Morgunblaðið - 06.07.1954, Blaðsíða 9
I Þriðjudagui S. (69 ISÍ54 jJ
í MORGVNBIAÐIÐ
9
ísland sigraði Noreg í
þjóðanna i knattspyrnu
Markatalan varð 1:0 — en rétt-
látara hefði verið 4 gegn 2
FJÓKÐA landsleik Islendinga og Nor'Ömanna í knattspyrnu lauk með íslenzkum sigri —
I mark gegn engu. Á níunda þúsund manns sáu landsleikinn, sem einkenndist öðru frem-
Oir af óheppni beggja liða. Fjögur mörk gegn tveimur hefðu verið góð úrslit og allir farið
ánægðari heim, því vel hefði ísland mátt hafa 2:0 í hálfleik eftir marktækifærunum og
hrein óheppni var það að liðin skoruðu ekki tvö mörk hvort í síðari hálfleik. Engum
blandast hugur um að sigur íslands í leiknum var réttlátur og verðskuldaður.
SETNINGARATHÖFN
Landslig hinna norrænu frænd
þjóða hiupu hlið við hlið inn á
jeikvöllinn. Lítil telpa klædd
upphlut færði fyrirliða hins
norska liðs fagran blómvönd og
þjóðsöngvar Noregs og íslands
voru leiknir. Einföld en hátíðleg
setningarathöfn.
sem skaut föstu skoti, en varn-
arleikmanni tókst að stöðva skot-
ið áður en að marki kom.
Tveimur niínútum siðar
brýzt Ríkharður í gegn allt
frá miðju, nálgast markið á
miklum hraða, fór helzt til ná-
lægt því markiff lokaðist og
skaut — en markvörður fékk
Allkalt var í veðri og gola af
norðvestri, sem betra var að hafa
með sér en á móti. Undan þessari
golu kusu Norðmennirnir að leika
í fyrri hálfleik.
*
FYRSTA STÓRA TÆKIFÆRIÐ
Á fyrstu mínútum leiksins
þreifuðu báðir aðilar fyrir sér og
voru íslendingarnir nærgöngulli.
Á 4. mínútu kom fyrtsa skotið að
marki. Það var Pétur Georgsson
.. . .. _ : ' ...... .* *. _. ■ —.... - —
Há knattsending barst að norska markinu á 29. mín. í fyrri hálf-
leik. Þórður og Pétur fylgdu fast eftir og Þórður skoraði sigur-
rnark íslands. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
varið. Knötturinn hrökk frá
honum út á völlinn aftur. Þar
kom Þórður aðvífandi — tæki-
færið var stórkostlegt, því
markið var opið, — en óheppn
in var yfir íslendingum og
skotið lenti í markverðinum.
Þetta var fyrsta heppni Norð-
manna í leiknum.
Siðan varð leikurinn nokkuð
þófkenndur um tíma. Upphlaup
voru stöðvuð í eða skömmu eftir
fæðingu — og báðum mistókst
margt. Norðmenn gættu fram-
herjanna okkar vel, sérstakiega
Ríkharðs. Til höfuðs honum var
settur Even Hansen og fylgdi
hann honum eftir hvert sem
Rikharður fór. Þar ofan á bættist
að þegar Ríkharður losnaði við
„þenan skugga“ tókst oft illa til
fyrir honum, hann hrasaði eða
eitthvað annað kom í veg fyrir að
hann fengi gert það sem. hann
getur og gerir oftast.
HÆTTULEG UPPIILAUP
Norðmönnunum tókst heldur
ekki að ná tökum á leiknum, til
þess gáfu ísl. piltarnir þeim eng-
an tíma, og aldrei í þessum hálf-
leik áttu þeir tækifæri til marks
— utan einu sinni en því tókst
að bjarga. Dybwad (með 11 lands
leiki að baki) var þeirra bezti
maður, en í viðureign við Dag-
bjart vann hann engan sigur.
Eftir miðjan hálfleikinn færð-
ist aftur líf í leikinn og átti ísl.
liðið allmörg hættuleg upphlaup.
Á 24. mín. gerði ísl. liðið hættu-
legt upphlaup, sem lauk með því
að Þórður skallaði — en fram-
hjá. Tveim mín. síðar braust
Gunnar Gunnarsson upp mjög
laglega, gaf til Ríkharðs. Hann
lenti í viðureign við þrjá Norð-
menn og upphlaupinu varð hrund
ið. Á 27. mm. er tvivegis skotið
á mark Norðmanna. í fyrra sinn
fengu þeir bjargað á línunni, hið
síðara fór yfir.
Og enn 2 mín. síðar steðjar
mikil hæíía að norska mark-
inu. Hár knöttur kemur að
því. Þórður og Pétur fylgja
fast eftir. Þórður á í návígi við
markvörðinn sem nær ekki
knettinum — og Þórður skor-
ar. Þetta varð sigurmark ís-
lands.
Eftir þetta færðist aftur þóf í
leikinn, og fleira markvert skeði
ekki í fyrri hálfleik — utan það
að Magnús markvörður átti snilld
argott úthlaup og bjargaði ef til
vill með því marki.
LEIKURINN VERÐUR
JAFNARI
Síðari hálfleikur var mjög
jafn. fsl. liðið hafði yfirhöndina
fyrstu mínúturnar, en þá tóku
Norðmenn frumkvæðið og sýndu
nokkra yfirburði um tíma, án
þessa að skapa sér nema 2 hættu-
leg tækifæri. Um miðjan hálfleik-
inn sóttu íslendingarnir sig aftur
og hrein óheppni var að þeir
skildu ekki skora. Síðustu mínút-
urnar urðu aftur jafnar.
Þegar á 2. mín. hálfleiksins er
Ríkharður kominn upp að mark-
inu, eftir að hafa fengið góða
sendingu frá Gunnari. En mark-
íslenzka landsliðið er sigraði. Að framan frá vinstri: GuðjÓA
Finnbogason, Pétur Georgsson, Magnús Jónsson, Karl Guðmund -
son og Halldór Sigurbjrnsson. Aftari röð frá vinstri: Einar Hall-
dórsson, Gunnar Gunnarsson, Dagbjartur Hannesson, Ríkharðuir
Jónsson, Þórður Þórðarson og Sveinn Teitsson.
(Ljósm. Mbl. Ói. K. M.)
vörðurinn náði knettinum af
tánum á Ríkharði. Á 15. mín.
komst Ragnar Larsen (h. inn-
herji) inn fyrir og skaut — en
rétt yfir. Nokkrum sekundum
síðar á Dybwad gott upphlaup og
gott markskot — en Magnús var
hárrétt staðsettur og varði. Á 17.
mín. leikur Ríkharður upp að
endimörkum og gefur vel fyrir.
Þórður tekur við — vippar knett
inum að markinu en Aronsen
varði. Örstuttu síðar tekst Norð-
mönnum að verja naumlega — í
horn. Á. 20. mín. á Pétur gott
markskot — en rétt ofan við slá.
Á 21. mín. kemst Ragnar Larsen
aftur í dauðafæri. Hann komst
inn fyrir vörnina, Magnús hijóp
á móti honum — en Ragnar gat
Þórður miðframherji fylgdi allt-
af fast eftir. Hér sést hann í
návígi (allundarlegu þó) við
Aronsen og Falck. Þetta tókst
ver hjá Þórði en efni stóðu til.
Augnabliki eftir þetta „heljar-
stökk“ Þórðar, sem minnir helzt
á hástökk Gunnars á Hlíðarenda,
féllu þeir báðir Aronsen og hann,
— en knötturinn vildi ekki í
norska markið. En söm var gerð
Þórðar. — (Ljósm. Ót K. M.)
Á 6. mín. brauzt Ríkharður upp frá miðju allt upp undir markteig
og skaut, en Aronsen varði. Knötturinn hrökk út á völlinn, Þórð-
ur kom aðvífandi. Tækifærið var stórt — en óheppnin var yfir
ísl. liðinu. Skot Þórðar kom í bak markvarðarins er var að standa
á fætuc (Það sést í handlegg Ríkliarðar t. h.) (Ljósm. Bj. Bjarnl.)
Nokkru fyrir leikslok.fékk Ilalldór knöttinn upp við norska mark
ið. Hann skallaði og hitti upp undir stöng. Undantekning er ef
slíkt verður ekki mark — en þetta varð undantekningin. Knött
urinn fór hálfur inn í markið. Það var nóg — fyrir Norðmenn.
(Ljósm. Bj. Bjarnleifsson).
skotið framhjá honum — en
knötturinn rennur rétt utan við
markstöngina á auðu markinu.
/
KNÖTTURINN HÁLFUR
í MARKINU
Þetta var mesta óheppni
Norðmanna í leiknum. Ee.
stuttu síðar gátu þeir hrósað
mesta happi sínu í leiknum.
Halldór Sigurbjömsson fékk
knöttinn upp að markinn,
skallar og knötturinn lendir
upp undir þverslána. Undan-
tekning er ef slíkt leiðir ekki
til marks. En hér skeði und-
antekningin. Knötturinn fór
ekki nema hálfur inn í mark-
ið — og það var nóg fyrir
Norðmenn. Leikmönnum félt
allur ketill í eld yfir þessaii,
óheppni og hin hættulegu tæhí
færi urðu ekki fleiri — og
þannig hafði ísland sigrað
Noreg með 1 marki gegn engw,
en áður hafa Norðmenn þrí-
vegis sigrað íslendinga.
Dómari var Guðjón Einart-
son og dæmdi vel.
LIÐIN
Allir vita að þetta mun ekki
vera sterkasta lið sem Norðmenn.
geta sett saman. Hins vegar eiga
þeir marga góða knattspyrnu-
menn og eiga af þeim sökum auð-
velt með að stilla upp tveim góð-
um liðum. í okkar fámenni er
deilt um það, heiftarlega oft,
hverjir skipa eiga landslið. Erf-
iðara ætti að vera að velja lands-
lið í Noregi þar sem fjöldi knatt-
spyrnumannanna er svo marg-
falt meiri. Og þeir menn sem eru
að berjast við að komast í aðal-
liðið eru í flestum tilfellum ákaf-
ari og hættulegri en þeir sem
þegar hafa þar nokkuð öruggt
sæti.
Þetta norska lið var"heilsteypt
■ en hefur engum afburðamönn-
um á að skipa. Þó ber mest á
Dybwad miðframherja, sem er
þaulreyndur knattspyrnumaður
(11 landsleikir), Falck miðfram-
verði og bakvörðunum Brögárd
og Lökkeberg, sem allir eru
traustir leikmenn og gefa ekki.
hlut sinn fyrr en í fulla hnefana.
Ragnar Larsen (h. innherji) er
fljótastur framherjanna og vinn-
ur mikið og honum mistókst
herfilega tvívegis á sunnudaginn.
Framverðirnir Pettersen og Hnn-
sen vinna og mikið. Hansen „lá‘*
fast á Rikharði og markvörður-
inn átti einna erfiðastan dag. —
Hann er góður en var einnig
heppinn og slapp vel frá leiknum.
Þó ísl. liðinu hafi ckki tekizli
upp átti það góðan leik. Magnús
varði það sem til hans barst —.
en á hann reyndi enki mikið f
leiknum. Karl og Einar átti góð-
an leik-----og þó Einar betri.
Þetta er staða sem hann á að
skipa, en gífelldur flutningur
Framh. á bls. 12
fjórða landsleik