Morgunblaðið - 11.12.1955, Qupperneq 15
Sunnudagur 11. des. 1955
UO RGV /V B L AÐIÐ
31
KOMPLEX
Himgarian Trading Company for Factory Equipmcnt
Budapest, V., Dorottya utca 6. P.O.B. 36 .Budapest 51
Cables: Komplex Budapest
BÓKMENNTIR
Frh. afbls 18.
manna, þróuninni í athafna- og
menningarlífinu, og aftan við
sjálfa æfisöguna eru ítarlegir
kaflar um þróun sönglistar hér
á landi og upphaf hennar, sagt
frá söngfélögum og kórum og
stutt æfiágrip allra hinna eldri
tónskálda. í þessum þáttum er
fjölmargt, sem hefur mikið heim-
ildargildi.
Æfisagan er lipurt skriíuð og
dómar sögumanns um menn og
málefni hófsamir og mótaðir af
reynslu og frjálslyndi. Víða gæt-
ir góðlátlegrar kímni í frásögn-
inni, ekki sízt í köflunum um
skólaárin bæði í Latínuskóian-
um og meðal stúdenta í Kaup-
mannahöfn. Meðal annarra kem-
ur Niels R. Finsen við sögu.
Hér eru engin tök á að rekja
efni þessarar bókar, enda óþarft.
Hún er óefað framarlega í röð
æfisagnabóka, að henni hefur
verið unnið af vandvirkni, og
allur frágangur er góður. Hún
ér rúmar 400 bls. í stóru broti,
prýdd fjölda mynda af mönnum
og stöðum og hin eigulegasta í
alla staði.
Hermann Pálsson:
SÖNGVAR
FRA SlimjREYJUM.
Bókaútgáfan Norðri.
í FYRRA kom út á forlagi Máls
og menningar lítil bók er nefnd-
ist írskar fomsögnr, þýddar og
með inngangi eftir Hermann
Pálsson. Hermann þýddi sögur
þessar úr frummálinu, írsku. Að
vísu vissu flestir, að frar eiga
miklar og merkar fornbókmennt-
ir, enda er þeirra getið í Land-
námu, en þeir eru víst teljandi,
sem hafa lesið nokkuð í þeim
fyrr en þessar tvær bækur Her-
manns komu út. Sá, er þetta rit-
ar, las þessar sögur fvrst í gull-
fallegri þýðingu danska skálds-
ins Valdemar Rördams fyrir
rúmum tuttugu árum. — Bókin
Söngvar frá Suðureyjum er þjóð-
lífslýsing og ferðasaga höf. um
þessar slóðir. Leggur hann
áherzlu á að rifja upp hið forna
samband milli íslendinga og
Suðureyinga og rekur höfuð-
drættina í sögu evjaskeggja. Inn-
an um þýðir hann sýnishom af
kveðskap Suðureyinga. Margar
gullfallegar perlur er að finna.
— Bókin opnar fyrir manni
alveg nýja heima og þó svo
skylda okkur. Það er ekki vanza-
laust, hve tómlátir fslendingar
hafa verið um sögu íra og ann-
arra þióðabrota, sem næst okkur
eru, að Færevingum undanskild-
um. Bækur Hermanns Pálssonar
hafa bætt mikið úr þeirri van-
rækslu. Á Suðureyjum var langt
fram eftir öldum norræn menn-
irig og leifaT hennar finnast enn
í dag í málinu, þótt enskan hafi
útrýmt þvi að mestu, nema á ír-
landi og nokkrum héruðum í
Skotlandi og Wales.
Hallðóra B. B.jömsson:
EITT ER ÞAÐ LAND.
HlaSbnð.
HALLDÓRA B. Bjömsson er
áður kunn af l.jóðabók. sem kom
út eftir hana fvrir nokkrum ár-
um, og kveeðum i blöðum og
tímaritum. Nú hefur hún kosið
sér annað form. Þessi bók er
fimmtán kaflar eða þættir, sjálf-
stæðir að ýmsu, þó að þeir myndi
eina heild, eina samfellda sögu.
Bókin fjallar um böm. Hún er
rituð af næmum skilningi á böm-
um, hugsanaltfi þeirra og athöfn-
um, og samúð höfundar, ásamt
kímni í frásögn, gerir myndir
þær, er hún bregður upp, lifandi
og eins og nálægar. enda þótt
bókin beri með sér blæ endur-
minninga. — Stíllinn er fágaður
og listrænn, en yfirlætislaus.
Því fólki, sem þvkir vænt um
börn, mun vera þessi litla bók
kærkominn gestur. En til er líka
fólk, sem er svo undarlega skap-
að, að það getur ekki þolað börn
í návist sinni. Bókin á einnig, og
ekki síður, erindi til þess fólks.
Stíllinn er lipur og léttur og
persónulýsingarnar glöggar. Um
leið og bókin er skemmtileg er
hún þörf. Bókin er prýdd mynd-
um eftir Barböru Árnason og
allur frágangur er hinn smekk-
legasti, eins og á öllum þeim
bókum, sem Hlaðbúð gefur út.
SAGAN AF
TRÍSTAN OG ÍSÓL
Joseph Bédier samdi.
Einar Ól. Sveinsson
íslenzkaði.
Heimskringla.
ÞETTA er fornsaga í nýjum bún-
ingi. Hún er til á íslenzku í
tveimur gerðum, og hafa báðar
komið út í Riddarasögum íslend-
ingasagnaútgáfunnar. Franski
fræðimaðurinn Joseph Bédier.
fjallaði mjög um Trístanssagn-
imar á sínum tíma og samdi upp
úr þeim nýja sögu, þá er hér
birtist í þýðingu próf. Einars Ól.
Sveinssonar. Bédier var um langt
skeið prófessor við Collége de
France. Var hann frægur sagn-
fræðingur og fékkst mikið við
útgáfur fomra handrita. Hann
var kunnur á Norðurlöndum,
einkum þó á meðan á fyrri
heimsstyrjöldinni stóð. Lenti
hann þá í ritdeilum við Karl
Larsen prófessor við Kháfnar-
háskóla og jafnvel Brandes,
vegna túlkunar styrjaldaraðila á
sögulegum staðreyndum. Skáld
var hann gott eins og saga þessi
ber með sér. Það er hrein unun
að lesa hana í hinni snilldarlegu
þýðingu Einars Ól. Sveinssonar.
AÐ VESTAN.
Annað og fjórða bindi.
Árni Bjarnason
sá um útgáfuna.
Bókaútgáfan Norðri.
FYRIR nokkrum ámm hóf Böka-
útgáfan Norðri útgáfu á sögnum
og þáttum, er skráðir hafa verið
af ísl. í Vesturheimi. Verður
þetta geysimikið safn, 16 bindí
í allt. Margt af efninu hefur áður
birzt á víð og dreif í Vestur-
heimsblöðunum, svo að það er
fáum kunnugt. Er það því gott
að fá það gefið út í einni heild.
Það eru kynstur, sem Vestur-
Islendingar hafa skrifað af þeesu
tagi. Maður undrast, að fátækir
landnemar, sem urðu að vinna
myrkranna á milli, skyldu hafa
þrek til að setjast við ritstörf.
En minningarnar frá gamla land-
inu hafa orðið öllu öðru yfir-
sterkari. Skrásetjaramir hafa
áreiðanlega skrifað „sér til hug-
arhægðar“, enda engin von um
gróða eða viðurkenningu fyrir
slik fræðastörf áður fyrr.
Þessi tvö bindi eru heildarsöfn
einstakra manna. í fyrra bindinu
eru sagnaþættir Sigmundar M.
Long. Eru þar fyrst æfiþasttir
einstakra manna aðaUega af
Austurlandi. Kennir þar margra
grasa. Næst koma Þjóðsögur og
sagnir og síðast Kímnisögur. Þar
er lýst mörgum einkennilegum
náungum, svo sem Sögu-Guð-
mundi á Bessastöðum, séra Ög-
mundi Sigurðssyni og fleirum,
sem voru i ýmsu frábrugðnir
samtimamönnum sínum.
í síðara bindinu eru sagna-
þættir Guðmundar frá Húsey.
Hann fór til Vesturheims upp úr
aldamótunum og átti þaaT heima
, til dauðadags, 1950. Fyrsti Mutí
bókarinnar nefnist Mannlýsingar.
Er þar fyrst ágrip af sjálfsævi-
sögu höfundarins, en síðan lýsing
' aldamótunum og átti þar heima
í átthögunum. Þar er m. a. glögg
lýsing á Páli Ólafssyni skáldi og
t heimilisháttum hjá honum. Er
| þar ýmislegt, sem stingur í stúf
| við þá skoðun á skáldinu, sem
almennust er, en enginn efi er
á, að hér er farið með rétt mál.
Margar aðrar góðar mannlýsing-
ar eru í þessum kafla. Næst
kemur langur þáttur um þjóðlíf
og þjóðhætti á Austurlandi. Þar
j er lýst búnaðar- og heimilis-
háttum eystra á síðara hluta ald-
arinnar sem leið, en það var í
ýmsu frábrugðið þvi, sem annars
staðar var, eins og fram kemur
í þættinum. Síðast eru svo ferða-
sögur höf. dð austan til Reykja-
víkur og til Noregs. Báðum bind-
unum fylgja ítarlegar nafnaskrár
og formálar, sem Ámi Bjarnason
hefur ritað um höfundana og æfi
þeirra.
GANZ-BÁNKI
Vatns-tnrbíBoi
Þessi gerð af vatns-túrbínum er sú
langhentugasta fyrir dreifbýlið.
Þessar túrbínur eru afgreiddar hjá
KOMPLEX
SJÁLFVIRKAR VATNSAFLSSTÖBVAR
Stærð: 15 kw.
Spenna: 400/231 v.
Snúningshraði: 1500 r.p.m.
Fallhæð: 7—12 m.
Afgreitt frá framlciðanda
af KOMPLEX
KOMPLEX
Hungarian Trading Company for Factory Equipments,
Budapest, V., Dorcttya u. 6. P.O.B. 36.
Budapest, 51.
Cable-adress: Komplex — Budapest.