Morgunblaðið - 10.11.1954, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. nóv. 1954
Miklar framkvæmílir á
Snæfellsnesi í sumar
Stykkishólmi, 27. okt.
UNDANFARIN ár hefur verið unnið að því að leggja veg út með
Snæfellsnesi, hinn svo nefnda Útnesveg. Hefur verkinu miðað
mjög vel áfram í sumar. Er nú aðeins eftir að ryðja um 600 metra
kafla, sem þó er sæmilega fær vörubifreiðum í þurrkum, og hafa
bifreiðar frá Hellissandi farið hann í sumar. Annars er hinn ruddi
yregur kominn út fyrir Malarrif.
MikiSI kjörgripur
RIFSHÖFN
Eins og kunnugt er er fram-
kvæmdum stöðugt haldið áfram
við Rifshöfn. Hefur því verki
æinnig fleygt fram í sumar.. Er
"búizt við að verkið verði komið
svo langt í ár, að hægt verði að
liafa báta í höfninni í vetur. Nú
iriunu vera um 3—4 ár síðan
Tvífflenningskeppni
Bridgefé!. Rvíkur
TIMM umferðum er nú lokið í
tvímenningskeppni Bridgefélags
Reykjavíkur. Efstir eru nú þessir:
Gunnlaugur Kristjánsson og
Stefán Stefánsson 604, Jóhann
Jóhannsson og Vilhj. Sigurðsson
595, Sigurnjörtur Pétursson og
Örn Guðmufidsson 593, Ásmund-
ur Pálsson og Indriði Pálsson
588, Gunnar Guðmundsson og
Gunnar Pálsson 567, Agnar
Jörgensson og Róbert Sigmunds-
son 565, Ásbjörn Jónsson og
Magnús Jónasson 563.5, Eggert
.Benónýsson og Guðmundur O.
Guðmundsson 561.5, Baldur Ás-
geirsson og Björn Kristjánsson
558, Kristinn Bergþórsson og
i.árus Karlsson 548.5, Árni M.
Jónsson og Kristján Kristjánsson
544 og Hermann Jónsson og Jón
Guðmundsson 540 —
Sveitakeppni 1. flokks hefst
16. nóvember.
framkvæmdir hófust við hafnar-
gerðina.
í Ölafsvík hafa miklar fram-
kvæmdir átt sér stað að undan-
förnu. Bygging nýs barnaskóla
þar er komin langt. Verður þó
varla hægt að taka skólann til
notkunar á þessum vetri. Þá hafa
í haust farið fram miklar endur-
bætur á hraðfrystihúsinu þar,
viðbygging við kaupfélagið vel á
veg komin og ýmsar aðrar fram-
kvæmdir svo sem byggingar
íbúðarhúsa og fleira. — Árni.
Kristinn Hallsson
söngskemmfun
KRISTINN Hallsson, bassbarri-
tónsöngvari, sem var með Fóst-
bræðrum í söngför þeirra um V-
Evrópulönd og fékk þá hina
beztu dóma hvarvetna fyrir á-
gætan söng sinn, ætlar nú að
halda söngskemmtun annað
kvöld í Gamla bíói.
Kristinn Hallsson hélt söng-
skemmtun hér í Reykjavík í sum
ar er leið og fékk góða dóma. —
Þá hefur hann sungið fyrir Tón-
listarfélagið á ísafirði fyrir
skömmu.
Kristinn Hallsson mun syngja
innlend lög og erlend, m.a. aríur
úr óperum.
Mikil blaðaskrif um
Loftleiðir og SA ,S
Fargjaldamálið rætt á fundi samgöngu-
málaráðherranna.
UNDANFARNAR vikur hefir
verið allmikið skrifað í blöð
á Norðurlöndum um deilu S.A.S.
ílugfélagsins við Loftleiðir, sök-
nm hinna lágu fargjalda Loftleiða
yfir Atl'antshaf. Hafa blöð, bæði
í Noregi, Danmörku og Svíþjóð
rakið forsögu málsins og getið
ýtarlega um starfsemi Loftleiða
í þessu tilefni, og jafnframt
skýrt frá 10 ára afmæli félags-
íns, sem var nú fyrir skömmu.
Eins og kunnugt er hafa Loft-
leiðir haft reglubundnar áætlun-
arferðir yfir Atlantshaf, frá
Reykjavík til New York, þrisvar
í viku fram að þessu, en tvisvar
í viku yfir vetrarmánuðina. Frá
Reykjavík hafa vélar félagsins
einnig flogið til Stavanger í
Horegi og þaðan til Kaupmanna-
liafnar og Hamborgar.
Á þeirri leið hefir félagið fylgt
reglum þeim, sem alþjóða flug-
íerðasambandið (I.A.T.A.) he(fur
sett meðlimum sínum. Hinsvegar
liafa Loftleiðir náð sérstökum
kjörum um ferðir sínar milli ís-
lands og Bandaríkjanna og hefir
íélaginu af þeim sökum verið
unnt að lækka fargjöldin á þeirri
leið allmjög, frá því sem önnur
flugfélög hafa ákveðið.
Hin lágu fargjöld Loftleiða
hafa vakið að vonum mikla at-
hygli á Norðurlöndum og hafa
menn varpað fram þeirri spurn-
ingu, hví hið sameinaða flug-
féiag þeirra, SAS, hafi ekki fylgt
á eftir um lækkuð fargjöld. Jafn-
framt-hafa spunnizt iíin-i þessar
umræður samanburður á aðstöðu
SAS, sem er ríkisfyrirtæki með
einkaleyfi á flestum flugleiðum
og einkaflugfélaga, sem eiga við
ramman reip að draga, þar sem
ríkisvaldið er. Birtist t. d. ný-
lega grein í Norges Handels og
Sjöfartstidende um málið og var
þar hvatt til þess að veita fiug-
fyrirtækjum í eign einstaklinga
aukinn stuðning og bent á hina
mörgu annmarka, sem fylgja
ríkisrekstri og einokun á flug-
málasviðinu.
Sökum hinna lágu fargjalda
hafa farþegaflutningar Loftleiða
yfir Atlantshafið stóraukizt og
er aukningin )30%, séu bornir
saman fýrstu níu mánuðir ársins
1953 og 1954.
Hinn 11. október komu sam-
göngumálaráðherrar Danmerkur,
Noregs og Svíþjóðar saman á
fund í Osló. Voru þar einnig
mættir fulltrúar SAS. Meðal
þeirra mála, sem þar voru rædd
var samkeppnin miili SAS og
Loftleiða og flugferðirnar yfir
Atlantshaf. Engin ákvörðun var
þó tekin í því máli á fundinum,
og óvíst er enn um það hverjar
endalyktir þessa máls verða.
Margt það, sem ritað hefir ver-
ið um Loftleiðir og fargjaldamál
ið í blöðum á Norðurlöndum hef-
ir verið á misskilningi byggt og
hefir blaðafulltrúi félagsins, Sig-
urður Magnússon nýlega sent
blöðum þar greinargerð frá félags
ins hendi, þar sem málið er rakið
og -skýrt.. ............
IFYRRI viku hafði Ágúst
Sigurmundsson, tréskurðar-
meistari, Túngötu 2 hér í bæ,
gluggasýningu á ýmsum mun-
um, sem unnir hafa verið í
verkstæði hans, en það stofnaði
hann fyrir 28 árum. — Stærsti
gripurinn er mjög veglegur ?:æðu
stóll, sem 25 ára stúdentar færðu
Menntaskólanum að gjöf á s. 1.
vori við skólaslit. — Þetta er
framhlið stólsins, sem allur er
úr harðri eik, mikil smíð og
vönduð. Myndskurðurinn er af
Óðni með hrafnana sína og Frigg.
Allur er skurðurinn gamall nor-
rænn. Áletrunin á ræðustólnum
er úr Hávamálum. Mun ræðustóll
þessi vera sá allra veglegasti sem
til er hér á landi. — Auk hans
sýndi Ágúst nokkra muni aðra,
sem hann hefur unnið, svo sem
sem hann hefur skorið, svo sem
lampa, stofuborð og koll.
Hendés
Frence fulfan
© FÉLAG veitingahúsaeigenda í
Parísarborg gerir nú samsæri
gegn Mendés-France, forsætis-
ráðherra. Lýsa þeir því yfir
að þeir séu nú -svarnir and-
stæðingar hans og getur þetta
orðið afdrifaríkt fyrir þennan
fræga forsætisráðherra. Hafa
veitingamenn þegar fengið 100
þingmenn á sitt band.
© Ástæðan til þess að veitinga-
húsaeigendur miða nú spjót-
um að Mendés, er að hann
lýsti því yfir í fjáriagaræðu,
I
| fagnað á
AKUREYRI, 8. nóv. — María
Markan Östlund söng hér í Nýja
bíói s.l. laugardag á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar. Voru það
| fjórðu og síðustu tónleikar fé-
lagsins á þessu ári.
I Á efnisskrá voru viðfangsefni
eftir: Beethoven, Schuman, Árna
Thorsteinsson, Pál ísólfsson, Þór-
arin Jónsson, Þórarin Guð-
mundsson, Emil Thoroddsen, Gia-
1 mini Rogers, Ronald og að síð-
! ustu tvær óperuaríur eftir Wagn-
. er og Mascagni.
Hvert sæti var skipað í húsinu
, og tóku áheyrendur söngkon-
unni með kostum og kynjum. —•
j Varð hún að syngja nokkur auka
lög. Þá bárust henni blómvendir.
Við hljóðfærið var Fritz Weiss-
happel, og syo sem að venju var
leikur hans snilld.
María Markan söng hér Ak-
, ureyri sumarið 1935, en síðan
hefur hún ekki sungið hér fyr en
ijiú. ,-w. H. Vald.
að alltof mikið væri af krám
í landinu. Sagði hann að í
Frakklandi öllu væru 440 þús.
krár og veitingahús eða eitt
fyrir hverja 100 íbúa. Taldi
hann að óhætt væri að loka
að minnsta kosti þremur af
hverjum fjórum veitingahús-
um, sem nú starfa og væri þó
ekki hætta á að menn dagaði
uppi í leit að krá.
© Þetta lætur sérstaklega illa í
eyrum veitingamanna, vegna
þess að það er alkunna, að
Mendés-France sjálfur smakk
ar varla nokkuð. sem er sterk-
ara en vatn. Aðallega drekk-
ur hann mjólk frá Normandy,
sem hann hefur mestu mætur
á. Nú segja veitingamenn, að
Mendés sé að snúast á sveif
með hinum fámenna en harð-
skeytta hópi stúkumanna, sem
vilja láta skattlþggja áfengi
svo mjög að enginn hafi efni
á að kaupa það. *
IHarteánn Lúther
í TJARNARBÍÓ er nú verið að
sýna kvikmynd, sem telst tví-
mælalaust til merkustu mynda,
er sýndar hafa verið í íslenzku
kvikmyndahúsi: Marteinn Lút-
her. Eins og líka segir sig sjálft:
Með frábærlega vel gerðri kvik-
mynd er að nokkru lýst einum
stórfenglegasta persónuleika
mannkynssögunnar og jafnframt
upphafi mestu straumhvarfa, er
orðið hafa í- sögu vestrænna
þjóða á síðari öldum.
Myndin um Martein Lúther fór
sigurför um Bandaríkin s.l. ár,
svo að ekki hafa aðrar myndir
verið betur sóttar þar, í sjálfu
landi kvikmyndanna. Ég var
staddur í New York þegar farið
var að sýna myndina þar, í fyrra
sumar. Kvikmyndagagnrýnendur
hrósuðu myndinni ákaflega, og
fékk hún hina beztu dóma í stór-
blöðunum „New York Times“ og
„New York Herold Tribune“. Á
sama tíma var sýnd í New York
önrur stórmynd um trúarlegt
efni: Kirtillinn (The Robe). Fékk
hún einnig mikið lof og var mik-
ið sótt, þó ekki eins og Lúthers-
myndin. Þegar ég sá hana stóð
svo mikil biðröð fyrir utan sýn-
ingarstaðinn, að hópur lögreglu-
, manna urðu að skerast í leikinn
til þess að halda mannfjöldanum
í aga. Var mér sagt að fjöldi
fólks, sem sjaldan stigi fæti í
kvikmyndahús, færi nú að sjá
þessa mynd. Hún væri mynd
hinna vandlátu.
Lúther-myndin hefur, eftir
viðtökurnar í Ameríku, verið
mjög eftirsótt. Nokkur dráttur
varð á að hún væri sýnd almennt
í Englandi, og var kennt um
áhrifum kaþólskra manna, sem
! ekki var um myndina gefið. —.
! Snemma á þessu ári sendi Sam-
i bandsráð enskra fríkirkna ávarp
til kvikmynda-innflytjenda, svo-
hljóðandi:
| „Sambandsráð enskra frí-
, kirkna lætur þó von í ljósi að
j kvikmyndin „Marteinn Lúther“,
J verði sýnd hið bráðasta alls stað-
ar í landinu. Teljum vér að hún
hafi mikið trúarlegt, listrænt,
sögulegt og almennt gildi. Ráðið
væntir þess að þeir, sem stjórna
vali kvikmynda, greiði þessari
ágætu mynd veg til alþjóðar, og
skorar á almenning að láta hana
ekki fara fram hjá sér.“
Ég vil fyrir mitt leyti taka
undir þéssi síðustu orð ávarps^
ins. Annaðhvort er að sækja
mynd eins og þessa eða láta nið-
ur falla kröfur til kvikmynda-
húsa sem menningartækis. —•
Enskur texti torveldar íslenzk-
um áhorfendum að njóta kvik-
mynda eins og þessarar til fulls.
En Tjarnarbíó hefur fyrir sitt
leyti reynt að bæta úr því, með
allítarlegum texta í sýningar-
skrá. Hafi það þökk fyrir að hafá
leigt þessa dýru og góðu mynd
til sýninga hér.
I Ólafur Ólafsson.
Tók af skarið
SHEPPERTON 9. nóv. — Ég tap.
aði mér alveg. þegar ég kom inn
í dagstofuna og litla fjögra ára
telpan mín sagði: „Þegiðu, pabbi.
Ég er að horfa á sjónvarpið".
Leonard var nóg boðið. Hann
gekk að sjónvarpstækinu, lyfti
því upp og þeytti því síðan í gólf-
ið. Því næst gekk hann á sama
hátt frá útvarpstækinu. Sex dag-
ar eru nú liðnir síðan atvikið
átti sér stað, og Leonard er enn
þá bálvondur. Við blaðamenn
sagði hann: „Við ætlum að úti-
loka okkur frá umheiminum. Ég
vil ekki heyra meira um vetnis-
sprengjur, stríðsáróðui1' og stjórn-
mál. Héðan af ætlum við að lifa
þæáiimi.iífi,. ......
Fær Narriman
skilnað!
CAIRO, 9. nóv. — Auðugur, arab-
iskur prins vonast til að geta;
gengið að eiga Narrímaiv*fyrr-
verandi drottningu Egyptalands,
er hún fær skilnað frá núverandi
eiginmanni sínum, Dr. Adham el
Nakib, segir hið víðlesna blað
Akhbar el Yom. Dr. Nakib er
sagður hafa tjáð Narriman sím-
leiðis, að hann mundi aldrei veita
henni skilnað, þó svo hún dveldi
J erlendis í 20 ár. Narriman hafði
áður látið svo um mælt, að hún
' myndi ekki knúa heim til Egypta
lands, ef hún ekki fengi skilnað.
Álitið er, að vonbiðillinn sé hlut-
hafi í hinu geisistóra olíufyrir-
tæki Kuwait. Narriman dvelur
nú á hressingarhæli í Lausanne
þar, sem hún var skorin upp
. óýlegav —Jýeuter...........j