Morgunblaðið - 07.08.1955, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 7. ágúst 1955
Útg H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálarltstjóri: SigurSur Bjarnason frá 'Viffat
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
f laiuasölu 1 krðnn dntakið.
Úr daglega lífinu
U*
Um „milliliði“
og frjálsa samkeppni
TM LANGT skeið hafa hinir
svokölluðu „vinstri flokkar"
þrástagast á því, að mesta mein-
ið í íslenzku þjóðfélagi væru
„milliliðirnir" og okur þeirra.
Allir milliliðir ættu heima í
Sjálfstæðisflokknum. Hann bæri
því ábyrgð á öllu þeirra ljóta og
leiða atferli.
Það er að sjálfsögðu öllum vit-
að, að bæði hér á landi og ann-
arsstaðar hendir það iðulega, að
of hátt verð er tekið fyrir ýmis-
konar þjónustu, dreifingu vara
eða einstök þjónustustörf, sem
unnin eru í þágu almennings.
Bezta tryggingin gegn því, að
einstökum „milliliðum“ takizt
þetta er sú, að frjáls samkeppni
ríki í þjóðfélaginu, frjáls sam-
keppni um verzlun og viðskipti
og á sem flestum sviðum, þar
sem boðin er fram þjónusta, sem
almenningi er nauðsynleg og
hann þarf að kaupa.
Hitt er að sjálfsögðu hin mesta
firra, að þeir einstaklingar, sem
hafa hneigð til þess að okra á
samborgurum sínum í einu eða
öðru formi séu allir í einum og
sama stjórnmálaflokknum. Slíkri
vitleysu heldur enginn vitiborinn
maður fram, frekar en t. d. því,
að allir þjófar og gripdeildar-
menn, eða jafnvel ofdrykkju-
menn, séu í einum og sama
flokki.
Heilbrigðri dómgreind ís-
lenzks almennings er þessvegna
misboðið freklega með hinum
stöðuga þvættingi vinstri hers-
ingarinnar hér á landi um það,
að hverskonar „milliliðaokur“
eigi rætur sínar í Sjálfstæðis-
flokknum.
Sannleikurinn er
Sjálfstæðisflokkurim
stjórnmálaflokkur, sem
mestu raunsæi berst gegn okri
og óheilbrigðum verzlunar-
háttum. Enginn stjórnmála-
flokkur hefur lagt jafnríka á-
herzlu á nauðsyn frjálsrar
samkeppni til þess að koma í
veg fyrir að almenningur
verði samvizkulausri gróða-
fíkn að bráð. Sjálfstæðismenn
hafa alltaf talið það hlutverk
sitt, að tryggja neytendum
möguleika til þess að velja og
hafna, ráða því sjálfir, hvert
þeir beindu viðskiptum sínum.
Ef þeir ættu þess kost hlyti
hin frjálsa samkeppni að
tryggja sanngjarnt vöruverð
og lágmarks dreifingarkostn-
að. —
Ef afstaða Framsóknarflokks-
ins er hinsvegar athuguð kemur
það í Ijós, að samkeppnin er eit-
ur í hans beinum. Sást það
greinilegast þegar Framsóknar-
menn í Vestur-Skaftafellssýslu
lýstu því yfir, að æskilegasta
verzlunarformið væri það, að
einungis ein verzlun væri í
hverju héraði. Tíminn tók rösk-
lega undir þessa skoðun og varði
hana í líf og blóð.
Afstaða kommúnista er mjög
svipuð. í Sovétskipulagi rekur
ríkið verzlunina. Samkeppnin er
þar úr sögunni. Ef kommúnistar
hefðu völd hér á íslandi yrði
KRON, sem stjómað er af komm
únistum, löggilt sem eini verzl-
unaraðili í Reykjavík. Öllum
öðrum væri bannað að verzla.
Myndi slíkt skipulag tryggja
hagsmuni neytenda gegn „milli-
liðaokri"?
Hvað segja Reykvíkingar
um það? Væru líkur til þess
að KRON myndi rekið á hag-
sá, að
l er sá
sem af
kvæmari hátt og gæti boðið
upp á lægra vöruverð ef það
væri eina verzlunarfyrirtækið
í bænum?
Nei, áreiðanlega ekki. ís-
lendingar þekkja einokunina
og áhrif hennar á fyrri ár-
um. Hún skapar ekki hagstæð
verzlunarkjör. Hún hafði
þvert á móti nærri steindrepið
þessa harðgeru og lífseigu
þjóð.
Er Kron „milliliða-
okrari?<£
Kommúnistar segja að KRON
selji fólkinu vörur á sannvirði.
En það býður þó ekki lægra
vöruverð en einkaverzlunin við
hliðina á KRON búðunum. Hvað
þá um „milliliðaokrið"? Er
KRON „milliliðaokrari"? Er það
e. t. v. þessvegna, sem það er
að verða undir í samkeppninni
um viðskipti almennings í
Reykjavík?
Mörgum fleiri spurningum
mætti varpa fram í þessu sam-
bandi. En þær verða að bíða síð-
ari tíma.
Kjarni málsins er sá, að
eina vörnin, sem dugir gegn
okri og óhóflegum milliliða-
kostnaði, er frjáls samkeppni.
Sá flokkur, sem trúlegast
berst fyrir henni er sannasti
verndari almennings gegn ó-
heilbrigðum verzlunar- og við-
skiptaháttum.
Sjálfstæðisflokkurinn er sá
stjórnmálaflokkur á íslandi, sem
alltaf hefur haft frjálsa sam-
keppni efst á stefnuskrá sinni.
Vinstri flokkarnir hafa meira og
minna hallast að stefnu einokun-
ar og ófrelsis. En í kjölfar þess
siglir okrið og spillingin. Þetta
ættu menn að hafa í huga í sam-
bandi við hin miklu skrif um
milliliðina og þátt þeirra í því,
sem miður fer í íslenzku efna-
hagslífi.
FULLTRÚAR frá 70 þjóð-
um taka þátt í hinni'
miklu ráðstefnu um „kjarn-
orku til friðarþarfa“, sem
hefst á vegum Sameinuðu
þjóðanna í Genf á mánudag-
inn. Á ráðstefnunni munu
helztu kjarnorkuþjóðirnar
skiftast á upplýsingum um
hagnýtingu kjarnorku til iðn-
aðar og til lækninga.
Kjarnorkuvísindunum fleygir
nú fram bæði vestan hafs og
austan. Hin allsráðandi kjarn-
orkunefnd Bandaríkjanna birti
hálfs árs skýrslu sína fyrir
skömmu og þar segir að „fram-
farirnar (í kjarnorkumálunum)
hafi verið meiri á fyrstu sex
mánuðum ársins 1955 heldur en
á nokkru hálfu ári áður — og
að horfur séu nú talsvert betri
en áður á því að hægt verði að
smiða kjarnorkuknúnar flugvél-
ar.“ í skýrslu nefndarinnar seg-
ir ennfremur að á þessu hálfa ári
hafi verið:
♦ framleiddar allmargar nýjar
gerðir af vetnisprengjum,
♦ færst í áttina að hægt sé að
gera efni, sem verji menn
gegn kjarnadufti,
♦ aukið fjármagn í kjarnorku-
framkvæmdum í USA upp í
6.6 milljarða.
Ennfremur upplýsir nefndin
að Bandaríkin séu nú orðin einn
stærsti uranium framleiðandinn
Mildar íramfarir í atonnísindam
Geimfara- og atomöld
Frúrnar þrjár og ....... Myndin er tekin í Genf í júlí. Talið frá
vinstri: Mamie Eisenhower forsetafrú, frú Eden, kona brezka for-
sætisráðherrans, kona forseta Svisslendinga og frú Faure, kona
franska forsætisráðherrans.
í heiminum. Starfræktar eru 850
uraníumnámur vestra.
★
ÁSTRLASKI kjarnavísindamað-
urinn Marcus Oliphant prófessor,
VJuaL andi ólrifar:
Éc
„Svona eiga sýslumenn
að vera!“
G hefi aldrei skemmt mér
betur í sumarfríi", sagði ung
reykvísk blómarós, sem ég hitti
á dögunum. Hún hafði farið norð
ur á Raufarhöfn og saltað síld í
glaða sólskini í eina viku. Hún
hafði aldrei snert á síldarsöltun
fyrr. „En því skemmtilegra var
Á ÖÐRUM stað hér í blaðinu í
j dag er ítarlega rakinn æviferill
* og störf eins merkasta listfræð-
ings og skálds, sem uppi er með
frönsku þjóðinni, André Malraux.
IMenntaðir menn um alla álfuna
líta til hans sem eins þeirra mik-
ilmenna er brugðið hafa Ijóma á
nafn Frakklands, á fyrri öldum,
jafnt sem síðari.
Það hefur aldrei verið hljótt
um líf Malraux og störf, hann
! hefir jafnan staðið í fremstu víg-
. línu, og talið það helga skyldu
sína sem menningarrnanns að
hirta samtíð sína eða hylla eftir
j atvikum.
! Á yngri árum var Malraux eld-
j heitur kommúnisti. Þá var kom-
múnistastjórnin í Rússlandi ung
að árum, og enginn vissi hver
verk hennar myndu verða.
! En André Malraux dæmdi eftir
staðreyndum sögunnar, þegar
árin liðu, — og í dag eiga kom-
múnistar, franskir sem aðrir,
engan eldheitari andstæðing. ■—
' „Þar sem kommúnisminn er
sterkur, getur ekkert lýðræði
þróast“, eru ályktunarorð
Malraux.
Slíkur er áfellisdómur eins hins
snjallasta af sonum frönsku þjóð-
arinnar.
að reyna“, sagði hún. „Auðvitað
var ég óttalega sein til að byrja
með en aðalatriðið var ekki að
ég fengi sem flestar krónurnar,
heldur hitt, að þarna var ég að
læra eitthvað alveg nýtt — og
gerði gagn um leið“.
„Svona eiga sýslumenn að
vera!“ hugsaði ég með mér, anzi
röskleg og skemmtileg var hún,
þessi unga stúlka. Og hún hafði
við orð að drífa sig í heyskap
hér fyrir sunnan, ef hann stytti
upp. Það hafði hún heldur aldrei
reynt áður og hún átti eftir viku
af sumarleyfinu sínu.
Hvers eiga þau
að gjalda?
KONA kom að máli við mig í
gær og spurði hvers sjö ára
gömul börn ættu að gjalda. Dótt-
ir hennar á sjö ára gamlan strák,
en er í húsnæðisleit ásamt fjöl-
skyldunni. Skoðað hefir hún all-
margar íbúðir, sem til leigu eru,
en þegar húsráðendur fréttu, að
hún sé með sjö ára son sinn með
sér, breyttist á þeim svipurinn
og þeir segjast því miður ekki
geta leigt íbúðina, því að sjö ára
börn sé ekki hægt að hafa í
þeim. Allt í lagi með eins árs
börn, en helzt lítið eldri.
Og þannig hefir ganga dóttur-
innar með mann sinn og sjö ára
son orðið sannkölluð píslarganga,
sem enn er ekVi fvrir hvernig
endar. En ó« barar Hvílík
afstaða hjá húseigendum og
hvers eiga sjö ára börnin að
gjalda?
\!
Sagði farir sínar
ekki sléttar
AÐUR einn kom að máli við
mig í fyrradag og sagði sín-
ar farir ekki sléttar. Hafði hann
komið kvöld eitt fyrir þremur
vikum í hið nýja gistihús Bif-
röst uppi í Borgarfirði. Vildi
hann ganga í salinn og þiggja
veitingar nokkrar. Hann var í
yfirhöfn og lagði hana af sér í
fatageymslu gistihússins, þar sem
stúlka ein tók við henni. Bað
maðurinn um miða fyrir yfir-
höfn sinni, en fékk þau svör, að
ekki tíðkaðist slíkur háttur á
Bifröst. Seinna um kvöldið er
hann hugðist taka á sig náðir var
yfirhöfnin horfin úr fatageymslu
gistihússins og gat stúlkan eng-
ar upplýsingar um málið gefið.
Hreyfði maðurinn málinu
næsta dag við gistihússtjórann,
sagði að yfirhöfnin hefði verið
forlátagripur og það mundi kosta
sig vikukaup að afla sér nýrrar.
Gistihússtjórinn æðraðist hvergi,
vildi róa manninn og sagði hon-
um, að þetta væri ekki einsdæmi
á Bifröst — að yfirhafnir hyrfu,
slíkt hefði komið fyrir oftar í
sumar, en því miður væri ekkert
hægt að gera, þar sem hvorki
gistihúsið, né hann tækju nokkra
ábyrgð á veraldlegu góssi gest-
anna.
Er það hægt?
ÞÓTTI gestinum þetta heldur
þunnar trakteringar, en varð
að hverfa á braut við svo búið,
en gistihússtjóri lofaði að senda
yfirhöfnina, ef hún kæmi í leit-
irnar. Liðnar eru þrjár vikur og
enn gengur gesturinn yfirhafnar-
laus í súldinni hér sunnanlands.
Og nú spyr hann- Geta gisti-
hús, sem telja sig fyrsta flokks
sem Bifröst, leyft sér slíka fram-
komu við gesti sína og er ekkert
réttlæti til í landinu, sem bætir
mönnum horfnar yfirhafnir í op-
inberri vörzlu á viðurkenndum
og mjög auglýstum gistihúsum?
Merkið,
sem
klæðir
>rulið.
varaði við því á ráðstefnu atom-
vísindamanna, sem haldin var í
London í vikunni sem leið,
að hætta væri á því að
kjarnorkuknúnar flugvélar og
kjarnorkuknúin skip myndu senda
frá sér banvæna radiogeisla.
Ekki myndi verða hægt að
stöðva flugvélamótora, er flugvél-
ar hröpuðu og við sprengingu
myndi, geislavirkt efni dreifast
um nágrennið. Sama máli gegndi
um skip, sem færust. Nauðsyn-
legt væri þess vegna að búa vel
um vélar í flugvélum og skipum
í traustum hylk.jum.
★
, Til atomráðstefnunnar í Lon-
don var boðað af „alþjóðahreyf-
ingu þingmanna, sem vinna að
því að komið verði á alheims-
stjórn". Margir vísindamenn tóku
þátt í ráðstefnunni, m.a. Bertrand
Russel frá Bretlandi og fulltrúar
frá Rússlandi. Samþykkt var yf-
irlýsing þar sem stjórnir heims
eru hvattar til þess að gera sér
grein fyrir því, að styrjaldir
svari ekki tilgangi framar.
★
— Engar merkar nýungar hafa
komið fram á alþjóðaþingi geim
vísindamanna, sem staðið hefir
yfir í Kaupmannahöfn undan-
farna daga. Þinginu lauk í gær.
Búist var við því, eftir að kunn-
ugt var orðið um fyrirætlanir
Bandai'íkjamanna um að senda
fylgihnetti upp í jónhvolfið
innan þriggja ára, að vísinda-
mennirnir á alþjóðaþinginu
myndu leysa rækilega frá skjóð-
unni. En þetta hefir ekki orðið
og svo virðist sem öllum upplýs-
ingum um einstök atriði geimvís-
indanna sé enn sem fyrr haldið
stranglega leyndum.
Sedow, fulltrúi Rússa á þinginu,
sagði að alþjóðaþingið í Kaup-
mannahöfn hefði greitt götu
aukinnar samvinnu milli austurs
og vesturs í geimvísindum.
Danski geimvísindamaðurinn
Leo Hansen upplýsti á þinginu
að úr því að fylgihnötturinn
væri kominn 300 km upp í himin-
geyminn, myndi hann snúast í
kringum jörðina á 1 klst. og 24
mínútum. — Helming þess tíma
myndi hann vera í skugga jarðar
og koma úr skugganum kaldur
sem svarar 120 gráðum fyrir neð-
an frostmark á Celsius, en í sólar-
hitanum myndi hann hitna upp í
110 gr. C.
★
í BREZKU nýlendunni Ní-
geríu, kaupa menn konur
sinar til eignar. En verðlag-
ið á mannsalsmarkaðinum hljóp
úr skorðum eftir styrjö'dina síð-
ustu, er hermenn brezku krún-
unnar komu heim með mála
hlfl. 12.