Morgunblaðið - 17.12.1955, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.12.1955, Blaðsíða 2
18 MORGL /V BLAÐIÐ Laugardagur 17. des. 1955 TdfLnnaníegur uppskerubrestur eftir yndisiegt sumar Tjón eins bónda allt að 126 þús. kr. — Lögreglubjónar biða dóms vegna „veikinda" — Þótti gott að fá i nefið SVp SEM kunnugt er, var óvíða y.idislegra sumar en hér í Sví- þjóð. F.n nú þykir mónnum sól- skinið og blíðan hafa dregið ó- þægilegan dilk á eftir sér, því landbúnaðarvörur hafa hækkað t'.itakanlega í verði vegna upp- .;'<erubrests af völdum hinna Lngvarandi þurrka. Nú verða nenn að greiða fyrir sumarblíð- tina í beinum og óbeinum skött- um. Veldur dýrtíðin margri hús- >"nóður miklum áhyggjum, mán- aSarpeningamir horfnir fyrr en \ arir, og erfitt að finna tekju- tindir, sem vega á móti hækk- uninni. Fyrstu dagana eftir að síðasta hækkunin gekk í gildi, v ar tómt í sumum matvöruverzl unum. Þær fáu húsmæður, sem komu að verzla, börmuðu sér vnjög. Smjör var keypt mjög lít- ið fyrstu dagana eftir verðhækk- unina, en hér í Stokkhólmi var kevpt meira smjörlíki en nokk- urn tíma áður. Húsmæður segja, að erfiðast sé að spara mjólkur- kaup vegna barnanna, en þó finnist þeim, að mjólkin hafi verið nógu dýr fyrir. Sumir hafa lagt til, að menn tækju sig saman um að hætta að kaupa landbúnaðarafnrðir, en það heíur fengið daufar undirtektir, því margt vilja menn fremur spara við sig en kjöt og smjör. JBÆTUR TIL LANDBUNA®- ARINS Hér í Svíþjóð er sá háttur hafð- ur á, að verðlag landbúnaðar- nfurða er ákveðið á vorin. Þá ):oma -aman fulltrúar frá bænd- um og neytendasamtökum og úkveða, hvert verðið skuli vera > ;æsta framleiðsluár, sem reiknast frá 1. sept, til 31. ágúst næsta ár. í áætlun þessari er gert ráð fyrir > eðaiuppskeru, en þó sveiflur v -rði frá því, er veðrið látið kaldast óbreytt, svo fremi sem mismunur verður ekki meiri en L- eða 4-4%. Verði meira frávik ó annan hvorn veginn, hækkar varðið eða lækkar til samræmis. Uppskeran í ár var áætluð 4000 mill. króna virði. Rýrnunin nam 500 millj. Þar frá dragast 4% eða 130 millj. 340 millj. eru land- j búnaðinum bættar. Bæturnar eru tvenns konar. í fyrsta lagi er verðhækkun á landbúnaðarafurð- um, sem nemur samtals 240 millj. M|ólk hækkar um 6 aura lítrinn /éa. 19 aura ísl./, smjör hækkar um 75 aura kg/ca. 2,40 ísl./, kjöt og flesk hækkar um 31 eyri kg /ca. 1.00 ísl./. í öðru lagi er styrk- ur frá ríkinu að upphæð 100 millj. krónur. Honum er skipt niður á b au héruð, sem hafa orðið harð- ast úti, en tjón varð mjög mis- jafnt í hinum ýmsu héruðum, eins og meðfylgjandi kort sýnir. bessum 100 millj. er úthlutað i þrennu lagi. 58 millj. er skipt milli þeixra héraða, þar sem rýrnunin var mest, þannig að þar uem tjónið nam 35—45%, fá baendur 50 kr. pr. hekt. ræktaðs lands. Þar sem tjónið varð 25 —-35%, eru veittar 25 kr. á hvern hekt. 22 millj. ganga sem fóður- fityrkur til mjólkursvæðanna, og er úthlutað með tilliti til þess, hve mjólkurframleiðslan er. Af- ganginn, 20 millj. fá héraðssam- böndin, og úthluta til einstakra býla, sem verst hafa orðið úti. Miklar deilur hafa risið út af þessum bótum í sumum hérðum, oérstaklega Skáni, er uppskera eins og í meðal ári, eða vel það. bar kemur hið hækkað verð sem hrein búbót. í héruðunum um- hverfis Stokkhólm, var tjónið aft- ur á móti mjög tilfinnanlegt. Á sumum bæjum á Södermanlandi skrælnaði öll uppskeran. Þar búa þeir tveir bændur, sem keppa um „heiðurinn“ af því, að hafa beðið mest afhroð vegna þurrk- anna. Tjón hvors þeirra um sig er metið á ca. 40.000 s. kr., eða > n 126.000 ísl. kr. Bæturnar sem jbeir fá samkvæmt núgildandi lög um, eru um 400Q kr., eða 1/10 hiuti hins raunvérulega tjóns. Stokkhólmsbréf eitir Jón Aðalsteinsson '§)' % ' ?r\ TTTT\ -5% - . -25% - -15% >55%~-25% -^5%-“55% Afvik frá meðaluppskeru í einstökum héröðum Svíþjóðar. Þessum bændum þykir súrt í broti að sjá stéttarbræður sína auðgast á uppskerubrestinum. Einnig þykir neytendum hart að göngu að greiða hærra vöruverð og hærri skatta, til þess eins ,,að gera þá ríku ríkari“. Hafa neyt- endasamtök i Málmey mótmælt núgildandi fyrirkomulagi á bjarg ráðunum, og margar raddir heyr ast um að stjórninni beri að sjá um réttlátari skiptingu á bótun- um. Ein af þeim leiðum, sem stung- ið hefur verið upp á í því sam- bandi, er að hækka sláturskostn- að á svínum, en svínaræktin er mest á Skáni. Þessi leið er þó talin lít.t fær, því að þá er hætt við, að svínin yrðu drepin án svörtum markaði. Sérstök land- búnaðarnefnd vinnur að úrlausn þessara mála, og í þinginu eru til athugunar lagabreytingar þess efnis, að trygga réttlátari dreif- ingu stuðningsfjárins. Þá er og í undirbúningi að leggja fyrir þingið frumvarp til laga um breytingu á því fyrir- ’komulagi, sem nú ríkir um verð- lagningu landbúnaðarafurða, og láta verðlagið vera háð verði á heimsmarkaðinum hverju sinni. Er talið, að reynslan í haust muni flýta fyrir afgreiðslu málsins Telja Sviar, að með aukinni tækni geti þeir lækkað fram- leiðslukostnað það mikið, að land búnaðurinn geti staðið af sér hallærisár án þess, að nauðsyn beri til að hækka afurðaverðið. Hver svo sem endalok þessara mála verða, er hætt við, að þeim verði ekki ráðið þannig til lykta, að allir verði ánægðir. Strang fjármálaráðherra hefur skorað á menn að sýna þegnskap og taka með stillingu þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin kann að gera. En hitt blandast mönnum ekki hugur um, að fallega brúna húðin í sumar, sé goldin heldur dýru verði. LÖGREGLUÞJÓNAR BÍÐA DÓMS Um Jónsmessuleytið í sumar greip um sig hastarleg veiki innan lögregluliðsins í Stokk- hólmi og Gautaborg. Þar sem þessi veiki var undarlega stétt- læg, þótti sýnt, að brögð væru í tafli, Innanríkisráðuneytið lét því skipa þriggja manna nefnd, til a<5 grafast iyxir um orsakir veikinnar. Sú nefnd hefur nú birt niðurstöður sínar. Sam- kvæmt þeim er hér ekki um veikindi að ræða í venjulegri merkingu þess orðs, heldur hafa téðir lögregluþjónar slegið á sig skrópasótt, til þess að komast hjá að gegna skyldustörfum mestu annahelgi ársins. Læknisvottorð fengu þeir með því að bera sig aumlega og ýkja krankleika sinn, „Veikindi“ þessi voru hugsuð sem vopn i baráttu lögregluþjónanna fyrir hsekkuðu kaupi. En vopnið hefur snúizt í höndum þeirra. Þeir er.u sekir fundnir um brot gegn lögum um réttindi og skyld- ur opinberra starfsmanna. í stað þess að hljóta hækkað kaup, bíða þeir nú dóms hundruðum saman. Einnig stendur til að svipta fjóra lækna réttindum vegna máls þessa. Almennt er talið, að hinir 127 læknar, sem gáfu vottorðin, hafi látið sér embættisskyldur sínar í léttu rúmi liggja. Eitt blaðið hér lætur svo um mælt, að góða samvinnu lögregluþjóna og lækna, beri sizt að harma meðan hún stuðli að öryggi borg- Frh. á bls. 20 HVERFISGÖTU 29 — SÍMI 9494 — HAFNARFIRÐI TIL JOLAGJAFA Straajárn, margar teg., verð frá kr. 140,00 Gufustraujárn, General Electric. kr. 520,00 Ferftastraujám, sem breyta má i suðuhellu. með tösku kr. 130,00 ★ Kaffikvarnir, Cora, kr. 450,00 Vatnshitarar, Cora, 1000 til 2500 watta frá kr. 78,00 Vatnshitarar, Cora, litlir, ásamt tösku kr. 73,50 ★ Vöflujám, kr. 220,00 Hraðsuðukatlar 1, 2 og 3 lítra frá kr. 260,00 Kaffikönnur, kr. 270,00 Hrærivélar, General Electric, kr. 1300,00 ísskápur, Siemens, kr. 5800,00 Steikarristar, kr. 275,00 ★ Ryksugur, Elektrolux, kr. 1620,00 Ryksugur, Kobold, kr. 1735,00 Bónvélar, Elcktrolux, kr. 1620,00 ★ Handþurkur (heitt loft) kr. 990,00 Hárþurkur, kr. 325,00 Hitapúðar, Siemens, kr. 165,00 ★ Gigtarlampar, frá kr. 400,00 Borðlampar, margar teg., frá kr. 7ö,00 Sjónvarpslampar, kr. 555,00 Vegglampar, margar teg., frá kr. 70,00 ★ Ljósakrónur, margar teg., frá kr. 290,00 Ljósakrónuskálar, stakar, frá kr. 27,70 Forstofuljós, kr. 56,00 ★ Loftkúlur, frá kr. 40,00 Handlampar og Bílalampar frá kr. 31,50 Jólatrésljós, 3 teg., kr. 165,00 Gólfiampar, eins til þriggja arma frá kr. 430,00 Hringljós, fluorescent ★ Amerísk búsáhöld í úrvali Félagsmenn KRON! Gerið jólainnkaupin tímanlega. Fyllið út pöntunarlist- ann, sem hefur vertð sendur ykkur og skilið honum í næstu verzlun félagsins, eða símið pönt- unina hið fyrsta. Við mun- um Icggja allt kapp á að jólapantanirnar verði af- greiddar fljótt og ná- kvæmíega. Matvörubúðir Bezt oð auglýsa í Morgunblaðinu —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.