Morgunblaðið - 21.09.1954, Síða 2

Morgunblaðið - 21.09.1954, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. sept. 1954 1 Hornaiiarðarmánmii IÞJÓÐSÖGUM Jóns Árnasonar er aS finna eftirfarandi kýmnisögu: „Einu sinni komu Hornfirðingar í kaupstað, sem «kki var vant, og þótti þar flest ■dýrðiegt umhorfs, og ólíkt því eem þeir voru vanir í Hornafirð- inum. Meðal annars varð þeim litið upp í tunglið, sem skein í lieiði. „Tarna er almennilegt tungl,“ sögðu þeir, „það er mun- ur eða helvízkur Hornafjarðar- máninn." Síðan Jón Árnason gaf út þetta ^ögukorn eru bráðum 100 ár, «nda hefur margt breytzt síðan. Ekki alls fyrir löngu fluttist til Rd^kjavíkur, austan úr Horna- íirði, maður að nafni Björn Guð- mundsson bróðir Vigfúsar á Hreðavatni. Er hann varafulltrúi Eramsóknar í bæjarstjórn Reykja víkur. Þessi maður hefur gert sér mjög tíðrætt um það hve Reykja- vík væri sóðaleg um margt og á «ftir tímanum. Sérlega hefur t>essi maður verið margorður um jþað t. d. í kosningaræðum, sem birtar voru í Tímanum á s. 1. vetri að til væru enn opin hol- Tæsi í bænum og sitt hvað því líkt. Á síðasta bæjarstjórnarfundi hóf þessi Framsóknarfulltrúi upp sinn venjulega söng um óþrifn aðinn í Reykjavík. Var hann þá í því sambandi minntur á að af öilu því sem Hornfirðingar hefðu Jesið af kosningaræðum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vet- ur, hefði þeim ofboðið mest vand læting hins gamla sveitunga þeirra, Björns Guðmundssonar. út of holræsunum í Reykjavík, þvi umbúnaðurinn við bústað hans sjálfs í Hornafirði hefði sízt af öllu verið íbúunum í Höfn til gleði, svo ekki sé meira sagt, og því ólíklegt, að slíkur maður fæn nokkurntimann á æfi sinni að vandlætast út af ólokuðum hol- xæsum. Þjóðviljinn hefur tekið þessa athugasemd við ræðu I'ramsóknarfulltrúans mjög illa upp, enda er það nú orðið eins Tneð minnihlutaflokkana í bæjar- Gtjórn og mennina, sem sátu hlið við hlið, og þekktu ekki í sundur íæturna á sjálfum sér. Annars er það svo sem ekki óeðlilegt þó mörgum Reyk- víkingum öfbjóði tal Björn.s Guðmundssonar og fleiri slíkra um það hve Reykja- vík sé sóðaleg og hve margt sé þar eftir að gera. Allt þetta tal sýnir svo átakanlega skiln- ingsieysi á þeim erfiðleikum, sem Reykjavík hefur átt við að etja. íbúatala bæjarins hefur vaxið örar á mjög stuttu árabili en nokkurn mann hcfði nokkurntímann órað fyrir. Af þessu leiðir skort á húsnæði og erfiðleika á ýmsum öðrum framkvæmdum, sem þessi öri vöxtur útheimtir. Eingöngit af þessari ástæðu hefur hol- ræsagerð sums staðar í bæn- um verið lakari en skyldi. — Hefði Reykjavík hins vegar ckki vaxið svo ótrúlega ört vegna viðkomu í bænum sjálf- um og jafnframt vegna hins gífurlega aðstreymis til bæj- arins, hefðu margir af þeim örðugleikum sem bærinn og íbúar hans eiga í, ekki komið til. JÞetta viðurkenna allir 1 1 sanngjarnir menn og dettur '! ekki í hug að gera slíkt að rógsefni á hendur bæjarfélag- 1 inu í útvarpi eða á mann- 1 íundum. Þegar á þetta er litið verður það skiljanlegt, að ýmsum bæj- arbúum gremjist það skilnings- leysi og sá hroki, sem birtist í vandlætingu Björns Guðmunds- «onar Framsóknarmanns um sóða íikapinn og sleifarlagið í Reykja- vík. Hér skiptir ekki máli, þó Björn Guðmundsson sé tiltölu- lega nýlega aðfluttur til Reykja- víkur. — Réttur íbúanna til að íinna að, á sanngjarnan hátt, ef eitthvað fer miður, minnkar ekki við það þó þeir séu ekki inn- bornir Reykvíkingar. En þegar menn eins og Björn Guðmunds- son úr Hornafirði vaða fram á fundum eða annars staðar með stórorðar vandlætingar, sem ekki eiga heima í þeirra munni, út af erfiðleikum, sem Reykvíkingar eiga við að etja en hafa fyllsta vilja á að leysa svo fljótt setn tök eru á, þá er ekki að undva þó slíkur maður sé tekinn til nokkurrar hirtingar. Hornfirðingar eru ágætis fólk og búa mcð sæmd undir köldum jöklum í fagurri og byggilegri sveit. Þar bera þeir sína erfiðleika, eins og aðrir, en níða aldrei sjálfa sig í blöð- unum. Tunglið í Hornafirði er jafngott og annars staðar og sá tími er löngu liðinn, að Hornfirðingar þurfi vegna1 minnimátíarkenndar að skaminast sín fyrir þau ljós himinsins, sem skina yfir þeim og eru þau sömu og hjá öðrum. En sá „Hornafjarðar- máni“, sem Framsókn bregður stundum upp á himni bæjar- stjórnarinnar er óneitanlega í ætt við það tungl, sem gömlu Hornfirðingarnir sögðu, að væri alls ckki „almennilegt tungl.“ En er reyndar nokkurs annars að vænta úr þeirri átt? Framsóknarmenn liafa aldrei brugðið mikilli birtu yfir höf- uðstaðinn og er þá svo scm nokkuð um að sakast þó þessi gamli „Hornafjarðarmáni“ geri það ekki heldur. Hitt er svo aftur annað mál, að Reykjavík þarf að losa sig við þessa og þvílíka úr bæjar- stjórn Reykjavíkur, þegar tækifæri gefst næst. Ók 125 km ieið með fjclskyidu sína og synli 200 m sjötapr HÚSAVÍK, 20. sept. — Þingeying ar voru ekki síður áhugasamir fyrir 200 metra sundkeppninni en aðrir landsmenn. Sannaðist það bezt, er bóndi nokkur hér í sýslunni, Guðni Kristjánsson, að Núpi í Öxarfirði, tók sig upp með alla fjölskyldu sína 5 manns, síðasta dag sundkeppninnar. og fór 125 km leið til næstu sund- laugar, til þess að heimilisfólk hans gæti lagt sinn skerf til keppninnar íslandi til sigurs. — Synti gamli maðurinn 200 metr- ana léttilega, eftir þessa löngu ferð. Þess munu fleiri dæmi hér í sýslunni, að fólk hafi komið langt að til þess að synda, og jafnvel sveitafólk, sem hefur þó annríkt á þessum tíma árs, við heyskap og annað, sem að bú- skap lýtur. — Fréttaritari. Á Nnpa!!aveginym mmii ■ -■ Mynd þessi var tekin á Þingvallaveginum nú fyrir nokkru, cr fiug* vélin, sem varð að nauðlenda þar, hafði verið sett upp á stóran flutn- ingavagn. Flutti vagninn hana til Keflavíkur. Ólaíur vann Gllfer á Sepiembermótinu IIAFNARFIRÐI, 20. sept. — Fjórða umferð í Septembermót- inu var tefld s.l. sunnudag og fóru leikar þannig, að Ólafur vann Gilfer, Sig. T. vann Jón Jóhannesson, Jón Pálsson vann Trausta, Arinbjörn og Sigurgeir gerðu jafntefli, en biðskák varð hjá Jóni Kristjánssyni og Baldri. Eftir fjórar umferðirnar er vinningaröð keppenda þessi: í 1.—5. sæti eru þeir Aribjörn, Jón Pálsson, Ólafur, Sigurgeir og Sigurður T., allir með 2 Vz vinn- ing hver, 6. Jón Kristjánsson með 2 v. og biðskák, 7. Baldur með 1V2 v. og tvær biðskákir, 8. Gilfer IV2 v. og viðskák, 9. Trausti með 1 v. og 10. Jón Jóhannesson með engan vinning. Eins og sjá má, er keppnin í þessu móti mjög tvísýn, því að eftir þessar fjórar umferðir eru fimm efstu menn jafnir. Fimmta umferðin verður tefld n.k. þriðjudag kl. 8 e.h. en þá eigast við Baldur og Sig. T., Gilfer og Jón Kristjánsson, Sig- urgeir og Ólafur, Jón Jóhanns- son og Jón . Pálsson, Trausti og Arinbjörn. — Zinan. Fóstbræður í Lundúiium London, 18. sept. Einkaskeyti til Mbl. KARLAKÓRINN Fóstbræður kom hingað til Lundúna í gær- kvöldi, eftir hraða söngför um Frakkland, en allir voru í bezta skapi. Hér hefur kórinn sungið inn á plötur fyrir His Masters Voice fjölda islenzkra kórlaga, svo og lög frá Norðurlöndum og alþjóðleg. Á laugardaginn höfðu sendi- herrahjónin, Agnar Kl. Jónsson og kona hans, boð inni fyrir kór- félaga og íslendinga, sem búsett- ir eru hór, og einnig var boðið fulltrúum frá His Masters Voice, brezka útvarpinu og Lundúnar- blöðum. Voru alls í þessu síð- deigsboði um 160 manns. Á laug- ardagskvöld efndi íslendingafé- lagið til samkomu fyrir gestina í Mayfairhótelinu. Þar söng kór- inn mörg íslenzk lög. í dag laugardag) kl. 15 eftir ís- lenzkum tíma kom kórinn fram í innanlandsútvarpi BBC. Á morgun mun kórinn skoða borgina, en síðan heldur hann förinni áfram norður til Skot- lands. Fararstjóri Fóstbræðra sagði mér, að söngförin hefði gengið í alla staði mjög að óskum. Bað hann Mbl. fyrir kveðjur kórfé- laga til ættingja og vina, og þeir senda beztu kveðjur. — Balslev. Ógæftir á ísafirði ÍSAFIRÐI, 20. sept. — Ógæftir hafa verið hér siðan í miðja síð- astliðna viku, og enginn bátur á sjó. Rækjuveiði hefur verið all- sæmileg, þegar hefur gefið, hér í ísafjarðardjúpinu og hafa nokkrir bátar stundað hana. — Jón. Vöraskiptajölnoðarmn óhng- stæður um 214 raíllj. a þessu órí VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR- INN í ágústmánuði varð ó- hagstæður um 4G,6 milljónir króna. Er þá vöruskiptajöfn- uður þessa árs þ. e. janúar til ágústloka óhagstæður um 213,8 milljónir króna. Fyrstu 8 mánuði ársins í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn hins- vegar óhagstæður um 217,6 milljónir. Verðmæti innflutnings í ágúst- mánuði er samkvæmt skýrslu Hagstofunnar 96,1 milljón kr., en út var flutt fyrir 49,4 millj. í ágúst í fyrra nam innflutningur- inn hinsvegar 63 millj. en út- flutningurinn 75,3 millj. Útflutningur fyrstu 8 mán. þessa árs er alls 50,7 milljónir á móti 385,6 millj. í fyrra. Það sem af er þessu ári nemur innflutn- ingurinn 714,6 millj. en nam á 8 fyrstu mánuðum 1953 603,2 millj. Bygping s@mentsv®ir smiðjunnar að hef jist AKVEÐHD hefur verið að hefja byggingaframkvæmdir við sementsverksmiðjuna á Akranesi. Næstu daga verður byrjað á byggingu á undirstöðum fyrir efnageymslu verksmiðjunnar, en jafnfarmt verður lóð verksmiðj- unnar jöfnuð, til þess að aðal- framkvæmdir geti hafizt með vorinu. Framkvæmdabanki íslands hefur veitt verksmiðj unni lán til þessara framkvæmda. Ríkisstjórnin hefur að undan- förnu unnið kappsamlega að út- vegun á láni til kaupa á vélum og erlendu efni til verksmiðj- unnar. Lögð hefur verið á það áherzla að fá slíkt lán óháð efnis- kaupum með það fyrir augum, að auðið verði að sæta hagstæð- iimmgafsjóðiir Skúla læknis Áriiasonar NÝLÁTINN er hér í bæ í hárri elli Skúli Árnason, fyrrverandi héraðslæknir í Skálholti. Hann var einn mesti latínumaður hér á landi á síðustu árum og kenndi fram undir andlát sitt latínu til stúdentsprófs mörgu fólki, er til hans leitaði. Luku nemendur hans lofsorði á frábæra kennara- hæfileika hans og mannkosti. Nú hafa börn Skúla læknis stofnað sjóð til minningar um föður sinn. Á þessi sjóður að vera í vörslu rektors Menntaskól- ans í Reykjavík og skal vöxtun- um af honum árlega varið til að verðlauna þá nemendur, er hljóta beztu einkunn í latínu við stúd- entspróf frá skólanum. Útför Skúla læknis mun sam- kvæmt ósk hans fara fram í kyrr- þey eftir nokkra daga, en þeim nemendum hans, vandamönnum og öðrum vinum, sem kynnu að vilja heiðra minningu hans, er hér með bent á verðlaunasjóð þennan. Verður framlögum í hann veitt móttaka í Bókaverzl- un Sigfúsar Eymundssonar. ustu kaupum á vélum og efm, Enn hefur ekki verið samið urri slíkt lán, en allt kapp mun verða' lagt á að tryggja verksmiðjunní nægilegt fjármagn, svo að bygg- ingu hennar geti mi'iað áfrarre með eðlilegum hraða, enda vaft um það samið, er núverandi rík- isstjórn var mynd-uð, að sem* entsverksmiðjan skyldi gangai fyrir öðrum framkvænidum urq útvegun lánsfjár. (Frá stjórn Sementsverksmiðju ríkisins). Hæringur í hafi með 6 mílua hraða HÆGT sækist Hæringi ferðin til Noregs, enda verið nokkur strekkingur á leið hans, af norð- austri. Á sunnudaginn höfðu skipverjar seinast landsýn hing- að, er Hæringur var á hádegi út af Portlandi. í gær var skipið komið út í haf og sigldi með sex mílna ferð, en strekkingur var af norðaustri. Skip tefjast vegna veðurs VEGNA hins stöðuga norðan* hvassviðris hér á landi undan- farna daga, hafa skipaferðir taf-i izt. — í gærkvöldi lagði Brúar- foss af stað áleiðis til Evrópu- landa, en hann átti að sigla áj laugardaginn. — í gærkvöldi kom Lagarfoss frá Vestmnnnaeyjum. — Þar varð skipið. að liggja undir Eiðinu í nær ivo sólar- hringa. Vegna hvassviðris gafl skipið ekki komist ir.n á höfn- ina þar. Hér í Reykjavík var ekki hæg® að hefja losun á olíufarmj rússneska olíuskipsins Moskva, 3 gærdag. — Skipið á að losa :carm- inn í BP stöðina á Laugarnes- töngum. — Þegar olíuskipin ern bundin við baujurnar við olíu- stöðvarnar, þarf að senda menrs upp á baujurnar með víra, en ] gær var of hvasst til þess að láta menn vera á baujunum. Akureyri vann Húsa- vík í brldgekeppsii HÚSAVÍK, 20. sept. — Milli Hús- víkinga og Akureyringa, fer ár- lega fram keppni í bridge, og mætast flokkarnir þá venjulega í Reykjahlíð við Mývatn. Siðast- liðna helgi fór þessi keppni fram í Reykjavík og var spilað ó þrem borðum. Úrslit urðu þau, að Hús- víkingar unnu á tveim borðum, en töpuðu á fyrsta borði. Jafn- framt fór fram tvímennings- keppni, sem lauk með sigri Þórist Leifssonar og Mikaels Jónssonar frá Akureyri. Um helgina var statt á Húsavílc knattspyrnulið frá knattspyrnu- félagi Akureyrar. Voru háðir þrír leikir, tveir leikir í 2.fl. 0g unnu Akureyringar fyrri leikinn með 3:1. Seinni leikurinn var jafntefli 2:2. í 1. fl. unnu Akur- eyringar með 4:1. — Fréttaritari,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.