Morgunblaðið - 06.08.1955, Side 14

Morgunblaðið - 06.08.1955, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 6. ágúst 1955 FRIEDEMANN LITLI EFTIR THOMAS MANN ■■m Framhaldssagan 8 „Þrjátíu ára“, endurtók hún. „Og hafa svo þessi þrjátíu ár ver- ið hamingjurík?" Hr. Friedemann hristi höfuðið og varirnar titruðu. „Nei“, svaraði hann. „Það var lýgi og ímyndun allt saman“. „Þér hafið þá haldið yður vera hamingjusaman?“ spurði hún. „Ég reyndi það“, sagði hann og hún svaraði: „Það var mjög karl- mannlegt". Örstutt stund leið. Aðeins engi spretturnar tístu og á bak við þau skrjáfaði létt í laufi trjánna. „Ég þekki dálítið til óham- ingju“, sagði hún loks. „Svona sumarnótt niðri við ána, er bezta lækningin á henni og bót við hverju böli“. Hann svaraði ekki orðum henn ar, en starði með dapurlegum svip yfir á bakkann, hinum meg- in við ána, sem friður næturhúms ins hvíldi yfir. „Þarna, hinum megin við ána, hef ég nýlega setið“ sagði hann. „Var það, þegar þér heimsótt- uð okkur um daginn?“ spurði hún. Hann kinkaði aðeins kollinum, án þess að svara. En skyndilega fór hann að titra og skjálfa í sæti sínu, snökkti hástöfum, rak upp hljóð, hátt og skerandi kvein, sem virtist veita honum ein- hverja fróun og hneig hægt til jarðar, fyrir framan hana. Hann hafði snert hönd hennar, sem lá á bekknum á milli þeirra og á meðan hann hélt föstu taki um hana, á meðan hann greip um hina hönd hennar, á meðan þessi litli, kryppuvaxni maður kraup á kné, titrandi og kjökrandi, og lagði höfuð sitt í kjöltu hennar, stamaði hann með snöktandi, ó- mennskri röddu: „Hún vissi það, já .... leyfið mér .... ég get ekki meira....Guð minn .... . Guð minn.... “ I Hún hratt honum ekki frá sér og hún laut heldur ekki niður að honum. Hún sat hnarreist og hall 1 aði sér örlítið frá honum, en hin litlu, samliggjandi augu, sem votir skuggar fljótsins endur- spegluðust í, horfðu starandi og galopin, fram hjá honum, eitt- i hvað út í fjarskann. * En þá, allt í einu, sleit hún hendur sínar úr heitum greipum hans, með snöggum kipp og stutt- um, þyrkningslegum hæðnis- hlátri, þreif í annan handlegg hans, slengdi honum flötum á jörðina, hljóp síðan frá honum og hvarf inn í trjágöngin. Hann lá þarna með andlitið grafið niður í grasið, ringlaður og viðutan, en krampakenndir kipp- ir fóru öðru hvoru um allan lík- ama hans. Hann reisti sig á fæt- ur, gekk tvö skref áfram og hneig aftur til jarðar. Hvað hafði raunverulega gerst, * hið innra með honum sjálfum, við þennan atburð? E. t. v. hafði vaknað að nýju hið lostafulla hatur, sem hann hafði fundið til, þegar hún auð- mýkti hann með tilliti sínu og sem nú breyttist í sturlað æði, er hann lá flatur á jörðinni, eftir að hún hafði farið með hann eins og hund. 1 En e. t. v. var það líka viðbjóð- ur á sjálfum honum, sem ól hjá honum ósigrandi löngun til að tortíma sjálfum sér, slíta sig í smá tætlur, afmá sig með öllu. Hann skreið á maganum lítinn spöl áfram, reisti upp efri hluta líkamans og lét hann síga niður í lygnt djúp fljótsins. Hann lyfti ekki höfðinu aftur og hreyfði ekki einu sinni fæt- urnar, sem láu upp á árbakkann. Við skvampið í vatninu þögn- uðu engisspretturnar í bili, en svo fóru þær að tísta aftur. Léttur þytur fór um trjágarð- inn og eftir hinum löngu trjá- göngum barst niðurbældur hlát- ur. — l Sögulok. Fallegu ladiags- myndabækuruar Island vorra daga. Verð kr. 50,00. ísland, 50 úrvals ljósmyndir Verð kr. 35,00. Minningar frá íslandi. Verð kr. 10,00. 1 þessum bókum eru greina- góðar upplýsingar um land og þjóð, á íslenzku, ensku og dönsku. — Fást í næstu bókabúð. — SVERTIlMGJADREIXIGIiRININI i. ¥ ÍTILL bátur þokast hægt og sígandi upp hið mikla fljót, Ti hrekkst við og við út í strauminn, en þræðir svo sína leið gegnum fljótandi gras og inn í milli vatnapálmanna. í stafni bátsins stendur faðir drengsins og ýtir grasinu frá með langri ár. Árin svignar við átökin þegar hann ýtir áfram eftir svörtum vatnsfletinum. í skutnum situr mamma drengsins og dýfir árinni sinni í vatnið, ýmist hægra- eða vinstra megin, til þess að stýra j bátnum eftir skipun frá pabba. Miðskipa liggur farangurinn, fáeinar mottur og ný fugla- net. Þar er líka Mbyame, elzti sonurinn, sem stendur og rær í takt við föður sinn. Þar er og litla systir, hún situr hæg og góð hjá minnsta barninu, dreng, sem liggur sof- andi á kodda. | Pabbi er innfæddur trúboði, og er nú á ferð til þorps, sem honum er vísað til, hinu megin við hið mikla vatnsflæmi, sem varla hefir nokkurn enda. | Rétt um sólarlagsbil náðu þeir þangað. Hinir kristnu menn og konur, tóku með elsku og virðingu á móti trú- j bróður sínum og fjölskyldu hans. Þau verða síðan öll sam- ferða til trúboðshússins, sem er sópað og prýtt og þar er gestunum borinn kvöldverður. i Mbyame athugaði með forvitni allt þetta ókunna fólk. Hinir kristnu voru vingjarnlegir og góðlegir, en heiðingj- arnir kaldlyndir og illilegir. j Náttúrlega er hann mest hrifinn af börnunum, sem flykkj- ast að gestunum, sum þeirra eru djörf en önnur eru hrædd og feimin. Einbýlishús á IVz ha. og mjög vel ræktaðs lands við Elliðavatn, er til sölu og laust til íbúðar nú þegar vegna brottflutn- ings eiganda af landinu. — í húsinu eru 3 herbergi, eld- hús, bað, geymslur o. fl. Svefnherbergis og dagstofuhús- gögn o. fl. innanstokksmunir fylgja í kaupunum. Verð kr. 150 þúsund krónur. Útborgun aðeins kr. 50 þúsund. Áhvílandi vaxtalaust lán 100 þúsund kr EINAR SIGURÐSSON, lögfræðingur, Ingólfsstræti 4. Sími 2332. DO N S K U STRALBORÐIN með „bláa bandinu“ — verða tekin upp á morg- un. — Tvær stærðir. — Borðin má hækka og lækka að vild. Erraabretti fylgír SIEMENS STRAUVÉLARNAR verða teknar upp á morgun. Vélarnar hafa tvöfaldan hita stilli, þannig, að hægt er að hita að eins annan helm- inginn af element- inu í einu ef verið er að straua smá stykki. Vélin hefur 6S sm. langan vals. Vélinni ér stjórnað með öðrum fætin- um. Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10 — Sími 2852. KEFLAVÍK: Hafnargötu 28. Lokað vegna sumarleyfa til 15. ágúst. Ágúst Ármann heildverzlun 7 gerðir fyrirliggjandi Verð frá kr. 103.00. Ferðastraujárn 2 gerðir. Krakka straujárn (leikföng). Húsmæður Húsmæður Loksins er Wegolin þvotta efnlð komið. Þið, sem ekki hafið reynt Wegolln þvottae'úið, reyn ið það nú, og þér munuð sjá, að ódýrast, léttast og bezt fyrir þvottinn, er Wegolin þvottaefnið. Wegolin er einnig mjög gott til þvottar á matar- ílátum o. fl. Athugið, að hver pakki inniheldur Vz kg. Einkaumboð: Þórður H. Teitsson — Grettisgötu 3 — Sími 80360. > U|i iJLW.Uli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.