Morgunblaðið - 22.12.1955, Síða 14
14
MORGV1SBLAÐ19
Fimmtudagur 22. des. 1955
ANNA KRISTÍN
EFTIR LALLI KNUTSEN
FramlialdssagcLii 32
er betri skytta en hann. Og mað-
ur hefur þó rétt til að verja heið-
ur sinn tíg heimili.
Við systurnar litum þegjandi
hvor á aðra. Gynter glotti ill-
xnannlega og við vissum þegar
um hvern var talað. Loksins var
ívar viss í sinni sök. En hvers
vegna var hann að tilkynna syst-
ur minni það? Bjóst hann virki-
lega við að geta auðmýkt hana
með því? Áleit hann að hún
mundi flýja í faðm hans af
hræðslu um líf Randulfs? Ó, hvað
hann þekkti hana illa!
— Hvar er smjörið? sagði ívar
ilú óþolinmóður. Hún setti smjör-
ílátið gætilega við diskinn hans.
Augu hennar sýndust næstum
svört og varirnar grábleikar.
fvar setti vænan smjörbita í
grautinn. Þegar Gynter, nokkru
seinna, greip smjöröskjuna, tók
systir mín hana af honum, fékk
honum aðra og sagði: — Þetta
smjör er handa gestum. ívar vill
helzt hafa smjörið salt og þrátt
eins og hann er vanur heimanað
frá sér.
fvar roðnaði af reiði: — Ertu
að drótta því að mér að ég sé af
kotungsætt, Anna Kristín Orn-
ing? Mín ætt er eldri en þín. Ég
veit vel að.... Hún leit fast á
hann og sagði: — Ég heiti Orn-
ihg. Göfugir menn hafa borið það
nafn. En þitt nafn, Mogensson,
hver.... ? — Gættu tungu þinn-
ar. Ég þarfnast ekki neinna upp-
lýsinga frá þér. Jafnvel þó að þú
heitir Orning ættirðu skilið að
ganga svipugöngin.
— Guð hjálpi okkur, ef hann
fréttir nú líka um Lárus, var mín
fyrsta hugsun, er ég heyrði orð
fvars. Á því lék nú enginn efi
að honum var kunnugt um sam-
líf systur minnar og Randulfs.
En kjarkur Önnu Kristínar bil-
aði ekki. Hún horfði rólegum,
köldum augum á mann sinn og
brosti meira að segja. Hugsunin
um Randulf yfirgnæfði allt ann-
að. Það las ég út úr svip hennar.
ívar varð víst hins sama var, því
að allt í einu tók hann steikar-
fatið og henti því af alefli í vegg-
inn gengt sér. — Farðu bölvuð,
öskraði hann. Systir mín sat ró-
leg með sama brosið á vörunum,
en ég starði skelkuð á ívar.
Allt í einu sá ég að litarháttur
hans breyttist. Kinnar hans urðu
gráfölar og sviti spratt út á enni
hans. Hann greip báðum höndum
um magann og stundi. — Nú
koma verkirnir aftur. Drottinn
minn, ég held ég sé að deyja
Gynter stökk á fætur. — Mað-
urinn er í andaslitrunum. —
Vertu rólegur, sagði ég, hann
fékk þessar kvalir á Hlöðum líka.
Læknirinn sagði að það væru
bólgur í maga og mundi líða hjá.
Við skulum koma honum í rúm-
ið og fá meðulin hjá systur minni.
Við bárum ívar upp í svefn-
herbergi og lögðum hann í rúmið.
Þar lá hann og stundi. — Við
verðum að fá lækni strax, sagði
Gynter. Sesselja kraup við rúm-
stokkinn og reyndi að draga stíg-
vélin af fótum s.iúklingsins. —
Hann hefur oft orðið svona las-
inn, sagði hún ergilega. — Hann
þarf engan lækni. Farið þér bara
heim, því að hér er ekkert gagn
í yður. — Ég fer ekki fet fyrr en
honum skánar eitthvað. svaraði
Gynter ákveðinn. — Þér gjörið
nú svo vel að fara, Gvnter, sagði
systir mín þurrlega. Við erum öll
þrevtt og maðurinn minn veikur.
Hann fékk meðul við þessu á
Hlöðum og þau hef ég undir
höndum. Þér getið ekkert gert
frekar. — Ég verð kyr, sagði
hann þvermóðskulega og ég sa
að hann greip um skammbyssu,
i sem hékk við belti hans. — Þér
hafið vonandi rúm aflögu, frú,
sagði hann háðslega. — Annars,
I bætti hann við og svipur hans
breyttist, verð ég að álíta að þér
óskið ekki nærveru minnar hér
í nótt. Mig er farið að gruna
margt. — Yður má gruna það
sem yður lystir, sagði Anna
Kristín og reis upp. — Ég er ekk-
ert smeyk við það. En maðurinn
minn er veikur og það verður að
vaka yfir honum í nótt. Drukkn-
ir og háværir gestir eru því mjög
óvelkomnir. Góða nótt, herra
höfuðsmaður.
Hann sneri sér á hæli og gekk
út. Sesselja tautaði: — Nú hefur
þú eignazt svarinn óvin, Anna
Kristin. — Hann hefur alltaf ver-
ið óvinur okkar, svaraði ég hrædd
og reið. En hvað gjörir það til?
hann getur ekkert illt gert okk-
ur. — Þegiðu, hreytti Sesseija út
úr sér. Ég starði orðlaus á hana.
Þetta var í fyrsta skipti, sem hún
dirfðist að sýna mér ókurteisi
upp í opið geðið.
í sama bili fékk fvar nýtt kast.
j Hann skalf eins og í krampa og
byrjaði svo að kasta upp. — Get-
ur það verið að þetta sé pestin?
hvíslaði ég. — Þegar fólk étur
og drekkur annað eins og höfuðs-
maðurinn gerir, þá er ekki von
á góðu, sagði Sesselja hörkulega.
— En nú skuluð þér fara í rúmið,
jómfrú, það er ekki fyrir unglinga
að horfa á þetta. Eftir að ívar
hafði kastað upp virtust kval-
irnar minnka og hann lá nú í eins
konar dvala. — Guð hjálpi okk-
| ur öllum, sagði Sesselja. — Er
hann dáinn? spurði ég í sama
lága rómnum. Anna Kristín stóð
við höfðalag manns síns með
kertastjakann í annari hendinni.
Augu hennar voru stór og star-
andi og hún beit á vörina.
Sesselja reis upp, tók í öxlina
á mér og ýtti mér út um dyrnar.
— Nei, hann er ekki dauður og
deyr ekki í þetta sinn, sagði hún
hranalega.
19. kafli
Atburðir þessarar nætur standa
mér óljóst fyrir hugskotssjónum.
Stormurinn skók húsið og regnið
buldi á rúðunum. Sesselja kom
hlaupandi og sagði mér að koma,
því að nú væri systir mín altekin
sama sjúkdómi og ívar.
Þegar ég kom inn í svefnher-
bergið lá Anna Kristín í rúminu
við hlið manns síns. Hún var
rauð í andliti með hitagljáa í
augum. Magister Hieronymus
stóð á náttfötunum, við hlið henn
ar og hélt á vaskafati, sem hún
kastaði stöðugt upp í. Ég var svo
skelfd að ég undraðist það ekk-
ert þó magisterinn væri þarna.
Mér datt ekki í hug að spyrja
hvenær og hvers vegna hann
hefði komið að Mæri.
Ég hljóp að rúminu og féll á
kné við rúmstokkinn: — Ó, elsku
systir mín, þú mátt ekki deyja!
hrópaði ég. — Ekki hafa svona
hátt, sagði magister Hieronymus
skipandi, þér megið ekki hræða
hana. Haldið þér á vaskafatinu,
á meðan ég lít á höfuðsmanninn.
Sesselja, farðu og náðu í heita
mjólk.
fvar lá með lokuð augu. Hann
var fölur og andardrátturinn ó-
reglulegur og stynjandi.
Þegar leið að morgni og systir
mín virtist úr allri hættu, opnaði
ívar augun með erfiðismunum og
leit á hana. Hún lá í móki. Hann
fálmaði eftir hönd hennar, greip
hana og sagði óskýrri rödd: —
G/ uggagi rð
H. BENID IKTSSON í Hafnarhvoll — \ CO. H.F. Sími 1228
Hálsklúfar
Undirfatnaður
Mjög gott úrval — Pöklcurn í smekklcga poka
Meyjaskemman
Laugavegi 12
Tvær stúlkur
vanar skrifstofustörfum óskast á skrifstofu hjá stóru
fyrirtæki, frá áramótum. — Tilboð ásamt mynd og uppl.
um fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir 28. þ. m., merkt:
„Framtíð — 908“.
lirærivélarnar
hafa náð ipestum vinsældum hér á landi
Sannar það bezt að við höfum nú
þegar selt upp alla jólasendinguna
sem kom fyrir skömmu síðan
Fengum nýja sendingu
me<5 flugvel í gær
Kenwood hrærivélin er
ódýrust miðað við stærð
»g gæði.
HENNI FYLGIR:
Þeytari, hrærari og hnoð-
ari. Hakavél, grænmetis-
og kornkvörn og plast-
yfirbreiðsla.
Verð kr. 2.600.00
Pantanir óskast sóttar í dag annars seldar öðrum
H E K LA
Austurstræti 14 — Sími 1687
Jólasala á lömpum
í Listamannaskálanum
Á boðstólnm verða yfir 200 gólf- og borólampa
frá Ameríku og Þýzkalandi.
Verð við allra hæfi.
Aldrei hefur sézt eins mikið úrval lampa saman
komið á einum stað á íslandi.
Sjálfsafgreiðsla.
Gerið jólainnkaupin tímanlega
Fallegur lampi er fögur jólagjöf.
H E KLA H.F.