Morgunblaðið - 18.09.1954, Blaðsíða 2
2
MORGURBLAÐIÐ
Frægur bandðrískur málari
opnai spí§igu hér i gær
IGÆRKVELDI opnaSi listaverkasýningu sína á annarri hæð
veitingahússins Höllin í Austurstræti, frægur amerískur vatns-
litamálari, Don Kingman að nafni.
FIMMTIU VATNSLITA-
MYNDIR
Að aflokinni opnun sýningar-
ánnar, sýndi Kingman kvikmynd-
ina „Dong Kingman", sem tekin
var af James Wong Howe, kvik-
xnyndastjóra myndarinnar
„Komdu aftur, Sheba litla.“ —r
Éinrlig flutti Kingman fyrirlest-
nr um kínverska vatnslitamálun.
-— Kingman málar eingöngu með
vat.nslitum.
Kingman sýnir hér 15 vatns-
litamyndir, allar frá Bandaríkj-
unum nema ein, sem er frá Hong
Kong. Auk þessa hefir Kingman
málað myndir frá Japan, Filipps-
■eyjum, Þýzkalandi, Skandínavíu
■og víðar að.
TÓK AÐ MÁLA 5 ÁRA
•GAMALL
Kingman, sem er fæddur í
San Francisco, fór til Hong
Kong fimm ára að aldri og tók
þá þegar að mála með vatnslit-
um, enda kenndu Kínverjar á
þeim tíma börnum sínum að
draga til stafs með málarapensl-
utn og vatnslitum. Dvaldi King-
man um 13 ára skeið í Hong
Kong og nam þar bæði evrópska
og kínverska málaralist, þar sem
lœnnari hans, er var kínverskur,
hafði dvalizt í París. Segist King-
man minnast þess að móðir hans
tók að kenna honum að með-
liöndla pensilinn á leiðinni yfir
Kyrrahafið frá Bandaríkjunum
•til Hong Kong en hann var 11
ára gamall, er hann fyrst tók að
mála á evrópska vísu.
Bandaríkj unum og lagði leið sína
um Suð-austur Asíu og Evrópu.
Myndir Kingmans eru hinar
hugðnæmustu og gætir þar
samræmingar kínverskrar og ev-
rópskrar listar. Mun enginn svik-
inn af því að bregða sér þang-
að dagstund.
Söng- og dans-
katareitinum í KR-
húsinu ve! fagnað
HÚSFYLLIR var í gær í KR-hús-
inu á Söng- og danskabarettin-
um sem þar kemur fram. En það
er cowboysöngvarinn Bobby
Jaan, franski ballettinn Bentyb-
er, söngvarinn Bobby Damese
sem einnig er franskur, enskir
músiktrúðar sem nefna sig Grim-
aldi. Mest var þó cowboysöngvar-
inn hylltur, og var hann klapp-
aður upp hvað eftir annað, enda
skemmti hann afbúrða vel, með
söng sínum, eftirhermum og lát-
bragði öllu. Yfirleitt má segja að
öllum skemmtikröftunum hafi
verið fagnað óvenju vel, enda bár
ust margir blómvendir.
Fljúgandj diskur, vígahnöttur
eða hvað?
KAMPALA, Uganda — Ein-
kennilegur gullinn hnöttur,
smærri en tunglið að sjá, en
stærri en stjarna, birtist þann
14. sept. yfir Kampala.
Fara á fund S!>
UTANRÍKISRÁÐHERRA, dr.
Kristinn Guðmundsson, Vilhjálm
ur Þór, forstjóri, og Jóhann Þ.
Jósefsson, alþingismaður, fara
héðan flugleiðis á morgun til
New York til þess að sitja fyrir
Islands hönd, ásamt Thor Thors,
sendiherra, fastafulltrúa íslands
hjá Sameinuðu Þjóðunum, 9. alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna,
sem hefst 21. þ.m.
Matvælageymslur
í frystihúsi
fyrir almenning
HRAÐFRYSTISTÖÐ Reykjavík-
ur við Mýrar’ötu hefur látið
gera nokkur hundruð frystihólf,
sem stöðin hyggst gefa almenn-
ingi kost á að taka á leigu til
þess að geyma kjöt eða aðra mat-
vöru.
Oddur Kristjánsson forstjóri,
skýrði blaðinu svo frá, að hér í
bænum væri mikil þörf fyrir
slíka matvælageymslu, sem frysti
hólf. Lægi fyrir fjöldi pantana
hjá fyrirtækinu á frystihólfum.
Hólfin eru þannig úr garði gerð,
að hægt er að geyma í hverju
sem svarar kjöti af 8 skrokkum.
Frystihólfin eru í allstórum
sal og frystikerfið fyrir þá alla
sameiginlegt amoniakkerfi. Hver
maður fær sitt ákveðna hólf og
lykil að því og mun Hraðfrysti-
stöðin hafa afgreiðslutíma á
kvöldin frá kl. 6,30 til 7, en frá
kl. 4—7 nú í sláturstíðinni.
Óddur kvað Hraðfrystisöðina
haf mikinn hug á að geta aukið
starfsemi sina á þann hátt, að
annast fyrir frystihólfaleigjendur
kjökkaup og pökkun þess fyrir
sem lægst verð.
KENNIR MALARALIST
Undanfarin 10 ár hefir King-
man verið kennari við mál-
ara- og myndhöggvaraskól-
ann við Columbía-háskólann.
Þar að auki kénnir’ Kingman
við bréfaskóla, sem kennir
málaralist, og hefir sá skóli
um 20.000 nemendur og var
stofnaður fyrir fimm árum
síðan.
Kingman hefir ferðazt nokkuð
hér á landi, m. a. til Þingvalla
-og hefir hann gert drætti að
mynd frá Reykjavíkurhöfn með
Aiirafjall í baksýn. Segir King-
xnan að litbrigði Islands séu mjög
uuðug og áhrifamikil, en til þess
að skilja þau og skynja sé nauð-
synlegt að búa hér um tíma.
ÍIELDUR HEIM í KVÖLD
f fyrstu ætlaði Kingman að
dvelja hér um stundarsakir en
verður að hverfa heim í kvöld
til kennslustarfa sinna vestra.
Sýning hans verður samt opin á-
fram. Kingman kveður sig mjög
langa til að koma hingað aftur
og dveljast þá lengur. Kom hann
hingað á ferðalagi, sem hann
tókst á hendur síðastl. apríl frá
kíúml þvílíkur snjér á
sheiði íyrir göngur
★ Stutt fréttabréf frá Skriðuklaustri.
SKREÐUKLAUSTRI, 8/9. ’54.
OENDIMAÐUR frá Bandaríkja-
her kom hér í Fljótsdal s. 1.
sunnudag til að fá nánari upp-
lýsingar um loftskeyti það, er
sást nýlega falla í leirurnar við
Lagarfljótsbotn af fólkinu á
Hjarðarbóli. Kom hann aftur í
dag og fór þá í nánd við stað-
inn og tók myndir, en nú eru
leirurnar allar undir vatni, vegna
vatnavaxta síðustu dagana. Verð-
ur því ekkert frekar hægt að að-
hafast til athugunar á staðnum,
meðan svo er. Staður-inn er
merktur með staur, en merkið
ekki sett fyrr erunokkrum dög-
um eftir atburðinn og getur mun-
að nokkrum tugum metra frá hin
Eilf isl. leikrit hefur horizf í
Morrænu leikrilasamkeppnina
IFYRRAVETUR var stofnað til norrænnar leikritasamkeppni og
stóðu að henni öll þjóðleikhús og fleiri leikhús Norðurlandanna.
Skyldu öll leikritin komin fyrir 1. ágúst. Hefur fresturinn nú verið
framlengdur til 1. janúar 1955.
IÞ-ÍIENN VERÐLAUN
í hverju lapdi var ákveðin
dómnefnd, og skyldi hver höf-
nxndur skrifá leikritið á sýnu máli
og senda til sinnar dómnefndar.
Allsherjardómnefnd var einnig
íikipuð fyrir öll löndin og skulu
sendast til hennar þrjú beztu
leikrit hvers lands, og þau síðan
borin þar saman. Þrennum verð-
launum hefur verið heitið og eiu
jrau í dönskum krónum 2, 6 og
12 þúsund.
EITT ÍSLENZKT
LEIKRIT BORIZT
í íslenzku dómnefndinni sitja
þeir Indriði Waage, Sigurður
Grímsson og Guðlaugur Rósin-
kranz. Skýrði Rósinkranz svo frá
í gær á fundi með blaðamönnum,
að eitt leikrit hefði þegar borízt
dómnefndinni. íslenzkum rithöf-
undum, sem taka vilja þátt í sam-
keppninni, skal bent á, að leik-
ritin skulu send þjóðleikhús-
stjóra.
um rétta punkti. Á þessum stað
var fínt sand- og leirlag á yfir-
borði en mjög laus aurleðja und-
ir. Heyrzt hefir að reyna eigi seg-
ultæki við rannsókn á þessu.
ÓHAGSTÆTT TÍÐARFAR
Tíðarfar hefir verið mjög óhag-
stætt það sem af er september.
Rigning daglega, þó ekki mikil,
nema sólarhringinn 3. sept., en
þá mældist úrkoman hér 29 mm.
Nú fer elzta heyið að ljókka og
víða fer að verða talsvert hey
til, því að almennt er verið við
heyskap enn. Hér á Skriðu-
klaustri hefir verið sett talsvert
í vothey siðustu dagana. En nú
er gras orðið það sölnað að til-
gangslaust er að reyna að verka
vothey úr því, nema af nýlegum
sáðsléttum eða hafragras.
Á Jökuldal liefir heyskapartíð
verið erfið í sumar. Tæplega
komiö þar þurrkuif nema vikuna
góðu eftir miðjan ágúst. Fé hefir
komið allmikið af heiðunum síð-
ustu daga, enda varð snjórinn á
Fljótsdalsheiðinni a. m. k. 25 cm
djúpur 3. sept. s. 1. Stóð féð þá
víða og gat sig naumast hreyft.
Þá var a. m. k. einn hópur hrein
dýraveiðimanna' staddur uppi, og
varð að halda til byggða. Friðrik
á Hóli, sem um marga áratugi
hefir ferðast um Fljótsdalsheiði
á hverju sumri og haustri og oft-
ast margsinnis, segist aldrei hafa
verið staddur í slíkum snjó, sem
á dögunum fyrir göngur.
Hreindýrin eru nú dreift um
alla heiðina og veiðar stundaðar
alltaf þegar fært er vegna þoku
og_ rigninga.
í Fljótsdal er búið að veiða
rúman helming þeirra 160 dýra,
sem komu í hlut Fljótsdals-
hrepps. J. P.
Léttari 09 hraðgefsfjari
vélar é framtiðiiSHii
Laugardagur 18. sept. 1954
........... M - Ill
Vélbáturinn Svanur RE 88
jVTÝLEGA hefur verið lokið við
i'l að setja General Motors
díselvélasamstæðu í m.b. Svan,
RE-88, frá Reykjavík, og var
blaðamönnum boðið að sjá þess-
ar vélar og fara í reynsluför með
bátnum. Svanur er skráður 74
smálestir, byggður úr eik í
Gautaborg 1941, einn af hinum
svokölluðu „blöðrubátum“. Eig-
endur bátsins eru. Skaftafell h.f.,
en útgerðarstjóri þess og skip-
stjóri bátsins er Andrés Finn-
bogasonar, sem hefur verið einn
af aflasælustu skipstjórum Faxa-
flóa.
Báturinn hefur undanfarin 9
ár stundað línuveiðar frá Reykja
vík, en eins og fleiri bátar sem
keyptir voru notaðir hingað til
landsins eftir stríðið, hafa vélar
þeirra reynzt of litlir til þess að
fullnægja þeim kröfum, sem nú
er farið að gera til ganghraða
fiskibátanna, sérstaklega hér við
Faxaflóa. Hafa því fjölmargir
eigendur þessara báta skipt um
vélar í þeim á undanförnum ár-
um, tekið burtu hinar gömlu,
þungu glóðarhausvélar og sett í
staðinn léttar og hraðgengar
díselvélar.
ÖNNUR VÉLIN GETUR
BJARGAÐ
Hin nýja General Motors dísel-
vélasamstæða í Svan er 480 hest-
öfl, en við olíusparasta snúnings-
hraða er hún 410 hestöfl. Hvor
vél fyrir sig er 6 strokka, en á
milli þeirra er gírkassi, sem gír-
ar vélarnar niður urn 5 á móti 1.
Skrúfan, sem knýr bátin i áfram
er fjögurra hlaða, 163 cm í þver-
mál. Hámarks snúningshraði á
skrúfu er 400 snún/mín., en gert
er ráð fyrir, að undir öllum
venjulegum kringumstæðum
verði snúningshraði á skrúfu um
það þil 300 snún/mín. oj áætlað-
ur ganghraði bátsins við þann
snúningshraða- 10%—11 mílúr á
klst. Er þá ennþá eftir talsvert
afl frá vélunum, sem gott er a@
hafa, ef á þarf að halda. Hægt er
að láta aðra vélina, eingöngu,
knýja bátinn, sem er mikið ör-
yggi fyrir sjómenn á haíi úti,
þannig að þótt önnur,- vélin bili
er örugglega hægt að ná landi
með hinni.
LÉTTARI, HRAÐGENGARI
VÉLAR
Hinar léttbyggðu, hraðgengu
díselvélar eru æ meir að ryðja
sér til rúms í fiskibátr.m hér á
landi. Meðal þeirra er General
Motors díselvélin, sem framleiddf
er -hjá einu stærsta fyrirtæki
heimsins, General Motors Cor-
poration, en umboðsmenn þess-
ara véla hér á landi eru Gísli
Halldórsson h.f.
Heimsmct í helliskcnnun.
GRENOBLE — T*véir hellakönn-
uðir, Jean Cadoux og Georges
Garbay hafa gert kröfu til heims-
meistaratitils fyrir að hafa köm-
izt lengst niður í jörðina eða
2485 fet.
Síðastliðinn sunnudag kom 30. þúsundasti gesturinn á sýningia
Önnu í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Það var ungfrú Rósa Jónsdóttir„
Barmahlíð 31, Rvík. Myndin sýnir er forstjóri Bæjarbíós, HelgS
Jónsson, afhendir ungfrúnni verðlaunin, sem heitin voru 30. þús-
undasta gestinum, en það er skjal, sem heimilar handhafa þesa
ókeypis aðgang að Bæjarbíói allt næsta ár, ásamt stórri koniekt-
öskju. (Ljósm. Sigurbj. Þórðarson). t