Morgunblaðið - 08.07.1954, Blaðsíða 1
lé síður
41 áigangax.
152. tbl. — Fimmtudagur 8. júlí 1954
PrentsmiSja Morgunblaðsins
Kuldakröm og úrheiHs-
rigning á megnlandinu
Næiurfresfa vart
í Ardennafjöllum
PARÍS 7. júlí:
Einkaskeyti frá Reuter
ÞETTA er kaldasta sumar í
Vestur Evrópu sem menn
muna eftir. Parísarbúar vakna
á hverjum morgni við dynj-
andi rigningu á húsþökum og
er þeir ganga um göturnar
grípur þá kuldahrollur og
skjálfti. Rorgarbúar eru nú
næstum orðnir úrkula vonar
um að nokkuð sumar komi,
einkum þar sem veðurfræð-
ingar hafa spáð því að út þenn
an mánuð verði kalsaveður og
rigning í Frakklandi.
] SUMARLEYFAFERBUM
*FRESTAÐ
Sumarkuldarnir.gera það að
verkum, að fólk reynir að
fresta sumarleyfum sínum eins
lengi og bægt er í þeirri von
að haustið verði sólríkara. Hef
ur sú frestun alvarleg áhrif í
för með sér fyrir ferðaskrif-
stofur og strætisvagnafélög.
Orðið hefur að aflýsa flestum
sumarleyfaferðum vegna þess
að væntanlegir þátttakendur
afpöntuðu farseðlana.
[B NÆTURFROST
^ I BELGÍU
Menn muna aldrei eftir svo
köldu sumri í París. í Haag
hefur ekki verið svo kalt síðan
1903. í Brússel er hitinn undir
tíu stigum og í Ardennafjöll-
um ofar í landinu hefur gætt
næturfrosta.
] HITABYLGJA
YFIR RÚSSA
Aðrar fregnir berast frá
löndunum austan járntjalds.
Moskvu-útvarpið tilkynnir að
hitabylgja gangi um Rúss-
land. í Moskva var 34 stiga
hiti og í borginni Arkangelsk
norður við Ishaf mældist hit-
inn í skugga 33 stig á Celsius.
Raforka sennilega leidd
- ' s
frá Laxá til Austurlands
Fallin stjarna
Lysenko prófessor í líffræði var
í 7 ár sú stjarna, sem hæst skein
á himni vísinda Sovétríkjanna.
Hann naut lengi hylli valdhaf-
anna. Nú eru kenningar hans
sagðar falsspádómar.
Liffræðitímaritið rússneska lýsir kenn-
ingar Lysenkos falskenningar einar,
sem valdið hafi stórkostlegu tjóni
Hafist handa um sérvirkjanir á Vest-
fjörðum í sumar.
ALLAR LÍKUR benda nú til þess, að raforka verði leidd frá
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu til Austurlands. Mundi þá verða
horfið frá virkjun Lagarfoss í bili eins og rætt hefur verið um.
Það er nýung í flutningi raforku, sem gerir það kleift að flytja
hana svo langa leið milli Landshluta eftir streng, án háspennu-
stöðva á leiðinni.
Þá hefur Mbl. og áreiðanlegar heimildir fyrir því, að samvirkj-
un fyrir Vestfirði við Dynjanda sé í bili ekki talin hagkvæm lausn
á raforkumálum Vestfjarða. Er því talið líklegast að ráðist verði
þar í sérvirkjanir fyrir einstök byggðarlög í Barðastrandasýslu
og ísafjarðarsýslum.
Eiga Kínveriar
heinsa í S.Þ.?
Gagnvart þeirrf staðreynd að rússneskum
landbúnaði hefur hrakað. ætfa rússneskir
vaidsmenn að skella skuldinni á Lysenkó.
LONDON, 7. júlí. — Einkaskeyti frá Reuter.
NÚ ER svo komið að rússneski vísindaskrumarinn Trofin Lysenko,
sem naut svo mikillar hylli á dögum Stalins, á ekki upp á
pallborðið hjá stjórn Malenkovs. Virðist nú allt útlit fyrir að
sovét-Iíffræðikenningar hans, sem eitt sinn voru sagðar grunci-
völlur allra sovétskra vísinda, verði opinberlega yfirlýstar kák
eitt og gersamlega rangar að niðurstöðum.
j LYSENKO ÞÓTTIST BÚA
TIL NÝ BLÓM
Meginefnið í kenningum Lys-
enkos var að plöntur, sem og
allar aðrar lifandi verur gætu
gerbreyzt að eðli til eftir því í
hvaða umhverfi þær væru. Þótt-
ist Lysenko þannig geta fram-
leitt algerlega nýjar tegundir
nytjajurta með fitli á einstokum
plöntum.
u SAMRÝMDIST ÓSKUM
VALDHAFANNA
Forsprökkum kommúnista
geðjaðist einkar vel að þess-
um kenningum Lysenkos,
vegna þess að samkvæmt
þeim virtist ljóst að með því
að halda fólki um langt ára-
bil undir kúgun kommúnista-
stjórnar, myndi bráðlega
myndast nýtt mannkyn, sem
sætti sig við kúgun valdhaf-
anna, hefði enga dulda frels-
isþrá til að bera, en sætti sig
möglunarlaust við það að
vera vélrænt stykki í fram-
tíðar-skipulagi kommúnista.
Helxti ávöxturinn af kenning-
lim Lysenkovs er að öll rússnesk
blöð hafa verið yfirfull af grein-
um og frásögnum um að rúss-
neskir vísindamenn hafi fundið
upp undra-korntegundir og
undra-ávexti, sem gefi margfalda
uppskeru á við það, sem áður
hafi verið, frásagnir af því að
kornrækt sé framkvæmanleg með
nýjum tegundum í freðmýrum
heimskautalandanna o. s. frv.
FLÓÐ LYSENKO-ÁRÓBURS
En þrátt fyrir margra ára áróð-
ur neyddust valdhafarnir til að
viðurkenna það síðastliðinn vet-
ur, að ástandið í landbúnaði
hefði aldrei verið verra en ein-
mitt nú. Kornrækt hefði stór-
hrakað svo að Rússar, sem áður
voru stærsta kornræktarþjóð
heimsins hafi nú ekki' nóg korn
fyrir sjálfa sig.
HEFUR VALDID STÓRTJÓNI
Um leið og rússnesku vald-
hafarnir viðurkenna mistök
þau, sem orðið hafa i landbún
aðinum, virðast þeir vera æ
betur að sjá að líffræðikenn-
ingar Lysenkos eru skrum eitt,
sem alls ekki styðjast við veru
leikann. Hefur þess gætt síð-
ustu mánuði að allmargar
greinar hafa birzt í blöðum og
tímaritum, þar sem kenningar
Lysenkos eru lýstar falsaðar.
Vekur það sérstaka athygli að
höfuðgreinin í síðasta hefti
tímarits rússneskra líffræð
inga fjallar um þetta mál og
er því slegið þar föstu, að allar
kenningar Lysenkos séu alger-
lega rangar og falsaðar af á-
settu ráði. Segir í greininni,
að það hafi valdið rússneskum
landbúnaði stórkostlegu tjóni
að menn aðhylltust kenningar
Lysenkos um tíma.
Washington 7. júlí
Einkaskeyti frá Reuter.
EISENHOWER lýsti því yfir
á blaðamannafundi að eins og
á stæði í alþjóðamálum gætu
Bandaríkin ekki fallizt á að
kínverska kommúnistastjórn-
in fengi inngöngu í Samein-
uðu Þjóðirnar.
Hann kvað það álit Banda-
ríkjastjórnar að framkoma
Kínverja í viðskiptum milli
þjóða væri slík að það sam-
rýmdist ekki efni og anda
stofnskrár S.Þ. Hann sagði að Samkvæmt
eitt frumskilyrðið fyrir inn-
göngu í S.Þ. væri vilji til að
leysa alþjóðadeilur. Kín-
verska kommúnistastjórnin
hefði hinsvegar komið fram
með slíkum ofstopa á alþjóð-
vettvangi, að það sýndi lítinn
sáttavilja.
« FRAMKVÆMDIR HEFJAST
Eins og kunnugt er hefur ver-
ið ráðgert að hefjast handa um
raforkuframkvæmdir samtímis á
Vestfjörðum og Austurlandi. Má
telja fullvíst að það verði gert í
sumar jafnskjótt og endanleg
ákvörðun hefur verið tekin um,
hvernig virkjunum skuli hagað.
Hefur raforkumálastjórnin unnið
að því af kappi undanfarna mán-
uði að undirbúa þessar fram-
kvæmdir og gera samanburð á
þeim leiðum, sem til greina hafa
komið við lausn raforkumála þess
ara landshluta.
Skviidiráðstaf-
anir Dana í gjald-
eyrismálum
KAUPMANNAHÖFN, 7. júlí: —
Danska ríkisstjórnin tilkynnti í
dag að sérstakar ráðstafanir
yrðu þegar gerðar vegna gjald-
eyrisskortsins. Er hér aðeins um
að ræða framkvæmdaatriði, sem
geta gengið í gildi án aðgerða
löggjafarþingsins. Virðist sem
andstöðuflokkarnir séu samþykk-
ir þessum aðgerðum. Helztu að-
gerðir eru sem hér segir:
1) Ríkisútgjöld verða skorin
niður um 150 milljónir króna á
yfirstandandi fjárhagsári.
2) Gjaldeyrir sem úthlutað er
til kaupa á bílum s&al seldur á
Framh. á bls. 2
Kommúnistar boða fall Hanoi eftir viku
HANOI, 7. júlí. — Einkaskeyti frá Reuter.
FLUGUMENN kommúnista í borginni Hanoi dreifðu s. 1. nótt nokkrum fjölrituðum flugmiðum,
þar sem þeir staðhæfa að Hanoi verði fallin innan viku, eða fyrir þjóðhátíðardag Frakka 14. júlí.
Yfirhershöfðingi Frakka í Indó-Kína, Paul Ely, kom í dag til Hanoi frá Saigon. Hann mun hafa
í skjalatösku sinni hernaðaráætlun frönsku stjórnarinnar. Enginn veit, hvað hún felur í sér, en
almenningi í borginni er það Ijóst, að þar getur verið um að ræða að Frakkar yfirgefi Hanoi vegna
þess að þeir geti ekki varið járnbrautarlínuna frá ströndinni. Er búizt við að 70 þúsund manna lið
kommúnista geri tilraun á næstunni til að rjúfa sambandið og einangra Hanoi.
SPARAR MIKIÐ FE
Líklegast er að byrjað verði
þegar í sumar að leggja streng-
inn frá Laxá til Austurlandsins.
upplýsingum sem
blaðið hefur fengið mun þessi
framkvæmd sennilega spara yfir
20 millj. króna við lausn raforku
mála Austurlands, miðað við að
Lagarfoss hefði verið virkjaður.
Síðar er svo hægt, ef nágrenni
Laxárvirkjunarinnar skortir raf-
orku að leiða rafmagn þangað frá
Lagarfossi eftir að hann hefði
verið virkjaður. En mikil orka er
nú ónotuð í hinu nýja orkuveri
í Laxá.
Á Vestfjörðum er sennilegt að
hafist verði í sumar handa um
virkjunarframkvæmdir í Bol-
ungarvík og e. t. v. fleiri stöðum.
En virkjun í Fossá hefur þar ver-
ið undirbúin í áratugi.
Haile keisari á flakki
AÞENA 7. júlí: — Haile Selassie
keisari Etíópíu er nú á ferðalagi
um Vesturlönd. Ákveðið er að
hann heimsæki bæði einræðis-
herrann Tito og Grikklandskon-
ung. Hann mun ferðast nokkra
stund um Grikkland og sækja m.
a. heim munkana á Athos-fjalli.
AUGLYSINGAR
sem birtast eiga f
Sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa borizt
fyrir kl. 6
á föstudag