Morgunblaðið - 04.11.1954, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 04.11.1954, Qupperneq 9
Fimmtudagur 4. nóv. 1954 MORGVNBLAÐIÐ 25 Saar — þrætuepli í hálfa öld Esidanleg lausn skammi undan Jóhannes Hoffmann herra Saar og formaður kristi- lega þjóðfiokksins, sem er stærsti flokkur landsins. SVO má segja, að eftir því, sem landssvæðin eru minni, því meiri erfiðleikum og þrasi valdi þau á alþjóðavettvangi. Dæmin úr sögunni styrkja þessi orð og nægir að renna huganum til Danzig, Triestesvæðisins, Elsass Lothringen og Saar. Saarsvæðið hefir verið sífellt þrætuepli und- anfarna hálfa öld á milli tveggja voldugustu þjóða meginlandsins, Þýzkalands og Frakklands. Eftir því, sem veraldargæfan hefir veltzt hefir verið skipt um hús- bónda og hirðstjóra i Saarbriick- en, höfuðborg Saarlanda. Þar hafa ýmist setið að völdum franskir eða þýzkir lénsmenn og þjóðfáni landanna tveggja blakti til skiptis við hún hins gamla ráð- húss borgarinnar. Raunar má segja, að örlög Saar hafi verið glöggt tákn um óróann og misvindina, sem blásið hafa á meginlandinu og dæmi um sögu þeirra þjóðarbrota og minnihluta, sem komið hafa úr deiglu tveggja heimsstyrjalda á einum manns- aldri. Loks hefir verið gengið frá þeirri skipan á málum Saarhér- aðanna, sem ætla má, að verði varanleg og til framtíðarnota. Var málum héraðsins ráðið með samningi þeirra dr Adenauers og Mendes-France, sem undirritað- ur var á Parísarfundinum 23. október. Verður efni hans og saga síðustu ára í Saar rakin hér á eftir í stórum dráttum. HÉRUÐIN eru lítið landssvæði, sem liggur á landamærum Frakklands og Þýzkalands, nokkru vestan við ána Rín, að austurlandamærum Lúxemborg- ar. Landið er ekki nema 2.500 ferkm. að stærð, eða sem svarar til fertugasta hluta íslands, en mannfjöldinn í landinu er þó 1. millj. íbúa. Eftir sifelldar þræt- ur um yfirráðin yfir landinu, allt frá aldamótunum 1900, fengu Frakkar yfirráðin yfir landinu að heimsstyrjöldinni lokinni 1945. Þeir gáfu landinu að nafninu til sjálfstæði og stjórnarskrá, en í hennar var ýmsar takmarkanir að finna. Þar var m. a. ákvæði, sem bannaði þýzksinnuðum stjórnmálaflokkum að starfa í landinu og kom á ríkum tengslum við móðurlandið Frakkland, með tollabandalagi og sameiginlegum gjaldmiðli. Saarbúar eru að mestum hluta Germanir og hafa tilheyrt hinum þýzka þjóðarstofni um langan tíma. Tunga þeirra er þýzkan og menningararfleifð þeirra er mikl- um mun fremur þýzk en gall- versk. Landið er mjög ríkt af jarðar- auðævum; þar finnast geysimikl- ar kolanámur, og er það höfuð- ástæðan til þess hvílíkt þrætuepli það hefir verið um langt skeið. Aftur á móti framleiða Saar- búar ekki nægan matvælaforða til þess að fæða þjóðina og hafa treyst á matvælainnflutning frá Frakklandi að mestu. Frökkum hefir verið það ljóst, einkum eftir að allmörg ár höfðu liðið frá styrjaldarlokum, að þeim yrði ekki unnt að halda Saar undir faldi franska heims- veldisins um öll ókomin ár. í þeim sanmingaviðræðum, sem átt hafa sér stað á undanförnum misserum um framtíðarstjórn- skipulag landsins hafa þeir reynt af öllum mætti að fá þannig um hnútana búið, að yfirráð þeirra yrðu þó tryggð í öllum höfuðatrið um. Dr. Konrad Adenauer hefir frá því hann tók við völdum jafnan lýst því yfir. að hann væri því fylgjandi, að Frakkar hefðu yfirhöndina í landinu, ef hagur allrar Vestur Evrópu væri með því bezt tryggður. Þessi frjáls- lynda stefna hins framsýna kanslara hefir sætt allmikilli gagnrýni hjá löndum hans, sem flestir líta á Saar sem þýzkt landssvæði. Eru þeir einkum hræddir við að sleppa hendinni af Saar sökum þess, að þar væri þá komið fordæmi, og eins mundi e.t.v. fara um þau þýzk lönd, er Rússar hafa enn á valdi sínu. Sósíaldemokratarnir þýzku undir forystu Erichs Ollenhauer, sem mynda stjórnarandstöðuna, hafa lýst sig algjörlega andvíga stefnu dr. Adenauers og sáttmál- anum um Saar, sem hann undir- ritaði á Parísarfundinum. Alvar- legra er þó, að annar stærsti flokkurinn í stjórninni, frjálsir urlegasta, og stjórnmálamenn munu almennt sammála um, að deilan hefði ekki getað leystzt á farsælli hátt. Eitt atriði samningaviðræðanna um Saar var hið merkilegasta og hefir þess verið óvíða getið í fréttum. . Þegar í upphafi bar Mendes France fram tillögu í málinu, sem náði langt út fyrir landamæri Saarhéraðanna og bar vott um víðsýni og stjórnmála- vísdóm þessa „furðulega Frakka‘‘ eins og hann hefir oft verið nefndur. M' V TYSKLAMD ■« ! • L'JXEM/ TfíiEfl 3UR6 > demokratar hafa lýst sig algjör- lega andvíga Saarsamkomulag- inu, en þeir eru fylgjandi að öðru leyti niðurstöðum Parísarfundar- ins. Þriðji stjórnarflokkurinn, Flóttamannaflokkurinn er einnig andvígur samkomulaginu, en þess ir flokkar ásamt sósíaldemokröt- um settu það fram sem skilyrði fyrir samningum um Saar, að eftirfarandi atriða væri gætt: 1) að verzlunaraðstaða Vest ur Þýzkalands væri fulltryggð í landinu, 2) að þýzku stjórn- málaflokkarnir fengju fullt starfsfrelsi, 3) að engin end- anleg ákvörðun yrði tekin um það, hvort Saar yrði þýzkt eða franskt landssvæði í framtíð- inni. SAMNINGURINN, sem dr. Adenauer gerði við Mendes France var Þjóðverjum aftur á móti ekki eins hliðhollur og þessi atriði. Samkvæmt honum verður Saar fríríki undir stjórn lands- stjóra, sem hvorki má vera Saar- búi, Frakki eða Þjóðverji. Lands- stjórann skipar Vestur Evrópu bandalagið. Saarbúar skulu greiða atkvæði um samninginn og verður þá þýzku flokkunum veití fullt kjörfrelsi. Ef íbúarnir sam- j þykkja, að Saar verði fríríki skulu almennar kosningar til þings landsins fara fram, og loks skulu þesái atriði öll rædd og endurskoðuð, þegar friðarsamn- ingar verða loks samdir við Vest- ur Þýzkaland. Lengra treysti dr. Adenauer sér ekki til þess að halda, né krefjast frekari réttar þjóð sinni til handa um Saarhéruðin. Má segja, að breytni hans hafi verið hin vit- Hemmingway fer ekki lil Sfckkhólms HEMMINGWAY ætlar ekki að fara til Svíþjóðar, til þess að taka á móti Nobelsverðlaunun- um. „Ég er mjög ánægður og mjög hreykinn af því að hafa hlotið bókmenntaverðlaun Nobels“, sagði skáldið. Hann endurtók þessi sömu orð 18—20 sinnum við blaðamenn. Það var greinilegt að hann var glaður og meinti það sem hann sagði. Hann langaði í verðlaunin vegna heiðursins, sem fylgdi þeim og vegna þess að hann þarf á peningunum að halda. Það var allt og sumt. ) Hemmingway getur ekki farið i til Stokkhólms í desember af því ’ að hann er ekki maður heill heilsu. Hann er ekki búinn að ná sér eftir áfallið, er flugvél hrap- aði með hann tvisvar í Afríku í fyrra. | í fyrra skiptið hryggbrotnaði i hann á tveimur stöðum og annað nýrað særðist. í síðara skiptið komst hann ekki út um öryggis- lúguna, eins og hinir, sem í vél- inni voru. Vinstri handleggur hans var meiddur og hann varð að brjóta upp hurðina með hausn um. Þá brotnaði höfuðkúpan fyr- ir ofan vinstra eyrað. Þegar hann komst út soguðust eldtungurnar að hinum opnu dyrum og allt hárið svoðnaði af höfði hans. Síðar lentu Hemmingway og félagar hans í sinubruna nálægt Mombasa í Keðyu, og brendist hann þá enn. Hann og kona hans, Mary, sem hlaut nokkur brotin rifbein í flugslysinu, en meiddist ekki að öðru leyti, héldu síðan til Feneyja í Ítalíu. Mér leið æ ver, segir Hemmingway, og í Feneyj- um var ég lagður inn á sjúkra- hús og sár mín skoðuð í fyrsta sinnið. Frá Feneyjum fór hann til Madrid og þar var það frægur spanskur læknir sem stundaði hann. Læknirinn sagði við hann: „Þú hefðir átt að deyja þegar í stað eftir slysið. Þú gerðir það ekki, en þá hefðir þú átt að deyja eftir að þú lentir í sinubrunan- um. Þú hefðir líka átt að deyja í Feneyjum. En úr því að þú ert enn á lífi, þá munt þú ekki deyja framar, ef þú ert góða barnið og gerir eins og ég segi þér“. Samt sem áður segist Hemm- ingway hafa unnið vel undanfar- ið og að von sé á smásafnasafni um Afríku frá sér bróðlega. Hann bætti því við, að hann hefði byrj- að á smásögu um Afríku fyrir um það bil tveimur mánuðum, „en þessi saga ætlar að verða heil bók“. i „Þetta hefur komið fyrir mig áður“, bætti hann við. I Þegar blaðamennirnir spurðu , -.... u t. * - 'hann, hvað hann ætlaði að gera LITIL ATVINNA sem byggja þarf yfir Botnsa, sem TT„u„i *, 6 „. Um þessar mundir er lítið um rennur norðanmegin við botn , svei auna e > sag’ 1 atvinnu hér á Þingeyri. Nokkrir fjarðarins. Verður sennilega haf- ,ím,n a ,.,ann mjLn 1 nota 8 Þus- trillubátar hafa verið að róa inn izt handa um byggingu hennar 0 aJa þ°ss að borga skuldir, ENDES lagði til, að komið yrði á stofn fransk-þýzkri iðnaðarsamsteypu, ekki ósvipaðri Schumanáætluninni að sumu, og skyldi hlutverk hennar m. a. vera að standa fyrir stórfram- kvæmdum og fjárfestingu i frönsku Norður-Afríku og Sahara eyðimörkinni. Forsendan fyrir þessari stórfelldu áætlun litla forsætisráðherrans er sú, að ekki sé um neina raunverulega sam- keppni að ræða milli þungaiðn- aðar Þýzkalands og Frakklands, löndin eigi sameiginlegan aðgang að kola- og stálforðabúrinu Saar og öll auðævi og laust vinnuafl í báðum löndunum skuli þau hag- nýta að sameiginlegum markmið- um. Þessari áætlun, sem mundi gefa þýzku fjármagni ótæmandi tæki- færi í Norður Afríku, frönsku hjálendunum til stórra hagsbóta, var fagnað í Þýzkalandi. Fransk- ir iðjuhöldar hleyptu aftur á móti í brúnirnar og töldu öll tormerki á framkvæmdinni og sósíalistar hafa lýst sig andvíga þessari áætl- un. Mun þeim finnast hún keim- lík einokunarhringum millistríðs áranna. Verður þvi ekkert úr þessari stórhuga áætlun Mendes France í bili. En þessi áætlun um nýtingu jarðarauðæva Saar í þágu allrar Evrópu og jafnvel Afríku sýnir mikilvægi þessa litla landssvæðis og þýðingu þess fyrir efnahag allrar álfunnar. í Saar framleiða Frakkar þriðj- unginn af öllum kolum og stáli, sem unnið er á vegum Schuman- áætlunarinnar. Til Frakklands eru flutt 40% af stálframleiðslu Saar og-35% af kolaframleiðsl- unni, en um 26% af kolafram- leiðslu landsins er selt til Þýzka- lands. FYRIR fáum dögum bárust þær fregnir, að hinn væntanlegi landsstjóri myndi verða Sir Strang, embættismaður í brezka utanríkisráðuneytinu, en hann hefir verið yfirmaður Þýzkalands deildar brezka utanríkisráðu- neytisins alllengi. Þessar fregnir hafa ekki enn verið staðfestar, en líklegt er talið, að landsstjór- inn verði Breti. Þannig standa mál Saarhérað- anna í dag og virðast góðar horf- ur á, að farsæl framtíðarlausn hafi á þeim fundizt. Enn á þó eftir að leggja Saarsáttmála þeirra dr. Adenauers og Mendes France fyrir þýzku og frönsku þjóðþingin. Vafalaust mun sam- þykki auðfengið í Frakklandi, en öllu vafasamara er um þýzkt samþykki, og verður þar að treysta á stjórnlipurð og áhrif dr. Adenauers sjálfs. ggs. Fjórar brýr byggðar í Dýrafirði í sumar áðeiiis cffír fið lenaja veginn í bofni fjarðarins samaíi með brú yfir Bofnsá ÞINGEYRI, 28. okt. GÆR og nótt hefur sett hér niður allmikla fönn og eru allir fjallvegir tepptir eins og stendur, og er óvíst hvort þeir verði opnaðir aftur. Gemlufellsheiði og Rafnseyrarheiði hafa báðar verið færar af og til allt fram að þessu en urðu báðar ófærar í nótt. I dag er kafald og dimmt yfir og útlit fyrir áframhaldandi snjókomu. í Magnús. í firðinum og hafa þeir aflað vel strax í vor. af þorski. Ekki hefur frystihúsið j------------------- hér starfað frá því snemma í maí' « « 11* l'l s h vor og engir togarar lagt f>jl3IIC?DpVT00FU til her upp afla smn upp a siðkastið. l * r Hafa menn aðallega verið í vega- gerð og við brúarbyggingar í sum ar og hefur verið allmikil at- vinna við það. FJÓRAR BRÝR BYGGÐAR í SUMAR í Dýrafirði hafa verið byggðar fjórar brýr á þessu sumri. Ein1 yfir Rafnseyrará, tvær í botni. fjarðarins, önnur þeirra yfir! Hvallátradalsá en hin yfir stórtj gil við bæinn Dranga. Þá varj byggð brú yfir Guðlaugsvað á Gemlufallsá, sem er norðanmeg- in fjarðarins. VEGIR LENGDIR Þá hefur verið unnið að því í sumar að leggja veg inn með firðinum norðan megin, sem mæta skyldi veginum vestanvert fjarðarins. Var síðasti spottinn lagður í haust og er þá aðeins eftir að tengja vegina með brú áqcða fyrir lamaða og fatlaða DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef ir nýlega heimilað Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, að hafa happ drætti um eina ameríska bifreið og innflutningsskrifstofan veitt innflutningsleyfi fyrir henni. Bifreiðin hefir þegar verið keypt og er væntanleg til lands- ins í desember-byrjun. Er þetta Dodge Custom Royal, smíðaár 1955, bifreið af allra vönduðustu gerð. Nú hefir stjórn félagsins látið prenta happdrættismiða og ákveð ið verð þeirra kr. 100,00. Miðarn- ir verða tiltölulega fáir vegna þess hve dýrir þeir eru. — Dreg^ ið verður um bílinn á Þorláks- messu. en afganginn (um 30 þús. doll- ara) myndi hann verja viturlega — meðal annars til þess að fara aftur til Afríku, þar sem allt þetta gerðist. En það verður ekki á þessu ári, því að hann ætlar að halda kyrru fyrir á búgarði sínum í Kúbu og halda áfram ritstörfum í vetur. Farið að hýsa fé norðan isafjarðar- djúps ÞÚFUM, 28. okt.: — Tíðarfar hef- ur verið hér gott undanfarið til lands, en ótíðir hafa verið til sjó- sókna. Snjólétt er ennþá í byggð, og hefur fénaður allsstaðar vest- an Djúpsins gengið úti, sem kom- ið er. Norðan Djúpsins eru bænd- ur farnir að hýsa fé sitt vegna kulda. — P. P.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.