Morgunblaðið - 14.07.1954, Síða 2
MORGUNBLAÐIB
Miðvikudagur 14. júlí 1954 |
— Samtal við Ismay
| Framh. af bla. 1 i
en ekki ef herkostnaður þeirra
væri svo mikill að þær gætu
ekki risið undir honum og
! efnahagsmái þcirra kæmust í
1 öngþveiti af því. Hafa verð-
nr þctta tvennt í huga, annars
vegar að æskilegt er að styrkja
hervarnirnar sem mest, en
hins vegar að efnahagsgeta
' þjóðanna í þessum efnum er
mjög takmörkuð.
í BANDALAGINU
AF FÚSUM VILJA
Framkvæmdastjórinn sagði að
Atlantshafsbandalagið væri al-
jíjóðasamtök þjóða, þar sem hver
wteðlimsþjóð yrði að leggja nokk-
•uð af mörkum, fórna nokkru til
•að ná sameiginlegu marki.
—‘En meðlimsþjóðirnar fórna
•engu af sjálfsákvörðunarrétti sín-
um. Þær gengu í bandalagið og
starfa í því af frjálsum vilja.
l>ær hafa falið yfirstjórn herja
«inna alþjóðastofnun og hefur
wtíkt að vísu sært stærilæti
sumra, því að slíkt framsal her-
stjórnar af fúsum vilja ,er ein-
siætt á friðartímum.
TÍSINDI OG TÆKNI GERA
VEGALENGDIR AÐ ENGU
Er Ismay var spurður, hver
jiauðsyn væri á dvöl herliðs á
■íslandi, svaraði hann:
o — Erlent herlið hefur
bækistöðvar í fieiri löndum.
Það er einföld og skýr ástæða
fyrir því að staðsetning þess
hefur reynzt óhjákvæmileg.
Ástæðan er að ef styrjöld
brýzt út, þá gerist það mjög
skyndilega og að óvörum. Er
þá nauðsynlegt að herlið sé
á staðnum til varnar og til að
' búa í haginn fyrir aukiðhjálp-
arlið.
• Það er staðreynd, sem
við skulum ekki gleyma að
vísindi og tækni hafa gert
vegalengdir að engu. Við lif-
’ um ekki á sömu tímum og
1 þeim þegar sóknarhraði var
ákveðinn af gönguhraða fót-
gönguliða, því að nú eru flug-
vélarnar komnar til sögunnar,
' sem geysast áfram með 500
xnílna hraða á klst. eða meir.
i
MIKIL ÁHÆTTA
• ísland hefur mikla
hernaðarlega þýðingu. Það er
staðsett mitt á milli tveggja
heimsálfna, Evrópu og Amer-
íku, við lífæðina yfir Atlants-
I hafið. Eg álít þess vegna, sagði
' Ismay lávarður, að íslending-
ar tækju á sig stórkostlega á-
hættu, ef ekkert varnarlið
væri hér.
KÚSSAR
MÆTA Á FUNDUM
— Álítið þér að stefna Rússa
uíðustu mánuðina hafi breytzt í
líiðsamlegra horf.
— Þetta er spurning, sem Rúss-
au- einir geta svarað, það er ekki
éott fyrir mig að segja hvað þeir
aetla sér fyrir. Þeir hafa að
minnsta kosti breytt um aðferð-
ir. Nú hafa þeir fengizt til að
koma á fundi með fulltrúum
"vestrænna rikja og ræða við þá
Tim deiluefnin. En ennþá hefur
hvergi orðið vart við raunveru-
lega stefnubreytingu. Vestur-
•vcldin munu jafnan vera fús að
.ganga hálfa leið íil móts við
Sovétríkin. Um þessar mundir
stendur -yfir Genfar-ráðstefnan.
San er eftir að sjá hvort Rússar
•vilja samkomulag en það væri
óskandi að svo væri.
STÓRKOSTLEGUR
■VTGBÚNAÐUR RÚSSA
Hann gat þess að Rússar hefðu
lítið aukið herstyrk sinn að tölu.
Ilins vegar hefðu þeir varið stór-
kostlegu fé til að endurbæta her-
i>m og búa hann nýtízku tækjum.
Sarrt dæmi nefndi hann að fjöldi
xússneskra herflugvela hefði síð-
ustu ár haldizt nokkuð stöðugur
ctg jafn kringum 20 þúsund. —
IFyrir þremur árum hefðu að-
jeins 3% flugvéla þeirra verið
knúnar þrýstiloftshreyflum, en
risaátak þeirra í vígbúnaði mætti
sjá af því að nú væru nær allar
þessar 20 þúsund herflugvélar
knúnar þrýstiloftshreyflum bæði
orustuflugvélar og sprengjuflug-
vélar.
Þá sagði hann að Rússar hefðu
enn 175 herfylki landhers viðbú-
in og hefðu komið upp á síðustu
árum um 80 herfylkjum í lepp-
ríkjum sínum. Móti þessu réðu
Vesturveldin yfir um 90 herfylkj-
um, sem væru reiðubúin með 30
daga fyrirvara. Þarna er að vísu
mikill styrkleikamunur, en samt
ekki eins mikill eins og áður en
A-bandalagið var stofnað, þegar
varnir Vestur-Evrópu voru sama
og engar.
EF FRIÐUR KEMST Á
Að lokum mælti Ismay lávarð-
ur á þessa leið:
-— Fólk álítur að Atlantshafs-
bandalagið sé eingöngu varnar-
bandalag á hernaðarvísu. En það
er mikilvægt að benda á það að
í 2. grein stofnsamningsins er
tekið fram að bandalagið leggi
áherzlu á samstarf í félagsmál-
um, menningar- og efnahagsmál-
um.
•k Ef sú bæn okkar skyldi ræt-
ast að friðsamlegra verði í
heiminum og við þurfum ekki
að eyða eins miklu fé í víg-
búnað, þá er ekki þar með
sagt að hlutverki bandalagsins
sé lokið, heldur munu þjóð-
irnar þá starfa saman að mál-
efnum friðarins og samstarfið
mun einnig gera þau sterk í
friði. Þannig munu Atlants-
hafsþjóðirnar geta lifað sam-
an eins og stór fjölskylda. —
Þetta er þó aðeins byrjunin,
því að lokatakmarkið hlýtur
að vera að allar þjóðir heims
geti lifað saman í ást og ein-
drægni.
- Rigningarnar
Frh. af bls. 1.
Austurríki kostað 33 mannslíf.
Nær Þýzkalandslandamærunum
hafði vatnið nokkuð sjatnað, en
s.l. nótt rigndi mikið í Suður-
Þýzkalandi og óttast menn að
það kunni að hafa mjög alvar-
legar afleiðingar. Engin af stærri
vatnsstíflum í Bæjaralandi hefur
enn gefið sig, en óvíst hvort þær
þola svo mikinn vatnsþunga þeg-
ar til lengdar lætur.
Prag-útvarpið tilkynnti í dag,
að gcysimikið tjón hefði orðið
á uppskeru í landinu. Auk þess
sem flóð er i Dóná hafa ýmsar
smærri ár flætt yfir bakka sína
með þeim afleiðingum að herlið
hefur orðið að flytja íbúa fjölda
þoii>a á brott. Frá Budapest ber-
ast fregnir um að stórir bæjar-
hlutar hafi verið yfirgefnir, þar
sem ljóst þykir að flóðið nái þeim
í nótt. Flóð eru í Austur-Þýzka
landi og haía að minnsta kosti
12 manns látið lífið.
Dr. Sigurði Helgasyni boðin
staða við einn stærsfa verk-
fræðiháskóla Bandarfklanna
DR. SIGURÐUR Helgason fór í gærkvöldi með flugvél til Ameríka
eftir að hafa dvalizt hér á landi í nokkrar vikur. Sigurður tók
meistarapróf í stærðfræði í Kaupmannahöfn 1952, og þar hlaut
hann einnig gullverðlaun háskólans fyrir stærðfræðilega ritgerð,
eins og blaðið hefur áður getið. Síðan hefur hann verið í 2 ár við
háskólann í Princeton í Bandaríkjunum, en sá skóli telur í starfs-
liði sínu marga kunna stærðfræðinga.
DOKTORSRITGERÐ
SIGURÐAR
Sigurður vann þar m. a. að
doktorsritgerð ,sem heitir „Ban-
ach algebras and almost periodic
functions". Eru „Banach algebr-
as“ kenndar við frægan pólskan
lijólkin í
mesti smitberi
berklaveikinoar
i
VESTUR-ÞÝZKALANDI veiktust síðast liðið ár 41 þús. manns
af berklum. Sama ár dóu 18 þúsundir af sjúkdómum. Orsök
svo mikillar útbreiðslu berklanna er talin vera mjólkin. í Vestur-
Þýzkalandi eru sárafá býli, sem búsmalinn er ekki meira eða minna
smitaður af berklum, sérstaklega nautgripir. Veikin berst síðan
með mjólkinni inn á heimilin og veikin breiðist út. I héraðinu
Bayern kom í ljós við rannsókn að í öllu héraðinu voru aðeins 26
heilbrigðar kýr, og í Schleswig-Holstein aðeins 16. Ekki voru samt
sem áður allar veiku skepnurnar smitbérar.
í mörgum tilfellum eru aðeins hangandi sverð yfir bæði heim-
einn eða tveir gripir á hverjum
búgarði sem eru smitberar, en
þeir eru samt sem áður eins og
Slysið við Hiðfjarðará:
Tveir mannanna i sjúkra-
húsi á Hvammstanga
O
Bíliinn bilaði í braffri brekku og fór í ána
SLYSIÐ við Miðfjarðará í fyrradag vildi til með þeim hætti, að
bíllinn bilaði í brattri brekku, og fékk bílstjórinn ekkert að
gert til að forða slysinu. — I gær voru tveir hinna þriggja manna,
sem í bílnum voru, enn í sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
HEMLARNIR I OLAGI
Mennirnir í bílnum voru að
fara í sumarfrí. Bílinn á Jón
Tryggvason, kaupmaður að Búr-
felli í Miðfirði. Piltarnir höfðu
veitt því eftirtekt, að hemlar
bílsins voru í ólagi. Ætluðu þeir
þá að aka heim að Laugarbökk-
um, en þar er bifreiðaverkstæði.
Er þetta rétt hjá Miðfjarðarár-
brúnni.
BILNUM IIVOLFIR
Þegar ekið er heim að Laugar-
bökkum, verður að aka yfir all-
bratta brekku, en í henni drap
bíllinn á sér. Bíllinn, sem var að
mestu hemlalaus, rann niður að
brúnni og norður fyrir hana, en
þar er bakkinn snarbrattur.
Hvolfdi bílnum þar og kom hann
á hjólin út í ána. Þar stóð hann
að mestu í kafi í vatni, því að
þakið á bílnum lagðist inn í velt-
unni.
Rétt hjá brúnni var af hend-
ingu staddur á jeppabíl sínum,
Ingólfur Guðnason, bifvélavirki,
sem vinnur á verkstæði því, sem
þeir félagar ætluðu að láta lag-
færa bílinn. Sá Ingólfur er slysið
varð og fór mönnunum þegar til
hjálpar.
Óð Ingólfur út í ána að bíln-
um og kom fyrst að Jóni Har-
aldssyni, Mávahlíð 22. — Lá
hann að nokkru út úr bílnum
og var efri hluti líkamans
undir vatnsborðinu. Var Jón
þá með öllu meðvitundarlaus.
Félagar hans tveir, Leifur
Jónsson, Skógargerði 4 og
Halldór II. Þorgrímsson, Há-
teigsvegi 17, voru inni í bíln-
um og virtust hvorugur vera
með fullri meðvitund. Ingólf-
ur dró þá báða út úr bílnum
og upp á árbakkann, þar sem
þeim var borgið. Allir voru
þeir meira og minna meiddir.
í SJÚKRAHÚSINU
I sjúkrahúsinu á Hvamms-
tanga gerði Hörður Þorleifsson
cand. med., áðstoðarlæknir, að
sárum þeirra. — Leifur Jónsson
hafði gengið úr mjaðmarlið og
gekk vel að koma í liðinn eftir
að Leifur hafði verig svæfður.
Jón Haraldsson hafði skorizt illa
á höfði, hlotið skurð á enni og
hnakka og fengið heilahristing.
Þeir voru báðir enn í sjúkrahús-
inu í gær og voru við góða líðan.
Mun Leifur þurfa að liggja rúm-
fastur í hálfan mánuð en Jón í
nokkra daga. Félagi þeirra, Hall-
dór, slapp lítið meiddur, en
fékk taugaáfall.
Það er skoðun manna, sem
bezt þekkja til, að Ingólfur
Guðnason, bifvélavirki, hafi sýnt
frábært snarræði og dugnað, og
bjargað mönnunum þrem frá
drukknun.
ilisfólki og öðrum búsmala. Mjólk
þessara kúa, er ef til vill helit
saman við aðra mjólk og smitar
hana um leið. Mest hætta er vit-
anlega búin þeim sem hirða grip-
ina og svo börnum sem neyta
mjólkurinnar.
KOSTAR LANDIÐ OF FJAR
Þessir nautgripaberklar hafa
kostað Vestur-Þýzkaland of fjár
á hverju ári, fyrir utan líf mörg
þúsund manna. Á síðustu árum
er talið að 275 milljónir marka
hafi tapazt beinlínis vegna þess-
arar sýki í nautgripunum. Mikil
gremja hefur gert vart við sig
meðal mjólkurneytenda, gagnvart
því að stjórnarvöldin skuli ekki
taka málið alvarlega fyrir og ráða
á einhvern hátt bót á þessu.
HORFIR TIL VANDRÆÐA
Ýmiss konar ráðstafanir hafa
verið gerðar, þótt ekki séu full-
nægjandi, til þess að koma í veg
fyrir útbreiðslu berklanna. En
óttinn við mjólkina er orðinn svo
mikill, að fólk þorir varla að
kaupa hana. Rétt fyrir utan Ham-
borg er til dæmis stórt mjólkur-
bú, sem framleiðir 20 þús. lítra
á dag. Öll þessi mjólk er frá
, heimilum þar sem nákvæm rann-
sókn hefur farið fram á kúnum
og þær eru ekki smitberar. Yfir-
völdin bönnuðu þessari mjólkur-
stöð samt sem áður að selja nokk-
urn líter af mjólkinni vegna
hræðslu við sýkina þar sem vitað
var að hún kom frá heimilum,
þar sem veikin var til í kúnum.
Fjöldi annarra landa hefur átt
í miklu stríði með að útrýma
berklum í nautgripum, til dæmis
Danmörk og Svíþjóð, og einnig
Bandaríkin. Það tók Bandaríkin
25 ár að lækka tölu berklaveikra
kúa úr 55% niður í 0,5%.
stærðfræðing, sem er látinn fyrir
nokkrum árum, en „almost peri-
odic functions" heitir á ensku
stærðfræðigrein, sem Harald
Bohr í Kaupmannahöfn, bróðir
eðlisfræðingsins Niels Bohr, var
NEW YORK, 13. júlí. — Hin
nýja ríkisstjórn Guatemala hef-
ur sent Öryggisráðinu skeyti þar
sem þess er óskað að kæra fyrr-
verandi stjórnar vegna uppreisn-
arinnar í Guatemala verði tekin
út af málefnaskrá. Skýrir núver-
andi herforingjastjórn frá því að
komin sé kyrrð á í landinu.
— Reuter.
Dr. Sigurður Helgason.
upphafsmaður að, en fjölmargir
aðrir stærðfræðingar hafa aukið
og umbætt. — Tengir Sigurður
þessi tvö svið saman í ritgerð
MUN VINNA AÐ SJALF-
STÆÐUM RANNSÓKNUM
Að loknu doktorsprófi fékk
Sigurður tilboð um starf við
Massachusetts Institute of
Technology, sem er annar
tveggja stærstu verkfræðihá-
skóla Bandaríkjanna, en þar eru
stundaðar margvíslegar háskóla-
greinar auk venjulegrar verk-
fræði. Kennir Sigurður þar hærri
stærðfræði, en mun auk þess hafa
rúman tíma til sjálfstæðra rann-
sókna, og önnur skilyrði til a3>
vinna að þeim eru að sjálfsögðu
góð.
Ekki mun enn fullráðið, a9
hann verði þarna nema eitt ár,
og er vonandi, að ísland megi í
framtíðinni njóta hæfileika hans,
en Sigurður hefur þegar unnið
sér mikinn frama í námi sínu og
rannsóknum.
Frelstsstyffan
r
a
M
ÞETTA nýja frímerki var gefic
út af Bandaríkjastjórn 8. aprí
s. 1. Er það af hinu fræga líknesk.
Frelsisgyðjunnar við innsigling
orðin „treystum Guði“ boga yfh
höfði gyðjunnar.
Frímerkið er prentað í rauð
um, hvítum og bláum lit.
<