Morgunblaðið - 28.11.1954, Side 1
€1. árganjrw
273. tbl.
Sunnudagur 28. nóvember 1954
PreatsmlSJ* Morgunblaðsin*.
Hailie Selassie í Danmörku.
Hailie SelaSsíe og Ingrid Danadrottning ræðast við í veizlu, er
keisaranum var haldin að Amalienborg, bústað dönsku konungs
fjölskyldunnar. Keisarinn kom í opinbera heimsókn til Kaup-
mannahafnar fyrr skömmu.
Svar vesturveldanna
sent Ráðstjórninni
Já eba nei? — Sennilega nei!
LONDON, 27. nóv. — Reuter.
BANDAKÍKIN, Bretland og Frakkland hafa nú orðið ásátt um
svar það, er sent skuli Ráðstjórnarríkjunum við uppástungu
þeirra um alþjóða ráðstefnu um öryggismál Evrópu. Svarið mun
ekki verða afhent rússnesku stjórninni fyrr en á mánudag, þ. e.
ðaginn, sem ráðstefnan, samkvæmt tillögu Rússa, skyldi hefjast.
Enn hefir ekkert verið látið uppi um hvem veg þessi þrjú ríki
hafa svarað ráðstefnutillögunni, en stjórnmálaleiðtogar þessara
þjóða hafa þegar lýst yfir því, að slík ráðstefna komi ekki til greina
fyrr en samningar þeir, sem kenndir em við Paris og London hafa
verið staðfestir. Almennt er því álitið, að tilboði Ráðstjórnarríkj-
anna hafi verið svarað neitandi.
SENDINEFNDIR KOMMÚN-
ISTARÍKJA HALDA TIL
MOSKVU
Fram að þessu hefir tilboð
Ráðstjórnarríkjanna eingöngu
verið þegið af þjóðum undir
kommúnískri stjórn. Sendinefnd
austur-þýzku stjórnarinnar und-
ir forustu Grotewohl forsætisráð-
herra, lagði af stað í dag til
Moskvu til að sitja ráðstefnuna.
Með í förinni er einnig Ulbright,
varaíorsætisráðherra.
EINGÖNGU KOMMÚNISTA-
RÍKI TAKA ÞÁTT í
ráðstefnunnj:
Moskvu-útvarpið hefir til-
kynnt, að sendinefnd frá Póllandi
sé komin til Moskvu, og full-
trúanefndir frá TékkóslóvakíU
og Rúmeníu séu á leið þangað.
Kínverska kommúnistastjórnin
sendir áheyrnarfulltrúa.
Austurríska stjórnin hafnaði
boði Ráðstjórnarríkjanna í dag.
Óveður veldur miklum skips-
sköðum Á Ermursundi
Brezka þingið
bregður venju
LONDON, 27. nóv.
•fc Hefðbundnar venjur brezka
þingsins verða brotnar við þing-
setningu 30. nóv., er utanríkis-
ráðherrann, Sir Anthony Eden,
mun lesa setningarræðu krún-
unhar, en ekki forsætisráðherr-
ann, Sir Winston Churchill. —
Kveðst Churchill hafa falið Ed-
en þetta ábyrgðarmikla starf sök
um annríkis hans sjálfs þennan
dag — hann á sem sé áttræðis-
afmæli.
líió til ÍRdlands
NÝJU DELHI, 27. nóv. Utanríkis
ráðuneyti indversku stjórnarinn-
ar hefir tilkynnt, að Tító
marskálkur muni koma í opin-
bera heimsókn til Indlands þann
15. des. Mun Tító dveljazt 18 daga
í Indlandi og halda þaðan til
Burma. Tító marskálkur lét ný-
lega í ljósi í ræðu von um aukin
vináttutengsl Indlands og Júgó-
slavíu. — Reuter.
* Stórfjón í hafnarborgum við suð-vesfurströnd
Bretlands
loNDON, 2Ý^nóv!™
OVEÐUR mikið hefir geisað undanfarið dægur á Ermasundi og
víða á Atlantshafi og hefir valdið miklum skipssköðum. —
Brezka útvarpið skýrði svo frá, að unnið hefði verið fram í myrk-
ur að björgun sjö manna, er álitnir eru króaðir inni í hollenzku
vitaskipi úti fyrir Dover á Ermasundi. Mörg skip munu halda sig
í nálægð þess í nótt, tilbúin að halda áfram björgunaraðgerðum,
er birtir, og kafarar vinna að því að brenna göt á skipsskrokkinn,
til að ná til skipbrotsmannanna. Bandarískri þyrilflugu tókst að
bjarga einum manni af þilfari vitaskipsins. Álitið er, að fjórir
þeirra, er innilokaðir eru, séu í eldhúsi skipsins, en hinir þrír í
káetu. —
Eldur í istanbul
★ ISTANBUL, 27. nóv.: — Mikill
eldur braúst út í dag í verzlunar-
hverfi Istanbul. Tjónið af völd-
um eldsins, er álitið nema
milljónum sterlingspunda. Lög-
regluliðssveitir voru kallaðar á
vettvang til að koma í veg fyrir
rán. Nokkrir brunaliðsmenn slös-
uðust við slökkvistarfið.
Forsprakfci leynifé-
iags fyrir rétfi
★ KAIRÓ, 27. nóv.: — í dag
hófust réttarhöld yfir forsprakka
leynifélags Bræðralags Muha-
meðstrúarmanna. Var hann dreg-
inn fyrir lög og dóm á þeim for-
sendum, að hann hefði átt þátt
í samsæri gegn stjórn Egypta-
iands, Byltingarráðinu. Játaði
hann að hafa stofnsett leynifélag,
er hefði vopn undir höndum, en
kvaðst engan þátt eiga í samsæri
því, er staðið hefði að tilræðinu
er Nasser forsætisráðherra var
sýnt í s.l. mánuði. Saksóknari
ríkisins krafðist þess, að ákærði
yrði dæmdur til dauða. Lögregl-
an leitar nú stöðugt uppi meðlimi
Bræðralagsins
Eflir f'u ára leynd '•/
Vilja Vichy-menn standa
reikningsskap gjörla sinna
PARÍS, 27. nóv. — Reuter.
ÞRÍR af áhrifamiklum meðlimum Vichy-stjórnarinnar, er franska
lögreglan hefir leitað að s. 1. 10 ár, hafa tilkynnt, að þeir séu
fúsir til að gefa sig fram og standa reikningsskap gjörða sinna,
þ. e. samvinnunnar við Þjóðverja á stríðsárunum.
DÆMDIR AÐ ÞEIM
SJÁLFUM FJARSTÖDDUM
Einn þeirra, aðalritari Vichy-
stjórnarinnar, Jacques Guerard,
var dæmdur til dauða að honum
fjarstöddum árið 1947. Hinir
tveir, er einnig voru dæmdir að
þeim fjarstöddum, eru Gabriel
Auphan, sjóliðsmálaráðh. Vichy-
stjórnarinnar, sem var dæmd-
ur til ævilangrar hegningarvinnu,
og Henri Blehaut, aðmíráll, er
árið 1948 var dæmdur til 10 ára
hegningarvinnu fyrir störf sín í
þágu Vichy-stjórnarinnar, sem
nýlendumálaráðherra.
EKKERT HEFIR SPURZT
TIL NÍU ANNARRA
Guerard, er flúði til Argen-
tínu, þegar Vichy-stjórnin féll,
býr nú í Madrid, en þar á hann
stórt oliufyrirtæki.
A. m. k. níu aðrir fylgjendur
Vichy voru dæmdir til dauða að
þeim fjarstöddum og hefir ekk-
ert til þeirra spurzt. Eru jafnvel
sumir álitnir dauðir, þ. á. m.
atvinnumálaráðherrann Marcel
Déat.
----- ------ ,
Dides ssttur af i
★ PARÍS, 27. nóv.: — Dides,
fyrrverandi lögreglustjóri Parísar
borgar, er varð að láta af störf-
um í bili í sambandi við hin al-
ræmdu njósnamál í franska ör-
yggismálaráðinu, hefir nú verið I
vísað úr stöðu sinni fyrir fullt og
allt. Dides var sagður hafa haft
undir höndum leynileg skjöl um
varnarmál, er hann hafði enga
heimild til. Var hann einn af
aðalvitnunum í málaferlum þeim
er spunnust út af njósnum um
starfsemi franska öryggismála-
ráðsins.
TÓK NIÐRI OG
KASTAÐIST Á HLIÐINA
Maður sá, Murphy að nafni,
er bjargaðist, skýrði svo frá, í
viðtali við fréttamenn, að
skömmu eftir miðnætti hefði
skipstjórinn orðið þess var,
að leki var kominn að skip-
inu og hefði hann þá ákveðið
að senda neyðarskeyti, en vannst
ekki tími til þess, þar eð skipið
í sömu andránni tók niðri og
kastaðist á hliðina í stórsjóun-
um.
Murphy var mjög þjakaður af
vatni og var þegar fluttur í
sjúkrahús. Hafði honum tekizt
að ná föstu taki eftir að hafa
hrakizt í 15 mínútur um þilfarið
og tekið útbyrðis einu sinni. —
Hafði hann unnið um borð að
vísindastörfum.
Síðdegis í dag tókst að bjarga
sjö mönnum af öðrum hluta olíu-
skipsins „World Conquered,“ er
brotnaði í tvennt í óveðrinu. Áð-
ur hafði þyrilfluga gert björgun-
artilraun, er mistókst. Tekizt
hafði fyrr um daginn að bjarga
35 mönnum af framhluta skips-
ins. Reynt hefir verið árangurs-
laust að koma dráttartaug um
borð í bæði fram- og afturhluta
skipsins, er reka stöðugt lengra
hvor frá öðrum á gráúfnum sjón-
um. Eru reköldin álitin mjög
hættuleg öðrum skipum.
Skipið var á leið til hafna við
Miðj arðarhaf ið.
★ ÁHÖFN „VEGA“
BJARGAÐ
Allri áhöfn danska skipsins
„Vega“ hefir nú verið bjargað.
Skipið er mannlaust og rekur
stjórnlaust í stórsjó á Ermar-
sundi, og er flakið álitið mjög
hættulegt öðrum skipum.
DRUMMOND-MAUÐ
• DIGNE, 27. nóv.: — Málaferl-
in yfir Gaston Dominici, sjötuga
franska bóndanum, er ákærður er
fyrir morð Drummond-fjölskyld-
unnar, Sir Jack Drummond, konu
hans og dóttur, héldu áfram í
dag. Saksóknarinn ávarpaði kvið
dóminn og hvatti hann til að
sýna Dominici enga miskunn, þar
eð hann hefði verið svo miskunn-
arlaus við fórnardýr sín. Dominici
myrti Drummond-fjölskylduna
eins og áður hefir verið skýrt frá
sumarið 1952, er þau gistu í tjaldi
nálægt landareign hans.
i — Reuter.
★ RÁKUST Á
Þýzkur togari varð fyrir tals-
verðum skemmdum, er hann
reyndi að koma til bjargar norska
skipinu „Argus“, en vél þess hafði
bilað í grennd við Hirtzhals. —
Svo illa tókst til við björgunar-
starfsemina að skipin rákust á
og hefir ekki enn tekizt að bjarga
skipshöfninni af norska skipinu.
★ STÓRTJÓN Á LANDI
Mikill stormur og rigning sam-
fara stormsveipum, er fara allt
I að 80 mílur á klst., hafa herjað
súð-vestur strendur Bretlands í
j allan dag og hafa víða valdið
miklu tjóni í þorpum og bæjum
á ströndinni, og einkum þó á eyj-
unni Maine, en þar hefur flætt
yfir bækistöðvar strandvarnar-
liðsins. — Víða flæddi yfir vegi
og hús, síma- og rafmagnslínur
.slitnuðu og leggja varð niður á-
1 Framh. á bls. 12