Morgunblaðið - 05.06.1955, Qupperneq 1
16 síður og Lesbók
Kirkjustaðurinn Marteinstunga í Hcitum í Kangárvailasýslu. Umhverí'ið á myndinni geíur mjög góða hugmyndum landslagið í þessari sunnlenzku sveit, sem nú hefur
nýlega fengið raforku frá Sogsfossum. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Stœrsta réttin
rafvæ
úsfreyjunnar í sveit-
bygg&a landsins
Þrír méaaðir síðca MsilGmenn ienp raimogn
I
Samtal við jbd um kosti þess og
hin nýju viðhorf i sveifinni
ÞEGAR íréttamaður Mbl. brá sér fyrir nokkrum dögum austur
í Holtahrepp í Rangárvallasýslu, og átti tal við nokkra bændur
þar, þótti honum það ekki leyna sér, að eitthvað alvel nýtt hafði
borið þar við í sveitinni, sem setti svip bjartsýni og framtíðarvhna
á héraðið og fólkið. Mátti svo heita að flest viðhorf manna hefðu
breytzt.
Þarna hafði vissulega átt sér stað mikil breyting. Á einu misseri
hafði mikill hluti Holtahrepps færst úr myrkri aldanna yfir í ljós
nútímans. í einu vetfangi hafði verið tekið stökkið frá olíulömp-
unum yfir í rafmagnsljósið.
Sú stutta frásögn sem hér fylgir á eftir lýsir að vísu aðeins
viðhorfunum í einni sveit. En þetta sama er að gerast víðar
út um land allt. Sú ríkisstjórn, sem nú situr hér undir
forsæti Ólafs Thors hefur ákveðið að rafvæðing landsins,
skuli sitja fyrir öllum öðrum framkvæmdum. Hún lætur
ekki sitja við orðin tóm, enda er rafvæðingin stórkostlegt
kjarabótamál þjóðarinnar í heild.
LAGNING LINUNNAR
HÓFST S.L. HAUST
Ég ræddi fyrst nokkuð við
Engilbert Kristjánsson bónda í
Pulu um starfið við lagningu lín-
unnar, en hann var annar
tveggja Holtamanna, sem fengu
atvinnu við lagningu hásþennu-
línunnar. Heyrði ég á öðrum
Holtamönnum, að þeir undruðust
það nokkuð að fleiri úr þeirra
hópi skyidu ekki vera teknir í
vinnu við lagningu línunnar í
sitt eigið hérað. Hefði verið ó-
þarfi að flytja verkamenn til
þess langar leiðir að.
— Jæja, þegar ég hitti Engil-
bert, var hann að leggja síðustu
hönd að verki, festa niður jarð-
sambandslínur og flvtja burtu
uppgröft frá stauraholunum.
— Það var á sumardaginn
fyrsta í fvrra, sem fyrstu merki
hins fyrirhugaða verks sáust. Þá
var byrjað að stika út fyrir staur
um. Um sumarið voru staurar
fluttir uppeftir og í september
var bvriað að grafa þá niður og
leggja linuna.
RAFMAGN Á 20 BÆI
— Hvaða leið er línan lögð og
á hvaða bæi?
— Hún liggur út af aðalhá-
spennulínunni við Suðurlands-
veg hjá vegamótum. Síðan fá
rafmagn frá henni þessir bæir:
Þjóðólfshagi, sem er tvíbýli,
Sumarliðabær í Ásahreppi, sem
er tvíbýli, Fosshólar, Lýtings-
staðir, Raftholt, Hvammur, Hefs-
holt, Gata, Félagsheimilið Lauga
landi, Marteinstunga, bærinn og
kirkjan. Er þó ekki komið í
kirkjuna, Hallstún, Bjálmholt,
Kaldakinn, Pula, Mykjunes,
Skammbeinsstaðir, sem er þrí-
býli, Hjallanes í Landsveit.
SJéinaimicSaprra er í dag
SJÓMANNADAGURINN er í dag. Kl. 8 í morgun voru fánar
dregnir að hún á skipum, en kl. 1 e. h. safnast sjómenn sam-
an við Borgartún 7 og ganga fylktu liði að Dvalarheimili aldraðra
sjómanna, þar sem biskup íslands minnist drukknaðra sjómanna.
Þar flytja og ávörp Ingólfur Jónsson, ráðherra, Ásberg Sigurðsson,
framkv.stj. og Þórhallur Hálfdánarson, skipstjóri.
Eins og sjá má eru þetta um
20 býli, og hefur rafmagnsins
vissulega verið beðið með eftir-
væntingu á þeim öllum.
U.M 12 KM. LÍNA
Nú eru að vísu margir bæir
hér um slóðir, sem enn eiga eft-
ir að fá rafmagn. Það stafaði af
af því að lengra var milli bæia
en svo að þeir gætu komizt að í
fyrstu umteið. En cins og þessi
lína var lögð, var hun fremur
hagstæð, meðalheimtaugar jafn-
vel styttri en víðast annarsstað-
ar.
— Hvað eru margir staurar í
þessari línu?
— Þeir eru um 130. Lengst er
Framh. á bls 2
í dag fer og fram afhending '
heiðursmerkja til fimm gamalla1
sjógarpa og eru þrír þeirra
komnir yfir nírætt: Gísli Ás-
geirsson á Álftamýri í Arnar-
firði, Ellert Schram í Reykjavík
og Sigurður Jónsson í Görðun-
um í Skerjafirði. Hinir tveir eru
Einar Ólafsson í Hafnarfirði, sem
er á níræðisaldri og Guðjón
Jónsson, 74 ára, sem er elzti sjó-
maður skráður á skip. Hann er
nú á vélbátnum Hermóði frá
Reykjavík, og hefir verið sjó-
maður á fullum hlut síðan hann
var II ára.
VARNARMALANEFND utanrík
is ráðuneytisins flytur skrifstof-
ur sínar að Laugaveg 13, 3. hæð.
Vegna flutningsins verða skrif
stofurnar lokaðar n.k. mánudag
og þriðjudag, þann 6. og 7. þ.m.
Á hlaðinu á Skammbeinsstöðum setur rafvæðingin merki sitt á umhverfið með geysistórum há-
spennustaurum. 17 staurar frá rafmagni og síma eru þar í túninu.
17 ára piltur fær
afreksverðlaun
siómamtadaaslns
ÞETTA síðasta ár, frá sjómanna-
degi til sjómannadags, hefir ver-
ið mikið björgunarár. Hvergi hef
ir þó jafn miklu verið til fórnað
og við björgun áhafnar togarans
Egils rauða.
Hátt upp í 100 manns tóku þátt
í björgunarstarfinu á einn eða
annan hátt og hægt er að full-
yrða að fjöldi þeirra lagði sig í
beina lífshættu. Ekki er hægt að
verðlauna ^’a þessa menn, en
ákveðið he'ir verið að einn
þeirra, yngsíi þátttakandinn,
hljóti afreksverðlaun sjómanna-
dagsins. Er það Gísli Jónsson á
ísafirði, 17 ára piltur, sem var
leiðsögumaður biörgunarsveitax
innar á strandstaðinn. Fór bann
t. d. þrisvar vHr erfiðan og
hættulegan fjallgarð í aftaka-
veðri. og sýndi mikla hugprýði,
sem ,’iörgunarmenn gerðu raun-
ar allir.
Komingleg
flugferð
LUNDÚNUM, 4. júní: — í dag
fljúga prinsinn og prinsessan af
Englandi í fyrsta sinn á ævinni.
Konvingsfjölskyldan er strönduð,
Sökum járnbrautarverkfallsins, í
Balmoralhöllinni í Skotlandi og
hefur nú verið ákveðið að láta
Karl, sem er sex ára og Önnu sem
er fjögurra ára, fljúga til Lund-
úna. Drottning fer einnig í dag
til Lundúna en í annarri flugvél,
þar sem brezka konungsfjölskyld
an ferðast aldrei með einni og
sömu vélinni í einu. — Reuter.