Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. júlí 1956
trpiitM&lriib
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavlk
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600
Áskriftargjald kr. 25,00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1,50 eintakið
Stjórnormyndnn, sem er
einsfæð svik við kjósendnr
HRÆÐSLUBANDALAGIÐ,
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn, hafa kastað ten-
ingnum og ákveðið að mynda
ríkisstjórn með kommúnistum.
Sú staðreynd lá endanlega fyrir
í gær. Svokölluð vinstri stjórn,
er byggist á oddaaðstöðu komm-
únista, mun taka við völdum ein-
hvern næstu daga.
Holur grundvcllur
Grundvöllur þessarar ríkis-
stjórnar er holur og veikur.
Hann er byggður á freklegum
svikum Framsóknarflokksins
og Alþýðuflokksins við kjós-
endur sína. Báðir lýstu þessir
flokkar því yfir fyrir kosning-
arnar, að „allt samstarf við
kommúnista væri útilokað“.
Þannig orðaði Haraldur Guð-
mundsson það í útvarpsum-
ræðunum, sem fram fóru fyr-
ir kosningarnar,
Aðalmálgagn Framsóknar-
flokksins komst einnig að orði á
þessa leið þrem dögum fyrir kosn
ingarnar:
„Hvergi vestan við járntjald í
Evrópu, Asíu eða Afríku, hefur
verið mynduð stjórn með þátt-
töku kommúnista síðustu 10 ár-
in. Því veldur Moskvu þjónusta
þeirra. Þetta gildir ekki síður
hér. Það breytir ekki neitt þess-
ari staðreynd, þótt kommúnistar
flaggi með þeim Finnboga, Harini
bal og Alfreð. Þeir eru ekkert
annað en áhrifalausir bandingjar
lcommúnista. Með Alþýðubanda-
laginu verður því ekki hægt að
mynda starfhæfa stjórn“.
Þannig sóru Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn fyrir alla sam-
vinnu við kommúnista fyrir
kosningarnar.
Hvað hefur breytzt?
Hvað hefur valdið því, að
Framsóknarfldíckurinn og Al-
þýðuflokkurinn hafa svikið kjós-
endur sína svona herfilega?
Hafa einhver ný viðhorf skap-
azt, sem gera kommúnista sam-
starfshæfari nú en þeir voru fyr-
ir 24. júní?
Engin ný viðhorf hafa skapazt
í þessum efnum. Það eitt hefur
gerzt, að Hræðslubandalagið
fékk ekki þingmeirihluta. Þvert
á móti hríðtapaði það atkvæðum
og fékk aðeins þriðjung kjósenda
í landinu til stuðnings við sig.
Þegar sú staðreynd lá íyrir, varð-
aði þessa flokka ekkert um fyrri
svardaga, ekkert um öll gífur-
yrði sín, um það að kommúnistar
væru ekki samstarfshæfir.
Ekki farsæl byrjun
íslendingum er það áreiðan-
lega fullljóst, að hið nýja stjórn-
arsamstarf fer ekki farsællega af
ítað. Undanfari þess er sá, að
flokkarnir, sem að því standa
hafa svarið hver fyrir aðra
frammi fyrir alþjóð, en síðan
skriðið saman.
Framsókn og Alþýðuflokk-
urinn hafa mjög haldið því
fram eftir kosningarnar, að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi
staðið í samningamakki við
kommúnista um myndun rík-
isstjórnar. En þessi staðhæf-
ing hefur við engin rök að
styðjast. Sjálfstæðismenn hafa
ekki leitað neinnar samvinnu
við kommúnista, þrátt fyrir
það, að þeir gáfu engar yfirlýs
ingar fyrir kosningar um það,
með hverjum þeir myndu
starfa að þeim loknum.
Taka við góðum arfi
Þeir flokkar, sem nú taka við
stjórn landsins, taka við góðum
arfi frá undanfarandi ríkisstjórn
um, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ýmist haft forystu í eða
verið hið leiðandi afl í. Almenn-
ari velmegun ríkir nú á íslandi
en nokkru sinni fyrr. Stórfelld
uppbygging stendur yíir í þjóð-
félaginu. Glæsileg raforkuver eru
í byggingu og raforkutaugar eru
lagðar út um byggðir landsins.
Stórfelldar umbætur í húsnæðis-
málum standa yfir og þjóðin á
nú betri og fullkomnari fram-
leiðslutæki til þess að bjarga sér
með til lands og sjávar en
nokkru sinni fyrr.
Þetta er ávöxturinn af
starfi Sjáifstæðisflokksins. —
Fyrir ötula baráttu Sjálfstæð-
ismanna, er hið íslenzka þjóð-
félag nú statt mitt í hraðfara
þróun og uppbyggingu.
Sjálfstæðisflokkurinn mun
berjast gegn því, að hinum
lánlausu glundroðaflokkum
takist að stöðva þessa þróun.
S j álf stæðisf lokkurin
öflugri en nokkru
sinni fyrr
Sjálfstæðisflokkurinn er í dag
öflugri en nokkru sinni fyrr. —
Hann bætti við sig um 6000 at-
kvæðum í síðustu kosningum, á
sama tíma, sem flokkar Hræðslu-
bandalagsins töpuðu þúsund at-
kvæðum og fengu ekkert af kjós-
endafjölguninni.
Það mun ekki saka Sjálfstæðis-
flokkinn þótt hann verði nú um
skeið í stjórnarandstöðu. Sjálf-
stæðismenn standa saman í órofa
fylkingu og herða nú baráttu
sína fyrir hinni frjálslyndu og
víðsýnu framkvæmdastefnu sinni.
Nær hclmingur þjóðarinnar
fylkir sér um þessa stefnu í
dag. Og því fólki mun stöðugt
fjölga, sem metur meira
stefnufasta baráttu fyrir stór-
um hugsjónamálum og hags-
munum alþjóðar, en tæki-
færissinnað valdabrask og
samvinna við kommúnista,
þvert ofan í svardaga og yfir-
lýsingar fyrir kosningar.
135 Fiat-
A Ákvörðun hefur nú verið tek-
in um það að flytja inn á næst-
unni 135 Fiat-fólksbila frá
ítalíu. 35 þessara bíla verður
úthlutað til fatlaðra og lam-
aðra.
A Ákvörðun um innflutning
Fiat-bílanna er tekin í sam-
ræmi við viðskiptasamninga
UTAN UR HEIMI
„Lífs-jurtina“ kalla Kín
verjar „ginseng-jurtina“. í öllum
betri lyfjabúðum í Austurlönd-
um var til skamms tíma hægt að
fá keypt seyði af þessari undra-
jurt, því að það er sagt lækna
allt. Kínverjar nota það jafnt við
meltingartruflunum og hitasótt,
malariu og gigt. Þeir trúa jafn-
vel, að drekki menn mikið af
þessum vökva, við tölum nú ekki
um, ef menn borða jurtina sjálfa,
þá hijóti þeir eilífa fegurð, ung-
dóm og heilsu. En enginn borð
ar sennilega nógu mikið af þessu
öndvegis lyfi, því að Kínverjarnir
eldast eins og hverjar aðrar þjóð-
ir, og þeir fara að lokum undir
græna torfu, eins og öll önnur
jarðnesk börn.
Vestrænir læknar segj-
ast enga sérstaka lækningaeigin-
leika finna í „ginseng-jurtinni",
en Kínverjarnir eru samt sem
áður á öðru máli, og eftirspurn
fer vaxandi. Neyzla jurtarinnar
er komin á það stig, að útlit er
fyrir að henni verði útrýmt á
næstunni. Hvar, sem angi sprett-
ur upp úr jörðinni — og maður
kemst yfir hann — þá er „Lífs-
ins-jurtin“ etin með góðri lyst.
Áður fyrr óx jurt þessi í
öllu Kína. Hún óx allt sunnan
frá Nepal norður í Manchuriu —
bæði villt og ræktuð. í Kóreu
hefur hún einnig vaxið, en nýaf-
staðin styrjöld þar, sem hafði
mikið mannfall í för með sér,
kemur í veg fyrir að hægt sé að
gera nokkurn samanburð á aldri
þeirra, sem neyttu undralyfsins
þar — og annarra, sem ekki náðu
til plöntunnar.
Í
litið er, að jurt þessi
hafi þrifizt svo að segja óbreytt
allt frá því á tertertímabilinu,
og hefur hún lifað miklar nátt-
úruhamfarir og loftslagsbreyting-
ar. Ber hún blóm og rauðleit ber,
en það skiptir í sjálfu sér engu
máli, því að menn leggja sér
yfirleitt ekki annað en rótina til
munns. Er hún frekar löng og
digur — og hefur engar trefjar.
Tvo anga hefur hún samt, sinn
til hvorrar hliðar — og í fljótu
bragði líkist hún mannsmynd.
Stólpinn gæti verið búkurinn, og
trefjarnar hendurnar. Það má
því kannske segja, að ekkert
sé undarlegt, þó að Kínverjarnir
hafi slíka tröllatrú á þessari
„mannsmynd“, sem lifað hefur
frá því á tertiertímabilinu.
E n í alvöru talað, þá
eru það sennilega engar ýkjur,
að „ginseng-jurtin“ hafi einhver
styrkjandi áhrif. í sumum héruð-
um Kína eru margir menn, sem
neyta vökvans daglega, og bera
þeir menn af öðrum, þrátt fyrir
allt, sem okkar læknar segja um
þetta. Álitið er, að ekki sé sama
í hvaða jarðvegi jurtin vex, ef
hún á að öðlast fullt gildi til
neyzlu. Það er til dæmis ekki
ólíklegt, að jarðvegurinn um-
hverfis Yalu-fljótið hafi að inni-
„Jurtarleitin er atvinnugrein, sem synirnir hljóta í arf frá föðurnum.
Þannig ráfa þeir einmana ár eftir ár um þykkni frumskógarins —
í þeirri von að finna ef til vill „Lífsins-jurtina".
bílar væntanlegir
milli landanna. Verða þetta
bæði fjögurra og sex manna
bílar. Þessi tegund bifreiða
hefur aflað sér vinsælda hér
á landi á síðustu árum.
ýr 100 hinna innfluttu fólks-
bifreiða verður úthlutað á
venjulegan hátt og hefur inn-
flutningsskriístofan málið nú
til athugunar.
■k En 35 bílum til viðbótar verð-
ur úthlutað samkvæmt tillög-
um félags lamaðra og fatlaðra.
Með því er að nokkru leyti
bætt úr erfiðleikum fatlaðs
fólks, sem hefur meiri þörf en
flestir aðrir fyrir farartæki til
ferða sinna í vinnu o. fl.
Rót „ginseng-jurtarinnar" er sem
mannsmynd — og hefur ekki
breytt um útlit frá því á
Tertiertimabilinu.
halda einhver geislavirk (radio-
aktiv) efni, en einmitt á þessum
slóðum eru dæmin um mátt jurt-
arinnar mörg.
Hinn „menntaði heirnur" hefur
margsinnis rekizt á það hjá frum-
stæðurn þjóðflokkum, að ýmsar
jurtir eru notaðar við hinum og
þessum kvillum og sjúkdómum.
Notkun þessara jurta er yfirleitt
byggð á aldalangri reynslu, og
oft hafa lyf hinna frumstæðu
orðið illa komnum „menningar-
frömuðum“ til bjargar. Það er
þess vegna ekki ólíklegt, að ein-
mitt hin kínverska „ginseng-
jurt“ hafi yfir undraverðum
lækningarmætti að búa.
Enda hafa ICínverjar með
notkun hennar í aldaraðir talið
sé» trú um að einhver guðlegur
máttur héldi verndarhendi sinni
yfir þeim, er svo hamingjusamir
hafa orðið að fá að bergja á þess-
um lífsins elexír.
J á, eftirspurnin er mikil
eftir „lífsins-j urtinni" — og hin
síðari ár hefur reynzt æ erfiðara
að ná í hana. Lyfjabúðaeigendur
yrðu ekki ánægðari yfir því að
vinna nýjan Chevrolet í happ-
drætti einhvers átthagafélags, en
þeir yrðu við það að fá nokkra
dropa af vökvanum margrómaða.
Biðraðir yrðu þá sennilega langar
— og margir menn færu að líta
bjartari augum mót framtíðinni.
„Ginseng-leitarmenn“ eru sem
sé í Kína sérstök atvinnustétt.
Inn í ógnir og hættur myrkviðs
frumskógarins voga þeir sér með
staf í hendi, poka á baki (til
þess að safna jurtinni í) og ein-
kennilega kollu á höfði, sem er
búin til úr trjáberki. Þetta er
einkennisbúningur „leitarmann-
anna“, og þessa atvinnugrein erfa
synir eftir feður — mann fram
af manni.
Finni þeir litla „ginseng
jurt“ merkja þeir staðinn — og
koma svo nokkrum árum seinna
til þess að vitja jurtarinnar. Hún
er lengi að vaxa upp, og menn
eru þolinmóðir að bíða, vegna
þess hve jurtin er orðin vand-
fundin, þrátt fyrir það, að þeir
eigi alltaf á hættu að hún hverfi.
Sú er nefnilega trú manna, að
jurtin geti breytt sér í líki ein-
hvers dýrs, ef hana finnur ekki
sá, sem til þess er útvalinn af
forsjóninni. Það er þess vegna
fyrsta verk „leitarmanna", ef
þeir finna jurtina, að leggjast á
grúfu yfir hana og ákalla alla
helga anda — og biðja þá að
láta ekki „Lífsins-jurtina“ hverfa
áður en þeir hafa náð rótinni upp
—• og fullyrða þeir jaffian, að þeir
leiti af alhug og hjartagæzku —
og góðsemi við náungann, en ekki
til þess að auðga sjálfa sig.