Morgunblaðið - 18.08.1954, Blaðsíða 2
MÖRGtJISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 18. ágúst-1951
Tilkyhning frá utanrík-
isráðuneytinu um
ályktun
Norðurlandaráðs
TULLTRÚAR íslands á fundi
Norðurlandaráðsins, sem nú er
lialdinn í Osló, hafa beðið utan-
xxkisráðuneytið fyrir eftirfarandi
iréttatilkynningu:
Norðurlandaráðið samþykkti í
dag svohljóðandi tillögu varð-
andi verndun íslenzkra fiski-
miða:
Norðurlandaráði er fullljóst
að það er hagsinunamál allra
landa, sem stunda fiskveiðar
i við strendur íslands og fs-
lendingum lífsnauðsyn að
gerðar séu ráðstafanir í þeim
tilgangi að vernda fiskistofn-
inn á þessum slóðum. Að því
leyti sem lögmæti þeirra ráð-
stafana, sem þegar hafa verið
gerðar er deilumál milli ís-
I lands og annars ríkis er Norð-
uriandaráð ekki bært um að
láta í ljós álit sitt. Réttur vett-
'■ vangur til þess að komast að
þjóðréttarlegri niðurstöðu um
ágreiningsefnin er Hagdóm-
stóllinn en ekki Norðurlanda-
ráð eða Evrópuráðið. Norður-
) landaráð ákveður að beina
j þessari ályktun sinni til
) stjórna þeirra landa, sem að-
ild eiga að ráðinu.
íslenzku fulltrúarnir telja að
með tillögu þessari hafi náðst
takmark þeirra með flutningi
málsins. Norðurlandaráðið lýsir
yfir samúð sinni með aðgerðum
íslendinga í landhelgismálinu og
telur að Evrópuráðið sem Bretar
og fleiri hafa lagt málið fyrir,
eigi ekki um það að íjalla. Hinn
rétti vettvangur þess sé Hag-
dómstóllinn en eins og kunnugt
cr hafa íslendingar jafnan verið
reiðubúnir að leggja málið fyrir
hann að því tilskyldu að úrskurð-
ur hans yrði raunveruleg mála-
lok.
(Utanríkisráðuneytið).
iMHsvaroi
IDAG verður afhjúpuð stand-
mynd sú af Skúla Magnús-
syni, landfógeta, er verzlunar-
menn hafa látið reisa í Bæjar-
fógetagarðinum við Kirkjustræti
og Aðalstræti. Hefst athöfnin kl.
2 e. h. með ávarpi, er Hjörtur
Hansson, stórkaupmaður, flytur.
í>á flytur Vilhjálmur í>. Gísla-
son, útvarpsstjóri, ræðu. Guðjón
Einarsson, form. Verzlunarmanna
félags Reykjavíkur, flytur ávarp
og afhendir borgarstjóra styttuna
sem gjöf til Reykjavíkurbæjar,
en borgarstjóri, Gunnar Thor-
oddsen, veitir henni viðtöku fyr-
ir hönd bæjarins. Erlendur Ó.
Pétursson afhjúpar styttuna.
Lokaorð flytur Egill Guttorms-
son, formaður Skúla-nefndar.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á
milli atriða.
Búðum og skrifstofum verður
lokað frá kl. 1—4 e.h. í dag í til—
efni þessarar athafnar.
I gærmorgun var Vatnsberamynd Ásmundar Sveinssonar afhjúnuð
á lóðinni við gatnamót Sigtúns og Reykjavegar, en eins og kunn-
ugt er hsfir Fegrunarfélagið fest kaun á listaverkinu fvrir nokkru.
— Ljér.n. biaðsins tók þessa mynd í gærmoi-gun af Vatnsberan-
um. Við hann standa (talið frá Vinstri): Ragnar Jónsson, forstjóri,
i Ásmundur Sveinsson og Vilhj. Þ. Gíslason, útvarpsstjóri.
Ásmsindar Sveinssonar-
félag stofnað í Reykjavik
SÍÐASTLIÐNA viku sátu lækna
prófessorar frá 6 löndum, Dan-
mörku, írlandi, Hollandi, Júgó-
slavíu, Noregi og Engalndi, ráð-
stefnu í Róm, til þess að ráðgera
nýja aðferð til þess að berjast á
móti hinni svonefndu „gin- og
klaufaveiki“. — Eftir því sem
skýrslur herma hefur sýkin, síð-
an 1950, kostað Evrópu um 4
milljónir króna.
Af þessum löndum, sem taka
þátt í ráðstefnunni, er Danmörk
eina landið, sem laust hefur ver-
ið við sýkina undanfarin 2 ár,
en síðasta tilfellið þar fannst
1951. Prófessorar þessir telja ör-
nggasta ráðið til þess að veikin
breiðist ekki land úr landi, sé að
banna allan inn- og útflutning
lifandi búpenings, og einnig að
bólusetja búpeninginn stöðugt.
„Gin- og klaufaveiki“ er sem
kunnugt er mjög smitandi vírus-
sjúkdómur. Leggst hann aðallega
á kýr, kindur, geitur og svín.
Ekki er svo mjög mikil hætta á
'að dýrin drepist af veikinni, en
þau tærast upp og líður mjög
illa. Nytin dettur úr kúnum að
.miklu leyti og jafnvel alveg. Nú
firu þekktar þrjár tegundír af
fýkinni, og eru þær einkendar
lem „H“, „0“ og „C“.
N'OKKUR félög, stofnanir og
eir.staklingar í Reykjavík og
víðar hafa ákveðið að bindast
samtökum í því skyni að kynna
landsmönnum verk Asrnundar
Sveinssonar, myndhöggvara, með
því að kosta afsteýpur af verk-
um iistamannsins og koma þeim
fyrir þar sem almenningur getur
notið þeirra, og styðja listamann-
inn á annan hátt í starfi hans
fyrir þjóðina.
Formlegur stofnfundur félags-
ins verður haldinn um miðjan
október en forgöngumenn sam-
takanna hafa kosið sér taráða-
birgðarstjóm úr hópi þeirra, sem
ákveðið hafa að taka þátt í þess-
um samtökum. Mun hún undir-
búa fundinn í október og taka á
móti nýjum meðlimum, en það
geta allir orðið, jafnt einstakling-
ar, stofnanir og fyrirtæki, sem
greiða árgjald félagsins.
j Bráðabirgðarstjórnina skipa:
Valtýr Stefánsson fyrir Morgun-
j blaðið, Tómas Guðmundsson fyr-
ir tímaritið Helgafell, Vilhjámur
' Þ. Gíslason fyrir Fegrunarfélagið
Sveinn Guðmundsson, forstjóri,
! Héðni, Óttar Ellingsen fyrir
J Verzl. O. Ellingsen, Eggert Krist-
* jánsson, stórkaupm., Gunnar Guð
j jónsson, skipamiðlari, Ragnar
Jónsson, forstjóri.
iamnmgar við
a hainir
Nýr flugstjéri
á 6u!ifaia
I ALÞINGISHUSINU _ fara nú
fram viðræður milli íslendinga
og Tékka um nýjan verzlunar-
samning. — Kom sendinefndin
| hingað á sunnudaginn. Eru Tékk-
! arnir fjórir þar af ein kona, en
| í samninganefndinn íslenzku eru
sjö menn.
j Tékkarnir eru: Frantisek
Schlegl forstjóri í viðskiptadeild
utanríkisráðuneytisins, ungfrú
Zenka Nemecková frá sömu deild
svo og Ing. Bedrieh Pazderský
og loks Jaroslav Zantovsky sendi
ráðsritari við tékkneska sendi-
ráðið í Osló.
í íslenzku samninganefndinni
eru Þórhallur Asgeirsson, skrif-
stofustjóri, sem er formaður
nefndarinnar, dr. Oddur Guðjóns
son, Davíð Ólafsson, Svanbjörn
Frímannsson, Helgi Bergsson,
Helgi Þorsteinsson, Björn Hall-
dórsson og Stefán Hilmarsson.
HoHendingar selja
150 þús. funnur síidar
tii Rússðands
NEFND hollenzkra síldarsaltenda
liefiir verið í Rússlandi undan-
farið og komizt að samkomulagi
við stjórnarvöldin í Moskva um
sölu á 150 þúsund tunnum síldar.
Kaupverðið er um 170 kr. á
tiufltu.
EINN hinna brautreyndu flug-
stjóra úr innanlandsflugi hjá Flug
félagi íslands, Gunnar Frederik-
sen, hefir nú öðlast flugstjóra-
réttindi á stórum millilandaflug-
vélum. Fer hann í dag í fyrsta
sinn sem flugstjóri á Gullfaxa
til Kaupmannahafnar.
Gunnar hefur verið flugmaður
hjá Flugfélagi íslands í rúm 8
ár og hefur nú alls um sjö þús-
und klukkustundir í lofti. Hann
hefur um alllangt skeið verið
flugstjóri á Douglas-vélum, og
um nítján hundruð klukkustund-
ir hefur hann verið í utanlands-
flugi með Gullfaxa.
i eyrany \ m ar
FYRIR nokkru vildi það til í
Suður-Svíþjóð að maður nokkur
leitaði læknis vegna heyrnar-
depru á öðru eyranu. — Hann
kvaðst ekki hafa heyrt með því
í þrjátíu ár. Við rannsókn kom
í ljós að stærðar rjólbiti var fast-
ur langt inni í hlustinni. Læknir-
inn spurði manninn að þvi,
hvernig rjólið hefði komizt inn
í eyrað og eftir nokkra Umhugs-
un, skýrði maðurinn svo frá, að
þegar hann hefði verið 8 ára
gamall hefði hann þjáðst af
eyrnabólgu. Faðir hans hafði þá
gripið til þess gamla heimilisráðs
að lækna veikina með rjóli, og
stakk stærðar bita inn í eyrað á
drengnum. Síðan voru liðin 30
ár, og rjólbitinn aldrei tekinn
úr eyranu. Læknirinn hreinsaði
tóbakið burt, og maðurinn fékk
fulla heyrn.
Þeir fara fyrst á veiðar 11. september.
IVOR ÞEGAR fiskmarkaður þrengdist í Bretlandi með hir.ni
árstíðabundnu minnkun fisksölunnar að sumarlagi var ákveðið
að leggja skyldi 25% af togaraflota Breta. Nú hefur hinsvegar
verið ákveðið að þessi skip fari aftur á veiðar 11. september, bar
seiri menn búast við auknum fiskmarkaði með vetrinum.
25% STOÐVUN ÞEGAR
MEST VAR
Takmörkun veiðanna átti fyrst
að ná yfir tímabilið 19. apríl til
31. júlí, en þegar ekkert rættist
úr fisksölumálunum var það
framlengt fram á haust. Um tíma
var 25% af fiskveiðiflotanum lagt
en síðar var það lækkað í 20%.
MIKIÐ FISKMAGN í MJÖL
Þrátt fyrir lagningu togara-
flotans hefur mikið fiskmagn
reynzt óseljanlegt. Skýrir blaðið
Fishing News frá því að s. 1. ár
hafi 3 milljón stone af fiski farið
í fiskimjölsverkmiðjur, þar sem
hann seldist ekki. Magnið sem
nú hefur farið í fiskimjöl er sízt
minna.
SNERTI 270 TOGARA
Togarastöðvunin náði til
þriggja aðaltogarahafnanna,
Hull, Grimsby og Fleetwood.
Náði hún alis tii 270 skipa.
162 þeirra í Hull, 90 í Grims-
by og 24 í Fleetwood. Þegar
kemur fram á vctur minnkar
afli frá smábátum við strend-
ur Bretlands og auk þess auk-
ast fiskkaup með vetrinum.
Þessvsgna óttast me.nn jafnvel
að alvarlegur fiskskortur geri
vart við sig í vetur. Er évíst
að þýzkir togarar komi J á til
hjálpar vegna þess að þeir
fengu ekki að selja aflr. sinn
í Bretlandi í sumar, þegar
þeim reið mest á.
Treg síidreiði
hjá Akranesbáhim
AKRANESI, 17. ágúst. — 4 rek-
netjabátar komu hingað í gær-
kvöldi. Aflahæst var Hrefna með
128 tunnur af síld. Hinir bátarn-
ir voru með allt niður í 27 tunn-
ur. 8 trillubátar voru á sjó í gær
og var afli þeirra 200—500 kg. í
dag höfðu reknetjabátarnir frá
20—54 tunnur. Aflahæst var
Aðalbjörg. Reykjafoss kom hing-
að í dag og er hann að lesta 800
pakka af skreið. — Oddur.
SigHirðinpr
SIGLUFIRÐI, 17. ág.: — Um 200
Siglfirðingar tóku þátt í hópferð
héðan á sunnudaginn með strand
ferðaskipinu Esju út í Grímsey.
Var veður sérstaklega gott þann-
an dag, og ferðin öll hin ánægju-
legasta, að dómi þátttakenda.
Úti í Grímsey kepptu Siglfirð-
ingar í knattspyrnu viö eyja-
skeggja, og unnu þá með tveimur
mörkum gegn einu. Hér á Siglu-
firði er mikill hugur í mönnum
að endurtaka slíka hópíerö til
einhvers annars byggðarlags hér
noorðan lands, t. d. til Akureyr-
ar. -—Stefán.
AUGLYSIN€AR
Km birtast eiga f
Sunnudagsblaðinu
þuría atí hafa borizt
fyrir kl. 6
á föstudag
Háslcélafyrir-
lestur í dag
í DAG kl. 6,15 e.h. flytur pró-
fessor Dieth frá háskólanum í
Ziirich í Sviss, fyrirlesíur, er
hann nefnir „How I saw Iceland
in the Twenties".
Prófessor Dieth dvaldist hér á
landi tvívegis fyrir 30 árum og
mun fyrirlestur þessi fjella um
íslenzk menningarmál og iðkun
íslenzkra fræða í Evrópu.
Fer fyrirlesturinn fram i 1,
kennslustofu háskólans og er
öllum heimill aðgangur.
Leiddur fyrir herrétt
LONDON (Reuter) — Ákveðið
hefur verið af yfirvöldunum f
Teheran að stefna dr. Fatemi,
fyrrum utanríkisráðherra Psrsíu,
fyrir herrétt. Verður hann á-
kærður fyrir að hafa tekið þátt
í samsæri til að kollvarpa lög-
mætri stjórn landsins.
Fatemi var, sem kunnugt er,
utanríkisráðherra í stjórnarlíð dr„
Mossadeghs, en komst undan er
honum var steypt frá völdum fyr-
ir um það bil ári síðan. Fór hann
huldu höfði um alllangt skeið og
var fé lagt til höfuðs honum.
Hann var handtekinn í marz s. 1.
í einu af útborgum Teheran og
hefir verið hafður í haldi síðaii, j