Morgunblaðið - 30.11.1954, Blaðsíða 1
16 síður
TSL HAMINGJU,
SIR WSNSTON!
Bandalag
Austur-Evrópu
Svipað Atlantshafs-
bandalaginu
MOSKVA, 29. nóv. — Eins og
búist var við boðaði Molotov,
utanríkisráðherra Rússa, i ræðu
sinni á ráðstefnu Austur-Evrópu-
ríkjanna, sem hófst hcr í dag, að
ríki þessi myndu gera með sér
bandalag með svipuðu fyrirkomu
lagi og Atlantshafsbandalagið.
Molotov orðaði þetta svo að ríki
þessi neyddust til þess að gera
ráðstafanir til þess að verja landa
mæri sín ef svo fer að Parísar-
samningarnir um enduhervæð-
ingu Vestur-Þýzkalands ná fram
að ganga.
Einnig er búist við að ráðstefn-
an samþykki ályktun um aukn-
ingu á her og herbúnaði þátttöku
ríkjanna.
Eitt af því, sem Sovétríkin ráð-
gera er að boða „endurhervæð-
ingu“ Austur-Þýzkalands, þótt
það sé raunar á allra vitorði að
þessi endurhervæðing hefir farið
fram fyrir löngu.
Molotov er sjálfur í forsæti á
ráðstefnunni í dag sem hófst
skömmu eftir hádegi.
Þetta er sama ráðstefnan og
vestrænum þjóðum var boðið að
taka þátt í en neituðu.
HcCharfhy
WASHINGTON, 29. nóv. —
McCarthy kom öllum á óvart, er
mál hans var tekið fyrir aftur,
eftir 10 daga hlé, í dag, með því
að krefjast atkvæðagreiðslu um
vantraustið þegar í stað.
Atkvæðagreiðslan fer sennilega
fram á miðvikudag.
Ofviðri eiín
LONDON, 29. nóv. — Regn mæld
ist sumstaðar í Englandi 24 mm
í dag. í suður- og vesturhluta
landsins hafa einnig gengið storm
ar. —
Oveðrið færist norður á bóg-
inn og sumstaðar liggja vegir
undir vatni að nýju
Vaxandi öryggi1
Vesturvelda
Rússum bent
á leiðir
LONDON 29. nóv. — Vestur-
veldin hefja ekki samninga við
austrið fyrr en búið er að stað-
festa Parísarsamningana, og
fundur hinna fjóru stóru getur
ekki leitt til neins góðs fyrr en
jarðvegurinn hefir verið undir-
búinn með því að:
1. gera friðarsamninga við
Austurríki,
2. Sovétríkin hafi sýnt já-
kvæðan hug sinn til
frjálsra kosninga í Þýzka-
landi.
3. Önnur ágreiningsmál aust-
ursins og vestursins hafa
verið könnuð eftir venju-
legum diplomatiskum leið-
um.
4. utanrikisráðherrar fjórveld
anna hafa komið saman til
undirbúningsviðræðna, en
þann fund er þó ekki hægt
að halda fyrr en Parísar-
samningarnir hafa verið
staðfestir.
5. þá fyrst, ef árangur hefur
orðið af fundum utanríkis-
ráðherranna, getur komið
til greina að „hinir fjórir
stóru“ komi saman til þess
að jafna ágreininginn milli
austurs og vesturs.
Þetta er niðurstaðan af svari
þríveldanna Frakka, Breta og
Bandaríkjamanna við boði Sovét-
ríkjanna til Evrópuráðstefnu,
sem hófst í Moskvu í dag. Svar-
ið var afhent Molotov utanríkis-
ráðherra Sovétstjórnarinnar
nokkrum klst. áður en ráðstefn-
an var sett.
Ráðstefnuna sitja fulltrúar
þjóðanna austan járntjalds, sjö
að tölu, Búlgaríu, Póllands,
Rúmeníu, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalands, Austur-Þýzkalands
Albaníu og Sovét-Rússlands, auk
áheyrnarfulltrúa frá Peking.
Öll hin ríkin, 15 í Evrópu og
Bandaríkin sögðu nei og rök-
studdu afstöðu sína með orðsend-
ingunni, sem afhent var í dag.
s
Svar Islands við orðsendingu
Ráðsf iórnarrí kja n na
Blaðinu barst í gær svo-
hljóðandi tilkynning frá
utanríkisráðuney tinu:
TANRÍKISRÁÐHERRA af-
henti í dag sendiherra Ráð-
stjórnarríkjanna á íslandi svar
íslenzku ríkisstjórnarinnar við
orðsendingu Ráðstjórnarinnar 13.
nóvember s.l., þar sem lagt var
tU, að ráðstefna um sameiginlegt
öryggi Evrópu yrði kvödd saman
29. nóvember.
Svo sem kunnugt er, hafa þátt-
tökuríki Atlantshafsbandalagsins
haft samráð um orðalag svarorð-
sendinga sinna, og voru öll svörin
afhent í dag.
í orðsendingu sinni lætur ríkis-
stjórnin í ljós ánægju með þann
áhuga, er ráðstjórnin hefur sýnt
á öryggismálum Evrópu en harm-
ar það, að í umræddri orðsend-
ingu hennar hafi aðeins verið
stungið upp á ráðstefnu en ekki
verið lagðar fram ákveðnar til-
lögur, sem ríkisstjórnir þær, er
hlut eiga að máli, gætu athugað
og myndað sér skoðun um, hvort
grundvöllur væri fyrir ráðstefn-
um.
Telja ríkisstjórnirnar tillögu
ráðstjórnarinnar greinilega stefna
að því að koma í veg fyrir full-
gildingu Parísarsamninganna. cn
þá samninga telja þær grundvöll
Framh. á bls. 12
Hótíðahöld og heillaóskír
í tiiefni af óttræðisafmælinn
ASLAGINU klukkan tólf á hádegi í dag hefst í West-
minster Hall í London hátíðarsamkoma í tilefni af átt-
ræðisafmæli Sir Winston Churchills með því að trumbu-
slagarar slá Morseteiknið „V“ — þrjú stutt og eitt langt —
en teikn þetta var frelsisboðskapur Stóra-Bretlands og
forsætisráðherra þess, Winstons, til undirokaðra þjóða á
stríðsárunum.
Þessi hátíðarsamkoma verður þó aðeins einn þátturinn í hátíðar-
höldunum.
Hinn aldni en erni forsætisráðherra gerir ráð fyrir að fara
snemma á fætur á afmælisdaginn til þess að taka á móti heilla-
óskum konu sinnar og fjölskyldu.
Kosningar
i Þýzkalandi
Búðir
sigruðu
BONN, 29. nóv. — Bæði Adenau-
er kanslari, foringi kristilegra
demokrata og Ollenhauer, foringi
sósíaldemokrata, halda því frara
að flokkar þeirra hafi unnið
kosningarnar í Bayern og Hess-
en. Kosningar þessar fóru fram
á sunnudaginn.
Kristilegi demokrataflokkur-
inn bætti við sig mörgum (20)
þingsætum í Bayern, og í Hessen
náðu kristilegir demokratar á-
samt frjálsa demokrataflokknum
meirihlutanum úr höndum sósíal-
demokrata. En kosningar fóru
síðast fram í þessum landshlut-
um fyrir 4 árum.
En miðað við kosningarnar,
sem fóru fram í öllu Vestur-
Þýzkalandi í fyrra, hefir flokkur
Adenauers tapað verulegu fylgi.
Úrslit kosninganna hafa, hvað
sem öðru líður, í för með sér, að
Adenauer heldur meirihlutanum
í efri deild þýzka þingsins. —
Þenna tveggja þriðju meirihluta
þurfti hann að hafa til þess að
Parísarsamningarnir næðu end-
anlega fram að ganga, eftir að
neðri deildin (Bundestag) hefir
samþykkt þá.
Árdegis gerir hann ráð fyrir
að vera kominn í sæti sitt í neðri
málstofunni.
En þar mun Elísabet drottning
ávarpa þingheim í tilefni af því,
að þing verður sett.
Á samkomunni í Westminster
Hall nokkru síðar verður Sir
Winston afhent málverk af hon-
um sjálfum, sem gert hefur mál-
arinn Graham Sutherland. Mál-
verkið er gjöf frá öllum vinum
hans og samstarfsmönnum í rík-
isstjórninni og fremstur þeirra
er formaður stjórnarandstæðinga,
Clement Attlee.
TUTTUGU MÍNÚTNA RÆÐA
Þarna mun Churchill halda
tuttugu mínútna ræðu, sem út-
varpað verður. Milljónir brezkra
þegna munu fylgjast með hátíða-
samkomunni i sjónvarpi.
Fram eftir öllum degi og langt
fram á kvöld verður ráðherrann
önnum kafihn við að taka á móti
gjöfum víðsvegar að úr heimin-
um.
Enginn tími verður til að sinna
ættingjunum. En Churchill 'hefur
sjálfur skýrt svo frá að hann ætli
að nota morgundaginn (miðviku-
dag) til þess að vera með fjöl-
skyldu sinni.
HEILLAOSKIR EISENHOWERS
WASHINGTON 29. nóv. — Hér
fara á eftir heillaóskir Eisen-
howers til Churchills:
„Ég veit að ég tala í nafni sam-
landa minna á sama hátt og ég
geri af heilum hug í eigin nafni,
er ég sendi þér innilegustu heilla-
óskir, er þú nú nærð nýju landa-
merki í lífi, sem í sjálfu sér er
heil röð stórra landamerkja."
„Vér Ameríkumenn höfum
þekkt þig og heyrt um þig talað
er árin liðu — sem stríðsfrétta-
ritara á ferð og flugi, sem ævin-
týralegan hermann, sem stjórn-
anda og þingmann og, i vaxandi
mælí með hverju ári sem liðið
hefur, sem stjórnvitring og verj-
anda frelsis.“
„Vér höfum horft á hið mikla
samfélag Englendinga og Ame-
ríkumanna vaxa og blómgast og
þú hefur verið einn af hinum
tryggu formælendum þess. Á
dimmum tímum styrjaldar og
kvíðafullum tímum ótryggs frið-
ar hefur þetta samfélag haldið
oss öllum uppi og gefið oss
kraft.“
„Nú, er þú hefur náð áttunda
tugnum, heilsum vér Ameríku-
menn þér sem heimsstjórnvitring,
Framh. á dis. 2
Sasfon dæmdur til
dauða — áfrýjar
DIGNE, 29. nóv. — Sjö kviðdóm-
endur, allt bændur úr nágrenn-
inu og þrír dómarar, komust að
þeirri niðurstöðu, að Gaston Dom
inici, 77 ára, væri sekur um mörð
. ið á Sir Jack Drummond, konu
j hans og 12 ára dóttur, en þau
' höfðu dvalizt i tjaldi næturlang*
nálægt sveitabýli karlsins í ágúst
j 1952.
I í gær var Gaston Dominici
dæmdur til dauða.
í dag tilkynnti verjandi hans
að dauðadóminum hefði verið
áfrýjað.
Dominici hlustaði hinn róleg-
asti á er ákærandinn líkti honum
i lokaræðu sinni við slátrara, sem
miskunnarlaust hefði lostið Elísa
betu litlu banahögg, og kallaði
hann „lauslætisson ítalskrar
þvottakonu". Ákærandinn sagði
að karlinn hefði leikið konu sína,
eins og hún væri rakki.
Um Gúsaf, son karlsins, sem
reynt hefir að verja föður sinn,
sagði ákærandinn, að hann væri
; væskill.
(hurchili-sjéðurinn
LONDON 29. nóv. — f allan dag
var sextíu manna' hópur önnum
kafinn við að koma einhverju
lagi á þann urmul af peninga-
ávísunum og peningaseðlum, sem
streymt hafa í Churchili sjóðinn,
sem stofnaður var fyrir nokkr-
um vikum og afhenda á for-
i sætisráðherranum á morgun. Er
ætlunin að Sir Winston ákveði
til hvers sjóðnum skuli varið. —
Sjóðsupphæðin nemur nú þegar
i hátt á 5. milljón (ísl.) króna.