Morgunblaðið - 04.11.1954, Side 14
30
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. nóv. 1954
LIMOUSINE FAMILIALE
‘6 PLACES FACE ROUTE
203 L
Qsuqcot
A1 þjóöahifreiðasýn ing-
unni í París ný
Samial vlð Friðrik Magnússon, sférkaupm.
DAGANA 7.—17. október var
haldin í París hin árlega bif-
reiðasýning, sem þar fer fram.
Nefnist sýningin Salon de L’Auto
mobile og er þetta í 41 skipti,
sem hun er haldin. Ekki er að
efa, að hún mun þekktust allra
bifreiðasýninga sem haldnar
eru í Evrópu, enda sýna þar öll
stærstu bifreiðaíyrirtæki heims
vagna sína. v
STÓR SALUR
Fer sýningin fram í einum
stærsta sýningarsal borgarinnar,
sem liggur við Champs Elysées.
Meðal gesta á sýningunni í haust
var Friðrik Magnússon stórkaup-
maður frá Reykjavík, en hann er
umboðsmaður hér á landi fyrir
eitt stærsta bifreiðafirma Frakka
Peugeot verksmiðj urnar.
Átti blaðið stutt viðtal við
Friðrik, er hann kom heim nú
fyrir skömmu.
NÝJUSTU GERÐIR
Tugir bifreiða voru sýndar að
þessu sinni, bæði frá Evrópu og
Bandaríkjunum. Voru það allt
nýjustu gerðir, model 1955, en
auk þess sýndu margar bifreiða-
verksmiðjur tilraunabíla svokall-
aða, eins og þær hyggjast fram-
leiða á næstu árum. Mest bar á
frönsku bifreiðunum á sýning-
unni, Citröen, Renault og Peugeot,
auk ýmissa fleiri. Þá sýndu
brezkir bifreiðaframleiðendur og
fjölmargar gerðir, og loks vöktu
bandarísku bifreiðarnar mikla at-
hygli. Gafst gott tækifæri til þess
að bera saman bandarísku og
evrópsku bifreiðarnar, stærðar-
muninn á þeim og jafnframt hver
munurinn er á reksturskostnaði
stóru bílanna og hinna litlu.
ÍTALSKIR BÍI.AR
ítalskir bifreiðaframleiðendur
sýndu þarna og allmargar gerð-
ir, en ítalskir bílar hafa rutt sér
allmikið til rúms á meginland-
inu á síðustu árum. Þar var m. a.
að sjá Isetta bifreiðir, sem all
þekktar eru orðnar, en þær eru
framleiddar í Milano. Er það lítil
bifreið og lipur Qg rúmar aðeins
þrjá farþega,
A íebðalagi 'sínu heimsótti
Pfiðrik og aðalstöðvar Peugot
bifreiðaframleiðendanna í París.
Voru flestir umboðsmenn firmans
komnir til borgarinnar í tilefni
af bifreiðasýiíingunni, hvaðan-
æfa að úr heiminum.
400 BÍLAR Á DAG
Peugeot bifreiðaverksmiðjurn-
ar eru geysistórar, enda er sú
gerð einna útbreiddust í landinu.
Sjálfar verksmiðjurnar liggja í
litlum bæ suður við landamæri
Svisslands. Alls vinna að fram-
leiðslunni um 20 þús. manns og
gera verksmiðjurnar um 400 bif-
xeiðar á dag. Njóta þær mikils
álits í Frakklandi og eru seldar
um allan heim. Einkum eru þær
útbreiddar á suðurhvelinu, en
getjr ntá þess,- áð aftir styrjöld-
ina hafa m. a. selst 2000 þeirra
í Danmörku.
GAMLAR VERKSMIÐJUR
Peugeot verksmiðjurnar eru
elztu vélaverksmiðjur í Frakk-
landi og auk þess að framleiða
bifreiðar, búa þær til allar teg-
undir bif- og reiðhjóla og margs
konar áhöld að auki. Peugot bif-
reiðarnar eru lítt kunnar hér á
landi, um 23 munu vera til frá
því fyrst eftir síðustu heims-
styrjöld. Framleiddar eru
fólksbifreiðar, 4 og 6 manna,
station bifreiðar, sendibifreið-
ar og vörubifreiðar. Ejúkra-'
bifreiðar franska hersins eru t. d.
flestar af Peugot gerð. i
Bifreiðarnar eru sérstaklega
útbreiddar í Frakklandi, sökum
þess, að þær eru í ódýrara flokki
og kostar t. d. fjögurra manna
fólksbifreið ekki nema 53,000 kr.
hér á landi. j
Verksmiðjurnar eru í einka-
eign, en Renault verksmiðjurnar
eru eign franska ríkisins.
Heggur sá, er
hlífa skyldi
TÍMINN birti 29. okt. s.l. árásar-
grein á þá Konráð Axelsson og
Ingólf Árnason, ráðningastjóra
hjá Mekalf Hamilton. Tilefni
þessarar árásar var það að þessir
tveir menn voru sagðir hafa svik
í tafli við mannaráðningar með
því að gefa Sigmundi Símonar-
syni rangar upplýsingar um laus-
ar stöður.
Sigmundur Símonarson, full-
trúi Varnarmáladeildar við ráðn-
ingar, birti þá yfirlýstingu þar
sem hann sagði þessar árásir á
Konráð Axelson og Ingólf Árna-
son tilhæfulausar og ósannar. Var
yfirlýsing hans birt í Ivlorgun-
blaðinu s.l. sunnudág athuga-
semdalaustj Tíminn birti svo
þessei SO'mu yfirlýsingu í gær, en
Svo undarlega bregður við að
þeir Tímamenn birta forspjall á
undan yfirlýsingu Sigmundar,
flokksbróður þeirra, og segjast
að vísu ekki getað neitað honum
um birtingu yfirlýsingarinnar. —
Tíminn segir þó að yfirlýsingin
„komi málin nálega ekkert við“,
og gefur fyllilega í skyn að orð-
um Sigmundar sé vart trúandi.
Flestum mun þó þykja að hér
höggvi sá er hlífa skyldi.
Sigmundi Símonarsyni kynnast
flestir sem til starfa eru ráðnir
á Keflavíkurflugvelli. Þessir
menn munu án efa undrast skrif
Tímans því öllum sem honum
kynnast verður þegar Ijóst að
hann er drengur góður sem vill
hvers manns vanda leysa og í alla
staði trúverðugur.
Císli Einarsson
héraSsdómslögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Laugavegi ,20 B. — Sími 82(>3L j
Óvandaður fréiia-
flutnlngur
IMORGUNBLAÐINU laugar-
daginn 21. ágúst s. 1., birtist
fréttapistill með fyxirsögninni:
„Laxveiðin í Þverá stappar nærri
rányrkju“. Er hann dagsettur á
Akranesi 20. s. m. og ber undir-
skriftina „Oddur“. Sami frétta-
pistill er svo endurprentaður í
blaðinu ísafold og Vörður, þann
29. sept. s. 1.
Þar sem fréttapistill þessi, á-
samt fyrirsögn, er þannig sam-
inn, annaðhvort vegna vanþekk-
ingar eða fyrir klaufaskap, að
hann gefur alranga hugmynd um
það, hvernig laxveiðin í Þverá
er stunduð og hefur verið stund-
uð, og nálgast það í raun og veru
mjög að vera atvinnurógur, þá
teljum við rétt, að hið sanna komi
í ljós og leyfum okkur því að
biðja ofannefnt blað að birta
eftirfarandi leiðréttingar:
Af fréttapistlinum verður ekki
annað ráðið en að Þverá sé rán-
yrkt, m. a. með netaveiði. —
Hið sanna er, að síðan árið 1917
befur hún óslitið verið leigð til
stangaveiða. Um netaveiði í
henni hefur því ekki verið að
ræða síðastliðin 37 ár. Framan
af þessu tímabili var laxveiðin
í Þverá stunduð af Englending-
um. Er öllum kunnugt, að þeir
stunduðu laxveiðina sem „sport“
en ekki „rányrkju“. Eftir að þeir
hættu að koma, vegna síðari
heimsstyrjaldarinnar, var stofn-
að veiðifélag um Þverá. Nær það,
auk Þverár, einnig yfir Litlu-
Þverá, Lambá, Króksvatnsá og
Langavatnskvísl. — Svæði þetta,
— Þverárvatnssvæðið — hefur
síðan 1942 verið leigt félagi 10
manna í Reykjavík. Skipta þeir
sér síðan í 3 deildir, þannig að
á veiðisvæðinu eru ekki nema
3—4 stangir í senn. í rauninni eru
þær þó oft færri, vegna þess að
leiguhafar eru forfallaðir, einn
eða fleiri í einu, vegna atvinnu
sinnar og af öðrum ástæðum. Og
oft hafa árnar fengið algera hvíld
fleiri eða færri daga, einkum
fyrstu og síðustu vikur veiði-
tímans. Síðan veiðifélag var
stofnað um vatnasvæði Þverár,
hefur það verið aðalsjónarmið
leigjenda (áreigenda) að tryggja
það, að vel væri farið með Þverá
og fylgiár hennar. M. a. hefur
stangaveiði ekki verið leyfð leng-
ur en til ágústloka, þótt veiði
sé lögum samkvæmt leyfð til 15.
september. f gildandi samningi
er einnig tekið fram, að samn-
ingshafar megi hafa mest 6 steng-
ur á veiðisvæðinu samtímis.
Fréttahöfundur Mbl. telur, að
Þverá sé um 80 km á lengd. Sé
fylgiám bætt við, eykst lengd
veiðisvæðisins allverulega. Gefur
þá auga leið, hvort um „rán-1
yrkju“ geti verið að ræða, jafn-|
vel þótt veitt væri með hámarki
leyfðra stanga. En eins og áður!
er tekið fram, mun það sjaldan
eða aldrei hafa verið gert. Þótt
fleira sé vafasamt í fréttapistli
þessum, skal ekki um það feng-;
izt. I
Það er rétt, að laxveiði í Þverá
var með minna móti í sumar, en
hið sama mun hafa átt sér stað |
með fleiri veiðiár. Orsakir til
þess geta verið ýmsar, en um það
verður ekki rætt hér. En hitt
er algert öfugmæli, eins og að
framan hefur verið sýnt, að „rán- (
yrkja í Þverá“ sé um að kenna. *
Væri æskilegt, að þeir, sem
finna hvöt hjá sér til að senda
blöðunum fréttir, vönduðu til
þeirra og kynntu sér betur en
hér hefur átt sér stað, málefni
þau, er þeir velja sér til frétta-
flutnings.
í stjórn Veiðifélags Þverár:
Davíð Þorsteinsson
Þorv. T. Jónsson
Andrés Eyjólfsson.
Allt d sama stað“
25 ára aímæli Egiis VllhjálmssGnar h, f.
STÆRSTA bifreiðavöruverzlun
landsins, Egil Vilhjálmsson
h.f., átti 25 ára starfsafmæli 1.
nóv. Árið 1929 þann 1. nóvember
stofnaði Egiil Vilhjálmsson fyrir-
tækið og hefur rekið það alla tíð
síðan, þó með þeim breytingum
að það er nú hlutafélag. Verzlun-
in var fyrst til húsa að Grettis-
götu 16—18 en flutti árið 1932
að Laugaveg 118, þar sem byggt
hafði verið yfir starfsemina. Síð-
an hefur hver byggingin rekið
aðra og nú er samanlögð lengd
húsanna 200 metrar. Þar er nú
rekin alhliða bifreiðahöndlun og
viðgerðarverkstæði ásamt yfir-
byggingaverkstæði. Egill Vil-
hjálmsson hefur orðið þjóðkunn-
ur maður fyrir sinn mikla dugn-
að og framsýni í atvinnugrein
sinni.
ÖKUSKÍRTEINI NR. 3
Morgunblaðið kom að máli við
Egil Vilhjálmsson í tilefni afmæl-
is þessa og bað hann að skýra frá
lífi og starfi sínu.
— Ég byrjaði sem mótoristi til
sjós í nokkur ár, sagði Egill, og
var það hinn bezti grundvöllur
fyrir lífsstarf mitt. Þar fékk ég
dágóða þekkingu á vélum, sem
kom sér vel. En árið 1915 tók ég
bifreiðastjórapróf og gerðist leigu
bifreiðastjóri. Ökuskírteini mitt
er númer 3, og ég því einn af
fyrstu bifreiðastjórum þessa
lands. Starf mitt byrjaði ég á
Bifreiðastöð Reykjavikur, sem
var til húsa í Vonarstræti þar sem
nú er Oddfellowhúsið. Þá voru
bifreiðarnar svolítið öðruvísi og
einfaldari en nú til dags. Ekki
þekktust annað en blæjubifreiðar
óupphitaðar, og var svo sem ekk-
ert sældarbraut að vera bifreiðar-
stjóri á þeim árum. En nú er
þetta allt gjörbreytt og bifreið-
arnar upphitaðar og notalegar
með útvarpi og hverskyns þæg-
indum. Um nokkur ár var ég
prófdómari í bifreiðaakstri hér í
Reykjavík, en svo var það fært
í lög, að prófdómari mætti ekki
flytja inn bifreiðar, en ég var þá
farinn til þess þó í smáum stíl
væri, og þá hætti ég að vera próf-
dómari. Ég hef alltaf viljað vera
frjáls maður, aldrei viljað binda
mig.
STRÆTISVARNAR
VFIRBVGGÐIR FRÁ 1932
Svo hætti Egill leiguakstrinum
og gerðist bifreiðasali. Hann opn-
aði verzlun sína eins og fyrr seg-
ir 1929 að Grettisgötu 16—18.
Verzlunin dafnaði vel og hann
hóf að byggja yfir starfsemi sína
á Laugavegi 118. Þangað flutti
hann svo árið 1932 og hefur verið
þar síðan og bætt við bygginguna
svo nú er þar orðin ein stærsta
bygging í Reykjavik. Sama ár var
byrjað að byggja yíir langferða-
bifreiðar. Ári siðar var svo byrjað
að byggja yfir strætisvagna, en
Egill er einn af stofnendum
Strætisvagna Reykj avíkur og eig-
andi, þar til Reykjavíkurbær tók
reksturinn í sínar hendur árið
1943. Síðan hefur yfirbygginga-
verkstæðið verið stórvægilegur
hluti í rekstri fyrirtækisins. Þar
hefur verið fylgzt vel með öllum
nýjungum á því sviði og öll vinna
hin vandaðasta í hvívetna.
108 BIFREIÐAR SETTAR
SAMAN 1941
Árið 1941 voru teknar til sam-
setningar 108 Dodge-bifreiðar,
sem ríkisstjórnin festi kaup á í
Englandi, þar sem þær höfðu
verið frá byrjun stríðsins. Hér
var um algjöra samsetningu að
ræða og tókst hún svo vel hvað
afköst snerti, að við vorum þriðja
þjóðin í röðinni hvað samsetning
arhraða snerti. Þetta eru einu
bifreiðarnar sem hafa verið settar
saman að öllu leyti hér á landi.
Kostnaður á hverja bifreið nam
ekki nema kr. 1.610,00.
„ALLT Á SAMA STAГ
Á fyrstu starfsárum fyrirtækis-
ins var aðeins um bifreiðavið-
gerðir að ræða auk varahluta-
sölu, en nú eru starfsgreinarnar
þessar: Bifreiðaviðgerðir, bifreiða
yfirbyggingar, bifreiðamálningar,
rennismiði, glerskurður og slíp-
ing svo og bifreiðainnflutningur
og varahlutasala. Hefur fyrir-
tækið jafnan lagt áherzlu á að
hafa á boðstólum varahluti 1 sem
flestar tegundir bifreiða og varð
orðtæki fyrirtækisins þessvegna
til: „Allt á sama stað“.
Árið 1935 tók Egill Vilhjálms-
son fyrsta nemandann í bifreiða-
virkjun og hafa 70—80 iðnnemar
ýmist lokið prófi hjá fyrirtækinu
í bifreiðavirkjun, bifreiðasmíði og~
rennismíði. Hefur þannig stór
hluti þeirra iðnaðarmanna, sem
að þeim iðngreinum starfa, num-
ið hjá Agli Vilhjálmssyni.
FRAMSÝNI OG DUGNAÐUR
Með Agli hafa unnið við fyrir-
tækið bræður hans tveir, Gunnar
og Georg, og eru þeir meðal hlut-
hafa þess. Hefur Gunnar séð um
varahlutasöluna, en Georg haft
Frh. á bls. 31.
Bifreiðastöð Reykjavíkur árið
ser Mmgst til hægri , . :v
w í i' * t k-í 4" t • I I * 'J b 11 I I
1915. Bifreið Egils Vilhjálmssonar
* I í f lilf•
ríii