Morgunblaðið - 04.11.1954, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.11.1954, Qupperneq 3
Fimmtudagur 4. nóv. 1954 MORGVNBLAfíiÐ 19 LæiiiiisráH vikunsier: Krepptir fingur IHAUST skortir Dani þá venju-1 legu bjartsýni sína, sem þeir líta jaínan með til komandi vetr- ar. Eftir því, sem dagsbirtan dvín j fjölgar þeim vandamálum, sem þjóðin á við að stríða. Sumarið í sumar hefur verið mesta rigning- j arsumarið í manna minnum. Eftir að vorið hafði komið með mikl- um þurrkum, sem eyðilögðu mik- ið af heyjum, komu rigningarnar og síðan hefur rignt svo að segja hvern einasta dag. Afleiðingin er sú, að enn stend- ur korn í stökkum úti á ökrun- um, sem er sjö vikna gamalt og orðið er nær kolsvart af skemmd- um. Þrátt fyrir þetta hefur upp- skeran þó orðið meiri en venju- lega, og er það súgþurrkuninni fyrst og fremst að þakka. ♦♦ ♦ MIKIL ♦ VERÐLÆKKUN ♦♦ ■fc Ei dansba stjórQÍn ♦ ♦ ♦♦ RÓFNAUPPSKERAN er þó öll Dönum þykja Þjóðverjar virða lítt rétt danska minni hlutans í Suður-Slésvík. Myndin er frá dönskum barnaskóla, skammt frá þýzku borginni Flensborg. eyðilögð. Ekki eru nema þrír fjórðu hlutar sykurrófna nýtileg- ar. Danmörk hefur flutt út all- mikið af sykurrófum á undan- förnum árum, en nú eru allar horfur á því, að framleiðslumagn- ið nægi vart fyrir heimamarkað- inn, Og framleiðendurnir hafa orðið að ógilda sölusamninga við útlönd, sem nema 50.000 lestum til þess að geyma magnið, sem forða til næsta árs. Um fóðurrófur er sömu söguna að segja, og mun verða erfitt um fóðrun húsdýranna á komanda vetri og framleiðslu kjöts í land- inu. Útflutningsverð Dana á svínakjöti verður óbreytt, en það lækkar raunverulega í verði, þar sem framleiðslukostnaður þess hefur hækkað nokkuð á síðasta ári. Smjörverðið á brezka mark- aðinum hefur lækkað um 3%%.- Danir hafa orðið að velja á milli þess að fallast á verðlækkun á landbúnaðarafurðunum, sem þeir flytja út til Bretlands, eða rjúfa áragamla viðskiptasamninga og taka upp höndlun á frjálsum markaði, en ef þeir gera það leggst aukatollur, 15% á allan innflutning til Bretlands. Dan- mörk mótmælti þessu ákvæði og bauðst til þess að bæta þetta upp með 1.5 millj. punda greiðslu í eitt skipti fyrir öll, en það hefði átt að bæta sig upp á einu ári, reiknað með meðalinnflutningi til Bretlands. Þessari uppástungu neituðu þó brezku yfirvöldin og endalyktirnar urðu þær, að Dan- mörk varð að beygja sig og láta í minni pokann og sætta sig við verðlækkun á landbúnaðarvörun- um. Vakti það gremju danskra bænda og tal um ofstopaaðgerðir Bretanna. Um eggin gildir aftur öðru máli. Þau eru seld á frjálsum markaði, en ekki bundin lang- varandi viðskiptasamningum, svo sem um aðrar landbúnaðarvörur. Eggjaframleiðslan mun aukast mjög og líklega verða hin mesta, sem verið hefur í landinu. ♦♦ ♦♦ ♦ STJÓRNIN ♦ ♦ FALLVÖLT ♦ ♦♦ ♦♦ MARKAÐSVANDKVÆÐIN hafa haft það í för með sér, að verzl- unarjöfnuður Dana, sem á und- anförnum árum hefur verið mjög hagstæður, er nú orðinn afar ó- hagstæður og er ekki aðeins, að gjaldeyrisforðinn sé upp urinn, heldur og, að erlendar skuldir eru teknar að safnast fyrir. Hef- ur þetta valdið minnihlutastjórn sósíaldemokrata miklum erfið- leikum. Hefur stjórnin neyðzt til þess að draga úr framkvæmdum Og fjárútlátum af hálfu ríkisins, og má vel vera, að atvinnuleysi fylgi í kjölfar þess. Jafnframt hafa skattarnir hækkað og ráð- stafanir einnig verið gerðar til þess að auka sparnað lands- manna. En mikilvægasta atriðið er þó, að stjórnin varð að leita um stuðning til radikalaflokksins, sem setti það skilyrði, að her- skyldutíminn væri styttur um tvo mánuði, úr 18 mánuðum í 16, og Eftir Balslev Jörgensen sú ráðstöfun verður gerð innan skamms, þótt hún muni án efa mæta mikilli andspyrnu hjá öðr- um ríkisstjórnum Atlantshafs- bandalagsins. Stærstu stjórnar- andstöðuflokkarnir, vinstrimenn og íhaldsflokkurinn, munu greiða atkvæði gegn breytingu stjórn- arinnar á herskyldutímanum og munu reyna að fella stjórnina við fyrsta tækifæri. Þeir munu þá þröngva fram nýjum kosningum og ganga til þeirra á þeim grund- velli, að stjórninni hafi mistekizt að leysa þau vandamál, sem hún hefur lofað að ráða fram úr og hafi hún jafnframt misst traust þjóðarinnar. ♦♦ ♦♦ ♦ ÞINGROF ♦ ♦ SKAMMT UNDAN? + ♦♦ ♦♦ FLOKKAR þessir telja einnig, að þær ráðstafanir, sem stjórnin hefur gripið til séu allsendis ófullnægjandi, og að þær muni hafa það eitt í för með sér, að vandkvæðin í efnahags- og stjórn málum aukist, svo kosningar verði óhjákvæmilegar. Leggja þeir til að upp verði tekin efna- hagsstefna, sem líkist stjórnar- stefnu Eriks Eriksens, er hann var forsætisráðherra og færði landinu góðæri í fjár- og atvinnu- málum. Það er almenn skoðun innan allra dönsku flokkanna, að kosningar verði innan skamms, nema því aðeins, að radikalir bjargi sósíaldemokrötum frá bráðum bana. Þó er ljóst, að þjóð- in vill ekki ganga út í kosningar, þar sem aðeins eitt ár er liðið frá því, að síðast var kosið í land- inu, en ljóst er, að ekki er annað fyrir Hans Hedtoft að gera, eins og málum er nú komið, en að rjúfa þingið. ♦♦ ♦♦ ♦ ÞJÓÐVERJAR ♦ ♦ SAMIR VIÐ SIG ♦ ♦♦ ♦♦ HÖFUÐUTANRÍKISMÁLIÐ er afstaða Danmerkur til endurvíg- búnaðar Þýzkalands. Ríkisstjórn- in og meiri hluti þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að leyfa beri Þýzkalandi að herbúast, en þó fylgir tregða þeirri viðurkenn- ingu, og tortryggnin á Þýzka- landi hefur heldur aukizt en minnkað síðustu mánuðina. Kem- ur þar til, að bæði er svo stutt síðan Þjóðverjar hersátu Dan- mörku, og svo virðist sem engin breyting hafi orðið á hugarfari þýzku þjóðarinnar til hins betra. Danmörk hefur mjög gott tæki- færi til þess að meta lýðræðis- og samstarfsvilja Þjóðverja, þar sem þeir tefla í sífellu við þá um héruðin í Suður-Slésvík, þar sem Þjóðverjar settu stein í veginn fyrir því, að hinn fjölmenni danski minnihluti í héruðunum fengi fulltrúa á þingi héraðanna í Kiel. Aftur á móti er hinum fámenna þýzka minnihluta í Norður-Slésvík, 9000 manns, leyft að kjósa fulltrúa á þingið í Kaup- mannahöfn. Ótal dæmi hafa og gerzt um það á undanförnum misserum, að Þjóðverjar hafa gengið illilega á hluta Dana í landamærahéruðunum og áreitt þá að ástæðulausu, og þótt Þjóð- verjar haldi því fram, að danski minnihlutinn í Suður-Slésvík njóti jafnréttis við Þjóðverja þar, þá stangast það algjörlega á við staðreyndirnar. ♦♦ ♦♦ ♦ FORN ÓBEIT ♦ ♦♦ ♦♦ Á VERZLUNARSVIÐINU hafa Danir og undan Vestur-Þjóðverj- um að kvarta. Þeir leggja alls- kyns höft á innflutning frá Dan- mörku, en í Danmörku flæða þýzkar vörur yfir iandið og njóta fulls jafnréttis þar á borð við vör- ur frá öðrum löndum. Þannig er hin forna óbeit og tortryggni Dana í garð Þjóðverja fjarri því horfin nema síður sé. Má segja, að á síðustu vikum hafi hún fremur aukizt og óvild gegn öllu því, sem þýzkt er eykst sífellt í landinu. Er ekki vafi á, að Danir þurfa að taka til betri handarinnar í samningum sínum við Vestur-Þýzkaland, en heims- stjórnmálin hljóta þó alltaf að ráða meiru um afstöðuna til Vestur-Þýzkalands, en óbeit ein- stakra manna. Aftur á móti eru Danir mjög fúsir til norrænnar samvinnu nú, líklega fúsari en þeir hafa nokkru sinni áður verið. Ef tækifæri væri til myndu Danir gjarnan vilja auka þá samvinnu í mjög ríkum mæli, enda eru þar nú fjölmörg stórmál á döfinni, sem leysa þarf í náinni framtíð. Eyjólfur K„ Sigurjönsson Ragnar Á. 'Magnússon löggiltir endurskoðendur. Klapparstíg 16. — Sími 7908. UNDIR húðinni í lófa manns eru marggreindar sinar. Ef allt er með felldu veit maður ekkert af þeim. En það getur komið fyrir, að þegar aldurinn færist yfir, verða sinarnar gildari en þær eiga að sér, og þá geta þessar sin- ar dregist saman og hnýtzt. En ekki aðeins sinarnar heldur vefir lófans geta dregist saman í hnúta. Til lengdar getur þetta ekki leynst. Að vísu eru lófar manns ekki að öllum jafnaði til sýnis. Að minnsta kosti geta menn kom ist hjá, að þeir verði til sýnis og gera það ekki sízt, ef þeir taka óeðlilegum breytingum. Ef sinarnar hnýtast geta menn ekki rétt úr fingrunum. Venju- lega byrjar þetta í litla ^ingri og baugfingri. En breytingin fer hægt. Gerist á löngum tíma, en alltaf versnar þetta þegar það á annað borð er byrjað. í upphafi veldur þetta litlum óþægindum. Að vísu fer það nokk uð eftir því, við hvað menn starfa. Að jafnaði geta menn beygt fingurna og þeir missa ekki mátt. En menn verða ekki breytinganna mikið varir því þær eru svo hægar, að þær eru hverfandi frá ári til árs, svo menn vanrækja að leita nokk- urra lækninga fyrst í stað. Menn halda þessu leyndu, eink um vegna þess að ekki er að jafnaði nein þörf fyrir að rétta úr fingrunum, því menn taka ekki eftir þó fingurnir séu eitt- hvað beygðir. Menn þurfa ekki á öðru að halda. En svo kemur að því, að ein- hver góðkunningi manns, eftir innilegt handtak, spyr: Hvað er að þér í hendinni? Og menn vilja að jafnaði ekki svara því. En þegar aðrir fara að hafa orð á að eitthvað sé bogið við hend- ur manns, þá fara menn að líta í kring um sig, sem eðlilegt er, því hægt er að stöðva þessar óþægi- legu breytingar. Menn vita ekki hvað er ástæð- an til þess, að handvefurinn í lófanum dregst saman. Qft sér maður þetta mein meðal manna sem vinna erfiðisvinnu. En skrif- stofufólk getur einnig orðið fyrir þessu þó það handleiki ekki ann- að en pennastöng. Vel má vera að arfgengi komi þarna til greina. En láti maður sjúkdóminn eiga sig of lengi svo að einn eða fleiri fingur séu orðnir bognir í lófan- um, þá kemur að því, að menn verða að sjá sér fyrir uppskurði. Þá er állur hinn hnýtti bandvef- ur tekinn. Séu þessar breytingar orðnar miklar áður en til uppskurðar kemur, þá getur þessi þróun tekið sig upp eftir uppskurðinn og uppskurðurinn kemur þá ekki að tilætluðu gagni. En oft fá menn fullkomna leið- réttingu á þesskonar meinsemd. Oftast nær er hægt að búast við góðum árangri þegar þetta er tekið snemma, til aðgerðar. Það er ekki mitt að segja til eða frá, hvenær menn eiga að leita þess- arrar aðgerðar, eða hvað skammt eða lengi menn eiga að bíða. En mörg dæmi eru til þess, að allt fer vel úr hendi við slíkar að- gerðir. Og því er líklegast að þeir, sem fá lækna til að gera þær, komizt í þennan flokk. — Annars geta menn tafið fyrir þessum samdrætti í sinunum með því að gera daglegar æfingar, a3 rétta úr fingrunum. Stundum geta röntgengeislar komið að gagni. En ekki eru menn sam- mála um gagnsemi þeirra, svo eigi er hægt að fullyrða um ár- angur af þeim. Sjúkdómur þessi hefur að sjálf sögðu ákveðið heiti. Hann heitir á læknamáli Dupuytrens kontr- aktur, en Dupuytren var yfirlækn ir við Hótel Dieu í París og lýsti sjúkdómnum árið 1831. Sjúkdómur þessi getur komið í iljar manna, en hann er sjald- gæfur þar. Dilkar í Þing eyjarsýslnm reynduzt með lakara móti » Húsavík, 2. nóvember. IÞINGEYJARSÝSLU var veðurfar síðastliðinn vetur mjög hag- stætt. Vorið var einnig gott svo að gróður til lands kom mjög snemma. Gerðu bændur sér því vonir um góða afkomu á sauðfé. En raunin hefur orðið önnur og dilkar reynzt með rýrasta móti í haust. Hverju um er að kenna, eru menn ekki sammála um, en sumir vilja kenna það hinu slæma tíðarfari í sumar. FLEIRA FÉ SLÁTRAÐ EN f FYRRA Haustslátrun er nú lokið hjá Kaupfélagi Þingeyinga á Húsa- vík. Var alls slátrað 20073 kind- um. Reyndist meðalþungi dilka 13.15 kg., en var í fyrra 15.15 kg. Það ár var alls slátrað 11909 kindum. HAFA FJÖLGAÐ FÉ SÍNU Fjölgun sláturfjár stafar ekki af því, að óeðlilega mikið hafi verið skorið niður í haust, vegna slæms árferðis, heldur vegna þess að bændur hér eru almennt búnir að fjölga fjáreign sinni, eftir nið- urskurðinn. Var í fyrra mikið áf líflömbum selt suður á land vegna fjárskiptanna þar. ÞYNGSTA MF.ÐALTAL 16.17 KÍLÓ Þyngsta meðalvikt dilka á þessu hausti var hjá Páli Guð- mundssyni í Sandvík. Lagði hann inn 71 dilk og var meðalþyngd dilka og var meðalþyngd þeirra ; 16.17 kg. — Næst bezta með- alþyngd var hjá Vagni Sigtryggs- syni í Hriflu, sem lagði inn 106 16.07ykg. Þyngstu dilkar þessa hausts hér vógu 24 kg. — Frétta- ritari. Krossaslátrun sfend- ur yfir á Sauðárkróki SAUÐÁRKRÓKI, 1. nóv. — Sauð fjárslátrun er nú fyrir nokkru lokið hér, en hrossaslátrun stend- ur yfir. Eru þáð aðallega folöld- in, sem slátrað er. Fyrir helgina fóru nokkrir bát- ar á sjó og aflaðist dável. Rjúpnaveiði hefur nokkuð ver- ið stunduð og hefur veiði verið sæmileg. Annars heldur rjúpan sig aðallega upp til fjalla, vegna þess að ennþá er snjólétt í byggð. Mislingar hafa gengið hér síð- astliðinn hálfan mánuð og hafa börn fengið veikina í stórum stíl. Mislingarnir eru nú í rénun. — Guðjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.