Morgunblaðið - 24.12.1954, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 24.12.1954, Qupperneq 9
Föstudagur 24. des. 1954 MORGVTS BLAÐIÐ 9 - Hib þrefalda klausturheif - fátækt, einiífi, hlýðni um eða einhverju grænmeti. Kjöt er aldrei á borð borið og á föstu- dögum aldrei mjólk eða egg. Á | lönguföstunni er smjörið þar að auki strikað at af matseðlinum. Utan hinna fyrirskipuðu föstu- tíma mega nunnurnar annars neyta hvaða hnossgætis, sem að þeim er rétt, nema auðvitað kjöts, I nunnurnar til sálmasöngs í hálfa klukkustund og í næsta hálftíma er lesið upp úr heilagri ritningu eða öðrum andlegum bókum. Kl. 3 er tekið til við vinnuna aftur og henni haldið áfram í tvær klukkustundir — til kl. 5. Þá er bæn og trúarhugleiðing í eina klukkustund, en kl. 6 er gengið Iíarmelsystir — „brúður Krists“ — búningurinn er i öllu sem venjulegur brúðarbúningur. svo fremi, að þær hafi ekki keypt jþað fyrir sína fjármuni. Einn snikilvægasti liðurinn í klaustur- heiti þeirra er ævarandi fátækt en þeim er ekki, fremur en öðr- um fátæklingum varnað þess að þiggja gjöf, sem þeim er gefin af góðum hug. Meðan á hádegisverðinum stendur les ein af nunnunum upp úr einhverri andlegri bók, ritn- íngunni, ævisögu eins eða annars dýrlings eða þ. u. 1. •— hinar tilusta á. Ekkert samtal má eiga sér stað í borðstofunni meðan á tmáltíðinni stendur. HUGUBINN MÁ EKKI DREIFAST Kl. 11.45 er frítími — í rúma Iklukkustund. Þá ganga klaustur- systurnar út í garðinn, vinna að matjurtarækt á vorin og sumrin og mega nú tala saman og verja tímanum til ýmissa starfa ■— skyldustarfa. Kl. 12.00 er þessum almenna samkomutíma lokið. Þá taka nunnurnar aftur til við vinnu sína og nú hver í sínum klefa ein út af fyrir sig. Allt er miðað við það, að hugurinn dreifist ekki «m of frá hinu eina takmarki, liinu eina innihaldi klausturlífs- áns — guði. Til þessa er einvera >og þögn nauðsynleg — alger og órofin þögn. Það vekur ekki hið xninnsta hljóð þó að ein systirin gangi út úr klefa sínum út á lilausturganginn, því að nunn- 'urnar allar hafa á fótunum flétt- aða snærisskó, sem gera fótatak þeirra með öllu hljóðlaust. BRÉF TIL FORELDRA — EINU SINNI í MÁNUÐI Kl. 2 kallar klausturklukkan til borðstofu. Máltíðin saman- stendur af brauði með osti eða einhverju öðru áleggi og svo kaffi eða te. Kl. 6,30—7.30 er aftur almenn samkoma og skylduvinna, síðan bænir og kl. 7,30—8 er sálma- söngur. Næsti háiftími er frjáls j bænatími og næsta hálftíma | verða nunnurnar að verja í ein- | veru, hver í sínum klefa. Þær nota hann m. a. til að skrifa bréf til foreldra sinna og fjölskyldu. en það er þeim leyfilegt einu sinni í ífíánuði hverjum. — Kl. 9 er sálmasöngur aftur til kl. 10.30, en þá ganga klaustursystur til náða til að safna andlegum og líkamlegum kröftum til næsta dags. — Þannig líður hver dagur öðrum líkur í Karmel-klaustrinu að Jófríðarstöðum. JÓL í KLAUSTKINU Á jólunum er mikið helgihald, hámessur og hátíðasöngvar setja þá aðalsvipinn á klausturlífið. Á nokkrum stöðum í klaustrinu er komið fyrir smáum jötum, eftir- líkingum af Krists-jötunni í Betlehem. í kringum þær krjúpa nunnurnar í lofgjörð og til- beiðslu. — Mataræði klaustur- systranna yfir jólin er í litlu frá- brugðið öðrum dögum, nema þá helzt, ef þeim berst eitthvað utan að frá, sem stundum kemur fyrir. — Jólahelgin sjálf er það sem máli skiptir. STARF PRÍORINNUNNAR Ég bið príorinnuna að skýra út fyrir mér í hverju starf hennar sem yfirsystur klaustursins sé fólgið: — Príorinnan á að vera móðir klaustursins — gefa sjálfa sig í þjónustu hinna klaustursystranna um leið og hún er foringi þeirra og leiðbeinandi. Við lifum hér í félagi og ekkert félag fær þrifizt ef höfuðið vantar til að skipu- leggja og halda við reglu á hlut- unum. Hér í klaustrinu höfum við ákveðna verkaskiptingu: Ein okk ar hefur það starf að klæða prest- inn, önnur sér um húshaldið, sú þriðja sér um þá sjúku. Á þriggja ára frestí er skipzt á þessum störfum. Þá eni og önnur störf, sem skipzt er á víkulega svo sem því að byrja á sálmunum — vera forsöngvarí, þvo ispp matarílátin, ganga um beína 1 borðstofunni o. s. frv. Við skípíum vikulega um þessi störí ejnnig með það fyrir augum, að kiaustursystirin verði ekki emhverju veraldlegu starfi of samgröín þannig að hug- ur hennar verði skíptur á milli þess andiega og veraldlega. Það er h'ka þess vegna, sem við höfum ekkert útvarp til að hlusta á eða blöð og bækur til að lesa aðrar en trúarbækurnar okkar. TIL ÞRIGGJA ÁRA Príorinnan er kjörin til þriggja ára af hinum klaustursystrunum. Má endurkjósa hana einu sinni. Að þeim tíma liðnum er hún aft- ur óbreytt systir en „móðir“ er hún kölluð eftir sem áður. Það ber ekki að líta þannig á, að príorinnan sé hinum nunnunum meiri þó að hún hafi þetta starf með höndum — slíkt samrýmist ekki auðmýkt sannkristins manns — Kristur lítillækkaði sjálfan sig Reynslutími hverrar Karmel- systur, áður en hún vinnur sitt eilífðarheit er hálít fimmta ár, Fyrstu sex mánuðina klæðist hún venjulegum svörtum kjól og ber stutta blæju. Á þessum sex mán- uðum er algengast, að ungsystir- in snúi við og hverfi aftur úr klaustrinu, ef hún snýr við á Við aðaldyr klaustursins. — Úti- nunnurnar, systir Rafaela og systir Mikkaela, á leið í bæinn með mjólkurbrúsa og tösku. annað borð. Henni er algerlega frjálst að velja. En óski hún að halda áfram kemur hún að merkilegum áfanga að þessum sex mánuðum liðnum: Hún íklæðist alhvítum Þannig líta klausturklefar Karmelsystra út. Á myndinni sýnist klefinn stærri en hann er í raun og veru. Svo að segja allt gólf- rúmið er tekið upp af hinum fábreyttu húsgögnum: trérúmi, stol og litlu boröi með hillu í fyrir bænabækur systurinnar. Klausturkapellan. — Þar syngur klausturpresturinn messu á hverj- lim morgni. Inninunnurnar koma aldrei inn í sjálfa klausturkap- elluna en hlýða á messuna gegnum járngrind þá, sem sést til vinstri á myndinni. Meðan á messugjörðinni stendur er dregið frá þeim svart hengi, sem að jafnaði er dregið fyrir. Við hlið járn- grindarinnar — uppi í hominu — sést lítil vegghurð, sem opnuð er, þegar systumar meðtaka hið heilaga sakramenti. og við viijum reyna að stæla hann, segir móðir Veronica. EINMITT VEGNA _ EINANGRUNARINNAR Ýmsir munu undrast það — heldur príorinnan áfram, hvers vegna við erurn komnar alla leið hingað til íslands. Hvers vegna við gátum ekki fullt eins vel ver- ið í okkar klaustri úti í Hollandi. Þar fengum við leyfi einu sinni í mánuði til að taka á móti heim- sóknum nánustu ættingja okkar. Hér erum við miklu einangraðri. Já, það er einmitt vegna þess, að hér er einangrun okkar miklu meiri að við erum hingað komn- ar. Með því móti verður fórn okkar meiri og við fáum betur þjónað köllun okkar sem við lif- um fyrir. Engin fórn er of stór — einangrunin aldrei of mikil. En það er ekki einangrunin sem slík, sem dróg okkur hingað til íslands, heldur líka hitt, að við vildum með bænum okkar geta orðið íslendingum að liði. Stundum leitar fólk hingað til okkar og biður okkur að biðja fyrir sér — við erum ávallt reiðu- búnar til þess. 4% ÁRS REYNSLUTÍMI Það er áreiðanlegt, að þarna fylgir hugur máli, enda liggur eilífðar klausturheitinu að baki mikil umhugsun og yfirvegun, undirbúningur og reynsla. • búningi, kyrtli og blæju í einu og öllu, sem venjuleg brúður — nú er hún „brúður Krists“. — A ,,brúðardaginn“ fær hún að vera utan klaustursins í svokölluðu útihúsi við klaustrið með fjöl- skyldu sinni áður en hún hverf- ur inn fyrir klausturmúrana. Nú fær hún brúnan kyrtil og næsta ár er áframhaldandi umhugsun- ar- og revnslutími. ENN TÍMI TIL AÐ SNÚA VIÐ Að því loknu má hún yfir- gefa klaustrið, ef hún óskar þess en vilji hún halda áfram, gerir hún nú hið þrefalda heit um fátækt, einlífi og hlýðni. — Næstu þrjú ár er hún enn ung- systir. Hún hefur enn tima til að snúa við og hverfa til síns fyrra lífs aftur, ef henni finnst klausturlífið vera sér um megn og köllun sín ekki nægilega sterk. Að þessum þremur árum liðnum má hún svo vinna eilífðarheitið ef hún sjálf óskar þess, og hinar meðsystur hennar eru samþykk- ar, og eftir að það hefur verið unnið getur hún ekki snúið aftur, nema með sérstöku leyfi frá páf- anum í Róm. NORRÆNUFRÆÐINGUR MEÐ DOKTORSNAFNBÓT Nunnurnar í Karmelklaustrinu að Jófríðarstöðum eru allar hol- lenzkar, komnar víðsvegar frá í Hollandi. Ein þeirra, systir Ólöf er hálærð kona, norrænufræðing- ur að menntun. Hún stundaði nám bæði við háskólann í Kaup- mannahöfn og árið 1929 við Há- skóla íslands. Skrifaði hún stór- merka bók um Njálu, sem hún hlaut doktorsnafnbót fyrir. Hún var ekki fædd kaþólsk, en tók kaþólska trú fyrir 12 árum. Áður en hún gekk í klaustrið í júní s.l. ár, starfaði hún sem skjalavörð- ur bæjarins í Rotterdam og var þar komin í háa stöðu, sem mörg- um myndi þykja eftirsóknarverð; En svo ákvað hún þetta. Doktors- nafnbót og há og vel virt staða var léttvæg fundin —• Karmel- systir vildi hún gerast og hvergi vildi hún frekar vera en á ís- landi, sem þegar iöngu áður hafði hrifið ást hennar og vináttu. Systir Ólöf átti áður heima í smáborg rétt við Rotterdam og' nafn hennar áður en hún játað- ist Karmelitareglunni var Annie Elersbergen. Allar Karmelsystur leggja niður sitt fyrra nafn, þeg- ar þær vinna klausturheit sitt og taka nafn einhvers dýrlings i staðinn — eða afleitt af dýr- lingsnafni. MARGUR MISSKILNINGUR Önnur útinunnan, systir Mikka- ela átti heima í litlu þorpi nálægt Amsterdam. Ekkert af hennar ættfólki eða vinum hefur gengið í klaustur. „Ég á fimm systur, segir hún —■ fjórar giftar og þeirri fimmtu dettur víst ekkert í hug að gerast nunna.“ — Er ekki stundum erfitt hjá ykkur útinunnunum með að- drætti hér upp á hæðina þegar vond eru veður? spyr ég systur Mikkaelu. — Jú, stundum er það, sérstak- lega þegar snjór er —■ en þá för- um við bara í stigvél — og hún hlær við hressilega. — Hin úti- nunnan, systir Rafaela er frá smáborg í Suður-Hollandi. Hún á þar giftan bróður og fleiri systkini. Margir ímynda sér' að klaust- urnunnu sé forboðið að hlæja og" gera að gamni sínu — að þær verði að ganga um grafalvarleg- ar öllum stundum og undir öll- um kringumstæðum. Þetta er mesti misskiiningur eins og svo fjölda margt annað, sem við ímyndum okkur um klausturlíf. Karmel-systurnar geta — og mega hiæja skært og innilega, þegar þeim finnst tilefni til — rétt eins og þú og ég . — Það sá ég greinilega, meðan á hinni stuttu heimsókn minni stóð — gieði- og hamingjusvipur var á hverju andliti. AFSTAÐA OKKAR Ef til vill er það eðlilegt, að við íslendingar vitum lítið um, hvað klausturlíf er í raun og veru og á hverju það byggist. — Kaþólska og klausturreglur er fyrir okkur ekki annað en löngu liðinn þáttur í sögu þjóðarinnar, sem hinn nýi siður — og tíminn hafa sameinazt um að fyrna í vitund okkar — ellegar eitthvað órafjarlægt okkur í heimsrúm- inu. — Látum svo vera, slíkt væri ekki rétt að áfellast okkur fyrir. Hitt er vafasamara, þegar við leyfum okkur að skipa okkur dómara yfir því fóiki, sem dregið I hefur sig til baka frá heiminum, ! afneitað öllu, sem það átti áður af veraldlegum gæðum til að helga líf sitt hinni æðstu meðal | allra hugsjóna — guðshugsjón- | inni. Við sláum því föstu í fáfræði ! okkar, að flest af þessu fólki, sem lokar sig innan klaustur- múranna sé skipbrotsfólk, sem | orðið hafi fyrir ásarsorg eða öðr- ! um óbærilegum vonbrigðum, sem j gert hafi það fráhverft heimin- um og bregðum því jafnvel stund um um sýndarmennsku og eig- ingirni. — Við virðumst helzt hvorki vilja vita né viðurkenna að það er til nokkuð sem heitir æðri máttur — æðri köllun sem hefur verið, er og mun verða að Frh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.