Morgunblaðið - 07.08.1955, Síða 16
Veðurúf!if í datj:
Sunnan gola. Þokuloft.
176. tbl. — Sunnudagur 7. ágúst 1955.
Reykjavíkurbréf
á bls. 9.
Þrír íslendingur á
kjurnorknráðstefnu
BLAÐINU barst í gær eftirfarandi frétt um þátttöku íslendinga
í væntanlegri kjarnorkumálaráðstefnu.
Eins og kunnugt er hefst í Genf í Sviss hinn 8. ágúst alþjóða-
l'áðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna um friðsamlega notkun
k j arnorkunnar.
Ákveðið hefur verið, að ísland taki þátt í ráðstefnu þessari og
verða þeir Kristján Albertson, sendiráðunautur, Þorbjörn Sigur-
geirsson, magister og Magnús Magnússon, eðlisfræðingur, fulltrúar
Islands á ráðstefnunni.
Gert er ráð fyrir, að ráðstefnan standi til 20. ágúst.
Reisir háshólinn híó og
hljómleikahöU í haust?
HÁSKÓLI ÍSLANDS hefur sótt um að mega byggja kvik-
myndahús á Melunum. En stjórn íþróttasvæðisins mælti ný-
lega á móti því, að leyfið yrði gefið, vegna þess, að á þeim stað
«ru nú tennisvellir. Enn er óráðið hvað gert verður í málinu, en
Kklegt, er að ekki líði mörg ár, þar til sneytt verður sunnan af
svæði íþróttavallarins.
Á TENNISVÖLLINN
Þannig stendur á þessu, að í
skipulaginu er gert ráð fyrir að
gata verði lögð frá Hagatorgi og
þvert á Suðurgötuna, en þessi
gata lægi um það bil yfir þann
hiuta íþróttasvæðisins, þar sem
nú eru tennisvellir. Með þetta í
huga sótti Háskóli íslands um að
fá að reisa kvikmyndahús sitt
við þessa götu.
HÖRÐ ANDSTAÐA
Stjórn íþróttavallarins hefur
snúizt öndverð gegn þessu. Segir
hún að einmitt núna sé undirbúið
að stækka tennisvellina og koma
upp fleiri æfingavöllum. Reynir
hún að halda fast í allt íþrótta-
svæðið. Það mun vera ætlunin
að íþróttasvæðið á Melunum
hverfi, skv. skipulaginu, enda
verður þá komið fullkomið
íþróttasvæði inni í Laugardal. —
Búast má við að íþróttavöllurinn
á Melunum standi samt enn í
fjölda ára, en þar með er ekki
sagt að svæðið verði ekki nokkuð
takmarkað fyrr. — Engin slík
ákvörðun hefur samt verið tekin.
BYGGT í IIAUST?
Mbl. sneri sér til Friðfinns Ól-
afssonar, forstjóra Tjarnarbíós.
Skýrði hann blaðinu svo frá, að
auk lóðarinnar við íþróttavöllinn
hefði Tjarnarbíó augastað á lóð-
um eilítið vestan við völlinn, við
Hagatorg og í Stakkahlíðinni.
Sagðist Friðfinnur ekki ef-
ast um vilja bæjarstjórnarinn-
ar til að leysa málið og
kvaðst vona að unnt yrði að
hefja framkvæmdir í haust.
Tjarnabíó ætlar að reisa stórt
og veglegt samkomuhús, sem taki
1200 manns. Verði það búið full-
komnustu tækjum, kvikmynda-
hús og hljómleikahús í senn.
Ný líknarstöð drykkjuspkra
Félagið nefnisl Bláa bandið.
STOFNAÐ hefir verið hér í bæ félag til þess að starfrækja
hjúkrunarstöð og dvalarheimili fyrir drykkjusjúkt fólk. —
Nefnist hið nýja líknarfélag „Bláa bandið.“ Stofnendur eru 25
talsins, margir hverjir þjóðkunnir menn og er formaður félagsins
Jónas Guðmundsson, fyrrv. skrifstofustjóri.
FLESTIR ÚR REYKJ4VÍK
Félagið Bláa bandið var stofn-
að hinn 5. júlí s.l. hér í Reykja-
vík og eru allir félagsmenn nema
tveir úr Reykjavík. Félagsmenn
leggja allir fram tvö þúsund kr.
Góða veðrið kom
og !ór
MBL. átti tal við Veðurstofuna í
gær og spurðist fyrir um, hvort
áframhald yrði á góða veðrinu,
sem svo mjög hefir orðið mis-
brestur á hér sunnanlands í sum-
ar. En svörin voru gróflega dap-
urleg. Hér sunnanlands og vestan
var spáð rigningu í nótt og morg-
un, sunnanátt með vætu. Ekki
vildi þó stofan segja hvort áfram
hald yrði á vætunni eða hvort
létti aftur til.
í gær var prýðisveður um
land allt, 10—14 stiga hiti, og
Jivergi rigning.
í stofnsjóð félagsins, sem óaftur-
kræft framlag.
UMBÓTA MJÖG ÞÖRF
Fyrir fáum árum var stofnað
annað svipað félag til þess að
hjálpa drykkjusjúklingum og
nefnist það AA. Hefir það fé-
lag þegar unnið mikið og gott
starf. Er það gleðilegc tímanna
tákn, að nú skuli annar aðili
hefjast handa um raunhæfar um-
bætur í þesum málum.
Bræluni er lét!
SVO var blaðinu símað frá Rauf-
arhöfn í gær, að í fyrrinótt hefði
ekki vcrið um neina síldveiði að
ræða. Bræla og vont veður var
á ölium miðunum í fyrradag og í
fyrrinótt og engin síld.
í gærmorgun birti tii og sól-
skin og blíða kom um miðjan
dag. Allur flotinn lá inni á Rauf-
arhöfn, en fór rakleitt út á miðin
í gærmorgun. Um miðjan dag í
gær höfðu engar aflafréttir bor-
izt. —
14 júlí síðastliðinn komu hingað til lands 14 piltar úr félagsskapnumFDF, Frivillig Drenge For*
bund í Danmörku, sem er stærsti félagsskapur drengja þar í iandi og starfar á svipuðum grund-
velli og skátahreyfingin. Komu þeir liingað í boði KFUM. Ferðuðust þeir víða um landið, og dvöld-
ust m. a. í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi. Höfðu piltarnir mikla ánægju af dvölinni hér, þrátt
fyrir hina vætusömu tíð. — Myndin var tekin á Bessastöðum, en þangað var hópnum boðið af for-
seta íslands, og var séra Friðrik þar sem fulltrúi KFUM. — Lengst til hægri er umdæmisstjóri
FDF í Kaupmannaliöfn, V. Persson, — og þriðji frá hægri er fararstjóri piltanna, H. Weiss.
Reykvíkingur sækir um einka-
leyfi á oð láta ölduganginn
REYKVÍKINGUR einn, Ingvar
Vilhjálmsson að nafni, hefir
sótt um einkaleyfi til samgöngu-
málaráðuneytisins á „útbúnaði á
skip til að nýta aflið af veltingi
skipsins til framdrifs og til að
minnka veltinginn“. Stendur svo
í einkaleyfisbeiðninni, sem ráðu-
neytinu var send.
knýja skip
Umsóknir berast um eilífðai vélar
SEM FISKSPORÐUR
Undrasmíði þessari er frekar
lýst svo sem hún verði eins og
sporður á fiski við velting skips-
ins til hliðar og fram og aftur.
Veltingurinn hreyfir og sveigir
útbúnaðinn, en við sveigjuna
verkar útbúnaðurinn til fram-
drifs og jafnframt minnkar velt-
ingurinn til hliðanna og högg aft-
ur og fram. Útbúnaður þessi er
gerður úr sterku fjaðurmögnuð-
um málmi og festur báðum meg-
in byrðingsins neðan við sjólínu
aftur úr skipinu. Ofan á að sjá
er útbúnaðurinn sem blöðkur á
froskmanni. Samkvæmt frásögn
uppfinningamannsins á útbúnað-
urinn að knýja skipið áfram að
nokkru leyti.
Furðuvél þessi er að vísu
enn aðeins til í heila uppfinn-
ingamannsins, en ef hún kæm-
ist í framkvæmd mundi hún
hvorki meira né minna en
valda gerbyltingu í skipasam-
gönguru í heiminum!
izt beiðni um einkaleyfi á eilífð-
arvél (Perpetuum mobile). Sam-
kvæmt islenzku einkaleyfislög-
unum frá 1923 ber að neita öllum
slíkum umsóknum. Annars er
•málum svo háttað um einkaleyfis
Síðasta sýnlng
beiðnir, að þær eru allar sendar
til Kaupmannahafnar til umsagn-
ar hjá dönsku einkaleyfisstofnun-
inni. Hefir hún yfir að ráða stóru
einkaleyfasafni og marga verk-
fræðinga í þjónustu sinni og yrði
það allt of dýrt íslendingum að
stofna slíkt sjálfir. Hefir það
jafnvel komið til tals í Evrópu-
ráðinu að stofna eina einkaleyfis-
stofnun fyrir alla Evrópu.
HVAÐ VERÐUR?
Danska einkaleyfisstofnunin
taldi að lýsing Reykvíkingsins á
„veltingsvél“ sinni væri ófull-
nægjandi og komst samgöngu-
málaráðuneytið að sömu niður-
stöðu. Sækir uppfinningamaður-
inn því nú aftur um einkaleyfi,
og verður fróðlegt að sjá hver af-
drif þess verða í framtíðinni.
------------------- !
Hræðad selir jjrýsti-
EILÍFÐARVÉLAR í kvöld verður Óskabarn örlag-
Samgöngum.ráðuneytið skýrir anna sýnt í síðasta skipti í Sjálf-
svo frá að því hafi eitt sinn bor-stæðishúsinu.
IMærri 800 manns flutt
með loftbrú til Eyja
EFTIR að birti upp á föstudaginn hafði Flugfélag íslands flutt
nokkuð á 8 hundrað manns á Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum.
Hefðu flutningarnir þó verið enn meiri, ef fyrr hefði gefið flug-
veður. —
ÞRJÁR FLUGVÉLAR
í FERÐUM
Á föstudaginn um kl. 4 opnað-
ist flugvöllurinn í Vestmanna-
eyjum og hófst þá þegar loftbrú
Flugfélagsins til Eyja. Voru þrjár
Dakota flugvélar notaðar í
flutningana og samtals farnar 13
ferðir. Voru flugvélarnar full-
skipaðar i hverri ferð og voru
því fluttir fram á kvöld alls um
370 farþegar.
RÖSKLEGA GERT
í gær var aftur ágætis flug-
veður og voru þegar hafnar flug-
ferðir aftur til Eyja. Síðast þegar
til var vitað höfðu rúmlega 200
farþegar verið fluttir til Eyja.
Auk þess fóru tvær flugvélar
fullhlaðnar farþegum frá Hellu
og ein flugvél frá Skógasandi.
Svo að samtals mun Flugfélagið
hafa annað flutningum á 8
hundrað farþega til Eyja. Hefur
félagið unnið þarna óvenju gott
starf á rösklegan hátt. — Fjöldi
fólks fór einnig með skipum til
Eyja, vegna þess að veðurútlit
var slíkt að menn vildu ekki
treysta á flugfar.
loflsvélar! I
NOKKRI bændur á Snæfellsnesl
hafa skrifað sýslumanni bréf og
sett fram skaðabótakröfur. Er
tilefni það, að þeir heimta bæt-
ur sökum þess, að þrýstilofts-
flugvélar , hafi flæmt seli burtU
frá látrum sínum á nesinu, þa®
sem hvinur þeirra sé svo óskap*
legur. Segir í bréfi bændanna,
að selveiðin fyrir jörðum þeirra
hafi dottið niður úr 30—40 kóp-
um í 2-—3 síðasta ár. Þykir
bændum, sem hér sé gengið á
hlut þeirra og krefjast í fyrsta
lagi þess að fá greiddar skaða-
bætur fyrir veiðitapið og í öðri|
lagi að fluginu verði hætt.
Ekki mun nein vísindaleg
rannsókn hafa farið fram á því,
hvort sannað sé, og brautreynt,
að selir hræðist þrýstiloftsflug-
vélar og mun því re/ndar alls-
endis óvíst hvort selir hafa
hrokkið frá landi þess vegna, eða
af öðrurn orsökum. Aftur á móti
mun fullvíst, að skaðabótabeiðni
þessa efnis, um selina og flug-
vélarnar, mun vera sú fyrsta
sinnar tegundar hér á landi, sem
annars staðar í vetícidinni. 'A