Morgunblaðið - 14.07.1954, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.07.1954, Blaðsíða 14
u MORGVNBLABIB Miðvikudagur 14. júlí 1954 | Skugginn og tindnrinn SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASON Framhaldssagan 83 „Hvert eruð þér að fara, herra JjOckwood?“ „Ég ætla að vita, hvernig Silvíu líður.“ „Skilið þér þá til hennar að ég -,'oni að henni batni fljótt." Hann gekk á milli dýnanna t< am á ganginn. Þar var ljóslaust *.vo hann þreifaði sig áfram eftit veggnum og hugsaði um leið með fciálfum sér að sennilega væri X'cssi ótti hans ástæðulaus. Sarot *var hann stirður af skelfingu áð- * ii en hann fann hurðarhúninn að herberginu við hliðina á bóka- safninu. Það var Ijósker inni uppi á bókahillu, en loginn var lítill, t,vo hálfrokkið var í herberginu. Itann sá hvar frú Morgan sat á .siólnum. Fyrst sýndist honum Silvía liggja á dýnunni uppi á oorðinu. Hann gekk nær, en þá i>á hann að það var bara ábreið- iii. Hann tók ábreiðuna upp eins og hann hefði búist við að hún væri undir henni og starði á hvít .1 ökin. Á meðan hann stóð þarna lyngdi snöggvast og þá heyrði hann hægan andardrátt. Það var íi ú Morgan sem svaf vært. Hann oleppti ábreiðunni, gekk til henn- <ii og histi hana. Um leið datt •tómt lyfjaglas úr keltu hennar og niður á gólfið. Vindinn lægði með morgninum. Ctuggahlerarnir hættu að skell- < '.st og þögn ríkti blessunarlega yfir stóra skólahúsinu. „Jæja, þá er það búið“, sagði Morgan. „Við vorum heppin, J'etta var ekki slæmur hvirfil- bylur eftir því sem þeir geta ot ðið.“ Börnin teygðu sig og horfðu í l ringum sig stórum augum. „Þig skuluð vera kyrr augna- blik hér í bókasafninu", sagði 1‘awley. Svo gekk hann til 3)ouglas og hvíslaði að honum: ,.Þér munið hvað ég sagði við yður, Lockwood." „Mér er sama hvað þér segið öðrum“, sagði Douglas. „Við verðum öll að segja það sama.“ „Hvers vegna er ekki betra að komast að því fyrst hvað raun- verulega hefur skeð?“ „Ég er hræddur u.m að við getum getið okkur þess til.“ Það var líka sennilegt. Douglas hafði verið úti meg Morgan og Duffield en auðvitað hafði leitin verið árangurslaus. Það hafði verið illmögulegt að halda jafn- vægi í storminum, svo þeir höfðu orðið að skríða. Blysin, sem þeir höfðu' fengið að láni hjá börn- unum höfðu lýst lítið. Douglas hafi gengið í áttina að hliðinu. Hann hafði ekki komizt þangað fyrr en eftir hálfa klukkustund ■og við hliðið hafði vindurinn feykt honum yfir veginn og skellt honum utan í trjástofn. Þar hafði hann legið stynjandi í myrkrinu, þó hann hafi ekki einu sinni heyrt stunurnar í sjálfum sér fyrir hávaðanum í veðrinu. Fyrst hafði hann haldig að þarna mundi hann þurfa að bíða þang- að til óveðrið væri um garð geng ið, en brátt hvarf sársaukinn og hann hafði komist til baka heim í skólahúsið. Duffield og Morgan höfðu báðir týnt blysunum s(n- og voru komnir aftur án þess að leit þeirra hefði beðið nokkurn árangur. Douglas var að jafna sig frammi í anddyrinu, þegar Paw- ley kom út úr bókasafninu til að tala um það við hann, hvaða ákvarðanir skyldu teknar ef Silvía hefði beðið bana. Sann- leikurinn var vægast sagt nokk- uð ósennilegur. — Það mundi hljóma einkennilega í eyrum ó- kunnugra að hún hefði hlaupið út í óveðrið um miðja nótt í ein- hverjum prakkaraskap. Þá mundi fólk segja að dauða hennar væri um að kenna óhlýðni og virðing- arleysi við kennarana og það var miður gott fyrir orðstí skólans. Þetta hafði vakið slíka vand- lætingu Douglas að hann hafði neitað að tala frekar um það. En Pawley var það mikið í mun að ákveða þetta áður en leitinni væri haldið áfram. Hann fór á eftir Douglas út úr bókasafninu. „Ég er ekki að hugsa um okk- ur“, sagði hann. „Ég er að hugsa um hin börnin. Við verðum að forða þeim frá öllum leiðindum, sem hægt er að forða þeim frá.“ „Ef hún hefur orðið undir ein- hverju trénu, þá er það í sjálfu sér nógu leiðinlegt", sagði Douglas biturri röddu. „Þér vitið, hvað ég á við.. En við getum talað um það seinna. Aðalatriðið er að við tölum ekki um þa við neinn óviðkomandi, .. ekki fyrr en við erum búnir að koma okkur saman um hvað eigi að segja.“ „Við gætum komið okkur sam- an um að segja að hún hafi farið út til að leita að hundinum kon- unnar yðar“, sagði Douglas. „Gert hana með því að hetju Bláfjalla- skólans.“ „Ég veit að yður er ekki alvara“, sagði Douglas. „En eins og komið er......“ „Mér væri sama, þó að ég segði það“, sagði Douglas. „Mér er fjandans sama, hvað við segjum.“ Hann yfirgaf Pawley og fór út. Sólin var ekki enn komin upp fyrir fjöllin, en það var orðið bjart og himininn var heiður. Ekkert var á honum að sjá að óveður hefði geisað. Öðru máli var að gegna um umhverfið. Garðurinn var næstum óþekkj- | anlegur. Laufin voru fokin af trjánum, varla sást nokkurs stað- ar grænt blað og á trjástofnunum voru ný hvít sár, þar sem grein- ar höfðu rifnað af þeim. Á víð og dreif lágu blaðlausar greinar og fölnaður gróður. Hann horfði í kringum sig og reyndi að greina gangstígana. — Alls staðar gaf , að líta eins og hryðjuverk eftir ofbeldislega drykkjuveizlu. Duffield kom út úr skólahús- inu meg tvo eða þrjá drengi sem hann hafði fengið til að aðstoða við leitina. Hann beindi þeim sitt í hvora áttina. Douglas lagði ‘ af stað niður blekkuna í áttina að , hliðinu. Stóru trén við hliðið voru hrikaleg og lauflaus. Hann gekk niður eftir í áttina að húsi Pawley og stakk við og j við staf í laufið og gróðurinn við j fætur sér. Garðurinn við hús Pawley var eyðilagður en húsið sjálft stóð óhaggað. Hann gekk yfir garðinn og í áttina upp að hliðinu. Einu sinni þegar hann lyfti upp laufi með stafnum sá hann skína í eitthvað hvítt. Hann hafði séð hvítt hörund Silvíu. Hann athugaði þetta nánar, og sá þá að þetta var hundur frú Pawley. Afturhluti hans hafði orðið undir tré. Hann lét grein- ina detta niður aftur. Allt í einu fannst honum það sjálfsagt að styðja sögu Pawley. Ég segi að henni hafi alltaf þótt vænt um hunda, hugsaði hann.' Hún fór út til ag leita að Rex ' þvert ofan í bann kennaranna. Hingað til hafði hann ekki get- j að sætt sig við þá hugsun að Silvía væri dáin. Ef til vill hafði hún flúið í þeirri von að hún mundi ekki komast lifandi af í óveðrinu. En það var lítið um háa kletta í nágrenninu og það voru tiltölulega litlar líkur fyrir því að hún hefði orðið undir tré. 8TORKARNIR Danskt ævintýri 1 UPPI á yzta húsinu í þorpi nokkru höfðu storkar gert sér hreiður, og sat storkamóðirin í því með fjóra unga sína, og teygðu þeir fram kollana með svört nefin, því að enn voru þau ekki orðin rauð eins og á foreldrunum. Skammt þaðan stóð storkapabbi á húsmæninum bísperrtur. Og til þess að það sæist, að hann væri ekki iðjulaus, þá hafði hann kreppt upp undir sig annan fótinn og stóð á hinum eins og í varðstöðu. Hann stóð þarna hreyfingarlaus, eins og hann væri útskorinn úr tré. „Það er heldur en ekki höfðingjamót á þessu,“ hugsaði hann. „Að kona mín hefur höfuðvörð hjá hreiðri sínu. Ekki vita þeir, að ég er maðurinn hennar, og munu þeir víst halda, að ég sé skipaður hér til að standa vörð. Það er svo hressi- legt til að líta,“ og hann hélt svo áfram að standa þarna á öðrum fæti. Á götunni fyrir neðan var heill hópur af börnum, sem voru að leika sér, og jafnskjótt sem þau sáu storkana, þá tók' einhver áræðnasti drengurinn í hópnum að syngja gömlu vísuna um storkana, og sungu börnin hana eins og þaul mundu hana bezt hvert um sig: Storkur, storkur mæti! stattu’ ekki á einum fæti; heima hreiðrið bíður, hygg að, hvað því líður; fljúg þú víf að finna fljúg til unga þinna; einn skal hengja, - annan stengja, þriðja þenja og spenna og þann hinn fjórða í eldi brenna. ■m i*m 1 Speed queen STRAtVÉLARNAR komnar JUL Lf Aiistuistræti 14 NÝSENDING stuttjakkar og svört pils GULLFOSS Aðalstræti. VIT A L - Skrif stofustólar Vér útvegum með stuttum fyrirvara hina þekktu VITAli-skrifstofustóla Sætið og bakið má hækka og lækka eftir vild. VITAL-stólIinn er þægi- legur og sterkur. Fæst með og án arma LUDVIG STORR & CO. 3 •M Skrifstofur okkar verða lokaðar frá og með 15. júlí til 3. ágúst n. k. vegna sumarleyfa. Heifdverzlun Arna Jónssonar h.f. Aðalstræti 7 — Bezt að auglýsa í Morgunblaðiðinu — /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.