Morgunblaðið - 08.09.1954, Blaðsíða 1
| 41. árgauznr.
204. tbl. — Miðvikudagur 8. sept. 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsina. j
Hörmulegl flugslys
Björgunarsveitir fóru út að flugvélarflakinu um morguninn þcgar
aftur tók að fjara út, en sú björgun kom of seint. Flugvélin hafði
farið í kaf á háfléði og þeir sem inni voru drukknað. Flakið liggur
í mynni Shannon-fljóts á vesturströnd írlands.
Stór farþesafhigvé! fórst
við Shannoii“fliig
Flugvallarstarfsmenn tóku ekki eftir því og
talið að andvaraleysi þeirra eigi sök
á dauða farþega
Shanron 7. sept. Einkaskeyti frá NTB.
n M FARÞEGAR og þrír af áhöfn stórrar Atlantshafsflugvélar
“'jí fórust á sunnudag við flugvöllinn stóra h.iá Shannon á fr-
landi. Flugvél þessi var eign hollenzka flugfélagsins KLM. Hafði
hún nýlega nafið sig til flugs, þegar eitthvað biiaði í henni og hún
féll í ármynni um þrjá km frá flugvellinum. Stjórn flugvallarins
hefur verið gagnrýnd harðega fyrir það hve björgunarsveitir komu
seint á vettvang.
HÓF STG TIL FLUGS
UM NÓTT
Þetta var risa-Constellation
flugvél. Var hún á leiðinni frá
Amsterdam til New York en
millilenti á hinum kunna Shann-
on flugvslli á írlandi. Þaðan hóf
hún sig á loft kl. 3 um nóttina
og var mvrkur yfir. 46 farþegar
voru með flugvélinni og 10
manna áhöfn.
FÉLL f ÁRMYNNI
Fimm mínútum síðar hrapaði
flugvélin og kom niður í mynni
Shannon-fljóts. Farþegar skýra
frá því að þeir hafi skyndilega
heyrt ærandi brak og bresti og
bráðlega fór vatn að flæða inn
í farþegaklefann. Eitraðar ben-
zíngufur blönduðust vatninu og
munu nokkrir farþegar hafa iát-
izt af þeim.
Strax voru björgunaraðgerðir
hafnar. Flugstjórinn stjórnaði
þeim og var erfitt um vik. því
að myrkt var af nóttu og raf-
magnsljós flugvélarinnar slokkn-
uð. Gúmmíbátarnir voru settir
í vatnið en þeir blása sig sjáifir
út og komust 22 farþegar og 7
af áhöfninni í þá.
FLUGVALLARMENN
SÁU EKKI FLUGELDA
En nú tók við erfitt vandamál.
Við fljótsmynnið eru leirur mikl-
ar. Bátana rak inh að bakkan-
um, og fólkið skaut flugeldum.
Beið síðan um stund en starfs-
lið flugvallarins tók ekki eftir
flugeldunum og varð það síðast
úr, er fólkið hafði beðið í bátun-
um í tvær klukkustundir, að einn
flugmaðurinn synti í land, skreið
langa leið yfir leirur og fúamýr-
ar og gekk þriggja km leið að
flugstöðinni. Þar sagði hann frá
slysinu, en hné síðan niður með-
vitundarlaus.
GEGNUM SANDBLEYTU
OG FOR
Nú var allt björgunarlið flug-
vailarins sett af stað. Tók það þó
nokkurn tíma, en þegar það loks-
ins komst niður að ármynninu
varð það að láta hina þjökuðu
ílugbrotsmenn skríða yfir leirur
og sandbleytur. Þar á meðal voru
Framh. á bls. 12.
□----------------n
Hreinsað til
í Mansjúríu
★ HONG-KONG, 6. sept. —
Mansjúría hefur nú orðið fyrir
einni af þeim hreinsunaröldum,
sem ganga alltaf við og við yfir
kommúnisku löndin.
★ Nýlega varð sú stærsta
„hreinsun“, sem átt hefur sér
stað síðan kommúnistar komust
til valda árið 1949.
★ Allt að því allir embættis-
menn stjórnarinnar voru þá látn-
ir fara, en í stað þeirra skipaðir
háttsettir meðlimir kommúnista-
flokksins.
— Reuter-NTB.
□----------------n
Danska stjórnin ætlar
ah draga 600 millj.
úr vihskiptaveltunni
★ 400 milljóna skattar og tollar og 200
milljónum minni fjárfestins
DANSKA þjóðþingið verður kallað saman til fundar næstkom-
andi fimmtudag til að ræða tillögur þær, sem ríkisstjórnin
hefur lagt í'ram til úrbóta á gjaldeyrisvandræðum Dana. Ríkis-
stjórnin hefur ráðgert að reyna að draga nálægt 600 milljónir
króna út úr viðskiptaveltu landsins á næstu hálfu öðru ári. Um
400 milljónir króna munu verða lagðar á landslýðinn sem beinir
skattar og neyzluskattar og reynt mún verða að minnka fjárfest-
inguna um 200 milljónir króna.
-------------------4KAMPMANN LEGGUR FRAM
TILLÖGUR
Rússneskar orusfuflugyélar
skjófa bandaríska könnunar-
flugvél niður ausfan Síberíu
Gerðist 70 km frá slröndinni
Tokío 7. sept. Einkaskeyti frá NTB.
RÚSSNESKAR orustuflugvélar skutu bandaríska könnunarflug-
vél niður á sunnudaginn austur af Síberíu. Árásin var gerð
70 km frá ströndinni. Mótmælaorðsendingar hafa gengið á milli
Bandaríkjanna og Rússa vegna þessa atviks.
SÁU FYRST
SPRENGIKÚLURNAR
Hin bandaríska flugvél var á
venjulegu könnunarflugi með-
fram Síberíuströndum og hélt
hún sig eins og venja er langt
frá ströndinni. Þeir sem björg-
uðust af áhöfn hennar segja frá
því að þeir hafi fyrst rankað við
sér er skotárás var hafin á flug-
vélina. Þutu byssukúlur framhjá
vélinni og varð flugmönnunum
þá litið aftur.
SKOT HITTU
BÁÐA VÆNGI
Sáu þeir að tvær rússneskar
flugvélar af svonefndri Mig-gerð
eltu þá. Könnunarflugmennirnir
reyndu þá að steypa sér niður til
að losna frá eltingu, en þá hittu
sprengikúlur báða vængi. Eldtir
kom upp í henni og hún rakst
í vatnsskorpuna með 160 km
hraða. 9 menn björguðust úr vél-
inni en sá tíundi sökk með henni.
70 KM FRÁ STRÖNDINNI
Bandarísk skip komu bráðlega
á vettvang og gerðu þau mæling-
ar sem sanna það að hin banda-
ríska flugvél var meir en 70 sm
frá ströndinni.
Frsmh. á bls. 2
Halvard Lange vill þáffföku
Þjóðverja í A-bandalagi
Síðastliðinn laugardag voru
úrbótatillögur ríkisstj órnarinnar
lagðar fyrir ráðamenn flokk-
anna. Fjármálaráðherra Viggo
Kampmann gerði þar grein fyrir
þeim ráðstöfunum, sem stjórnin
áliti áríðandi til að lagfæra á-
standið í gjaldeyrismálunum.
Ríkisstjórnin lagði fram eftir-
farandi tillögur:
1. Auk þeirra sparnaðarráð-
stafana, sem þegar hafa
verið gerðar á öllum ríkis-
rekstri, verður að gera á
næsta ári frekari sparnað-
arráðstafanir, sem nema
um 100 milljónum króna.
2. Auknar skattaálagningar,
m. a. neyzluskattar, munu
nema um 400 milljónum
króna.
3. Brýn nauðsyn er á að draga
úr fjárfestingu einstaklinga,
einkum í húsbyggingafram-
kvæmdum, þannig að hraði
í byggingaframkvæmdum
verði jafnari. Einnig mun
verða takmörkuð vinna við
uppihald á húsum, ef hún
er ekki bráðnauðsynleg.
4. Fóllc mun verða hvatt til
sparnaðar með því að lækka
eignaskatt á upphæðum,
sem settar eru á vöxtu um
óákveðinn tíma.
5. Gerðar verða ráðstafanir
til aukins útflutnings, sem
styrktur verður m. a. með
meiri möguleikum fyrir
lánsfé til útflutnings. Þann-
ig fæst fjárliagslegt öryggi
ekki aðeins fyrir útflutn-
inginn sjálfan heldur einnig
möguleikar til framleiðslu
útflutningsvara.
En aðalatriðið er að koma á sættum
milli Þjóðverja og Frakka
Oslo 7. sept.
NORSKA íréttastofan NTB hefur beðið Halvard Lange utan-
ríkisráðherra að láta í ljós álit sitt á því hvaða áhrif það hafi
á utanríkisstefnu Vesturveldanna, að Frakkar hafa nú hafnað
aðild að Evrópuhernum. Ráðherranum farast orð á þessa leið:
Það er augljóst að frávísun'
franska þingsins á Evrópuhern-
um þýðir ósigur fyrir þá utan-
ríkisstefnu sem Vesturveldin
hafa fylgt s. 1. þrjú ár og öll
Atlantshafsríkin studdu.
En eftir að málið hafði verið
dregið úr hófi fram á langinn1
má þó segja að það var betra að
Frakkar tóku lokaákvörðun held
ur en ef máliö hefði verið dreg-
:ð enn meir á langinn til einskis
gagns.
Við vonum að samningar um
formið á þátttöku Þjóðverja í
vörnum Vestur-Evrópu verði
teknir hið bráðasta og samkomu-
lag náist sem allir geti sætt sig
við.
ÞJÓÐVERJAR LEGGI SITT
AF MÖRKUM
— Hvað er álit yðar á þeim
tillögum sem fram hafa komið
um þátttöku Þjóðverja í vörn-
um Vestur-Evrópu?
— Ennþá hafa engar ákveðnar
tillögur verið lagðar fram. En
það er grundvallaratriði að nauð-
Framh. á bls. 2
100 KRÓNU SKATTUR
Á HVERT MANNSBARN
Álitið er, að litlar líkur séu
til að ríkisstjórnin muni koma
til leiðar tillögum sínum um
aukning skatta, sem munu nema
að meðaltali um 100 krónum á
hvern íbúa í landinu. Meiri hluti
danska þingsins er álitinn vera
mótfallinn aukningu skattaálagn-
inga.
LÆGRI
RÍKISKOSTNAÐUR
Bertel Dahlgaard, einn af þing
mönnum radíkalaflokksins, lét
svo um mælt, að „þessi yfirvcf-
andi vandamál er ekki hægt að
leysa með sköttum. Ríkið verður
að minnka reksturskostnað sinn
— og svo verða ríkisstjórnin og
allir aðrir að forðast allt hræðslu
fum.“