Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 12
12 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. júlí 1956 ííf menn i sipnum Framhaldssagan 46 hæfni. Þegar síðasti elskhugi hennar var meira eða minna ylirborðskenndur að eðlisfari, ákvað hún, þar sem hún var hrædd við að vanrækja sitt eigið sálarlíf, að afla sér róttækra lækn isaðgerða. Hún ætlaði að bindast miklum hæfileikamanni. Og það átti að vera ég. En nú er moð- urinn hennar jú kominn á vett- vang.“ Þau'gengu eftir veginum, sem lá niður til stöðvarinnar. Næsti vagn var einmitt alveg nýkom- inn. Fyrst allra farþeganna klöngraðist frú Casparius út úr þessu kassalagaða farartæki. Því næst stakk hún höndunum í buxnavasana og brokkaði ákveð- in í fasi áleiðis til gistihússins. Á eftir henni kom Lenz frá Köln, stynjandi og olásandi, vopn aður tvennum skíðum. Hin ljósa þokkagyðja frá Bremen kom auga á þau Hage- dorn og Hilde, lét brúnit síga og kallaði: — „Hallo doktor. Hvern- ig gengur það með iitlu kettina yðar? Berið þeim beztu ltveðjur mínar“. Hún stikaði áfram löngum skrefum og hvarf inn í gistihúsið. Hildegard gekk þegjandi við hliðina á Fritz. Það var fyrst er þau höfðu gengið fyrir beygju á veginum og voru orðin ein, að hún spurði: — „Vildi þessi óvið- feldna manneskja einnig láta bjarga sér?“ Hjartað tók snoggan kipp í brjósti Hagedorns. — Hún er þeg ar orðin afbrýðissöm — hugsaði hann með sér, hræröur. Svo sagði hann: — „Nei, hún hafði önnur áform. Hún hélt þv. fram að við værum ung, blómstrandi og hraust. Slíkt og þvílíkt legði manni skyldur á herðar." „Og hvað vildi hún með kett- ina yðar?“ „Fyrir nokkrum dögum var bankað á dyrnar hjá mér. Ég kallaði: — Kom inn — vegna þess að ég hélt að þetta væri Eduard. En það var þá frú Casparius. Hún lagðist niður á fínu, persnesku ábreiðuna og lék sér við kettl- ingana. Seinna kom svo Eduard og þá fór hún. Hún heitir Hortense." „Það var nú nokkuð mikið af svo góðu“, sagði Hildegard. — „Ég held að þér þyrftuð að hafa einhvern til þess að líta eftir yður, hr. doktor. Ella gerið þér allt of mörg heimskupör." Hann kinkaði kolli örvænting- arfullur: — „Svona getur það a. m. k. ekki haldið áfram að ganga. Það er að segja: Eduard gætir mín jú.“ „Eduard?“ spurði hún hæðnis- lega. — „Eduard er ekki nógu strangur. Auk þess er það ekki verkefni fyrir kailmann. „Þér hafið algerlega á réttu að standa", sagði hann. — „En hver ætti þá að gera það?“ „Þér gætuð t.d. reynt einu sinni að auglýsa", stakk hún upp á. — „Barnakona óskast....“ „Barnfóstra", leiðrétti hann samvizkusamlega. — „Ókeypis fæði og húsnæði. Góð, hugulsöm meðferð." „Já“, sagði hún. — „Minnst sjötíu ára gömul. Skilyrði: Skal bera vopn.“ Röddin var reiðiieg. Hún gekk út af veginum og kaf aði yfir skjannahvíta fannbreið- una. Honum tókst rétt með erfiðis- munum að fylgja henni eftir. Einu sinni leit hún við: „Hætt- ið þér að hlæja“, hrópaði hún yf- ir sig reið. „Annar eins flagari og þér eruð“. Svo hljóp hún í æsingi miklum áfram. „Viljið þér gera svo vel og nema staðar undir eins“, skipaði hann. Á sama andartaki datt hún áfram í snjónum og sökk alveg uod að mjöðmum. Fyrst varð hun óttaslegin á svipinn, en svo tók hún að sprikla og berjast um af öllum lífs og sálar kröftum. En hún sökk alltaf dýpra og dýpra í snjóinn. Það var engu líkara en hún ætlaði að hverfa með öllu af yfirborði jarðar. Hagedorn flýtti sér henni til hjálpar: „Takið í hendina á mér“, sagði hann áhyggjufullur. „Ég skal áreiðanlega draga yður upp“; „Þér skuluð bara reyna það. Ég er ekki ein af þeim, sem læt- ur bjarga sér“. Það voru tár í augunum á henni. Nú gat ekkert aftrað honum lengur. Hann laut niður, greip í báðar hendur hennar, dró hana upp úr fönninni, faðmaði hana að sér og kyssti hana beint á munninn. Nokkru síðar sagði hún: „Þorp arinn þinn. Dóninn þinn. Þrjót- urinn þinn. Kvennabósinn þinn“. Og svo launaði hún honum koss- in, svo að hann mátti vel við una. Og allan tímann lét hún litlu. krepptu hnefana ganga á öxlun- um á honum. Síðar rétti hún úr höndunum. Svo lokaði hún hægt augunum. Það héngu stöðugt lítil tár í löngu, dökku augnahárun- um. „Nú, hvernig var það svo?“, spurði Schulze, þegar þau komu aftur. „Því er erfitt að lýsa“, sagði Hagedorn. „Já, já“, sagði Kesselhuth af skilningi. „Þessir skriðjöklar. út- sýni og fannbreiðui alls staðar. SálarramisókRðfélag íslands heldur aðalfund í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 23. júlí kl. 8,30 e.h. — Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Stutt erindi. 3. Skýrt frá breytingu á húsnæðismálum félagsins. 4. Heimsókn skozka miðilsins frú Jean Thompson til S.R.F.Í. Frúin kemur hingað 10. ágúst n.k. og starfar fyrir félagið í fullan mánuð. Á fundinum verður sagt frá allri tilhögun starfsins, og þar getur félagsfólk sótt um einkafundi. Stjórnin. KAUPSTEFNAN I LEIPZIG Kaupstefnuskírteini, sem jafngilda vegabréfsáritun afgreiðir: Kaupstefnan—Reykjavík, Pósthússtræti 13 Símar: 1576 og 2564. LEIPZIGER MESSEAMT • LEIPZIG C1 HAINSTRASSE 18 Breiðdælingar Reykjavík Breiðdælingafélagið í Reykjavík efnir til hópferðar n. k. sunnudag. Farið verður um Þingvöll, Uxahryggi, Lunda reykjadal, Bæjarsveit, Hálsasveit um Húsafellsskóg og til baka aftur um Hvalfjörð. Lagt verður af stað kl. 8,30 f.h. Farseðlar verða seldir hjá Ragnari Sigurðssyni í Málning og Járnvörur, Laugaveg 23, Veitingastofunni Lokastíg 28, hjá Sigmari Péturssyni sími 82745 og Rós- mundi Runólfssyni, Melgerði 18, sími 81609. — Farmiðinn kostar 150 krónur, innifalinn hádegisverður og einu sinni kaffi. Kunnugur maður verður fararstjóri. Stjórnin. J ; f■ ■ BAMIX ódýra hrærivélin létt, handhæg, hrærir, þeytir, malar kaffi, kvarnar möndlur, sker grænmeti, ís o. fl. Heildsölubirgðir: Vélar & Verkfæri h.f. Sími 2760 — Bókhlöðustíg 11 EKKERT KALT BORÐ AN VÉGÉ MARKÚS Eftir Ed Dodd we CANT TAKE NOU TO TME GOaiULA FOR8ST MR. TRAIL, FOR THE QOLDCN ON6 MU9T NOT BE MOVED f R«HT NOW.. 1) — Við getum ekki fylgt þér gegnum Gorilla-skóginn vegna þess, að við getum ekki fært Gullbrá með okkur.... 2) .... hún er nefnilega kom- in að burði. 3) — En viljið þið karlmenn- irnir ekki fylgja okkur og láta dauða. konurnara gæta kýrinnar. — Nei, mennimir verða að vera hér vegna „Blettótta 4) — Er það hlébarði? — Já og mjög hættulegur hlé- barði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.