Morgunblaðið - 06.08.1955, Side 16
Veðurúflif í dag:
Rigning- á SuSvesturlandi.
175. tbl. — Laugardagur 6. ágúst 1955
Þrír þerridagar
Sjá grein á bls. 7.
Suðurlandssöltun til
útílutnings tryggð
Sýning á mimum, er
fundizt hafa í íssku-
haugum bæjarins
í GÆR opnaði Pétur Salómons-
son Hoffmann, sýningu á munura
þeim, sem hann undanfarið hef-
ur safnað saman úr öskuhaugum
bæjarins, á Seltjarnarnesi, I
Listamannaskálanum. Sýningin
mun verða opin næstu daga frá
kl. 2—10.
Var fréttamönnum í gær boðað
að sjá sýningu þessa, sem er hin
nýstárlegasta. Getur þar að líta
silfurborðbúnað alls konar, allt
frá smáum silfurteskeiðum upp i
geysistórar súpuskeiðar, gaffla,
hnífa, tertuspaða, armbönd,
hringi, nælur, krossa, auk fleiri
silfurmuna. Alls eru silfurmun-
irnir 758.
Einnig er á sýningunni lVi
sterlingspund í smámynt, gamall
silfurdollari og geysimikið af
norrænni, gamalli smámynt.
Verður sýningargestum gefinn
kostur á að fá til baka merkta
muni sína, er fundist hafa á
haugunum gegn fundarlaunum,
en merktir munir munu vera
milli 50—60. Einnig mun hægt
að fá aðra muni keypta eða gegn
fundarlaunum.
Fersksíldarverðið ákveðið.
FUNDI fulltrúaráðs LÍÚ var haldið áfram hér í bænum í gær
og Félag síldarsaltenda á Suðvesturlandi hélt fund í fyrradag.
Á fundum þessum var rætt um síldveiðar og síldarsöltun sunnan-
lands á þessu ári svo og öflun beitusíldar og frystingu síldar til
útflutnings.
TILBOÐ
RÍKISSTJÓRNARINNAR
Ofangreindir aðilar og Sölu-
miðstöð Hraðfrystihúsanna hafa
að undanförnu rætt við ríkis-
stjórnina um verðlagsgrundvöll
fyrir þennan atvinnurekstur, en
verðlag erlendis á þessum vöru-
tegundum hrekkur ekki fyrir til-
kostnaðinum heimafyrir. Fyrir
fundinn var lagt boð ríkisstjórn-
arinnar um stuðning og verð-
uppbætur á þessar vörur. Fund-
irnir féllust á boð ríkisstjórnar-
innar.
Fersksíldarverðið hefir verið
ákveðið kr. 1.20 pr. kg.
Fengu 395 tunnur
AKRANFSI, 5. ágúst — Þrír
reknetjabátar komu inn í dag. —
Voru það þeir Sigurfari, Farsæll
og Sæfari VE. Alls fengu þeir
395 tunnur, og var Sigurfari
hæstur með 153 tunnur. Mest af
síldinni er fryst, en eitthvað fer
í bræðslu. — Oddur.
MEIRI ÚTLÁN
Söltun getur hafizt þegar er
náðst hafa samningar um kjör
kvenna við síldarsöltun, en ó-
samið er um þessi kjör á öllu
Suðvesturlandi. Er þess að vænta
að þeir samningar náist skjótt.
Að lokum má geta þess, að
framleiðendur telja það óhjá-
kvæmilegt, ef hægt á að vera að
vinna að þessari framleiðslu, að
bankarnir hækki svo að viðun-
andi sé útlán sín vegna þessara
afurða, hvort heldur er um að
ræða beitusíld eða síld til út-
fiutningS. Munu framleiðendur
nú næstu daga ræða þetta vanda-
mál við bankana.
Dregið í 8. fi. vöru-
happdæitis SÍBS
f GÆR var dregið í 8. flokki vöru
happdrættis SÍBS. Dregið var um
595 vinninga að fjárhæð 200380
þúsund kr. — Hæsti vinningur
50 þús. kr. kom á miða 10214, sem
var seldur í Reykjavík. 10 þús.
kr. vinningar komu á nr. 17977
og 44604, annar seldur á Akur-
eyri en hinn í Reykjavík. 5000
kr. vinningar komu á eftirtalin
númer: 8476, 9426, 39567, 40224,
46476.
Bíll veltur 8 metra niður
hrekku á Barðaströnd
Sólskin á suðutlandi
SÓLSKIN og heiðríkja var í
Reykjavík og víða um Suður-
land í gær. Menn komust þeg-
ar er þeir vöknuðu í „sól-
skinsskap“ og mátti sjá að
Reykvíkingar nutu vel þessa
„fyrsta sumardags“ um
margra vikna skeið. Hús-
freyjurnar voru sporléttari en
að undanförnu er þær skut-
ust eftir mjólkurlekanum. —
Verzlunarfóik skauzt fram í
búðardyrnar til að njóta sól-
arinnar og strætin voru full
af fólki í sumarklæðum. Börn-
in brugðu á leik, kát og glöð
yfir því að sólin vermdi þau.
Myndirnar hér að ofan tók
Har. Teitsson í gær. Börnin
voru að skvampa í gosbrunna-
tjörninni í Hallargarðinum.
Og á grasblettunum í borg-
inni spókaði sig fólk á öllum
aldri. Það var heitt og nota-
legt úti — jafnvel svo að
svaladrykkir voru þægileg
hressing.
En hætt er við að vermir-
inn verði skammgóður. —
Veðurstofan spáir nú sunnan
átt og rigningu.
Engin sifd !
RAUFARHFN 5. ágúst: —
Engin síld í dag. I»ok \ og norð
austan súld á miðunum.
Bátariiir leita hafnar og
byrgja sig upp með olíu og j
vistir fyrir næstu síldarhrotu.
—Einar. j
---------------------&
Fernf var í bilnum, en enginn slasaðisf lífshæffulega
ÞAÐ SLYS vildi til í fyrradag, skammt frá eyðibýlinu Hellu á
Barðaströnd, að fólksbifreiðin B-44 frá Patreksfirði rann út
af veginum og valt niður 8 metra háa aurbrekku niður í flæðar-
mál. Þrír farþegar voru í bifreiðinni auk bílstjórans og hlutu
þeir nokkur meiðsli. Bílstjórinn meiddist einnig.
VEGKANTURINN SEIG
UNDAN BÍLNUM
B-44 var á leið frá Vatnsfirði
út að Brjánslæk er slysið vildi
til. Hagar þannig til á þessu
svæði, að vegurinn liggur um
bratta sjávarbakka og er hann
mjög illfær vegna rigninga sem
staðið hafa ýfir undanfarið. Veg-
urinn er einnig mjög mjór þar
sem slysið vildi til. Mun kantur
vegarins hafa sigið undan bíln-
um er fór 2—3 veltur unz hann
kom niður á hjólin í flæðarmál-
inu.
KÓSTUÐUST ÚR
BÍLNUM
í bílnum voru, auk bíl-
stjórans, þrjár konur, tvær
í aftursætinu, en sú þriðja,
kona bílstjórans, í framsætinu.
Mun bílstjórinn og kona hans,
hafa kastast út úr bílnum er
hann valt niður brekkuna, og
meiddust þau talsvert, konan
Sesselja Christiansen, hlaut höf-
uðhögg og meiðsli í andliti, en
bílstjórinn, Páll Christiansen,
marðist talsvert og hlaut höfuð-
högg. Konurnar tvær aftur í,
Magdalena Kristjánsdóttir og
Guðrún Jónsdóttir, hlutu aftur
á móti minni meiðsli, þó mun
Magdalena hafa marizt á baki.
FLUTT Á PATREKS-
FJARÐARSJÚKRAHÚS
Annar bíll, sem með var í för-
inni ók þegar að Brjánslæk og
þaðan voru gerð boð til
læknisins á Patreksfirði, sem
kom fljótlega að Brjánslæk með
sjúkrakörfur, en þangað var
fólkið flutt meðan læknisins var
beðið.
Var hið slasaða fólk síðan flutt
á sjúkrahús Patreksfjarðar. Líð-
an frú Sesselju, sem verst varð
úti, var sæmileg í gærkveldi, en
hitt fólkið mun þegar hafa feng-
ið heimfararleyfi. — Bíllinn
skemmdist mjög mikið, var með
naumindum hægt að bjarga hon-
um undan sjó. — Karl.
12 Fyja-bátar
á reknet
VESTMANNAEJUM, 5. ágúst —
Nú eru 10—12 bátar að búa sig
á reknetjaveiðar. Munu þeir hefja
róðra næstu daga og verður síld
m.a. söltuð, þar sem verðgrund-
völlur er nú fenginn fyrir rek-
netjaveiðarnar. — B.G.
Sólin súst í fyrsta
skipti ú Þjóðhdtíðinni
Fjöldi aokomuíólks með flugvélum og skipum
ÞAÐ RÆTTIST frábærlega úr veðrinu fyrir Þjóðhátíðina í Vest-
mannaeyjum. Hún hófst í gær og samdægurs sást sólin ef
svo mætti segja í fyrsta skipti í sumar í Eyjum. Var heiðskírt veð-
u rog sólarhiti. Síðdegis var svo opnuð flugbrúin til Vestmanna-
eyja og flugu þangað tvær flugvélar á hverri klukkustund meðan
birtu naut. Komu hundruð aðkomumanna á Þjóðhátíðina.
Á Auk flugferðanna komu 2
bátar til Eyja hlaðnir farþegum,
var annar mjólkurbáturinn, sem
kom frá Þorlákshöfn og hinn sér-
stakur bátur frá Stokkseyri.
Á Hátíðin hófst með því að
Eiríkur Guðnason, formaður
Knattspyrnufélagsins Týs, setti
hana. Þá var guðsþjónusta í
Herjólfsdal og messaði sr. Jóhann
Hlíðar. Þá flutti Karl Guðjónsson
ræðu og ýmsar íþróttir voru á
dagskrá, þar á meðal bjargsig. —
Kl. 9 um kvöldið hófust ýmis
skemmtiatriði.
Sendi skeyti
KAUPMANNAHÖFN, 3. ágúst
— Eisenhower Bandaríkjaforseti
sendi hálofta-ráðstefnunni skeyti
í dag og kvaðst vona, að mikill
árangur verði af störfum vísinda-
mannanna.
*-----------------------------
Iðnó, í nýjum lif
MIÐBÆRINN í Reykjavík tekur
nú sem óðast stakkaskiptum til
hins betra. Hafa allmargir hús-
eigendur látið mála hús sín í
skærum og fögrum litum óg eyk-
ur það mjög á fegurð borgarinn-
ar. Tjarnarbíó hefir nýlega verið
málað hárautt og hvítt, barnaskól-
inn hinum megin við Tjörnina og
góðtemplarahúsið skiptu ánægju-
lega um svip fyrir erlendu vöru-
sýningarnar.
Nú er nýlokið við að mála Iðnó
gamla og hefir það rækilega kast-
að ellibelgnum. Er aðalhúsið mál-
að í ljósgrænum, skærum lit, en
útbyggingin Tjarnarmegin há-
rauð. Lífgar hústð mjög upp á
Ferðlr Ferðaskrif-
sfofunnar 1
FERÐASKRIFSTOFA ríkising
efnir til þriggja ferða um næstu
helgi. Eru það þessar ferðir: íVs
dags ferð í Þcrsmörk og verður
lagt af stað kl. 2 e. h. á laugar-
dag.
Ferð til Gullfoss og Geysis.
Ekið um Hreppa og Þingvelli,
Verður lagt af stað kl. 9 á sunnu-
dagsmorgun.
Borgarfjarðarferð. Verður lagt
af stað kl. 9 á sunnudagsmorg-
un. Farið um Kaldadal að Húsa-
felli og Reykholti og Hreða-
vatni. .
Síðasta sýning "j
ANNAÐ kvöld verður síðasta
sýning á leikritinu „Óskabarn
örlaganna" í Sjálfslæðishús*
inu. — /