Morgunblaðið - 18.09.1954, Blaðsíða 11
Laugardagur 18. sept. 1954
MORGVWBLAÐIB
Kjarfan Kelgason
íiivegsbóndi
(rá Mosbúsiim
NÝLÁTINN er á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund, Kjart-
an Helgason frá Moshúsum á
Miðnesi, og fór útför hans fram
að Hvalsnesi 7. þessa mánaðar
að viðstöddu fjölmenni.
Kjartan Helgason var fæddur
að Moshúsum 28. október 1877.
Foreldrar hans voru Guðrún
Gísladóttir frá Gröf í Hruna-
mannahreppi og Helgi Eyjóifsson
frá Þingborg í Flóa. Kjartan ólst
upp hjá foreldrum sínum í Mos-
húsum, en kvæntist síðar Guð-
ríði Oddsdóttur frá Háholti í
Gnúpverjahrepþi. Þau hjónin
bjuggu allan sinn búskap í Mos-
húsum eða þar til Guðríður lézt
árið 1947, en þá hætti Kjartan
búskap og fluttist til Reykjavík-
ur. Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið, sem öll eru á lífi, en
þau eru: Guðrún og Soffía, sem
báðar starfa hér í Reykjavík, og
Helgi skipstjóri. Auk þess ólu
þau hjópin upp stúlku, Öldu að
nafni, sem þau tóku rojög ungal
Ennfremur dvöldust hjá þeim á
sumrum börn skyldmenna þeirra
úr Reykjavík.
Eins og flestir búendur á Suð-
urnesjum stundaði Kjartan út-
gerð jafnframt búskapnum. I
þrjá áratugi var hann formaður
á opnum skipum og var því jafn-
an við brugðið-hversu honum fór
það vel úr héndi. Hann var bæði
aflasæll og heppinn formaður
alla tíð. Þeir, sem til þekkja þar
syðra vita, að ekki var heighim
hent að sigla fleyi sínu heilu í
höfn á þeim árum, er flest skorti
til öryggis og þæginda miðað við 1
það, sem nú er. Eru þeir orðnir
margir, sem notið hafa tilsagnar
hans og forystu á sjónum eftir f
öll þessi ár, og minnst hans með
þakklæti. Kjartan var duglegur
hvort sem var á sjó eða landi og
ósérhlífinn. Þeir, sem þekktu
Kjartan, minnast þess hve glað-
lyndur hann var; hann sá jafnan
hina bjartari hlið lífsins fyrir
sér, og stytti mörgum stundir
með kímnigáfu sinni og bjart-
sýni. Hann var maður hispurs-
laus í framkomu og kom ævin-
lega til dyranna eins og hann var
klæddur. Af þessum ástæðum
m. a. varð Kjartan vinsæll mað-
"tir og átti sér enga óvildarmenn.
Gestrisni hans var mikil, og nutu
margir góðs á heimili þeirra
hjóna. Sömuleiðis minnast börn-
in öll, sem voru á heimili þeirra
og nágrannabörnin, sem voru
heimagangar þar, allra gæða og
góðs viðmóts, er þeim var sýnd.
þar, og er ég einn í þeirra hópi.
Með Kjartani Helgasyni er
fallinn í valinn einn þeirra Suð-
urnesjamanna, sem fast sóttu
sjóinn, og sýndu óbilandi þraut-
seigju og dugnað við öflun lífs-
viðurværis fyrir sig og sína, við
hin erfiðustu skilyrði.
Ástvinir hans og samferða-
menn Jcveðja hann með söknuði,
en eftir lifir minning um mætan
mann, sem seint fyrnist.
G. R. M.
A BEZT AÐ AVGLfSA X
1 MORGVISBLAÐIN V
11 I
|Jón Helwason
íiiaðnr í llöfn
JÓN HELGASON, stórkaupmað- |
ur í Kaupmannahöfn, varð 70 ára
þann 11. september s. 1. Það mun
óhætt mega telja Jón meðal
hinna þekktustu íslendinga í
Danmörku um nokkurra ára
skeið, þar sem hann hefur búið
í Kaupmannahcfn síðan 1920 eða
full 34 ár.
Jón Helgason var einn meðal
hinna vösku ungu manna er
ásamt Jóhannesi Jósefssyni um
tvitugsaldur á fyrsta tug þessarar
aldar fóru að heiman og ferðuð-
ust til ýmsra höfuðborga í
Evrópu og annarra stórra bæja
til að sýna þaf listir sínar, glím-
ur, aflraunir o. s. frv. Þessum
ungu mönnum var allsstaðar tek-
ið með dálæti og stórri hrifningu
hvar sem þeir komu. Einkum
vakti Jón athygli vegna vaxtar
og gjörfuleika. samfara afli,
mjúkum hreyfingum og snarræði
þar sem hann sýndi listir sínar
á leiðsviðinu — Jón stundaði
nám við hinn nafnkunna „Ollerup
Gymnastik- og Idrætshojskole“
undir forustu Niels Buck og var
að því loknu fær í flestan sjó,
enda kom honum vel að notum
síðar.
Eftir að hann í tvö ár hafði
sýnt listir sínar í ýmsum lönd-
um, búsetti hann sig árið 1910 í
þáverandi St. Pétursborg (nú
Leningrad) og var strax ráðinn
kennari í'leikfimi og sundi við
keisaralega herforingjaskólann
þar í borginni. Jafnframt fékk
hann ábyrgðarmikið og vellaun-
að starf við „Russian and English
Bank“ og leysti hið vandasama
starf sitt, — sem kennari við
herforingjaskólann og embættis-
maður við bankann — af hendi
með mesta sóma.
Árin hðu, heimsstyrjöldin skall
á og stjórnarbyltingin í Rúss-
landi 1917—18, bréytti gjörsam-
lega öllu viðhorfi. Hinir nýju
valdhafar sviftu embættismenn
keisarastjórnarinnar embætti og
þar á meðal Jón og eftir 10 ára
dvol í Rússlandi 1920 flutti hann
til Kaupmannahafnar, án þess að
geta tekið með sér nokkuð af
eignum sinum eða fjármunum,
þar sem hann hefur nú búið í
full 34 ár.
Mapús Ksr! Lindal
Þorsteinsson
F. 28. 6. 1923. — D. 5. 9. 1954.
Kveðja frá ástvinum.
Lag: Sælir þeir, er sárt til finna.
Dauðans þegar klukkur kallar,
klökkna tekur vina lund,
ljúft er vin og óskir allar
öruggt fela Guðs í mund.
Ljósið Drottins Ijómar, glæðir,
lyftir hjörtum Guðs á fund.
Sorgar djúpu sárin græðir
sonur Guðs á rauna stund.
Vonir, þegar, blíðar bresta,
burtu kallast ástvin kær;
athvarfið er eina bezta,
öruggt skjólið trúin ljær.
w
Unnustan og börnin bæði
beztu þakkir látnum tjá.
Nú, þó hjartabenjar blæði,
bregst ei huggun Drottni hjá.
En Jón var ekki af baki dott-
inn, þótt hann hefði tvær hendur
tómar. Hann hafði óbilandi vilja-
kraft og þrek á við tvo meðal-
menn eða fleiri. Hann gjörðist
bílstjóri, tók að sér vörur í um-
boðssölu, kenndi leikfimi o. s.
frv., engin stund varð honum
j til ónýtis og reglusemin var
! framúrskarandi og sparsemin að
sama skapi. Það voru ekki liðin
meira en tvö eða þrjú ár, þar til
menn sögðu sín á milli að Jón
væri orðinn velefnaður maður er
gott væri að leyta til um hjálp ef
í nauðirnar ræki, og veit sá er
þetta ritar að það var satt og
margir landar áttu þar hjálpar-
hellu þar sem Jón var. í meira
en 20 ár hefur Jón rekið um-
fangsmikla verzlun með íslenzk-
ar afurðir, haft stóra vinnustofu
með faglærðu fólki við niður-
lagningu af allskonar tegundum
af síld, niðursuðu og ýmiskonar
matvörutegundum o. s. frv. Hið
opinbera vörumerki á afurðum
hans, á niðurlögðum og niður-
soðnum vörum hefur verið
„Vinco“ og sem náð hefur mikilli
útbreiðslu, ekki aðeins í Kaup-
mannahöfn heldur og víðar í Dan
mörku.
Af opinberri starfsemi Jóns er
mér aðeins kunnugt um að í
nokkur ár hefur hann verið í
stjórn íslendingafélagsins í
Kaupmannahöfn, verið formað-
ur í róðrafélagi íslendinga þar
og nú síðast stofnandi og for-
maður deildarinnar Gefinn nr.
200 í Kaupmannahöfn, sem er
deild í Slysavarnafélagi íslands.
Heimili þeirra hjóna, frú
Kristínar og Jóns er hið glæsi-
legasta og alkunnugt fyrir gest-
risni og höfðingskap.
Það munu margir verða til að
óska Jóni og þeim hjónum til
hamingju í tilefni af afmælinu.
Th.
Kveðju amman kæra sendir,
kærleiks þakkar hverja stund.
Trúaraugum bljúgum bendir
beint til Haris, er læknar und.
í huga nú við kveðjum klökkum
kæran vin í hinzta sinn.
Ást og tryggð við þína þökkum.
Það er kærust minningin.
Ó. Á.
Óvænt heimsókn.
LONDON — Tveir apar sluppu
nýlega úr New Brighton dýra-
garðinum og fundust eftir langa
mæðu undir rúmi hjá gamalli
piparmey við Grosvenor Drive.
Stukku aparnir út um gluggann
er gamla konan tók að búa um
sig.
Mesti dulmagni vorra tíma
Nú er síðasta tækifærið að sja hinn
heimsfræga dulmagna
FRlSENETTE
[ Sýning í Austurbæjarbíói í kvöid kl, 11.15
■ Aðgöngumiðar í ísafold, Austurstræti, Drangey, Lauga-
■ vegi 58 og Austurbæjarbíói eftir kl. 1 í dag.
AtK. NÝ SKEMMTIÁTRIÐI.
Notið þetta síðasta tækifæri.
Styrkið göfugt og gott málefni.
Reykjavíkurdeild A.A.
Hinn h'einrsfrægi
'j£ lf| fjöllistarmaður
írisenette
heldur
031*113- skemmftun
• - SSlSISaB í Ansturbæjarbíói á
morgun, sunnudag,
mjk: kl. 1,30 e. h.
Aðgöngumiðar seldir í
Austurbæjarbíó frá
kl. 1 í dag.
Reykjavíkurdeild A.A.
LISTSÝMINGIW i
H
:i
3
í Listasafni ríkisins er opin daglega frá :
klukkan 1—10. — Aðgangur ókeypis. »
NÆST SÍÐASTI DAGUR I
Sendkveinn óskast
: í
! Garðar Gíslason h.f. \
: Hverfisgötu 4 :
.............................................
................••■■■.......................
l) S A 5 3
. ■ "
. m
gerhreinsar gólfteppi og bólstruð húsgögn. j
Z 2
■ ' —
: Eyðir hvaða blettum sem er, :
: -3
....................... ......•■■aiuflmj#