Morgunblaðið - 22.12.1955, Page 16
Veðurúfiif t daq;
Hva.ss NA og úrkomulaust síðd.
293. tbl. — Fimmtudagur 22. desember 1955
Vegir tepptust í stdrhrið I gær
Á Suður- og Suð-Vesturluudi
100—150 bíiar fastir I sköflum
hjá Vatnsleysu og mjólkurbílar
komust ekki til Fióabúsins
YFIR Suður- og Suð-Vesturiandið gekk í gærdag mesta stór- j
hríðin á vetrinum, og spilltust vegir svo í Austursveitum, i
<ð fyrirsjáanlegt var í gærkvöldi að taka yrði upp skömmtun
mjólkur hér í bænum í dag. Vegir í Ámessýslu voru orðnir ófærir
víða, sömuleiðis í Rangárvallasýslu.
íiRFIÐ FÆRfi í BÆNUM
Veðurstofan hafði spáð þessari
hríð og einnig frosti. Mátti því
búast við að skafrenningur yrði
rnikill. Jafnvel hér inni í bæn-
um dró í skafla á götum og var
víða þungfært í gærkvöldi. Sums
/itaðar voru gangstéttir komnar
í kaf undir hnédjúpan skafl og
þaðan af dýpri. — Girðingin
meðfram -Landsspítalalóðinni við
Barónsstíginn var t. d. komin að
mestu í kaf.
KEILLISHEIBI ÓFÆR —
KRÝSUVÍKURLEH) ERFTO
Fréttaritari Mbl. á Selfossi,
Guðmundur Geir, símaði í gær-
kvöldi, að þar hefði verið lát-
laus hríð í allan gærdag með:
frosti og skafrenningi, svo að
þegar í gærmorgun var Hellis-
heiði ófær orðin og mjólkurbíl-
arnir fóru því um Krýsuvík. I
gærkvöldi bárust þær fregnir
þaðan, að á Selvogsheiðinni væri
færð tekin mjög að spillast. Þar
var snjóplógur, en jafnóðum skóf
f það sem rutt var.
ENGIN ÍVIJOLK ÚR
RANGÁRVALLASÝSLU
f gærmorgun barst mjólkur-
búi Flóamanna engin mjólk aust-
an yfir Þjórsá og engin úr
Biskupstungum eða Grímsnesi.
f kvöld sátu mjólkurbílamir,
sem sækja áttu mjólk í gærdag
til Skeiða- og Hreppabænda, fast-
ir, sennilega flestir hjá Skeggja-
íitöðum í Flóa.
Árdegis í dag fara héðan úr
Reykjavík bílar norður til Ak-
ureyrar. Nyrðra mun vera mun
íinjóléttara en hér syðra, a. m. k.
var það svo í gær, og var Holta-
vörðuheiði talih sæmilega fær.
í gærkvöldi simaði frétta-
ritari Mbl. í Keflavík, Ingvar
Guðmundsson, að á veginunx
hjá Stóru-Vatnsleysu hefðu í
gærkvöldi setið fastir þrír
stórir áætlunarbílar, allir með
meira og minna af farþegum,
og 109—150 aðrir bílar.
FRAM Á NÓTT í BÍLUNUM
Fréttaritarinn kvað afgreiðslu
áætlunarbílanna þar syðra ekki
hafa haft neinar fregnir af líð-
an fólksins í vögnunum. En það
hafði ekki í önnur hús að venda
en láta fyrirberast í bílunum.
Átti það fyrir langa setu enn
að því er virtist, því að vélar
þær, sem voru á staðnum við
að reyna að ryðja bílunum leið,
höfðu ekki undan hríðinni og
skafbylnum. í gærkvöldi voru
fleiri ýtur sendar af stað frá
Reykjavik til hjálpar. Stóðu því
vonir til þess að bílalestin mundi
losna úr sköflunum áður en langt
um liði.
SLÆM SPÁ í GÆRKVÖLDI
f gærkvöldi bjóst veðurstofan
ekki við því að veðrinu myndi
slota í nótt. Ef veður hefur hald-
ist óbreytt, má búast við því, að
í dag geti svo farið, að erfitt
verði fyrir strætisvagna að halda
áætlun, að minnsta kosti fyrri-
hluta dags.
Sótt um eiiibætti
vepamálastiéia
FJÓRIR verkfræðingar sækja um
embætti vegamálastjóra, en um
áramótin mun Geir Zoéga vega-
málastjóri, láta af embætti.
Tveir verkfræðingar vegamála
skrifstofunnar, þeir Árni Pálsson j
yfirverkfræðingur og Sigurður
Jóhannsson sækja, en að auki
Páll Hannesson, verkfræðingur
frá Undirfelli og Hannes Péturs-
son verkfræðingur.
Bílddælingum berst fag-
urt jólatré að gjöf
Kveikt á frénu við háfíðiega afhcfn
BILDUDAL, 21. desember.
SÍÐASTL. laugardag, var kveikt á jólatré hér á Bildudal, og
það formlega afhent þorpsbúum, við hátíðlega athöfn ó svo-
nefndri Tungu, þar sem styttur Thorsteinsonshjónanna eru reistar.
Jólatréð hefur Árni Jónsson stórkaupmaður í Reykjavík gefið
Bíldælingum.
KVEIKT A TRENU Vlfi
HÁTÉBLEGA ATHÖFN
. Oddviti hreppsins Jónas Ás-
mundsson, tók á móti trénu er
það kom frá Reykjavík og þakk-
aði hann gefenda, í ræðu er hann
flutti er kveikt var á því, fyrir
hönd allra Bílddælinga. Kvað
iiann Árna Jónsson ævinlega hafa
borið hlýjan hug til Bildudals og
Bílddælinga og væri þetta ekki í
fyrsta skipti er hann sýndi það
í verki.
Allmikili fjöldi barna og einnig
fullorðinna var samankominn við
athöfn þessa, sem var mjög há-
tíðleg. Er oddvitinn hafði lokið
máli sínu sungu börnin ,,Heims
um bói“ og fleh’i jólasálma.
-~rr
iiii iiiiiiiii *... v<i» ■■ < ij
SÉZT VÍflA A»
Jólatréð sem er 9 mctra hátt,
er mjög fallegt, 40 ljós eru á þVí.
Sézt það víða að, þar sem það
stendur á hinum afgirta minn-
ingarreit Thorsteinsonshjónanr.a
fyrir ofan kaupstaðinn. — Friðrik
Slyrkttr !il iðnfrsði-
náms í Þýzkalandl
RÍKISSTJÓRN Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands býður fram
námsstyrk að upphæð 2750 þýzk
mörk til ellefu mánaða náms-
dvalar við iðnfræðiskóla (Ing-
eniurschule) í Þýzkalandi árið
1956. Ætlazt er til, að námstím-
inn hefjist í byrjun marzmán-
aðar 1956. Umsækjendur þurfa
að kunna vel þýzku.
Umsókn um styrkinn þurfa að
fylgja eftirfarandi upplýsingar:
1. Æviferilsskýrsla í þríriti.
Eitt eintak með eigin hendi
umsækjenda, en tvö vélrit-
uð), ásamt greinargerð fyrir
umsókninni.
2. Meðmæli frá tveim iðnfræði-
kennurum og einum manni,
sem þekkir umsækjanda
persónulega.
3. Tvær Ijósmyndir af umsækj-
anda.
4. Vottorð um þýzkukunnáttu.
5. Heilbrigðisvottorð.
Umsóknir um styrkinn sendist
menntamálaráðuneytinu fyrir
28. des. n. k. og mun ráðuneytið
láta í té umsóknareyðublöð. —
Þýzk stjórnarvöld annast vai
styrkþega.
Bráðspest í fé stingur
sér ni
Reykjum í Mosfellssveit.
FYRSTU daga desembermánaðar
var yfirleitt allt fé tekið á gjöf,
sem náðist til og voru heimtur
góðar, en þó vantar stöku bónda
enn eitthvað. Bráðapest hefir
stungið sér niður á stöku stað
þrátt fyrir bólusetningar og á
tveim bæjum urðu grunsamleg
brögð að þessu og bendir það til
þess, að nauðsynlegt sé, að bólu-
setja tvisvar og tvævetlurnar
með því sem yngra er. Mikið af
nautpeningi var felit hér seinni
hiuta sumars og í haust, er sýnt
varð hvert stefndi með heyskap-
inn. Svo sem að líkum lætur, var
mikið verkað í vothey af hey-
fengnum og sums staðar komið
upp bráðabirgðavotheysgeymsl-
um með. sæmilegum verkunar-
árangri, þó af vanefnum væri
gert. Alls staðar er þurrheys-
hrakningurinn illa verkaður og
ólystilegur fyrir búféð og reyna
margir að blanda lýsi í heyið og
er það til bóta. Kjarnfóðursgjöf
er með allra mesta móti og víða
allt að helmingi og sums staðar
enn meira en verið hefur undan-
farin ár. Afkoman verður al-
mennt mikið verri en undanfarin
góðæri og nálgast það að vera
ískyggileg. Allir treysta nokkuð
á fóðurbætislán ríkisstjórnarinn-
ar og mikið er um rætt. Þykir
það hið mesta drengskaparbragð
af ríkisstjórninni að stuðla að því
að færri gripir voru felldir en
ella. Því gripum verður ekki
fjölgað í sama fjölda, nema á
aði. — J.
200 i)íia eítir Akureyrarferð
FLUGSAMGÖNGURNAR hafa gengið mjög úr skorðum tv®
undanfarna daga vegna hriðar. í gær komst héðan engin flug-
vél ót á land, en frá Grænlandi kom GulifaxL — í gærkvöldD
skýrði blaðafulltrúi Flugfélags fslands, Njáll Símonarson, blaðins
frá því, að um 200 manns væru á biðlista hjá félaginu, sem kom-
ast þyrftu til Akureyrar og á öðrum leiðum biði fjöldi farþega,
Síðdegis í gær komst Gulifaxi
hingað frá Grænlandi, en þar
hefur hann verið veðurteptur frá
því á sunnudaginn, og vegna fann
knmunnar, gat flugvélin ekki
haldið ferðinni áfram til Kaup-
mannahafnar með nær 60 far
þega, verkamenn og iðnaðarmenn
frá Narsasúakflngvelli, svo seoo
áformað hafði verið.
Danirnir skýrðu frá þvi að i
Narsasúakflugvelli hefði enn ekkO
verið fallinn neinn snjór og hreia
viðri dag eftir dag.
í gær var flngvél á leið austOC
um haf snúið við vegna veðurs.
Fjölbreytt jólahefti
af timaritina Stefni
Fiyfur m. a. kaíla úr „Myrkur um miðjan dag", nýja
smásögu eflir Jökul Jakobsson og ritdóma j
effir Jónas Krisfjánsson ]
FJ Ó R Ð A hefti Stefnis kemur í bókaverzlanir í dag. Er þaB
mjög vandað og fjölbreytt að efni, flytur fjölda ljóða, smá-
sagna, greina o. fl. Sérstaklega er vel vandað til þeirrar nýjungac
í útgáfunni, sem er kynning á ungum listamönnum. Heftið kostac
í lausasölu 10 krónur og árgangurinn 35 krónur. f
LJÓÐSKÁLDIN
Stefnir hefst að þessu sinni með
árnaðaróskum til Laxness í til-
efni Nóbelsverðlaunanna og
kvæði efir hann sem nefnist „I
áfánga“. Af Ijóðum eftir unga
menn má nefna ljóð eftir Gunnar
Dal, tvö ljóð eftir Odd Björnsson
og tvö ljóð eftir Jóhann Hjálm-
arsson.
MYRKUR UM MIÐ.IAN DAG
Kafli er birtur úr Köstler-
lcikritinu „Darkness at Noon“
og er hann ágætlega þýddur af
Otto Jónssyni. Þetta leikrit
hefur vakið feiki athygli víða
um heim og má heita undar-
legt, að það skuli ekki hafa
verið flutt hér á landi, því að
það mun almennt álit leiklist-
argagnrýnenda erlendis, að
það beri einna hæst í leikbók-
menntum siðustu ára. Er það
vel að Stefnir kynnir þetta
verk nú að nokkru fyrir ía-
lenzkum lesendum. Það er
Marseille-kaflinn, sem er birt-
ur og stendur hann sem sjálf-
stætt verk. j
1
MYNDIR AF
i VERKIJM GERÐAR
Stefnir er með þessu hefti aO
hefja nýjan þátt í starfi sínu, seam
hann nefnir „Kynning ungra
listamanna". Að þessu sinni er 1
ritinu gljápappírsörk með ljós-
myndum af nokkrum verkuns
Gerðar Helgadóttur. Er frágang-
ur svo vandaður á þessum kafla
að sjaldgæft er í íslenzkum tírna
ritum og setur það fallegan svip
á heftið.
Hér er ekki hægt að telja upp
.allt efnið í þessu innihaldsríka
hefti Stefnis. Er þess að vænta
að marga fýsi að kynnast hinutœ
nýju viðhorfum sem koma frans
í ritipu og lesa sér til skemmt-
unar yfir jólin. J
Tregur afli hjá togur- j
um fyrir Vestfjörðum j
- en bálaaili með bezta mól.
PATREKSFIRÐI, 21. des. 1
BV. ÓLAFUR JÓHANNESSON landaði hér nýlega um 160 lest-
um af ísvörðum fiski, mestmegnis þorski og karfa. Aflinn fác
til vinnslu í hraðfrystihús Kaldbaks. (
Góð rækfuveiði ;
BÍLDUDAL, 21. des.: — Veðrátta
hefur verið góð hér í Arnarfirði
undanfarið, þar til tvo síðustu
daga, sem verið hefur norðan
hvassviðri. (
Rækjan hefur veiðzt vel undan-
farið. Hafa bátarnir verið með I
4—500 kg í hverjum róðri. 1
— Friðrik. *
VERKAFÓLKSEKLA
Gylfi landaði afla sínum fyrir
skömmu, um 120 lestum, á ísa-
firði, þar sem ekki var hægt að
taka á móti aflanum hér á Pat-
reksfirði vegna skorts á verka-
fólki, bæði við löndun og við
vinnslu aflans í frystihúsinu.
Báðir togararnir fóru strax á veið
ar að aflokinni löndun. Afli mun
vera með tregara móti.
LÍTIÐ UM ERLENDA TOGARA
Útlendir togarar eru fáir að
veiðuna á miðum hér fyrir vest-
an. Þegar síðast fréttist, voru
5—6 þýzkir togarar 70—80 sjð-
mílur norðvestur af Patreksfirðfi
að veiðum. i
I
GÓÐUR AFLI HJÁ BÁTUM
Vb. Andri og Sigurfari hafa
róið að segja má látlaust upp &
síðkastið og aflað vel. Var Anrirl
með 10 lestir í síðasta róðri af
vænum þorski, sérstaklega lifrar-
miklum. Andri rær með um 120
lóðir og leggur línuna djúpt út af
Patreksfirði. Aflinn er flakaður
og frystur í Hraðfrystihúsi Pat-
reksfjarðar h. f. — KarL a