Morgunblaðið - 04.11.1954, Page 4

Morgunblaðið - 04.11.1954, Page 4
20 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. nóv. 1954 Miklar framfarir í benzínframleiðslu opna leið fyrir öflugri og betri bifreiðarhreyflum ÁUNDANFÖRNUM mánuðum hafa bifreiðaeigendur víðs- vegar um heim verið hvattir í auglýsingum benzínframleið- ■enda til þess að nota margs konar ný benzínafbrigði — eins konar undrabenzín. Þeir hafa verið hvattir til að nota benzín, sem Ttæmi í veg fyrir högg í hreyfl- inum, hindraði skammhlaup í kertum, gæfi hreyflinum aukna orku og þýðari gang og kæmi því til leiðar, að hægt væri að aka lengri vegalengd á hverjum ben- TÍnliter. í mörgum þessara aug- lýsinga er talað um ný efni til blöndunar í benzín, sem hindraði myndun skaðlegra málmsam- handa í strokkunum. HVAÐ ER RÉTT I FULLYRÐINGUNUM? Eiga nú þessar fullyrðingar benzínframleiðenda við rök að .styðjast, eða er hér eingöngu farið með staðlausa stafi? Eru 'vandamál þau, er bifreiðaeigend- ur eiga við að stríða eins alvar- leg og af er látið, og hafa benzín- framleiðendur fundið raunhæfa lausn á þeim vandkvæðum? Flestir sérfræðingar, er um þessi mál hafa fjallað, eru sam- mála um, að fyrir hendi séu vandamál varðandi eldsneytis- brunann í bifreiðahreyflum og þau verði að leysa, áður en full not fáist af hinum háþrýstu hreyflum í nýjustu gerðum bif- reiða. Ennfremur verði að ráða bót á þeim, áður-en framleiðsla er hafin á ennþá sparneytnari og öflugri hreyflum, sem þegar hafa verið teiknaðir. MEÐ BETRA BENZÍNI AUKIN ÞJÖPPUN Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir bifreiðaeigendur? — Hér á eftir verður reynt að gera þeirri spurningu nokkur skil. Þegar þjöppunarhlutfallið í benzínhreyfli er aukið, fæst meiri orka úr hverjum líter af elds- neyti. Eftir því sem benzínið er betra er hægt að hafa þjöppun- arhlutfallið í hreyflinum stærra. Sérfræðingar General Motors bif- Teiðaverksmrðjanna hafa reiknað út að benzíneyðsla á hverja bif- xeið í Bandaríkjunum myndi lækka um 15%, ef hægt væri að hækka þjöppunarhlutfallið- úr 8.5:1 í 10:1. Þótt einkennilegt megi virðast, .standa þau vandkvæði, sem nú er verið að ráða bót á, í sambandi við þá endurbót í benzínfram- leiðslu, sem á sínum tíma gerði fært að framleiða þá tiltölulega háþrýstu hreyfla, sem nú eru al- mennt í notkun. Síðan 1930 hafa benzínframleiðendur í Bandaríkj- unum hækkað oktan-tölu ben- zínsins úr 74 í 92 oktan. Með því hefur verið hægt að auka þjöpp- unarhlutfallið úr 4.8:1 í 7.5:1 að rmeðaltali i nýjustu gerðum bif- reíða. Af því leiðir, að nýjasta gerð bifreiðahreyfla er 50% •orkumeiri en hreyflar fram- leiddir 1930. Þegar talað er um orku í þessu sambandi er átt við orku þá, er fæst úr hverjum líter j af benzíni. Tveir lítrar af ben-; zíni nú gera því sama gagn og þrír lítrar 1930. BENZÍNIÐ BÆTT MEÐ BLÝI — EN VANDKVÆÐI KOMA í LJÓS Þær endurbætur, er átt hafa .sér stað í benzínframleiðslu, eru að nokkru að þakka bættum hreinsunaraðferðum og einnig því, að byrjað var að bæta nýju •efni, Tetra-ethylblýi í benzínið. ín eftir því sem fram hafa komið öflugri hreyflar, hafa komið í ljós tvö vandkvæði, er bæði hafa ver- ið talin stafa af blöndun þessa ■efnis í benzínið. BLÝIÐ VELDUR GLÓDARKVEIKJU OG SKAMMHLAUPI Annað þessara vandkvæða er Skýring á því hvað liggurá bakviðhærri oktan-tölu og blöndun fosfat efna í benzín: • svo nefnd glóðarkveikja, þegar kviknar í eldsneytishleðslunni á meðan bullaner á uppleið og áður en hún er komin í stöðu til þess að taka við afslaginu. Hreyfill- inn nýtir því ekki orkuna til fulls. Eldsneyti og orka fara for- görðum og hreyflinum er hætt við skemmdum. Orsök glóðar- kveikju er talin vera sú, að blý- sambönd ganga í efnasamband við kolefnisútfellingar í bruna- holinu, en af því leiðir, að glóð- armyndun á sér stað í útfelling- unum við lægra hitastig en ella. Glóð þessi kveikir síðan í elds- neytishleðslunni, eins og áður er sagt. Hitt vandkvæðið er svonefnt skammhlaup í kertum. Þegar skammhlaup á sér stað í kertum eða þau mynda óreglulegan neista, stafar það venjulegast af blýútfellingum, er myndást við eldsneytisbrunann og setjast á postulínseinangrun kertanna. Út- fellingar þessar leiða rafmagn og koma í veg fyrir að neisti mynd- ist. Þetta á sér einkum stað, þegar hreyflinum er gefið snöggt inn benzín í hægum akstri. í hvert skipti, sem skammh.laup í kerti á sér Stað, fér eldsneytishleðslan í strokknum til ónýtis, og komi þetta oft fyrir, hefur það í för með sér sóun á orku og fjármun- um. Ennfremur getur það verið hættulegt undir erfiðum kring- umstæðum, að hreyfillinn vinni ekki rétt. Glóðarkveikja og skammhlaup í kertum eru ekki ný fyrirbrigði, en vandkvæði þau, er af þeim leiða hafa stöðugt farið vaxandi eftir því sem þjöppunarhlutfall og orka bifreiðahreyfla hefur aukizt. RANNSÓKN Á FLUGHREYFLUM Hin nýja endurbót í benzín- framleiðslu, sem sérfræðingar vona að leysi bæði þéssi vand- kvæði, er árangur rannsókna á sams konar vandkvæðum í flug- vélahreyflum. Snemma í Kóreu- styrjöldinni kom það iðulega fyrir að þyrilvængjur banda- ríska hersins gátu ekki hafið sig til flugs vegna skammhlaups í kertum. Þetta átti sér einnig stað í hinum aflmiklu B-36 sprengju- flugvélum. Orsök skammhláups í kertum var ekki þekkt á þeim tíma og þaðan af síður þekktist nokkuð ráð til úrbóta. Þegar sérfræðing- ar Shell-félagsins í Bandaríkjun- um og Pratt & Whitney verk- smiðjanna, er framleiða flugvéla- hreyfla, rannsökuðu útfellingar, sem söfnuðust á postulin kert- anna, uppgötvuðu þeir það, sem ekki var áður vitað, að þær inni- héldu m. a. blý, sem þeir færðu rök fyrir að stafaði af Tetra-1 ethylblýinu í benzíninu. Þetta vandamál var ekki hægt að leysa með því að nota blýlaust benzín, | þar eð með því var oktan-tala þess Iækkuð, þannig að ekki væri hægt að nota það á hreyflana.1 Rannsóknirnar beindust því að því að finna efni, er breytti efna-1 samsetningu útfellinganna og kæmi í veg fyrir hin skaðlegu, áhrif blýsambandanna. SHELL HEFUR NOTKUN FOSFATS Undir forystu R. J. Greens- hields, sem stjórhar efharann- sóknarstofu Shéll-félagsins í Wood River í Bandaríkjunum, rannsökuðu efnafræðingar úm 2000 efni. Réynt vár að finna efni eða efnasamband, sem væri auð- uppleysanlegt í benzíni, kæmi að gagni við öll hitastig í bruna- holinu og hefði ekki nein áhrif á eðlilegan bruna eldsneytishleðsl- unnar. Að lokum beindist athygli þeirra sérstaklega að einu fosfór- efnasambandi — Trikresyl fos- fati. Tilraunir, er gerðar voru á rannsóknarstofunni, leiddu í ljós, að kerti í hreyflum, sem brenndu venjulegu flugbenzíni, eyðilögð- ust á fjórum tímum. Ef þeir voru látnir ganga á benzíni, er Trik- resyl-fosfati hafði verið blandað í, voru kertin heil eftir 62 tíma og höfðu ekkert látið á sjá. Frek- Eftir Lloyd Stuffer ari tilraunir á þyrilvængjum í einni af flughöfn bandaríska flot- ans staðfestu þessar niðurstöður rannsóknarstofunnar. Skamm- hlaups í kertum varð 75—90% minna vart í þeim hreyflum, sem gengu á benzíni með Trikresyl- fosfati, en í þeim hreyflum; sem notuðu venjulegt benzín. Flogið var með Trikresyl-fosfat í skyndi til Kóreu, og áhafnir þyrilvængja þar lýstu ánægju sinni með hið nýja efni. Svipuð varð niðurstað- an af notkun flugbenzíns, sem þessu efni hafði verið blandað í, á hreyfla í flugvélurh af gerðinni B-36, og flestar flugvélar banda- ríska flughersins af þessari gerð nota nú benzín blandað fosfati. KEMUR EINNIG AÐ GAGNI VIÐ BÍLHREYFLA Sérfræðingar Wood River rann- sóknarstofunnar komust brátt að þeirri niðurstöðu, að Trikresyl- fosfat gæti einnig komið að gagni í bifreiðahreyflum. í þeim kom efnið einnig í veg fyrir skamm- hlaup í kertum, og eins og vonir stóðu til, dró það ennfremur úr tilhneigingu útfellinganna til glóðarmyndunar og hindraði því glóðarkveikju. Eftir þriggja ára ítarlegar rann- sóknir með efnið í öllum tegund- um bifreiðahreyfla, til þess að komast að raun um, að það stæð- ist þær kröfur, er til þess voru gerðar, auglýsti Shellfélagið í Bandaríkjunum 1953, sölu á nýju benzíni, er innihéldi TCP (Tric- resyl-phosphate). Nokkrum mán- uðum síðar var þetta nýja benzín svo sett á markaðinn í hverju landinu á fætur öðru undir nafn- inu Shell-Benzín með I. C. A. í Bandaríkjunum jókst sala Shell á benzíni um 35% fyrstu þrjá mánuðina. BLÝBENZÍNFRAMLEIÐENDUR VIÐURKENNA VANKANTANA Aðrir benzínframleiðendur, er fylgzt höfðu með þessari þróun af áhuga, töku fljótt upp öfluga samkeppni á þessu sviði. Einn framleiðandinn fékk afnot af einkaleyfi Shell-félagsins til blöndunar á Trikresyl-fosfati í benzín og aðrir byrjuðu að blanda í benzínið ýmsum öðrum fosíatsamböndum. Framleiðendur Tetra-ethylblýs voru í fyrstu ekki fúsir að fallast á, að notkun þess til blöndunar í benzín hefði ofangreind vand- kvæði í för með sér. En síðast- liðið haust viðurkenndi þó stærsti framleiðandinn, Ethyl Corpora- tion óbeint kosti fosfatefnanna til blöndunar í benzín, með því að auglýsa, að það gæti afgreitt fosfatsamband ásamt Tetra-ethyl- blýi til allra viðskiptavina sinna, er þess óskuðu. Að minnsta kosti 32 benzínframleiðendur hafa not- fært sér þetta tilboð félagsins. VERÐUR VANDAMALIÐ LEYST MEÐ HÆRRI OKTAN-TÖLU? Nokkrir af stærstu benzín- framleiðendunum biðu þó átekta, meðan rökrætt var fram og aftur um kosti og ókosti hins nýja ben- zíns í hópi sérfræðinga á sviði bifreiða- og benzínframleiðslu. Komu þar fram tvenns konar álit. Annar aðilinn mælti með notkun fosfatefna til blöndunar í benzín. Hinn hélt því fram, að vandkvæði, er stöfuðu af kol- efnisútfellingum í brunaholi væru bezt leyst á þann hátt, að hækka oktan-tölu benzínsins um leið og dregið væri úr myndun kölefnisútfellinga með hreinni bruna. Esso-félagið hefur t. d. hallazt að seinni skoðuninni og hafið framleiðslu í Bandaríkjunum á 95 oktan benzíni og auk þess bætt í það efnum, þó ekki fosfatefnum, sem ætlað er að hindra hringja- festingu og skemmdir af völdum tæringar og koma í veg fyrir skammhlaup í kertum. í mörgum löndum heims hefur Esso-félagið blandað benzínið efni, sem nefn- ist E-54, sem félagið telur hafa sömu eiginleika og efnið, sem það notar. í Bandaríkjunum. Utan Bandaríkjanna er A-54 þó bland- að í benzín með lægri oktan- tölu. STÆRSTI BENZÍNSALI GERÐI BÆÐI —- AÐ HÆKKA OKTAN- TÖLU OG SETJA FOSFAT I BENZÍN í marga mánuði héldu sérfræð- ingar Socony-Vacuum félagsins sér utan við þessar rökræður um okton-tölu, smurningsolíu, fosföt og önnur íblendi. Benzín það, sem félagið selur undir nafninu „Mobilgas" hefur í langan tíma verið sú tegund, sem mest hefur selzt í Bandaríkj- unum, og mikið orð hefur farið af rannsóknum þessa félags og framleiðslutækni þess er talin standa á mjög háu stigi. Hvaða afstöðu þessi framleiðandi tæki, hlaut að hafa mikil áhrif. Af- staða þess var látin í ljós í apríl síðastliðnum, þegar félagið setti á markaðinn 95 oktan benzín, er blandað var fosfatefnasambandi auk annarra efna, sem eiga að halda blöndung og strokkum hreinum. Ef til vill er þetta framtíðar- lausnin. Framleiðendur, er áður höfðu eingöngu blandað fosfati í benzínið hafa smám saman hækk- að oktan-tölu þess upp í það sama og keppinautarnir eru með og nokkrir þeirra hafa sett á markaðinn nýja, endurbætta smurningsolíu. Hvaða líkindi eru nú fyrir því, að hið nýja benzín hafi bætandi áhrif í hreyflinum í biffeið yðar? Ef glóðarkveikju og skamm- hlaups í kertum hefur orðið vart í bifreið yðar, finnið þér mun á gangi hreyfilsins og hann e. t. v. mjög greinilega. í gömlum bif- reiðum með lágu þjöppunarhlut- falli verður þessara vandkvæða þó minna vart. ÝERÐUR HÆGT AÐ FRAM- LEIÐA STERKARI HREYFLA? Þáð sem bifreiðaframleiðehdur hafa þó meiri áhuga fyrir en nokkru öðru, eru þeir möguleik- ar, sem þessi blöhdunarefni í benzín skapa fyrir framleiðslu bifreiðahreyfla í framtíðinni. — Hreyflar, sem þéir vilja og geta framleitt, þurfa benzín með mjög hárri oktan-tölu. Það eru þó tak- mörk fyrir því hvað hægt er að hækka þá tölu, þar eð alltaf verð- ur erfiðara og erfiðara að hækka hana með núverandi framleiðslu- aðferðum einum saman, án þess að kostnaðurinn við það hækki að sama skapi. Beztu benzíntegundir, sem nu eru á markaðnum í Bandaríkj- unum eru 95 oktan að styrkleika. Bjartsýnir benzínframleiðendur halda að innan fárra ára verði fært að framleiða 98 oktan ben- zín. Þessi þróun væri að sjálf- sögðu mjög æskileg, ef glóðar- kveikja væri ekki þar til hindr- unar. í hinum háþrýstu hreyfl- um fer nökkur hluti oktan-töl- unnar til þess að koma í veg fyrir glóðarkveikju og nýtist því ekki til fulls til orkuaukningar. Ef hægt væri að leysa vandkvæði þau, er stafa af glóðarkveikju, með íblöndunarefnum eða á ann- an hátt, myndi öll 98 oktanin nýtast að fullu í hinum spar- neytnu og* öflugu hreyflum, sem þegar hafa verið teiknaðir. Þegar komið er á markaðinn 98 oktan benzín og glóðarkveikjuvanda- málið er úr sögunni, munu bif- reiðahreyflar verða framleiddir með þjöppunarhlutfalli 10:1, og þá mun að verulegu leyti draga úr benzíneyðslunni. BIFREIÐ FRAMTÍÐARINNAR MEÐ 100 OKTAN BENZÍNI í Detroit hefur nýlega verið framleidd Cadillac-bifreið, útbú- in tilraunahreyfli, sem er langt- um minni og léttari en hreyflar þeir, er notaðir eru nú. Þjöppun- arhlutfallið í hohum er 12:1, hann er 220 hestöfl og ekur á yfir 100 ohtan benzíni. Hann not- ar 8 lítra af benzíni á hverja 100 kílómetra miðað við 45—50 kíló- metra hraða á klukkustund. Það er aðeins eitt sem vantar upp á, að hægt sé að hefja sölu á þessari bifreið til almennings, þ. e. að ekki er hægt að aka að næstu dælu og fá þá benzínteg- und, sem bifreiðin þarf. Ef hin nýju efnasambönd, sem upp hafa verið fundin til blönd- unar í benzín, ásamt hækkaðri oktan-tölu, leiða til þess, hð hægt sé að framleiða slíkar bifreiðir til almenningsnota, þá er hér um að ræða, eíns og upphafsmenn þeirra halda fram, mestu framför í benzínframleiðslu, síðan byrjað var að nota Tetra-ethylblý í benzín árið 1932. Reader Digest). (Lauslega þýtt úr Herseta brezkra liðs- svetla greidd af V-Þýáa!andi •k LONDON, 1. nóv. — Skýrt hefur verið frá því, að Vestur- þýzka sambandslýðveldið greiði í heilt ár svo að segja allan kostn- að við hersetu brezkra liðssveita í Vestur-Þýzkalandi, að hernámi þess loknu. Sagt var frá þessu í hvítri bók, er brezka stjórnin gaf út síðdegis í dag um fullt sjálfstæði Vestur-þýzkalands. —• Var bókin gefin út samkvæmt kröfum þeirra, er standa gegn endurhervæðingu Vestur-Þýzka- lands, einkum Bevanista í verka- mannaflokknum. ★ Vestur-Þýzkaland hættir að gréiða kostnaðinn við hernám vesturveldanna um leið og það fær sjálfstæði sitt, en mun greiða mismuninn á núverandi kostnaði við hernámið og þeirri upphæð, er varið verður til stofnsetningar tólf vestur-þýzkra herfylkja inh- an varnarbandalags vestrænna þjóða. — Reuter-NTB. BEZT AÐ AVGLtSA I MORGVNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.