Morgunblaðið - 13.05.1956, Page 10

Morgunblaðið - 13.05.1956, Page 10
10 MORGUNBLABIB Sunnudagur 13. maí 1954 Gluggatjöldum ■ ■■ V ■ Mikið úrval af allskonar Poplin KÁPUM RIFSKÁPUM Corrjroy KÁPUM |p . Nýjasta tízka Glæsilegt úrval af SÓLFÖT SÍÐBUXUR TÍZKU LITIR B L Ú S S U R PEYSUR PILS Jóhanna Þorgrímsdóttir Minningarorð* 'Á MORGUN verður til moldar borin Jóhanna Þorgrímsdóttir, Sörlaskjóli 32, sem lézt í Landa- kotsspítala þann 30. fyrri mánað- ar, eftir stutta en stranga sjú'k- dömslegu. Jöhanna var fædd 26. apríl 1919 í Miðhlíð í Barðastranda- hi'eppi, Barðastrandasýslu, og Stóð því í blóma lífsins þegar hún skyndilega kenndi þess meins, sem leiddi hana til d'auða. Mér kemur ekki til hugar að reyna hér að lýsa tilfinningunni Sem eiginmaður, börn, foreidrar, Systkini og aðrir vinir, bera í brjósti við hið snögglega fráfall Jóhönnu, ungrar móður og ást- ríkrar konu, með fimm ung börn. Okkur setur hl.jóða þegar slí'kir atburðir gerast og eigum erfitt með að skilja þá skapadóma, en vegna okkar sjálfra, sem eftir lifum, reynum við að' halda okkur við þá trú að öll él birti upp um síðir. Jóhanna Þorgnímsdóttir var í fædd á vordegi við Breiðafjörð- | inn fagra. Hún unni sveitinni : sinni, þar sem hún hafði alist ! upp hjá ástrfkum foreldrum, Þor- j grími Ölafssyni og Jónínu Ólafs- dóttur í Miðhlíð í Barðastranda- hreppi. Fyrir vestan voru einnig flest systkini hennar og æskuvin- ^ir. — t Um líkt leyti og Jóhanna flutt- ist til! Reykjavíkur, kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Valtýr Eysteini Magnússyni og átti með honum fimm böm, það yngsta áns gamalt og það elzta 9 ára. Áður hafði hún eignast dóttur, Unni, sem ólst upp hjá systur hennar fyrir vestan. -j Jóhanna var nokkuð fáskiptin Ikona, en 'hjartahlý við nánari kynni, mjög bókhneigð var hún, jen satnt hin prýðilegasta hús- j, móðir, enda léku flest verk í hönd I um hennar. Við Ját Jóhönnu er þung og örð- ug reynsla lögð á herðar eftirlif- ;andi manni hennar, sár harmur ^kveðinn börnunum, foreldrunum /og vipum. V Enn er vor eins og þegar Jó- 1-Tiann’a fæddist í þennan heim og Veflaust vorfagurt við Breiðafjörð yeins og ávallt áður. En eigum við jjjekki að vona að einnig handan ( við þann breiða f jörð, sem við að {Viokum verðum öll ferjuð yfir, rísi ( fyrir stafni vorfagurt land. í, S. H. M. — Örvamælir Frh. af bls. 2. t«8 vér brjgðumst þessum skuld- vbindingum. l>að er margyfirlýst o{í Jikalí áréttað hér, að um er að ^Jræða varnarhandalag en ekki ár- /ásaréattitök. íslenzkir hagsmunir j'Cru, að öldur ófriðar hrjéiti ekki unn yfir íslenzkar strendur. Vér e trúum því, að namtök eins og Norður-A tlatnshaf shandahigið sé líklegi til þess að varðveita friðinn í Evrópu.“ Þessi orð standa enn í ftgHu pildi. En hversu „hollir þátttak- j|pfhir‘f erum við fslendfngar nú i þessum samtökum? Benedikf Benedikts- son sjötuguf BENEDIKT BENEDIKTSSON, bóndi á Sauðhúsum í Laxárdal vestur, verður sjötíu ára á morg- un, fæddur 14. maí 1886. Hann var fæddur á Sauðhúsum, for- eldrar hans voru hjónin Benedikt Benediktsson og Þorbjörg Jó- hannesdóttir. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum á Sauðhúsum en fór frá þeim 21 árs, ráðsmaður að Þorbergsstöðum. — Ári síðar reisti hann bú á Kambsnesi en fluttist þaðan árið 1924 að Sauð- húsum, eignarjörð sinni, og hef- ur búið þar síðan. Benedikt er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Jóhanna Stefánsdóttir, ekkja Kristjáns hreppstjóra Tómasson- ar á Þorbergsstöðum, hins kunna bændahöfðingja. Giftust þau árið 1909, áttu eina dóttur, Kristínu, húsfreyju í Reykjavík. Jóhanna andaðist árið 1911. Árið 1915 gekk hann að eiga Herdísi Guð- mundsdóttur frá Skörðum. Eiga þau hjónin þrjú börn á lífi: Hug- borgu, gifta Ólafi Jónssyni, kaup- manni á Selfossi; Egil, kvæntur færeyskri stúlku; og Guðlaugu Mundu. Þau Benedikt og Herdís hafa búið á 'Sauðhúsum á fjórða tug ára, með rausn og prýði. Sam- hent vel um alla búsýslu, enda er Herdís mesta búsýslu- og for- standskona, greind prýðilega og hagvirk. Benedikt er búmaður góður og hirðumaður hinn mesti. Hann hefur jafnan haft mjög gagnsamt bú, enda fóðrað og hirt fénað sinn prýðilega. Mjög hefur hann bætt jörð sína og marg- faldað töðufallið. Hafa þeir feðg- ar, Benedikt og Egill, sem nú tekur við öllum búsforráðum, hýst Sauðhúsin stórvel. — Reist stórt og vandað íbúðarhús úr steini og einnig fénaðarhús og hlöður. Sauðhús eru vafalaust bezt setna jörðin í Laxárdal og þótt víðar væri leitað. Benedikt er maður hæglátur og hávaðalaus, óáleitinn en þétt- ur fyrir, ef á hann er leitað. — Hann er vinsæll og traustur vin- ur vina sinna. Hefur hann helgað heimilinu störf sín, en þó ekki komizt hjá því að vera valinn í ýmsar nefndir og. trúnaðarstörf fyrir hrepp sinn, sem hér verða ekki taldar. Hann er greindur vel og athugull, fastur fyrir í skoð- unum, þótt ekki sé hann fjölorð- ur um þær, enda friðsamur. Nú um nokkur ár hefur hann átt við vanheilsu að búa, en sinnt hefur hann samt oftast hvers- dagsstörfum. Hafa þau hjónin nú selt hluta jarðarinnar í hendur Agli syni sínum, sem virðist mjög líklegur til efnisbónda. Þökkum við hjónin þeim Bene- dikt og Herdísi langa og góða kynningu og óskum afmælisbarn- inu Uangra og góðra lífdaga, heilsu góðrar og glaðrar elli. NYTT ÚRVAL IMý sending SIIMAR- KJÓLAR NÝUNGAR! PILSAEFNI úr LILLON sem aldrei þarf að straua ÁTEIKNUÐ SVUNTUEFNI úr nælon Austurstræti 10 Þorst. Þorsteinsson. vs-®<s^a<s<a<s>«<s-®-s>;»<s-a><s<s<s-:»<s-:a<s-=ft<»'®<s-a<s^a<5*a<s*«<S‘58<3-«<3-;a<2>‘5>«>5>*<5.'-s>5í-s>s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.