Morgunblaðið - 03.07.1954, Side 12
12
MORGL N BLAÐIB
Laugardagur 3. júlí 1954 ]
Skemanfir að Jaðri
DANSKA dægurlagasöngkonan
Mária la Garde skemmtir í fyrsta
sinn að Jaðri í kvöld. Syngur hún
þar kl. 9.30.
— Hverjir elga...
Framh. af bls. 10
óbeint, að atburðir eins og þeir,
sem gerðust á Þingvöllum á
hvítasunnunni endurtaki sig. Það
er þyngra en tárum taki, að sjá
skólaæsku höfuðstaðarins æða
öfurölvi um hin helgu vé þjóðar
vorrar á Þingvöllum á hátíð
heilags anda. Hrýs þér ekki hugur
við, að sjá unglingana í slíkum
ham granda öllu. Eftir lýsingu
Mbl. er eins og svívirðing eyði-
leggingarinnar hafi verið þar að
verki.
Hvernig eru þeir skólar, sem
slík æska kc-mur úr? Eða er hún
svona þrátt fyrir skólavistina?
Þessar spurningar sækja á oss,
og þarf engan mann að furða á
því. Það er hið mikla umhugsun-
arefni vort á skólaöldinni miklu.
En látum ekki þar við sitja að
velta þessu fyrir oss. Leggjum
hönd á plóg bindindisstarfsem-
innar til þess að hreinsa og
rækta jarðveginn! Mannræktin
er fyrir öllu. — Enga afmælis-
gjöf getum vér gefið þjóð vorri
betri og hollari á tíu ára afmæli
lýðveldisins en að hefja sókn
gegn drykkju-faraldri þeim, sem
illu heilli á sér nú stað meðal
þjóðar vorrar.
Hverjir eiga að skapa heilbrigt
almenningsálit? Það eigum vér
að gera öll, sem látum oss annt
um framtíð þjóðar vorrar.
Brynleifur Tobiasson.
isherra.
Viðskipti Ungverja og Indónesa
BNDAPEST, 2. júlí: — Tilkynnt
var að gerður hefði verið við-
skiptasamningur milli Ungverja
og Indónesíu.
Fallegar hendur þurfa sér-
lega góða hirðingu. — Séu
hendurnar hlá-rauðar, gróf
ar og þurrar, er bezta ráð-
ið, í hvert sinn þegar hend-
urnar eru þvegnar, að nota
Rósól-Glycerin. Núið því vel
inn í hörundið. Rósól-Glyce-
rin hefur þann eiginleika,
að húðin drekkur það í sig
og við það mýkist hún. Rós-
Ól-Glycerin fitar ekki og er
því þægilegt í notkun. Mikil-
vægt er að nota það eftir
hvern handþvott, við það
verða hendurnar hvítar, húð
in mjúk og falleg. Er einnig
gott eftir rakstur.
Rósól-Glycerin
Dansieikur
í Tjarnarcafé í kvöld klukkan 9.
HLJÓMSVEIT Jósefs Felzmann.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7.
■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■
Kappreiðar
Kappreiðar Hestamannafélagsins Geysir, verða
háðar að Strönd, sunnudaginn 4. júlí kl. 3.
Fjöldi gæðinga verða reyndir í ýmsum hlaupum.
Hinn eldfjörugi dansleikur á eftir.
Nefndin.
Síldarstúlkur
Nokkrar vanar síldarstúlkur vantar til söltunarfé-
lagsins Síldin, Siglufirði. —
Fríar ferðir. — Kauptrygging. — Góðar íbúðir.
Upplýsingar í síma 2573.
Sveinbjörn Einarsson.
Skrifstofustúlka
Um næstu mánaðamót getur stúlka fengið vinnu á
skrifstofu hér í bænum, 4—6 tíma á dag. — Þarf helzt
að vera vön skrifstofustörfum. Umsóknir með meðmæl-
um, sendist Mbl. fyrir miðvikudagskvöld, merkt: „Skrif-
stofustúlka — 846“.
VETRARGARvJURINN
VETRARGARÐURINN
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■
; ÍSLENZK-AMERÍSKA FÉLAGIÐ
■
■
! SKEMMTIFUNDUR
■
■
■
• Islenzk-Ameríska félagið efnir til kvöldfagnaðar í Þjóð-
■ leikhúskjallaranum, sunnudaginn 4. júlí klukkan 9 síðd.
■
: í tilefni þjóðhátíðardags Bandaríkjanna.
5 SKEMMTIATRIÐI — DANS
■
■
■
: Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaverzlun Sigfúsar
■ Eymundssonar og við innganginn.
■
: STJÓRNIN
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld klukkan 9.
Aðgöngumiðasala frá kl. 3—4. — Sími 6710.
V. G.
DAIMSLEISÍUR
SÍMÍ
ÐIHGHtóá
i kvöld kl. 9.
Hljómsveit Svavars Gests.
Aðgöngumiðar frá kl. 6—7
í kvöld
skemmta
Maria La Garde dægurlagasöngkona og
Roy Bylund töframaður frá Liseberg í Götaborg.
Hljómsveit Carls Billich leikur.
Ferðir frá Ferðaskrifstofunni kl. 8,30.
Félagsgarður í Kjós:
SKEMMTUN
laugardaginn 3. júlí klukkan 22.
Ferð frá Ferðaskrifstofunni klukkan 21.
Ungmennafélagið „Drengur“.
Fyrir sumarleyfin
NÝ SENDING
Stuttjakkar
VERÐ FRÁ 595 KR.
QJtfoss
—Akafótrœti
— Bezt að auglysa í Morgunblaðiðinu —
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) — Það er bátur á leiðinni 2) — En sú heppni. Það er
hingað. Sjáið bara! enginn annar en hann Markús
vinur minn.
3) — Aldrei hefir það komið
mér eins vel að hitta vin minn og
einmitt nú.
4) Jói, er eitthvað að? — Já,
María hefir fengið mjög alvarlegt
taugaáfall. Hún er hættulcga
veik. ..........i