þús. rúmmetrar. AFBORGANIR OG KJÖR ÍBÚÐAREIGENDA í júlímánuði 1953 ákvað stjórn- in síðast samkvæmt samþykkt næsta aðalfundar áður, að mán- aðargreiðslur íbúðareigenda í hinum ýmsu flokkum yrðu frá 1. janúar það ár sem hér segir: íbúðareigendur í I. flokki greiði: Kr. 125.00 á mánuði fyrir 2ja herbergja íbúðir. Kr. 150.00 á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúðir. íbúðareigendur í II. flokki greiði: Kr. 200.00 á mánuði fyrir 2ja herbergja íbúðir. Kr. 235.00 á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúðir. íbúðareigendur í III. fl. greiði: Kr. 255.00 á mánuði fyrir 2ja herbergja íbúðir. Kr. 305.00 á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúðir. íbúðareigendur í IV. fl. greiði: Kr. 360.00 á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúðir. íbúðareigendur í V. fl. greiði: Kr. 530.00 á mánuði fyrir 3ja herbergja íbúðir. Mánaðargreiðslur íbúðareig- enda í VI. flokki hafa ekki verið endaniega ákveðnar, en eru áætl- aðar 600 krónur. — Ekki er held- ur enn vitað, þegar þetta er rit- að, hver mánaðargreiðsla íbúð- areigenda verður í fjögurra og þriggja herbergja íbúðunum, sem eru í byggingu í VII. flokki. Af framanskráðu sést, að íbú- ar verkamannabústaðanna búa Tómas Vigfússon, formaður síðan 1949 við mjög hagstæð kjör varðandi íbúðirnar, enda eru lánin, sem til verkamannabústaðanna eru veitt, með góðum lánskjörum, bæði hvað snertir vexti og láns- tíma. Samkvæmt ákvæðum laganna um verkamannabústaði, skal íbúðarkaupandi greiða ákveðna hundraðstölu af byggingarkostn- aði íbúðarinnar í upphafi, en eft- irstöðvarnar skulu greiddar á löngum tíma, en heimilt er kaup- anda þó að greiða byggingarlán sitt að fullu, hvenær sem hann óskar þess. Með lögum frá 1929 og 1935 var miðað við 15% út- borgun og 42 ára lánstíma. En með síðari lagaákvæðum hefur verið heimilað að veita lánin í 42 til 75 ár, en heimildarinnar um lengri lánstímann hei'ur fé- lagið ekki notið enn. Hins vegar hafa íbúðareigendur orðið að greiða 25% af byggingarkostn- aði um leið og þeir hafa fengið úthlutað íbúð, í öllum flokkum nema I. flokki, en þar var út- borgunin 15%. IIAGKVÆM KJÖR I mánaðargreiðslum þeim, sem íbúðarkaupanda er gert að greiða eru því fyrst og fremst fólgnar afborganir og vextir af stofn- kostnaðarlánum, sem tekin hafa verið hjá Byggingarsjóði verka- manna, en ennfremur ber þeim að standa undir gjöldum, sem á íbúðirnar eru lögð af ríki og bæ sem gjaldstofnar. Einnig eiga þær að ganga til viðhalds hús- anna að utan og brunatrygginga. Loks ber að greiða af þeim ár- gjald í varasjóð félagsins, sem á að vera 1% af viðskiptaveltu þess, en hún telst vaxta- og af- -i Verkamannabústaðir, sem eru í byggingu við Skipholt og NóatúQ borganatekjur félagsins á árinu, sem félagsmönnum ber að greiða, enda greiði hver félagsmaður gjald þetta af sinni viðskipta- veltu. Árlegt tillag í stofnsjóð skal greitt af þeim félagsmönn- um, er keypt hafa verkamanna- bústaði hjá félaginu, og nemur það 3% af viðskiptaveltu hvers félagsmanns. En þrátt fyrir öll þessi gjöld, sem innifalin eru í mánaðar- greiðslunum, má fullyrða, að eig- endur íbúða í verkamannabústöð unum búi við hagstæðari hús- næðiskjör en flestir aðrir íbúar höfuðborgarinnar. MYNDARLEGT AFMÆLISRIT I tilefni af 15 ára afmæli Bygg- ingafélags verkamanna hér í Reykjavík hefur stjórn félagsins gefið út myndarlegt afmælisrit. í það rita greinar og ávörp, Stein- grímur Steinþórsson félagsmála- ráðherra, Stefán Jóhann Stefáns- son fyrv. félagsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra, Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, Ingólfur Kristjáns- son ritstjóri, sem skrifa sögu byggingarfélagsins í 15 ár, Guð- mundur í. Guðmundsson sýslu- maður, Jón G. Maríasson banka- stjóri, Þór Sandholt arkitekt og Tómas Vigfússon byggingameist- ari. Rit þetta fá félagar bygging- arfélagsins ókeypis en nokkur ein tök af því verða seld í bókabúð- um. Felst í riti þessu mikill fróð- leikur um starfsemi félagsins og byggingasjóðs verkamanna. ÁRNAÐARÓSKIR DÓMSMÁLARÁÐHERRA í niðurlagi greinar þeirrar sem Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra skrifar í afmælisritið Magnús Þorsteinsson, varaformaður frá upphafi kemst hann að orði á þessa leið: „Frá þeim árum, er ég átti sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur, var hér borgarstjóri og um skeið eftirlitsmaður byggingarfélags- ins, er mér ljúft að minnast ágætrar samvinnu við þá ötulu menn, er valizt hafa til forustu í Byggingarfélagi verkamanna. — Það er einlæg ósk mín, að árang- ur af starfi félagsins verði sem mestur og heilladrýgstur og fé- lagið megi ætíð vinna í þeim anda athafna, framtaks og sam- hugs, er stjórnað hefur orðum þess hingað til.“ VORIIUGI OG ÁRÆÐI Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri lýkur sinni grein í afmælis- ritinu með þessum orðum: „Til þess að bæta úr húsnæðis- ástandinu og auka verulega byggingar í Reykjavík þurfa all- ir byggingaraðilar að leggjast á eitt. Það er gleðiefni, hversn mikill vorhugur og áræði er nú með mönnum til byggingarfram- kvæmda. Byggingarfélag verka- manna hefur mikinn hug á að færa út kvíarnar og auka starf- semi sína. Að því verður að vinna á alla lund, að veita því aðstöða Alfreð Guðmundsson, ritari til þess að gegna í enn stærri stíi því hlutverki sínu að byggja ó- dýrar, hagkvæmar íbúðir fyrir hina efnalitlu borgara þjóðfélags- ins.“ IIEILDARLÁN ÚR BYGGINGARSJÓÐI í mjög fróðlegri grein sem Jón G. Maríasson bankastjóri skrifar í ritið skýrir hann meðal annars frá því að heildarframlög bæjar- og sveitarfélaga til Byggingar- sjóðs verkamanna hafi á árunum 1930 til 1952 numið 13,2 millj. króna. Þar af hafi Reykjavík; greitt rúmar 8,3 millj. kr. Samtals hafi hinsvegar tekjur sjóðsins á tímabilinu 1930 til 31. okt 1953 orðið 57,4 milljónir kr. Skiptast þær þannig að 13,2 millj. kr. eru framlög bæjar- og sveita- félaga, framlag ríkissjóðs 13,2 millj. kr., frá Tóbakseinkasölu og árlegt ríkisframlag 2,2 millj. kr., óafturkræf framlög ríkisins 8,7 millj. kr., skuldabréfalán 9,4 millj. kr„ vaxtatekjur 7,6 millj. kr. og afborganir af lánum 3,1 millj. kr. , Lán veitt einstökum bygginga- félögum hafa á fyrrgreindu tíma- bili numið 47,9 millj. kr. Frá því að Byggingasjóðurinn tók til starfa og til októberloka ársins 1953 hafá samtals veriS veitt lán úr sjóðnum til 833 íbúða,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.