Morgunblaðið - 03.07.1954, Side 10

Morgunblaðið - 03.07.1954, Side 10
10 MÖRGUNBLABIB Laugardagur 3. júlí 1954 Borgin í Mnchu Picchu-fjöllum seisi mi Sýnd í mörg hundruð úr Hverjir eiga að skapa heilbrigt almenningsálit? Stærsii íornleiiaíundur aldarinnar ÞEIR SPÁNVERJAR, sem lögðu undir sig ríki Inkanna, leituðu í mörg hundruð ár að gulluppskeru þeirra, sem þeir vissu að þjeir höfðu falið mjög vandlega, en þeir fundu það aldrei. Spán- vjerjar vissu einnig að hofembættismenn Inka ásamt prestum og „sóljómfrúm" (heimilisgyðjum), höfðu flúið upp í fjöliin í bovg sem var síðasti höfuðstaður þjóðarinnar, en Spánverjar fundu hgnn ekki heldur. í*að var ekki fyrr en á þessari öld, að þessi hjeilaga borg, höfuðstaður Inkanna, fannst. ÞRJÁR KRÓNURí SÖGULAUN fÞað var ekki fyr en árið 1911, ao amerískur milljónamæringur afe nafni Hiram Bingham komst ájsnoðir um hvar borgin var. Það vfir Indíáni, sem ekki stóðst mál- ið, er milljónamæringurinn bauð honum að borga honum sem svar- a'r þrem krónum fyrir að ljóstra leyndarmálinu upp. — Með þess- ári lágu upphæð keypti hann sér ódauðlega heimsfrægð, vegna þéss að þessi bær sem hann og hinn lausmálgi Indíáni gerðu uppskátt um efst uppi í óbyggð- um Machu Picchu-fjöllunum er stærsti og þýðingarmesti forn- minjafundur þessarar aldar. Þessi sögufrægi Inka-bær, sem hvorki grafræningjar eða spánsk- ir i yfirgangsseggir hafa grandað. Sú staðreynd, að borg þessi var byggð á mjög afviknum og óað- gengilegum stað í fjöllunum sannar það ótvírætt að hér er um að ræða síðasta afdrep Ink- anna. ÆSh SSwíí I| WWmWm T'\ flwill," ' / mm: ' V r f XWk !Wwfj |v \ ■ ^ ' í * <. , \Mw% - <. m I ■ GULLBIRGDIRNAR ÓFUNDNAR ENN Frekari sannanir fengust einn- ig við fund af konunglegum Inkamúmíum og heilmikið af beinagrindum bæði af körlum og konum er virtust hafa verið mjcg grannvaxin. Það gætu hæglega verið leifar prstanna og jóm- frúnanna. Eftir öllum merkjutn að dæma, hefur þjóðflokkurinn liðið undir lok vegna sértrúar og einlífis þegnanna. En gull Ink- anna hefur ekki fundizt enn þann dag í dag og er þó stöðugt leitað eftir því. Og það er enginn vaíi á því, að það eru fleiri Inka- borgir faldar inn á milli hinna háu hnúka Machu Picchu-fjalla. STEINNINN ÞAR SEM SÓLIN V^R BUNDIN Það er næstum ósiljanlegt! húernig Inkarnir hafa getað flutt þunga og stóra bergdranga upp þelta háa og yfirferðarilla fjall, og fengið nægilegt byggingarefni til borgarinnar er þeir' reistu, aí þvílikri snilld að vart hefur jaxn fagur byggingarstíll sézt í heim- Þannig Ieit skrift Inkanna út. — Það er ekki á færi allra að lesa hana. — inum. í hinum afskekta og djúpa Urumbambadal, sem liggur mitt í þessum volduga fjallageim, rís höfuðborgin með turnum, súlum, listigörðum, hallarbyggingum, minnisvörðum og grafhvelfing- um, allt umgirt háum og veg- lega gerðum borgarmúrum. Mit.t í borginni gnæfir hér pyramidi. Á teppi hans liggur margstrend- ur fórnarsteinn, sem Inkar köll- uðu „steinin, sem sólin var bund- in á.“ Margir álíta að þetta sé gamalt altari og frá því haíi gullin sólskífa endurkastað geisl- um yfir hina heilögu borg Ink- anna. Aðrir fullyrða að þetta haíi verið sólklukka, og þar hafi sol- prestarnir gert trúarlegar athug- anir sínar á sól og stjörnum. SLÖNGURNAR f MUSTERINU Menn koma sér heldur ekki saman um hvað nokkrar kringl- Hinn heilagi bær Inkanna í Urubamba-dalnum í Machu Picchu- fjötlum fannst ekki fyrr en 1911. — Þessi síðasti griðarstaður þeifra var vandlega falinn í faðmi hinna víðáttumiklu fjalla. óttar holur, í vinkilmyndaðri byggingu, sem álitin er vera sól- musteri, hafi táknað. Ein af sög- unum, sem hefur geymzt af þjóð- flokki þessum er að prestarnir hafi haft heilagar slöngur í múst- erinu og að holurnar hafi veríð útidyr slanganna. En í þessum fjöllum er aragrúi af eiturslöng- um svo varla verður þverfótað fyrir þeim. í nokkrum muster- um hafa fundizt vatnsleiðslur gerðar af mannahöndum. Inkarn- ir böðuðu sig í musterunum og hafa fundizt minjar hinna frægu Inkabaðkera. Þá hafa fundizt í borginni ýmissir heilagir átrún- aðarsteinar Inkanna, kirkjugarð- ar og hellar, sem þeir notuðu fyrir dýflissur, þar sem fangarn- ir voru pyndaðir með því að þeir voru klemmdir fast upp við gr-anitvegginn með útrétta arma og síðan pressaðir með gapastokk eins og ástæða þótti tíj, eftir því hvað sök þeirra var mikil. Al- gengustu íbúðarhús Inka hafa verið aðeins eitt herbergi, sem náði yfir helming hússins. Hinn helminginn hafa þeir notað til að vinna í og einnig til vöru- geymslu. ÞEIR KUNNU EKKI AÐ SKRIFA Engin skrifuð fornrit eftir Inkana sjálfa hafa fundizt vegna þess að þeir kunnu ekki að skrifa. Það er þessvegna erfitt að afla fullkominna upplýsinga um lifn- aðarhætti þeirra. Fyrirliðar þjóð- arinnar notuðu í stað skriftar einkennilegt rúnaletur með marg litum strikum og punktum. — Sérfræðingum hefur að nokkru tekizt að þýða þessar rúnir en á þeim er yfirleitt lítið að græða. Mest varðandi stjórn borgarinn- ar og helgisiðahald. Þeir héldu nokkurn hóp hofembættismanna, sem þeir nefndu „sögufróða menn“ og þeir voru nokkurs konar alfræðiorðabók þjóðarinn- ar. Þeim var sagt allt af hinura svokölluðu „hvíslandi sendiboð- um hofsins“, sem þeyttust uin landið þvert og endilangt og söfn- uðu fréttum. Annar hópur manna var sá, sem safnaði fréttunt um allt hvað fólk sagði, sín á milli, sérstaklega hvað sagt var um prestana. Þessir menn fengu einnig sínar fréttir gegn um sendiboða. Þeir voru nefndir „hin stóru eyru“. SKIPANIR FRÁ ÆÐRA HEIMI Ríki Inkanna var vel skipulagt og menning þeirra var að vissu leyti á háu stigi. En þeir höfðu einræði og af þeim orsökum var ekki mikið um frjálsræði. Það voru prestarnir, sem tóku við skipunum æðri valda og stjórn- uðu síðan þjóðinni eftir þeim. — Prestarnir höfðu vald til þess að láta þegnana vinna hvað sem þeim datt í hug, engin þorði að mótmæla neinu, sem þeir sögðu. Þeir ákváðu hvaða fæðu þjóðin neytti og sögðu einnig til um hvenær átti að gleðjast og hve- nær átti að hryggjast. Þetta voru skipanir frá æðri heimi og ægi- leg refsing lá við að óhlýðnast. Öllum leið vel og allir höfðu nóg. En allir urðu að hlýða. Undir ströngum aga varð þjóðin að mikilli menningar- og dugnaðar- þjóð og átti slíka listamenn að þess mun varla dæmi annars staðar í heiminum. Lestinni seinkaði STOKKHÓLMI — Hraðlestinni milli Stokkhólms og Málmeyjar seinkaði um 7 mínútur á dögun- um, því að eimreiðarstjórinn hafði ekki brjóst í sér til að aka yfir villikanínu, sem hafði búizt um á járnbrautarteinunum. „ÞAÐ þarf að taka föstum tökum á drykkjnskap og óreiðu......... Það verður að skapa almennings- álit, sem fordæmir slíkt fram- ferði og upprætir þann hugsun- arhátl, sem liggur til grundvallar fyrir því“. Mbl. 9. júní 1954. Morgunblaðið gerir að umtals- efni 9. þ. m. „margskonar spjöll, framin á Þingvöllum um hvíta- sunnuna". Segir blaðið frá skríls- legum aðförum ölvaðra unglinga þar og flvtur ritstjórnargrein með fyrirsögninni „Sorglegir at- burðir á Þingvöllum“. Fyrirsögn þessa greinarstúfs tek ég úr ritstjórnargreininni, Og er ég þeim ummælum alger- lega sammála. Það er hverju orði sannara, að ,.það verður að skapa almenningsálit, sem fordæmir slíkt framferði og upprætir þann hugsunarhátt, sem liggur til grundvallar fyrir því“. En nú vil ég spyrja ráðamenn Morgunblaðsins: Hverjir eiga að skapa slikt almenningsálit 0. s. frv? — Það hefir oft andað kalt frá þessu blaði til bindindismanna og allra ráðstafana gegn áfengis- nautn. Þeir, sem láta vel yfir neyzlu áfengra drykkja, skapa ekki slíkt almenningsálit, sem Mbl. nú aUt í einu kallar á. Þeir, sem neyta áfengis daglega og kenna bindindismenn við of- stæki, skapa heldur ekki almenn- ingsálit, sem fordæmir drykkju- skap. Þeir kennarar, sem neyta áfengis við öll svokölluð hátíð- leg tækifæri (og þau eru oft mörg), skapa ekki almennings- álit, hagstætt bindindisstefnunni. Þeir heimilisfeður, og þeir eru margir, sem neyta sjálfir áfengis, bæði heima og annars staðar, og veita áfengi, skapa heldur ekki almenningsálit, sem er vel fallið til þess að draga úr drykkju- skapnum, heldur þvert á móti. En lítum á, hvað Mbl. segir ennfremur! Það vill almenningsálit, sem fordæmir drykkjuskap og óreiðu og upprætir þann hugsunarhátt, sem liggur til grundvallar fyrir honum. Hugsunarhátturinn, sem ligg- ur til grundvallar fyrir drykkju- skap, er á þá leið, að öllu sé óhætt, þó að menn neyti áfengra drykkja. Hófleg neyzla þeirra sé ekki athugaverð. En allir þeir, sem eru drykkjumenn í dag, voru einu sinni hófdrykkjumenn. Eina ráðið til þess að koma í veg fyrir drykkjuskap er bindindi og ekk- ert annað en bindindi. Sá, sem því vill „uppræta þann hugsunarhátt, sem liggur til grundvallar fyrir drykkjuskapn- um“, eins og Mbl. orðar það, verður að segja sig í flokk bind- indismanna. Annars er hann „grautarhaus"! Hverjir eiga að skapa almenn- ingsálitið, sem Mbl. réttilega kall- ar á? Ekki gera þeir hinir mörgu, er nú hafa verið taldir, neitt í þá átt. Þeir halda þvert á móti við spilltu almenningsáliti, og þess vegna má búast við að at- burðirnir, sem gerðust á Þing- völlum um hvítasunnuhátíðina, endurtaki sig oft. — Það er deilt hart á veslings ungmenn- in, sem standa að atburðum eins og á Þingvöllum 1954, að Þjórsár- túni 1953 og á Hreðavatni 1952, og það er réttmætt, en ég held, að aðrir beri þyngri sök. Þeir, sem standa að drykkjutízkunni í dag og hafa skapað hana, eru ekki 15—18 ára unglingar. Það er fullorðna fólkið og einkum þeir, sem „hátt“ eru settir í þjóð- félaginu, eins og það er kallað — Þessi ungviði eru fórnarlömb drykkjutízkunnar. Forkólfar félaga, sem geta ekki hugsað sér að halda aðalfund eða árshátíð nema með áfengis- drykkju, eiga vissulega nokkra sök á því, hvernig komið er sam- kvæmisháttum í þjóðfélaginu. Heimilisfeður Og mæður, sem geta ekki hugsað sér að taka á móti gestum nema með „coctail"- drykkju, eru engan veginn laus við ábyrgðina, sem kannske þau sjálf, blöðin Og allur þorri drekk- andi fullorðins fólks skellir á æskulýðinn, þegar svo tekst til sem á Þingvöllum um seinustu helgi. Tíu ára afmæli hins íslenzka lýðveldis er í nánd. Eigum vér íslendingar að minn ast þess með því að krjúpa að altari Bakkusar með öllum þeim tilburðum, sem slíkri þjónustu eru samfara — eða eigum vér aU láta þau tíinamót oss að kenn- ingu verða og snúa lélegri vöm gegn ískvggilegum og smánarleg- um drykkjuskapar-faraldri upp « drengilega og dáðmikla sókn á hendur drykkjutizkunni í land- inu með öflugum bindindis- og menningarsamtökum, til verndar ungskóginum, börnum og ungling um, og allri íslands þjóð til bless- unar? Vill Morgunblaðið vera með og önnur lardsins blöð? Engir standa jafn vel að vígi til þess að skapa heilbrigt almennings- álit eins og blaðamennirnir. Stærsta blað landsins hefir sagt, að það verði að skapa slíkt al- menningsálit. Auðviatð stendur það við orð sín. Vér tökum það á örðinu! Þaðan eigum vér þá vísa von öflugs fylgis. Ársþing sambands íslenzkra barnakennara stendur yfir þessa dagana. Hverjum er skyldara en kennurunum (og auðvitað á öll- um skólactigum) að hefja sókn gegn mesta óvini æskunnar? Bindindisfélag íslenzkra kennara er fámennt. Látum það verða fjölmennt og athafnasamt! Biskupsvígsla og prestastefna stendur fyrir dyrum. Ég get ekki hugsað mér annað en hinn nýi biskup og prestar hans vilji fylla flokk „Bindindisfélags íslenzkra presta“, sem enn mun vera fá- mennt. — Bindindishreyfingin vill byrgja brunninn, áður en barnið er dottið ofan í hann. — Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóð- kirkju fasr hér mikið verkefni og fagurt undir stjórn hins nýja biskups. Ekki efa ég, að það muni vilja leggja hönd á plóginn. Margir tala um að hjálpa of- drykkjumönnunum, og það er vissulega gott verk. En drýgst til mikils árangurs er það starf, sem kemur í veg fyrir drykkjuskap- inn, en það er bindindisstarfsem- in, Kvennaþing munu verða haldin að venju mörg þennan bjarta júnímánuð. Við væntum þaðan mikils styrks. — Ef konurnar neita að dansa við drukkna pilta, ef konurnar neita að bera áfenga drykki á borð á heimilunum, oft að börnunum ásjáandi, ef kon- urnar hafna áfengi með öllu, vegna barnanna sinna, þá er mikill sigur unninn. Ef allir þessir aðiljar, sem nú hafa verið nefndir, vilja taka höndum saman og hefja sókn gegn drykkjutizkunni, þá mun þeim takast „að skapa almenn- ingsálit, sem fordæmir skrílslegt drykkjuskaparframferði og upp- rætir þann hugsunarhátt, sem liggur til grundvallar fyrir því“. íslendingar eiga að velja' milli bindindis annarsvegar og drykkju skapar hinsvegar. Drykkjutízkumeinið stendur djúpt, en þó ekki svo djúpt, að það verði ekki upprætt. Þú átt að velja, íslendingur, milli bindindis og drykkjutízku. Ef þú velur drykkjutízkuna, styð- ur þú að því, að minnsta kosti Framh. á bls. 12 ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.