Morgunblaðið - 25.01.1956, Page 14

Morgunblaðið - 25.01.1956, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 25. jan. 1956 n SYSTURNAR ÞRJÁR EFTIR IRA LEVIH - Fyrsti hluti: DOROTHY Framhaldssagan 1 Fyrsti kafli. AFORM hans höfðu heppnazt svo ágætlega allt til þessa og MÚ átti hún að eyðileggja allt saman. Ilatrið brauzt fram og ólgaði x huga hans, eins og brennandi >.;]dsumbrot og andlit hans af- xnyndaðist, svo að hann verkjaði j. kjálkana. En það gerði í sjálfu sér ekkert til. Nú var búið að slökkva Ijósið og myrkrið huldi allt, sem síður xnátti koma fram í dagsins Ijós. Og hún — hún héit áfram að nnr.kta í myrkrinu, örvæntingar- jfuPt og vonleysislega og brýsti vanganum að beru brjósti hans. En tár hennar voru brennandi heit og andardrátturinn ekka- þrunginn. Hann langaði mest til að hrynda henni frá sér, en hann gei ði það samt ekki. loks mýktust hinir hörðu and- litsdrættir hans. Hann lagði handlegginn yfir um stúlkuna og Btrauk mjúklega bak hermar með flötum lófanum. Hörund hennar var brennandi heitt, fannst honum. En kannske voru það hendur hans, sem voru kaldar? Honum var öllum hrollkalt. Handarkrikarnir voru renn- votir af köldum svita og hann skalf í hnjáliðunum, eins og jafn- an, þegar atburðarásin tók ranga ntefnu og hann stóð hjálparvana og óviðbúinn með öllu. Stundarkorn lá hann alveg hreyfingarlaus og beið þess að .skjálftinn rénaði, en dró svo með annarri hendinni teppið upp yfir naktar axlir stúlkunnar. , Það er gagnslaust að gráta“, pagði hann, hlýlega og sefandi. Hún reyndi að stilla grátinn, <an lá svo og saup hveljur með löngum, hálfkæfðum andköfum. Svo þurrkaði hún sér um aug- un á einu horni teppsins: „Það er bara .... ég hef svo lengi þag- að yfir því. Ég er búin að vita það í marga daga .... margar vikur. Ég vildi bara ekki segja sneút, fyrr en ég væri alveg viss“. Hönd hans, sem enn lá við bak hennar, var nú orðin heit. , Ertu alveg viss um þetta?“ Hann hvíslaði spurningunni, ienda þótt húsið væri með öllu ma nnlaust. „Já“. , Og hve lengi?“ ,Næstum tveir mármðir“. Hún lyfti andlitinu frá brjósti hans og hann fann greinilega í myrkrinu, h'Ternig augu hennar hvíldu á honum. ,,Hvað eigum við að gera?“ epurði hún svo. „Sagðirðu lækninum hið rétta na'n þitt?“ „Nei, en hann sá það á mér, að ég var að ljúga til um nafn. Það var hræðiiegt. ... “ „Ef pabbi þinn kemst að þessu, þá....“ Hún lét höfuðið síga og endur- tók sömu spurninguna: „Hvað eigum við að gera?“ Svo lá hún, hljóð og hreyfing- arl "us og beið eftir svarinu. Hann færði sig öriítið til í rúminu, því að höfuð stúlkunnar lá óþægilega þungt á brjósti hans. „Hlustaðu nú á mig, Dorrie“, sagði hann lágt. „Ég veit það vel, að þú vild ir helzt af öllu, að við giftum okkur strax — á morgun. Og sjálfur á ég enga ósk heitari en þá, að slíkt væri mögulegt. JÞví máttu örugglega trúa, vina mín“. Hann þignaði litla stund, á meðan har n leitaði að orðunum, varkár og gætinn. a Líkami hennar lá hreyfingar- f láus og hlustandi, í þéttri snert- ! ingu við hann. „En ef við giftum okkur núna, áður en ég hef svo mikið sem séð föður þinn, og barnið fæðist svo eftir aðeins sjö mánuði, ja .... þú veizt eins vel og ég, hvað hann myndi þá gera“. „Hann gæti bara hreint ekkert gert“, mótmælti stúlkan. „Ég er komin á nitjánda árið og hér er það nægilegt að vera átján ára. Hvað gæti pabbi svosem gert?“ „Ég er ekki hræddur um að giftingin yrði gerð ógild“, sagði ungi maðurinn. „En hvað þá? Hvað ertu þá hræddur við?“ spurði hún með talsverðum ákafa. | „En peningarnir, elskan mín“, I sagði hann. „Dorrie, ég man allt- af það, sem þú sagðir mér um hann og siðgæðishugmyndir hans. Móðir þín hrasar einu sinni. ! Hann kemst að því, eftir átta ár og skilur þegar í stað við hana — skilur við hana, án þess að taka nokkurt tillit til þín og systra þinna eða vanheilsu hennar. I Hvað heldurðu svo að hann myndi gera við þig? Hann myndi flýta sér að gleyma því, að þú hefðir nokkurn tíma verið til. Þú fengir ekki einn einasta eyri hjá honum“. „Það skiptir heldur ekki nokkru máli“, sagði hún alvar- lega. „Heldurðu að ég láti það eitthvað á mig fá?“ „Nei, en það geri ég, Dorrie". Hönd hans byrjaði aftur að strjúka mjúklega um bak henn- ar. „En ég er ekki að hugsa um þetta mín vegna, heldur eingöngu vegna þín. Því máttu treysta". Hann þagði um stund, en hélt svo áfram máli sínu: „Og hvað heldur þú svo að myndi bíða okkar? Við yrðum að hætta öllu námi — þú vegna barnsins og ég, til þess að strita fyrir fæði okk- ar og kiæðum. Og hvað gæti ég svo tekið fyrir hendur, með tveggja ára nám að baki og ekk- ert próf? Ég gæti í mesta lagi orðið undirtylla á skrifstofu, smyrjari í vefstofu eða eitthvað annað álíka veglegt“. „Það skiptir engu máli“. „Jú, einmitt. Þú veizt ekki, hvað það getur skipt óskaplega miklu máli .... Þú ert aðeins nítján ára og hefur alltaf haft fullar hendur fjár. Þú veizt ekki, hvað það er að vgnta peninga til alls. En ég veit það. Svo myndi baslið og skorturinn gersamlega hafa spillt og eyðilagt alla sam- búð okkar, áður en árið væri lið- ið“. ) „Nei .... nei .... Ekki sam- búð okkar“. „Jæja, þá segjum við það. Þá sláum við því föstu, að við mynd- um aldrei skammast eða deila á hvort annað. En hver myndu svo örlög okkar verða? Við yrðum að kúldast í einu herbergi með ó- dýru, stórrósóttu veggfóðri og borða spaghetti til miðdegisverð- ar, alla daga vikunnar, ! Ef ég sæi þig lifa slíku lífi og vissi, að það værí mér að kenna, ja....“ I Hann þagnaði stundarkorn, en lauk svo við setninguna, lágri röddu: „Þá myndi ég líftryggja mig, þegar í stað og kasta mér svo fyrir einhverja bifreiðina, að því loknu“. Stúlkan var aftur farin að kjökra. Hann lokaði augunum og tal- aði dreymandi, eins og upp úr svefni: „Og ég, sem var búinn að gera svo glæsilegar framtíðar- áætlanir. Ég ætlaði að koma til New York í sumar, þar sem þú gætir svo kynnt mig fyrir föður þínum og eftir prófin hefðum við svo gift okkur, eða jafnvel strax í sumar. Svo hefðum við komið aftur hingað til bæjarins ein- hverntíma í september og tekið litla og hentuga íbúð á leigu, sem næst háskólanum“. Hún lyfti höfðinu frá brjósti hans: „Hvað er það, sem þú vilt?“ spurði hún í biðjandi spurnar- tón. „Hvers vegna ertu að segja mér þetta allt núna?“ „Ég vil bara að þú skiljir það, hversu dásamlega, hversu kon- unglega okkur hefði getað liðið“. > „Já, heldurðu að ég skilji það ekki?“ | Rödd hennar var ekkaþrungin ' og sársaukafull. „En ég er með barni og búin að ganga með í tvo mánuði“. Beta ðitla Beta litla fór út til hennar, en þá sparkaði Skrauta, kýrin hennar og rótaði moldinni til Betu. Skrauta vissi þá líka, að hún hafði verið óhlýðin mömmu sinni og með því verið crsök í veikindum hennar. Ó, hve þetta var allt hræðilegt! Beta þorði ekki að fara aftur inn. Nei, hún varð að fara langt í burtu. Svo hljóp hún í áttina til skógar, og innan skamms var hún komin að skógarjaðrinum. En hve allt var eyðilegt og tómlegt. Ef hún mætti nú einhverju villidýri. Hún hafði nefnilega nýlega lesið um úlf, sem ráðizt hafði á litla stúlku. Hvað er þetta? Það skrjáfaði og brakaði inni í runnunum. „Guð minn góður hjálpi mér!“ hrópaði Beta litla. En þá minntist hún óhlýðni sinnar. Guð myndi víst ekki hjálpa henni, sem hefði verið móður sinni svo vond. Nú heyrði hún hræðilegt ýlfur. Beta var svo skelfd, að hún hljóðaði hátt og vaknaði. Mamma hennar stóð við rúmið. „Hvað er að þér, barn. Ertu veik? Þú hljóðaðir svo mikið.“ , Beta vafði handleggjunum um háls mömmu sinnar, og bað hana um að fyrirgefa sér, en svo fór hún að gráta. Og síðan fékk mamma hennar að heyra drauminn, i TIZKULITIR Rautt Svart Ennfremur Nælon sntin UNDIRFATNAÐUR ATH. Fjölbreyttasta undirfatnaðar úrval á landinu. Sérstakar stærðir fyrir háar og grannar stúlkur, einnig frúarstærðir. MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 c MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 ft RENNIBEKKI útvegum við með stuttum fyrirvara frá Bandaríkjunum, ■ Bretlandi eða Þýzkalandi. * m m Sýnishorn fyrirliggjandi 6.mSW§0MHM! I BaaMgsMiwi ii i iii Hn—iyiaar' Grjótagötu 7 — Sími 3573—52S6 Landformann og nokkra vana beitoingamenn vantar okkur strax. Uppl. í síma 9165,. Stefnir h.f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.