Morgunblaðið - 28.08.1954, Síða 8

Morgunblaðið - 28.08.1954, Síða 8
8 MORGUISBLAÐIÐ Laugardagur 28. ágúst 1954 wttlMðMfe Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgöarm.) Stjómmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlanda. í lausasölu 1 krónu eintakið. Hvernig ákvörðun var tekin m örlög IBLABINU í dag er tekinn upp stuttur kafli úr æviminning- um Ribbentrops utanríkisráð- herra Þjóðverja, þar sem hann skýrir frá þeim atburðum, er hann fór til Moskvu 23. ágúst 1S39 og lauk á sama degi samn- ingi um bandalag við Rússa. Þessi samningur varð einhver hinn örlagaþrungnasti, sem um getur í veraldarsögunni. Hann þýddi það í stuttu máli, að rúss- neska kommúnistastjórnin sagði við Hitler: Þú getur geft hvað sem þér sýnist í Vestur Evrópu. Þú getur byrjað nýja heimsstyrj- öld. Við munum ekkert ónáða þig í að setja löndin í rústir. Rússneska stjómin gat valið annan kost. í fjóra mánuði höfðu brezkar og franskar sendinefndir setið í Moskvu og beðið Rússa um að stofna samtök til að hindra áfram- haldandi ofbeldi nazistanna. Ef slíkt samkomulag hefði komizt á var Þýzkaland um- kringt á allar hliðar og hefði orðið að skipta liði sínu á tvennar vígstöðvar. En Rúss- ar kusu hinn kostinn. Með þessu tóku þeir á sig mikla ábyrgð og geta aldrei skafið af sér sökina á því að hin hræði- lega heimsstyrjöld brauzt út. Þó er e.t.v. annað einstakt atriði í frásögn Ribbentrops, sem hlýtur að vekja ennþá meiri ó- hugnað, ekki sízt meðal smá- þjóða. Það er sú staðreynd, að á tveimur til þremur klukkustund- um var gert út um örlög smá- ríkjanna á ströndu Eystrasalts- ins. Þessum forustumönnum kommúnista og nazista klígjaði ekki við því. Var líkast því sem þeir væru með rjómatertu fyrir framan sig, hlutuðu hana í sund- ur og segðu: — Þennan bita skalt þú fá, — og hinn bitan ætla ég að éta. Þarna á tertunni var t. d. eitt jarðarber, borgin Libau. Þjóðverjar vildu fá hana í sinn hlut, en þá risu Rússar upp og sögðu að nú væri ekki jafnt skipt og urðu nazistarnir þá að láta undan. Þannig var þetta furðulegur leikur og þó ægilegur, því að borgin Libau var ekki aðeins depill á landabréfi. Hún var borg með iðandi lífi og með þessari laumulegu samningsgerð ofbeld- ismannanna voru íbúar hennar ofurseldir, yfir þá steypt rúss- neskri harðstjórn, sem leiddi af sér þrælkun og þjáningar. Tveimur mánuðum eftir samningsgerð þessa settu Rúss ar smáríkjunum úrslitakosti. Þeir voru í því fólgnir að krefjast þess að þau gengju í „hernaðarbandalag“ og rúss- neskt herlið færi til varðstöðu hvarvetna um löndin. Smárik- in áttu einskis annars úrkosta og með komu Rauðahersins var sjálfstæði þeirra þurkað út. Þegar úrslitakostimir bár- ust hafði það að sjálfsögðu litla eða enga þýðingu, hvern- ig svar smáríkisins yrði. Stór- veldið þurfti ekki að spyrja það neitt álits um hvort því líkaði þetta betur eða ver. Því Evrópumelsiatf&mótið Eússer úttu 6 meisturu uf 7 í gærdug ^ Veðrið nú gotf og braulimar betri Bern 27. ágúst. — Frá NTB. IDAG var gott veður í Bern þar sem Evrópumeistaramótið í frjálsíþróttum er haldið. Hsiðskírt vaar og glampandi sólskin en nokkur gola þvert á brautirnar, sem nú voru góðar. Stemmn- ingin hefur vaxið með batnandi veðri, keppendur, starfsmenn og áhorfendur eru í sólskinsskapi. að bað var þá fyrir löngu búið að gera út um örlög þeirra yfir vodkaglösum við samninga- borð í Moskva. Og þó er þetta aðeins eitt sýn- ishornið af vinnubrögðum hins ' rússneska stórveldis. Eftir styrj- j öldina tók það ekki til greina nein tilmæli um að endurskoða aðstöðu Eystrasaltsþjóðanna og í ' stað þess að sigurinn yfir Þjóð- verjum gæfi smárikjum Evrópu frelsi, tóku Rússar enn upp sama þráðinn og beittu valdi til að fella yfir þær enn meira ánauðar- ' ok en nokkru sinni fyrr. Hvergi hafa þeir fjötrar verið af leystir. Það er stundum háttur kommúnista að taka á sig falskt gerfi frelsisástar. Nú fyrir nokkru gerðust t. d. þau undur að þeir tóku að bera sér I lega mikla umhyggju fyrir j mannréttindum í Bandaríkj- unum. Þessi umhyggja verð-1 ur þó undarlega innantóm, því að bak við hana vofir stöðugt einkenni þess, frá samningun-j um í Moskva, hvernig komm- únistar vilja að gert sé út um frelsi heilla þjóða. Þá tókst þeim bezt upp er þeir áttu samstarf við nazistana. Og hér er ekki aðeins um að ræða minningu frá liðnum dögum. Undirokun smáþjóðanna við Eystrasalt er enn í dag stað-. reynd. Hún er réttlætisbrot, Sem aldrei verður bætt úr | fyrr en þessar óhamingju- sömu þjóðir fá rétt sinn við- urkenndan að nýju. RÚSSAR SIGURSÆLIR Þessi’ þriðji dagur mótsins var sigurdagur Rússlands. — Rússar sigruðu í 6 af þeim 7 greinum er í dag var lokið við. Hinir nýbökuðu Evrópu- meistarar eru: Ignatiev í 400 m á 46,6 sek., Skobla, Tékkó- slóvakíu, 17,20 m í kúluvarpi, Lusnetsov í tugþraut með 6752 stig, Otkalenka í 800 m hlaupi kvenna á 2:08,8, Tur- ova í 100 m á 11,8, Ponomer- eva í kringlukasti með 48,02 og Choudina í fimmtarþraut með 4526 stig. ★★ Aðeins einn íslending ur tók þátt í kepninni í dag. VeU ancíi ólripar: Orðsending Pélverja SÍÐUSTU daga hefur staðið hvirfilstormur af orðsendingum frá leppríkjum kommúnista í A.- Evrópu til frönsku stjórnarinn- ar. Orðsendingar þessar hafa all- ar miðað að því að auka á úlfúð milli nágrannaþjóðanna, Frakka og Þjóðverja. Hafa erlend ríki víst sjaldan fyrr gert eins ítrek- aðar tilraunir til að hafa áhrif á ákvörðun þjóðþingsins. Ástæðan er sú að í dag tekur franska þjóðþingið til meðferðar aðild Frakka að Evrópuhernurrl. Síðasta orðsendingin, sem Frökk- um hefur borizt, er frá lepp- stjórninni í Póllandi. Hún kem- ur fram með annarlegt tilboð um varnarbandalag Póllands og Frakklands. Tilgangurinn leynir sér ekki. Hann er sá að gefa í skyn að Evrópu stafi hætta frá Þjóðverjum. Er reynt að vekja upp endurminningar frá síðustu styrjöld. Hins er að engu getið, að Rúss- ar hafa fyrir nokkrum árum fengið Austur-Þjóðverjum vopn ' í hendur. Þar hefur verið stofn- j aður allöflugur her, sem hlýtir yfirstjórn rússnesku hernáms- stjórnarinnar. En aðalkjarninn í þessu máli er að Evrópuþjóðum Um hestamenn og hestatamningu. EG ÁTTI fyrir nokkru tal við þaulæfðan hestamann — og tamningamann, sem upplýsti mig um ýmislegt, sem að hestatamn- ingu lýtur. Ég vissi áður, að það verk er töluverður vandi, en eftir samtalið við hestamanninn, þyk- ist ég hafa komizt að því, að það er hreinasta list, sem ekki öllum er gefinn hæfileikinn til. Fyrsta skilyrðið er auðvitað að hafa ánægju — og yndi af að umgang- ast hesta og eiga hesta. Já, það er í rauninni merkilegt hve mis- jafnt það er með fólk, og snemma beygist krókurinn, einn krakk- inn á bænum vill helzt hvergi vera nema á hestbaki eða innan um hesta, annar er hræddur við þá og vill sem minnstvmeð þá hafa. Krefst tíma og þolinmæði. OG það er ekki einasta, að það sé vandi að temja hesta, það útheimtir líka feykilega mikinn tíma og þolinmæði. Hestur er að jafnaði ekki fulltaminn fyrr en 7 vetra gamall og ekki má slá slöku við, meðan á tamningunni stendur, tamningamaðurinn tek- ur til við sama hestinn tvisvar á dag eða oftar. Og smám saman venzt hesturinn,,.hinu taumlausa stafar ekki hætta frá Þjóðverjum | að þessu sinni. Þar er rniklu öfl- j ugra herveldi, sem ógnar frelsi Vestur-Evrópu. Stofnun Evrópu- 1 hersins er einmitt til þess að bægja þeirri hættu frá. og kraftmikla fjöri unghestsins er fyrir snilli temjarans beint í ákveðna farvegi. Það fer eftir hæfni mannsins og upplagi hests- ins hve létt er að bregða á einn „gang“ eftir annan. Og aðferðirn- ar, sem við þarf að hafa eru hreint ekki á allra færi, örlítið hnipp í tauminn — það eru til ótal mörg mismunandi „hnipp“ og kippir — ofurlítil sveiging aftur eða fram á við — eða til hliðar kann að ráða um hvort farið er á einum gangi eða öðr- um. „Töltið“ vanið í hesta. HESTAMAÐURINN sagði mér líka! nokkuð, sem kann að koma ýmsum á óvart: „Töltið“, sem kallað er og þykir einn allra mesti góðgangurinn var alls ekki þekkt hjá hestum fyrir 40—50 árum, það er að segja orðið „tölt“. Sjálfan ganginn, sem kallaður var „lull-gangur“ eða einhverju öðru nafni, kannaðist fólk hins- vegar við, en síðar hefir töltið beinlínis verið vanið í íslenzka. hestinn. Væri fróðlegt að vita, hvort þetta hefir verið sama sag- an um allt land, eða hvort töltið hefir orðið seinna til hér sunnan lands en annars staðar á landinu. Hvað segja Skagfirðingar um þetta mál? Hvað um framtíðina? EN mér varð á að hugsa eftir að ég hitti þennan snjalla hesta- mann, sem ég hefi minnzt hér á. Munu íslendingar halda áfram að eiga góða tamningamenn, hesta- menn af lífi og sál, mitt í hinni sívaxandi vélamenningu. Mun það svara kostnaði að leggja sig niður við að temja hesta — gæð- inga til reiðar eftir nokkur ár. Því það kostar mikla peninga að eiga góða og vel tamda hesta. Um- ræddur hestamaður sagði mér, að hann hefði fyrir skömmu keppt reiðhest, afbragðs töltara, en ekki fulltaminn, á 10 þús. krónur og hann myndi geta selt hann aftur á 12—15 þús. —|En hvað um það. íslendingar mega ekki missa áhugann á hestinum sínum, hann er enn hugþekkasta og þjóðleg- astar farartækið, sem við eigum. Áfram með skæru litina. TÚLLI nokkur skrifar: „Velvakandi góður! Það hefir mikið færzt í vöxt í seinni tíð, að fólk máli íverur sínar með skærum og sterkum litum, jafnvel 1 mörgum mismun- andi litum hvert herbergi. Sumir rótast yfir þessu, tala um ósmekk og „fígúruhátt". En ég segi: heyr fyrir sterku litunum, hvílíkur munur frá lognmollu-grámygl- unni, sem var í tízku fyrir nokkr- um árum! heilu íbúðirnar, heilu húsin — heilu hverfin liggur mér við að segja í sama brúngráa ólundarlitnum. Þar að auki hef ég heyrt, að það sé mjög óhollt fyrir sjón manna að hafa stöðugt sama litinn fyrir augunum, þar sem hins vegar mikil hvíld sé i því að hafa mismunandi liti í kringum sig. Því segi ég það: áfram með skæru litina — en í öllum bænum, samt smekkvísi einnig. — Túlli.“ Það er tíma- spillir að vonzkast yfir þeim tíma, sem búið er að spilla. Var það Skúli Thorarensen í kúluvarpi. í skeytum frá NTB kom einungis skrá yfir 6 fyrstu menn í úrslitakeppn- inni, cg er því ekki vitað hvort Skúli liefur í forkeypninni náð Iágmarkinu (14,50) og komist í aðalkeppnina. ★ ÚRSLIT Hér fara á eftir helztu úrslit dagsins í gær: Kúluvarp karla Evrópumeistari: Skobla Tékkó slóvakíu 17,20; 2. Grikalka Rússl. 16,69; 3. Heinaste Rússl. 16,27; 4. Nilson Svíþjóð 16,17; 5 Sav- idge Engl. 16,10; 6. Kövesdi Ung- verjal 15,70. 400 m hlaup Evrópumeistari: Ignatiev Rúss- landi 46,6 (rússneskt met); 2. Hellsten Finnl. 47,0 (Norður- landamet); 3. Adamik Ungverjal. 47,6; 4. Haas Þýzkal. 47,6; 5. Hegg SViss 47,8; 6. Degats Frakk- landi. Dæmdur úr leik fyrir að fara inn á aðra braut. Fimmtarþraut kvenna Evrópumeistari: Choudina Rússl. 4526 stig; 2. Sanger Þýzka- landi 4485; 3. Storm Þýzkal. 4457; 4. (ólæsilegt nafn) Þýzkal. 4436; 5. Burtulenko Rússl. 4265; 6. (ó- læsilegt nafn) Póllandi 4293, Kúluvarp kvenna Evrópumeistari: Chudina Rúss landi 13,21; 2. Zurulenko Rússl. 12,58; 3. Stumpf Þýzkal. 12,48; 4. Sander Þýzkal. 12,19; 5. Sturm Þýzkal. 11,88; 6. Bolliger Sviss 11,39. m. 800 m hlaup kvenna Evrópumeistari: Otkalenka Rússl. 2:08,8; 2. Leather Engl. 2:09,8; 3. Lensenko Rússl. 2:11,9; 4. Kazis Ungverjal. 2:11.9; 5. Pestka Póllandi 2:12,9; 6. Winn Englandi 2:13,3. Kringlukast kvenna Evrópumeistari: Ponomereva Rússl. 48,02; 2. Bellijakova Rúss- landi 45,19; 3. Titina Rússl. 44,77; 4. Mertova Tékkóslóvakíu 44,58; 5. Vobokilova Tékkóslóvakíu 44,33; 6. Mattew Júgóslafíu 44,09. 100 m hlaup kvenna, úrslit Evrópumeistari Turova Rúss- landi 11,8, 2. Brewster Hollandi 11,9, 3. Poshley Englandi 11,9, 4. Leone Ítalíu 12,0, 5. Neszmely Ungverjal. 12,1, 6. Armitage Englandi 12,1. 4x100 m boðslaup karla (Tvö fyrstu í riðli komast i úrslit). 1. riðill: Rússland 41,0, 2. Eng- land 41,0, 3. Pólland 41,5, 4. Saar 42.2. 2. riðill: 1. Tékkóslóvakía 41,1, 2. Ítalía 41,2, 3. Frakkland 41.4, 4. Júgóslavía 42,2. — (Hlaup finnsku sveitarinnar var ólög- legt). 3. riðill: 1. Ungverjaland 40,8, 2. Svíþjóð 41,1, 3. Holland 41,2, 4. Belgía 41,5 ,5. Sviss 41,9. Hástökk í undankeppninni komust eft- irtaldir menn yfir lágmarkshæð- ina og taka þátt í úrslitakeppn- inni síðar: Holmgren, Svíþjóð, Makjanovic Júgóslafía, Stepanov Rússland, Nilson Svíþjóð, Palh Þýzkaland, Fabrykowsky Pól- land, Kovar Tékkóslóvakía, Lew- andowsky Póllandi, Lansky Tékkóslóvakíu, Wahli Sviss og Boltenev Búlgaríu. 80 m grindahlaup kvenna (Tvær beztu í riðli komast f undanúrslit). 1. riðill: 1. Desforges Englandi 11,4, 2. Pocian Póllandi 11,4, 3. J, Tangen Noregi HT9. 2. riðill: 1. Golbenuekaja Rúss- landi 11,2, 2. Dunska Póllandi 11.6, 3. (ólæsilegt nafn) Frakk- landi 11,9. 3. riðill: 1. Laboria Frakklandi 11,4, 2. Steurer Austurríki 11,6, 3. Cronholm Svíþjóð 12,2. 4. riðill: 1. Aleksandrova Rúss- landi 11,0, 2. Basovic Júgóslaviu 11.3, 3. Feirychova Tékkóslóvakíu 11.6. » Frh. á bls. 10. >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.