Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 16
Veðrið í dag; Vaxandi sunnanátt. — Allhvasst og rigning í kvöld. tírpmMa 119. tbl. — Miðvikudagur 30. maí 195fi Sjá roðann í ausfri Sá grein á blaðsíðu 9. Fjölmennur fundur á Sandi Sandi, Snæfellsnesi. SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöld var haldinn hér afar fjölmennur stjórnmálafundur, eða einn sá fjölmennasti, sem haldinn hefur verið á Sandi. Fundarstjóri var Benedikt Benediktsson, en frum- mælendur þeir Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein bankastjóri og Sigurður Ágústsson þingmaður kjördæm- ísms. Var ræðumönnum ákaft fagnað af hinum mikla fjölda fundar- manna. Bar fundurinn þess greinileg merki, að Sjálfstæðis- menn eru staðráðnir í að gera sigur Sigurðar Ágústssonar sem glæsilegastan í kosingunum. Sjálfboðaliðar ALLIR Heimdellingar eða ungl- ingar, sem kynnu að vilja að- stoða við dreifingu frá kl. 5 á morgun, eru beðnir um að láta skrá sig í skrifstofu Heimdallar, Valhöll, Suðurgötu 39, sími 7103, fyrir hádegi á morgun. f gærkvöldi efndu Sjálfstæðis- menn til fundar á Ólafsvík, — og annað kvöld verður fundur í Grundarfirði. Á báðum þessum fundum verða sömu frummæl- endur og á fundinum á Sandi. Sundrung NICOSÍU, Kýpur í gærkvöldi: — Kommúnistaflokkurinn á Kýpur lét í morgun dreifa flugritum í Nicosíu, og er í þessum ritum hvatt til þess að allir aðilar hætti ofbeldisverkum á eynni. Bretar eru hvattir til þess að hætta af- tökum og til þess að kalla Mak- arios heim tii samninga. Þessi mynd er tekin á hlaðinu að Þurranesi í Saurbæ í Daiasýslu. Seppinn á myndinni er af skozkti fjárhundakyni. Hann liggur þarna á verði um ána og lambið hennar. En ánni er ekki meira en svo gefið um þennan vörð sinni. Nokkrum sekúndum eftir að myndin var tekin, geystist hún fram og stappaði framfólunum í hlaðið. En seppi lét sér fátt um finnast og hélt varðstöðu sinni áfram. ■<é> Blaðamenn í Tivolifjörninni ,Vinstrí‘ pressan 09 ,hægri‘ tognst ó! ALAXJGARDAGSKVÖLDIÐ efna blaðamenn til fyrstu úti- skemmtunar, sem haldin er í Tívolígarðinum á þessu sumn. Er það til ágóða fyrir Menningarsjóð Blaðamannafélagsins. Verður þar margt til skemmtunar, en hápunktur skemmtunarinnar er reip- dráttur milli blaðamanna „hægri pressunnar“ og blaðamanna „vinstri pressunnar“. Dráttur sá fer fram yfir Tívolítjörnina og verður annað liðið dregið ofan í. Það verða því blaðamenn á svamli í Tívolítjörninni á laugardagskvöldið. Reynt hefur verið að vanda til þessarar ágætu útiskemmtunar. Af skemmtiatriðunum má nefna: 1) Kafli úr revyunni „Svartur á leik,“ sem sýnd var við húsfylli Aðeins einn flokkur PARÍS: Tvö frönsk blöð, „Paris Normandie" og „L’Echo de Or- an“, skýra frá því að fjórir há- skólalærðir menn í Sovétríkjun- um hafi lagt það til að leyft verði að stofna þar nýjan stjórnmála- flokk, óhóðan flokk, en að Kruc- hev hafi brugðið skjótt við og varað við því að láta slíkar til- lögur heyrast. í Austurbæjarbíói. 2) „Punktur og tvípunktur“, leikþáttur eftir Jón Snara, sérstaklega saminn fyrir þetta tækifæri. Leikstjóri er Jón Aðils. 3) Töfrabrögð og búktal B. og K. (ekki Bulganin og Krúsjeff, heldur Baldur og Konni) 4) Gamanvísur,.Hjálmar Gíslason. 5) Reipdrátturinn fyrr- nefndi. Þá varpar flugvél út gjafa- pökkum og í einum þeirra verður farseðill með flugvél til Kaup- mannahafnar. Dansað verður á palli við fjörugan undirleik. — Auðvelt verður að komast suður í Tívolígarðinn, því bílar fara frá Búnaðarfélagshúsinu á 15 mín. fresti. Bærinn nð Uppsolum í Miðfirði brennur IGÆRDAG, laust eftir hádegi, kviknaði í íbúðarhúsinu að Upp- sölum í Fremri-Torfustaðahreppi í Miðfirði og brann húsið til kaldra kola. Einnig kviknaði í fjósi og fjárhúsi búsins, af neista- fiugi frá íbúðarhúsinu, en fyrir röska framgöngu slökkviliðsins á Hvammstanga tókst að verj^ gripahúsin, þannig að mjög litlar skemmdir hlutust af. inu þó tekizt að bjarga innbúinu að mestu. GNEISTAFLUG KVEIKTI í PENINGSHÚSUNUM Vestan hvassviðri var á, og hafði neistaflugið borizt í gripa- húsin, en þau eru öll í sömu vindátt frá húsinu. Kviknaði fyrst í fjósinu, en slökkviliðinu tókst brátt að slökkva eldinn. En meðan verið var að kæfa eldinn í bæjarrústunum, hafði einnig borizt gneistaflug í fjárhúsið, en einnig í því var eldurinn fljót- lega slökktur. Er talið að stór- kostlegur bruni hefði orðið á bænum, ef slökkvilið Hvamms- tanga hefði ekki gengið eins rösk- lega fram og það gerði og haft jafn góðum slökkvitækjum á að skipa og raun var á. Talið er að kviknað hafi í torf- þekiunum af gneistum úr reyk- ELDSINS VART í ÞAKINU Það var laust upp úr hádeg- inu, sem fyrr segir, að heimafólk að Uppsölum, en ábúandinn er Lárus Bjarnason, varð vart við eld í þaki hússins, sem er torf- þak. Húsum að Uppsölum er þannig háttað, að íbúðarhúsið er timburhús, með torfveggjum á tvo vegu, ein hæð og kjallari. Hófst heimilisfólkið þegar handa um að reyna að slökkva eldinn, en að skammri stund liðinni varð því ljóst, að frekaiá hjálp þyrfti. SLÖKKVILDE) HVAMMSTANGA KVATT Á VETTVANG Var þá hringt á slökkviliðið á Hvammstanga, og um leið tók heimafólk að bjarga innanstokks munum út úr húsinu. Slökkvi- liðið kom á staðinn um einni klukkustund síðar, en þá var íbúðarhúsið brunnið. Hafði fólk-' háfnum vegna hvassviðrisins. Óhætt mun að hvetja menn til að fjölmenna á þessa stærstu og fjölbreyttustu útiskemmtun árs- ins. Það er ekki á hverjum degi, sem Reykvíkingar fá tækifæri til að sjá jafn pólitískan reipdrátt og fara mun fram á laugardags- kvöldið. Það er ekkert grín að láta pólitíska andstæðinga draga sig í ískalda tjörn fyrir kosning- ar. Það verða átök, „sem segja sex“! _________________ Akranesi, 24. maí. BÆJARTOGARARNIR komu í gærmorgun af Grænlandsmiðum. Hafði Bjarni Ólafsson 310 lestir og var meginhlutinn karfi. en Akurey landar aflanum í Reykja- vík og var hún með fullfermi. Trillubátarnir hafa róið héð- an undanfarna daga og fengið frá 500—900 kg. í róðri. 6 trillur róa með línu, hinar eru með handfæri. — Oddur. Kjósendur Sjólfslæðisilokks- ins, nthugið hvort þið eruð n kjörskrú KJÖRSKRÁ liggur frammi á kosningaskrifstofunni í Von- arstræti 4 (húsi V.R.) III. hæS. Skrifstofan er opin kl. 10—10 daglega. — Símar 81860 — 7574. Umdæmisfulltrúar eru hvattir til að fylgjast vel með, að allir kjósendur flokks- ins séu á kjörskrá. ATIIUGIÐ, AÐ KÆRUFRESTUR ER TIL 3. JÚNÍ N.K. Hafrannsóknaskipin Thqfshavn. Einkaskeyti frá NTB. ¥«AÐ er nú ákveðið að fundur norrænna hafrannsóknamanna verði *- haldinn í Thorshavn í Færeyjum 20.—22. júní n.k. Hefur þessi staður verið valinn með tilliti til þess að Færeyingar hefja nú þátttöku í hafrannsóknum með varðskipinu Ternan. Tíminn slæi öll sín fyrri met í óheiðurlegum múlflutningi Leggur prestinum i Ólafsvik orð / munn sem hann hefur aldrei mælt IGÆR birtir Tírninn rosafrétt á útsíðu af fundum Hræðslu- bandalagsins á Snæfellsnesi. Segir þar að auk frum- mælenda hafi séra Magnús Guðmundsson í Ólafsvík tekið til máls. Segir í fréttinni að séra Magnús hafi sagt, að hann hafi á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins reynt að hafa áhrif á stefnuyfirlýsingu fundarins í utanríkismálum, en „VERIÐ OFURLIÐI BORINN í UTANRÍKISMÁLANEFND FLOKKS ÞINGSINS". ★ ★ ★ Hér flæðir lygin svo gersamlega yfir alla bakka að óhjá- kvæmilegt er að bera tilbúninginn til baka. Er þá þar fyrst til að taka að séra Magnús Guðmundsson var alls ekki fulltrúi á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og sat þar af leið- andi alls ekki í utanríkismálanefnd fundarins, enda var séra Magnús alls ekki staddur í Reykjavík, þegar fundur- inn var haldinn. ★ ★ ★ Það er út af fyrir sig þótt Tíminn hælist af lélegum fundum Hræðslubandalagsins víða um land, en það gengur út yfir þegar hann hreinlega lýgur upp frásögnum og legg- ur í munn mætra og nafnkenndra manna. Það er ekki nóg að þau ummæli, sem höfð eru eftir séra Magnúsi á fundin- um í Ólafsvík, séu hreinn tilbúningur, heldur er öll frá- sögn blaðsins af ræðu séra Magnúsar rangsnúin og öfugt túlkuö. ★ ★ ★ Hér hefur því Tíminn slegið öll fyrri met sín í óheiðav- legri blaðamennsku, enda mun nú örvænting þeirra vera orðin slík að þeir kunna ekki lengur að greina sannleika frá uppspuna. Á fundi hafrannsóknaráðsins, sem haldinn var í Charlottenlund í Danmörku fyrir nokkru, kom það í ljós, að engir aðiljar sem vinna að síldararannsóknum gátu starfað á svæðinu við Færeyjar. TERNAN Þess vegna tók færeyska lands- stjórnin þá ákvörðun að láta færeyska varðskipið „Ternan“ framkvæma athuganir umhverfis eyjarnar. Forstöðumaður rann- sóknanna verður færeyski haf- fræðingurinn J. S. Joensen. FUNDURINN í THORSHAVN Þegar þetta fréttist var ákveð- ið að fundur haffræðinga yrði haldinn í Thorshavn. Koma þá saman þar í höfninni norska skipið C. O. Sars, danska skipið Dana, íslenzka skipið Ægir og Ternan. Barn fellur úl um glugga á fjórðu hæð LAUST eftir kl. 9 í gærkvöldl vildi það hörmulega slys til að lítil stúlka féll út um eldhús- glugga á fjórðu hæð og kom niður á steyptan steinpall fyr- ir framan niðurgrafnar kjall. aradyr. Slasaðist hún mjög mikið. Var hún þegar ílutt { sjúkrabíl á slysavarstofuna, en þaðan var hún síðan flutt á Landsspítalann. Litla stúlkan sem licitir Una Engilbertsdótt- ir, á heima i Eskihlíð 18, og var þetta i því húsl sem slysið vildi til. Mun hún aðallegft hafa slasazt á höföL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.