Morgunblaðið - 28.08.1954, Blaðsíða 16
Veðurúflif í dag:
Norðaustan kaldi. Víðast létt-
skýjað.
195. tbl. — Laugardagur 28. ágúst 1954.
Aðdáun Sfalins
á Hitler. Sjá kafla úr minning-
um Ribbentrops bls. 9.
Hlaða brann að morgni —
\lý risin af yrunni ú kvöldi
UM KLUKKAN fimm í gær--
morgun varð vart við það að
farið var að rjúka úr hlöðunni
að Brúnastöðum í Hraungerð-
ishreppi. Hafði hitnað þar svo
í heyi að kviknað var í því.
Var þegar leitað aðstoðar
fólks af næstu bæjum og
einnig var slökkviliðið á Sel-
fossi fengið til þess að ráða
niðurlögum eldsins.
Hlaðan brann alveg og er
áætlað að um helmingur heys-
jns, sem í henni var, hafi
eyðiiagzt, en í hlöðunni munu
hafa verið um 500 hestar
HLAÐAN REIST AÐ NÝJU
Er búið var að slökkva eld-
inn, var tekið til við smíðar.
Sent var eftir timbri niður á
Selfoss og mannsofnuðurinn,
sem þarna var kominn hóf þeg
ar að reisa hlöðuna að nýju.
Miðaöi því verki svo vel
áfram, að í gærkveldi var hún
fullsmíðuð nema hvað eftir
var að járnklæða hana. Mun
það einsdæmi, að hús, sem
brennur að morgni, sé risið af
grunni að nýju að kvöldi.
TILFINNANLEGT TJÓN
Bóndi að Brúnastöðum er
Ágúst Þorvaldsson, oddviti.
Heytjón hans er tilfinnanlegt,
en ef tíð helzt góð ætti að
vera hægt að bæta það að
mestu með aðstoð nágrann-
anna, sagði sr. Sigurður Páls-
son í Hraungerði, er blaðið
átti tal við hann í gærkveldi.
Brezk bókasýnlng opniið nk
laugardag í Þjóðminj
Eriissh Counci! ag Angfia sfanda sameiginfega
sýningunni — Á henni verða 1350 bækurr
aðallega vísindalegs og sérfræðilegs efnis
Grunnteikning Gísla Halldórssonar arkitekts af íbúð í hinum nýju húsum, sem Reykjavíkurbær
lætur reisa. — Lengst til vinstri er kjallarinn, þá kemur hæðin með stofunum, anddyri, eldhúsi og
borðkrók. — Á 2. hæð eru svefnherbergin og baðið.
IþREZKI sendiherrann í Reykjavík, Mr. J. T. Henderson, kvaddi
^ í gær fréttamenn á sinn fund og skýrði þeim frá brezkri bóka-
sýningu, sem í ráði er að verði opnuð hér í Reykjavík n.k. laugar-
dag. Að sýningu þessari standa British Council og ensk-íslenzka
félagið Anglia í Reykjavík og mun hún verða opin almenningi í
10 daga frá 2—10 e. h. dag hvern.
1350 BÆKUR
Þessi brezka bókasýning mun
hin fyrsta, sem efnt hefur verið
til hér á landi. Verða á henni um
1350 bækur og auk þess 6—700
ýmiss konar blöð og tímarit.
Sendiherrann gat þess, að þessi
bókasýning væri til komin aðal-
lega fyrir þá sök, að tilfinnanleg-
Ur skortur væri hér á ýmsum
vísindalegum og sérfræðilegum
bókum. Þær ensku bækur, sem
hér væru fáanlegar væru mest-
megnis skáldsögur og fagurfræði,
icn námsmenn og fræðimenn
fyndu til slæmrar vöntunar á
liauðsynlegum bókum. Ætti sýn-
ingin að bæta að nokkru úr
þeirri vöntun.
UM VÍSINDI
OG SÉRFRÆÐILEG EFNI
Samkvæmt því er meginhluti
bókanna vísindalegs og sérfræði-
legs eðlis, t. d. mjög góðar bæk-
ur varðandi nýjustu læknisfræði,
einnig fjöldi bóka er fjalla um
eðlisfræði (rafmagnsfræði og út-
varpsfræði o. fl.), verkfræði,
landbúnaðarfræði, hagfræði, sál-
fræði, sagnfræði og prentlist.
MEGINHLUTI BÓKANNA
VERÐUR HÉR EFTIR
Þá eru og bækur almennara
leðlis um bókmenntir, listir, trú-
fræði og heimspeki, ævisögur og
endurn?inningar, barnabækur,
bækur um Bretland o. fl.
Allur þorri bókanna mun verða
hér eftir að sýningunni lokinni,
nema þær, sem eru eru eign
British Cöuncil erlendis, svo og
prentlistarbækurnar og nokkrar
fleiri. Verða bækur þær, sem hér
verða eftir skildar látnar renna
til bókasafns Anglia í húsakynn-
um brezka sendiráðsins í Þórs-
hamri, þar sem fólk getur haft
not af þeim áfram.
FULLTRÚI FRÁ
BRITISII COUNCIL
Mr. Goffin, sem hafa mun um-
sjón með uppsetningu sýningar-
innar, sem verða mun til ^húsa í
þjóðminjasafninu, en af íslands
hálfu eru verndarar sýningar-
innar menntamálaráðherra,
Bjarni Benediktsson, dr. Þorkell
Jóhannesson háskólarektor, Helgi
Elíasson, fræðslumálastjóri, próf.
Einar Ólafur Sveiiisson, Kristján
Eldjárn þjóðminjavörður og
Björn Pétursson bóksali.
Á sýningunni, sem almenningi
er ókeypis aðgangur að munu
liggja frammi pöntunarlisti, sem
fólk getur pantað eftir bækur og
tímarit gegnum bóksala hér í
bænuim___________________
Íslaíidssuiidið
fer fram í dag
í DAG fer fram í Nauthólsvík
hið árlega íslandssund. Verður
keppt í fjórum sundum fyrst og
fremst íslandssundinu 500 m
frjálsri aðferð. Meðal keppenda
þar eru Helgi Sigurðsson, Ægi og
Pétur Kristjánsson Á. Auk þess
verður keppt í' 50 m stakkasundi,
100 m bringusundi og 100 m skrið
sundi. Ern keppendur bæði frá
Reykjavík og Keflavík.
Akranes hefur enn
forystuna
KEFLAVÍK og Akranes keppa
sín á milli innan ramma sam-
norrænu sundkeppninnar. Hefur
keppnin verið hörð milli bæj-
anna. Um miðja vikuna stóðu
leikar þannig að 18% Keflvík-
inga höfðu synt 200 metrana en
18,3% Akurnesinga. — Nú fer
að líða að lokum sundkeppninn-
British Council
Bretlandi
ar og til þess að Island sigri
verða allir að synda 200 metrana
jnun senda hinag fulltrúa sinn, fyrir 15. september.
Algjör óvissa ríkjandi um at-
vinnumöguieika Siglfirðinga við
lok 10. síldarleysissumarsins
Aiskið einkaframtak eina von-
in í bæ sem sosialismi og síldar-
Eeysi fhafa nær lagt að veSli
SÍLDARLAUST sumar er að kveðja hér á Siglufirði. — Eftir
standa atvinnulausir menn með rírar sumartekjur, horfandi
fram á óvissuna. Flest síldveiðiskip og allar söltunarstöðvar, sem
hér eru maigar, hafa tapað stórfé. Siglufjörður hefur hlotið eitt
áfallið enn, tiunda síldarleysissumarið.
MA EKKI LEGGJAST
f AUÐN
Um 8. september er svokallað
tryggingatímabil á enda, og verð-
ur þá þorri verkafólks hér með
| öllu atvinnulaust. — Er fyrirsjá-
! anlegt, verði ekkert að gert, að
í fólksflóttinn úr bænum mun
! frekar örvast en minnka. Telja
| verður það andstætt hagsmun-
■ um þjóðarheildarinnar að stað-
ur, sem gegnir sama hlutverki
og Siglufjörður í þjóðarbúskapn-
um á normaltímum, tæmist af
íbúum.
SIGLUFJÖRÐUR FORÐUM
OG NÚ
Áður fyrri þegar sildin veidd-
ist varð hér til verulegur hluti
útflutningsframleiðslu þjóðarinn
ar. Hér var ein stærsta útflutn-
ingshöfn og héðan kom bróður-
partur þjóðarauðsins. Síðan þá a
(Siglufjörður væntanlega inni-
I stæðu hjá þjóðarbúinu þótt
, hvergi muni hún skráð.
| Hér eru tveir togarar eign bæj-
arins, en undir framkvæmda-
stjórn SR. -r- Þeir lágu óstarf-
ræktir í sumar. — Hér er nýtt
hraðfrystihús eign SR óstarfrækt
sem stendur. Þessi atvinnutæki
I verða að starfrækjast og geta,
ef rétt er á haldið, orðið veruleg
stoð í stórri neyð, sem reynslan
frá síðastliðnum vetri sannar
ljóslega.
Hér eru tvö önnur hraðfrysti-
hús, ísafold, sem um margra ára
skeið hefur verið myndarlega
rekið af Þráni Sigurðssyni og hitt
er Hrímnir, sem einstaklingur
hefur nýlega tekið við yfirstjórn
þess, -og stendur til að maður
þessi flytji hingað í bæinn með
þrjú skip, og stækki hraðfrysti-
húsið. Frá samningum um þetta
hefur þó ekki verið endanlega
gengið. — En verði þessi at-
vinnutæki starfrækt með fullum
afköstum og starfstími Tunnu-
verksmiðju ríkisins lengdur að
mun, en hún starfar aðeins örfáa
mánuði ársins síðla vetrar, er
sárasta atvinnuleysið á brott. —
En svo vel sé þarf vitanlega ann-
að og meira til að koma.
GERA ÞARF
FREKARI RÁÐSTAFANIR
Með tilliti til fyrra innleggs
Siglufjarðar í atvinnulíf og auð-
sköpun þjóðarbúsins og þeirrar
þarfar sem fyrir er, væri ekki
óeðlilegt að Alþingi og ríkis-
stjórn gerðu frekari ráðstafanir
til atvinnuaukningar hér. — Það
virðist stundum minni orsök eða
ástæða en tíu síldarleysissumur
knýi fram sérstakar ráðstafanir
ísl. stjórnvalda.
LEIÐIN TJL ÚRBÓTA
• Heppilegasta ráðstöfuninj
til atvinnuaukningar hér er tví-
mælalaust stofnsetning atvinnu-
fyrirtækja í skattskyldu formi,
einkarekstur og félög. — Héí
virðist nóg af ríkisreknum skatt-
frjálsum fyrirtækjum sem ekk-
ert greiða til fátæks bæjarfélags,
en valda bæjarsjóði útgjöldum á
ýmsum sviðum.
• Hér þarf ef svo mætti a®
orði komast: Að gróðursetja meffi.
heilbrigðri bankastarfsemi og að-
stoð ísl. stjórnvalda aukið einka-
framtak, sem virðist farsælasta
leiðin og eina vonin í bæ, sem
socialismi og síldarbrestur hafa
nær lagt að velli. — Stefán.
Halvard Lange
kominn til
Reykjavíkur
HALVARD LANGE, utanríkis-
ráðherra Norðmanna kom flug-
Ieiðis hingað til Reykjavíkur i
gærkveldi. Hér mun ráðherranr
eins og kunnugt er opna norsku
myndlistarsýninguna í Lista-
safni ríkisins á morgun.
Á mánudag hefst svo hér fund-
ur utanrikisráðherra Norður-
landa, sem ráðberrann mun einn
ig sitja. ■