Morgunblaðið - 18.09.1954, Blaðsíða 1
I
16 síður
ftl. irgaxkgnx. 213. tbl. — Laugardagur 18. september 1954 Prentsmiðja Mergunblaðsina. ■
Togarinn Sólborg landar á ísafirði glitrandi karfa af Jónsmiði, nýju karfanámunni, sem botnvörp-
ungurinn Jón Þorláksson fann nýlega. Eflaust eru margar slíkar námur enn ófundnar. Afli togaranna
á nýju miðunum hefur verið svo mikill að þeir hafa þurft að bíða meira en þrjá sólarhringa eftir
löndun. A bls. 9 er grein eftir Arngrím Fr. Bjarnason, þar sem rætt er um nauðsyn þess að koma sem
fyrst upp á ísafirði stórri hraðfrystistöð með þarfir togaraútgerðarinnar fyrir augum.
‘ (Ljósm. Árni Matthíasson).
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Páli Jónssyni.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Kaupmannahöfn.
BLAÐIÐ Berlingske Aftenavis skýrði svo frá í dag, að danska
ríkisstjórnin mun ekki gera frekari tilraunir til úrbóta á þeim
gjaldeyrisvandræðum, sem ríkja í landinu, þangað til danska
þingið kemnr saman 5. okt. á reglulegum þingfundi.
Úraiiíomvinnsla
aukin í Ásiralíu
MELBOURNE, 17. sept.: —
Menzies forsætisráðherra
Ástralíu opnaði í dag nýja úraní-
um-vinnslustöð, sem er í Norður-
Ástralíu. Hún er í nágrenni hafn-
arborgarinnar Darwin. Ætlunin
er að selja framleiðsluna til Bret-
lands og Bandaríkjanna.
— Reuter.
DRÁTTUR Á SAMKOMULAGI <
Dráttur hefir orðið á að Rót-
tæki flokkurinn styðji úrbóta-
tillögur stjórnarinnar og eru lítil
líkindi til að samkomulag náist
með stjórninni og Róttækum, þar
sem stjórnin vill ekki fallast á
kröfu Róttækra um niðurskurð á
útgjöldum til hernaðarþarfa.
Þar að auki háfa Róttækir lát-
ið í ljós vaxandi vantraust á
þeirri efnahagsstefnu, sem stjórn-
in hyggst taka á næstunni.
KRAFA UM NÝJAR
ÚRBÓTATILLÖGUR
Aukaþingfundur hefir nú stað-
ið yfir í viku án þess að nokkur
árar.gur næðist. Hans Hedtoft,
forsætisráðherra leitast við að
draga gang málanna sem mest á
langinn í von um einhverja björg,
sem forðað geti stjórninni frá
nýjum kosningum.
En öngþveitið í gjaldeyrismál-
unum krefst skjótra aðgerða og
stjórnin neyðist til að bera fram
nýjer tillögur til úrbóta eða gefa
frá sér forustuna, segir blaðið
ennfremur.
JAFNADARMENN SJÁLFIR
ÓÁNÆGÐIR
Oánægjan yfir framtaksleysi.
stjórnarinnar vex með öllum
flokkum, einnig jafnaðarmanna-
flokknum. Ýmsir flokksmenn
jafnaðarmanna vilja, að Hansen
utanríkisráðherra taki við for-
sætisráðherrastöðunníi, ef jafn-
aðarmenn eiga að sitja áfram að
völdum.
SYDNEY — Fimmtíu þúsund
nýir landnemar, þar af um 20
þús. Bretar, hafa komið til
Ástralíu til þess að setjast þar
að, það sem af er árinu.
TiIIaga um EvrópuSier undir
stfórn Átlants bandalagsins
-fV Þeir sem andsnúir eru hervæðingu
Vesiur Þýzkalands leggja blessun sína
yfir víghúnaðaræðið í A-Þýzkalandi.
STRASSBORG, 17. sept. — Einkaskeyti frá Reuter.
EVRÓPUÞINGIÐ hóf í dag umræður um landvarnarmál Vestur
Evrópu. Hefur verið borin fram tillaga um að hersveitir
Evrópuþjóða verði sameinaðar í sameiginlegan her undir stjórn
Atlantshafsbandalagsins. Er m. a. gert ráð fyrir því, að Bretar
og Vestur Þjóðverjar verði þátttakendur í stofnun þessara raun-
hæfu varnarsamtaka.
ÞÖRF FYRIR SAMSTARF
ÞJÓDVERJA
Herbert Morrison, einn helzti
foringi brezka verkamanna-
flokksins hélt ræðu í þessu sam-
bandi. Hann sagðist m. a. vera
þeirrar skoðunar, að ef styrkja
ætti varnir Vestur-Evrópu, þá
mætti ekki ganga fram hjá Vest-
ur Þjóðverjum. Án þeirra yrði
lítið gagn í varnarsamtökunum.
AUSTUR ÞJÓÐVERJAR
HAFA VERIÐ VÍGBÚNIR
Ilann sagði, að enn gætti
nokkuð óvildar í garð Þjóð-
verja og talað væri um að
ekki mætti fá þeim vopn í
hendur á ný En svo undar-
Iega bregður við, að þeir sem
eru mestir andstæðingar end-
urvopnunar Vestur Þjóðverja
leggja blessun sína yfir það,
að Rússar hafa nú þegar og
fyrir nokkrum árum fullkom-
lega endurhervætt Austur
Þjóðverja.
Tító heimsækir
Indland
NÝJA DELHI, 17. sept.: — Til-
kynnt hefur verið að Titó ein-
ræðisherra Júgóslavíu muni
heimsækja Indland og Burma um
næstu áramót. Heimsóknin getur
ekki orðið fyrr, vegna þess að
Nehru forsætisráðherra Indlands
heimsækir Kína 16. október n.k.
Reuter.
Dulles staddur í London:
Alvarlegt að Evrópuherinn
Varnarsnál ímpu í molum og nauðsyn skjólra
aðgsrða
LUNDÚNUM, 17. sept. — Einkaskeyti frá Reuter.
ID A G áttu Eden utanríkisráðherra Breta og Dulles utanríkis*
ráðherra Bandaríkjanna, viðræður um framtíð hervarna Evrópu.
Eden mun m. a. hafa greint bandaríska ráðherranum nánar frá
árangrinum, sem varð í hringferð hans um höfuðborgir Evrópu-
landa.
FRAMTAK EDENS VEKUR
HRIFNINGU
Þegar Dulles kom í morgun
flugleiðis til Lundúna frá Bonn,
skýrði hann svo frá að Bandarik-
in væru hrifin af framtaki hins
brezka utanríkisráðherra, er hann
hefði frumkvæði um að reyna að
sætta hin ólíku sjónarmið varð-
andi hernaðarmálin.
GRUNDVALLATRIÐI
BRÁST
Dulles sagðí að ástandið í varn
armálum álfunnar væri nú
mjög alvarlegt, já, alvarlegra,
en margur hyggði. Það hefði
Styðja ílollend-
inga og Belga
OSLO, 17. sept. — Halvard Lange
utanríkisráðherra Norðmanna
skýrði frá því að Norðurlöndin
hefðu ákveðið að styðja kosningu
Hollendingsins Van Kleffens, sem
forseta allsherjarþings S.Þ. en
enginn Evrópubúi hefur gegnt
þeirri stöðu síðan 1946, þegar
Spaak var kjörinn forseti.
Þá sagði Lange, að Norðurlönd-
in hefðu samstöðu um að kjósa
Belgíu í Öryggisráðið í stað Dan-
merkur. Fyrst var Svíum boðinn
slíkur stuðningur hinna Norður-
landanna, en þeir báðust undan
verið grundvallaratriði í varn
armálastefnu vestrænna ríkja,
að komið yrði á fót Evrópu*
her. Nú væri útséð um að Ev-
rópuher kæmist ekki á og það
væri nauðsynlegt fyrir velferð
og öryggi Evrópuþjóða að
finna einhverjar leiðir til þesa
að varnarmálin fari ekki í
mola.
Rússar fljúga yfir
Helsiiigíors
HELSINGFORS, 17. sept.: —
Hópur rússneskra þrýstilofts-her-
flugvéla flaug yfir Helsingfors og
hefur finnska utanríkisráðuneyt-
ið sent mótmæli vegna þessa at-
burðar. — NTB.
Náttúrubarn
KAMPALA — Erfiðastur viður-
eignar af öllum sjúklingunum í
sjúkrahúsinu í Kampala í Uganda
í Suður-Ameríku, er Lunakol,
maður af Karamajong-ættstofn-
inum. Hann var fluttur í flugvél
til sjúkrahússins eftir að hafa
særzt mjög í viðureign við ljón.
En Karamajong-ættstofninn not-
ar ekki föt, og starfsliði sjúkra
hússins hefir fram til þessa dags
ekki tekizt að klæða Lunakol í
nokkra spjör. Hann vill ekki einu
sinni nota umbúðir.
Tveir menn farasf \ spreng-
inp í vopnaverksmiðju
KARLSKOGA, 17. sept. — Reuter-NTB
l V EIR verkamenn fórust og tíu særðust í sprengingu, sem
varð síðastliðinn miðvikudag í verksmiðju, sem er hluti af
í Svíþjóð. Verksmiðjan er ná-
stærsta vopnaframleiðslufyrirtæki
lægt Karlskoga í Mið-Svíþjóð.
TORFGARÐUR VARNAÐI
MEIRA TJÓNI
Mikill öryggisútbúnaður og
torfgarður, sem umkringir bygg-
ingarnar þar sem unnið er með
sprengihættustu efnin, vörnuðu
enn stórkostlegra slysi. Hexogen-
sprengiefni olli sprengingunni og
er það notað í tundurskeyti og
annað slíkt. Þetta sprengiefni er
helmingi kraftmeira en trotyl.
RÚÐUR BROTNUÐU
í KARLSKOGA
Verksmiðjubyggingin jafnaðist
alveg við jörðu. Múrsteinar, véla-
hlutar og trébjálkar þeyttust í
allar áttir, en mest af því hafnaði
til allrar hamingju í á nokkurri,
Aðrar verksmiðjubyggingar voru
varðar af torfveggnum, en bær-
inn Karlskoga slapp með nokkr-
ar brotnar rúður.
TVEIR FÓRUST
Leyfilegt er að geyma 5000 kg
af sprengiefni í byggingunni, sem
sprengingin varð í, en ekki er
vitað með vissu hversu miklar
birgðir voru þar er slysið vildi
til. Aðeins þrír menn máttu vinna
þar í einu en tveir voru
staddir þar. er slysið varð og
fórust þeir báðir. Annar mann-
anna fannst spölkorn frá bygg-
ingunni og dó eftir að hafa verið
fluttur á sjúkrahús. Hinn grófst
undir rústunum og var látinn er
til náðist.