Morgunblaðið - 31.07.1956, Qupperneq 11
Þriðjudagur 31. júlí 1956
MORCUNBLAÐIE
11
E.
Kaffibrennsla
O. JOHNSON & KAABER HF.
Ef þér óskið
að gera yður
dagamun
Minningarorð
„SKJÓTT hefur sól brugðið
oumri“. Svo kvað Jónas forðum
um vin sin látinn. Þessi orð komu
mér í hug, er mér barst andláts-
fregn mágkonu minnar, Önnu
Elimundardóttur.
Þótt öllum mönnum sé ljós sú
vissa að eitt sinn skal hver
deyja, þá kemur þessi gestur á-
vallt svo óvænt með ýmsum hætti
á öllum aldursskeiðum einstak-
linganna. Þegar menn eru á bezta
aldri og vonir þeirra og þrár
stefna til framtíðarinnar, er það
svo öröugt að sætta sig við að
lífi þeirra sé lokið og hafi orðið
svo skammvinnt.
Anna var stödd á sumri ævi
sinnar, þegar hún var köiluð burt
úr þessu lífi, og því er eins og
bitran hafi brugðizt um miðjan
dag. Hversu gott er það þá ekki,
að vona og trúa því, að hún haíi
vorið kölluð til „meira að starfa
Guðs um geim“.
Anna var fædd á Hellissandi
18. nóvember 1904. Foreldrar
hennar voru Elimundur Ög-
mundsson, er lézt fyrir tveim ár-
um, og kona hans Sigurlaug Cýr-
usdóttir, sem komin er á miðian
áttræðisaldur.
Þann 18. maí 1920 giftist Anna
eftirlifandi manni sínum, Haraldi
Erlendssyni frá Ketilvöllum í
Laugardal. Þau reistu heimili sitt
að Völlum á Seltjarnarnesi og
hafa búið þar síðan, Þau eign-
uðust tvö börn, Erlend Grétar,
er stundar heimspekinám, kvænt
ur Helgu Helgadóttur, og Elínu
Sigurlaugu, sem vinnur í Útvegs-
banka íslands h.f.
Anna var fríð kona sýnum,
björt yfirliíum og bauð af sér
góðan þokka. Hún var hversdags-
lega dul og hlédræg og undi því
bezt að vinna sitt verk í kyrrþey.
Að hverju sem hún gekk, sýndi
hún trúmennsku og þá alúð, sem
jafnan einkenndi öll hennar störf.
í fjölmenni var hún hljóðlát og
hafði sig lítt í frammi, en í vina-
hópi var hún létt í máli og glað-
vær. Hverjum þeim, sem að garði
bar, veitti hún góðan beina og
gerði glaða stund. Hún var
rík af skilningi og hjálpsemi
hennar var látin í té af örlátri
hendi, sem væri hún ósjálfráð.
Fyrir tveim árum fann Anna
fyrst til þess sjúkdóms, er nú
hefur leitt hana til dauða. Þá
óraði engan fyrir því, að þannig
Ódýrt
PERMANENT
Hið gamla, góða, kemíska
permanent, seljum við með-
an birgðir endast, á aðeins
kr. 110.00.
Hárgreiðslustofan PERLA
Vitastíg 18A, sími 4146.
STRÍMfBERG
RAFMÓTORAR
Vatns og rykþcttir
’/í — % — Vt — %
1 — lVa — 2 — 3 — 4 y2
Ji/2 — IVjl — 10 — 15 ha.
jafnstraumsmótorar % ha.
LUDVIG STOKR & CO.
myndi fara. Þegar svo var komið,
að kraftarnir voru að þverra,,
mætti hún því sem verða vildi
með undraverðri rósemi og
djörfung.
Vonbrigða hennar varð eigi vart
og öllum þeim, sem komu að
sjúkrabeði henar, tók hún með
hlýju brosi og æðrulausum orð-
um meðan hún mátti mæla. Hún
lézt í sjúkvahúsi Hvitabandsins
að kvöldi dags 22. þ.m. og var
útför hennar gerð frá Fossvogs-
kirkju í gær.
Heimili sínu vann Anna allt
sem hún mátti, og voru þau hjón-
in í fyllsta máta samhent um að
gera það að helgum reit. Þau
bjuggu í haginn fyrir börnin sín
svo sem bezt var á lcosið og að-
stæður allar frekast leyfðu hverju
sinni. Vinum sínum tóku þau
opnum örmum, enda var gott þar
að dvelja. Hógværð og umhyggja
mótuðu venjur og hagi þess heim-
ilis og þaðan fór hver og einn
ríkari enn hann kom.
Nú hefur skyggt fyrir ham-
ingjusól heimilisins á Völlum, en
um auðan sess húsmóðurinnar
hópast hugljúfar minningar lið-
inna stunda rneð gleði sína og
mildi. Þeim, er nú harma horf-
inn ástvin, mun það mest hugg-
un að eiga slíkar minningar í rík-
um mæli. Það var hamigja
þeirra, að eiga slíka dóttur, konu,
móður, systur og vin, sem Anna
var, — og það er einnig gæfa
þeirra nú, að eiga svo heiðríkar
minningar um allt hið liðna, ein-
mitt nú, þegar ævi hennar er öll.
Guðjón Halldórsson.
Framhald af bls. 10.
mótspyrnuna í þessum leik og
reyndi nú fyrst verulega á vörn
þeirra, sem sýnilega kom á ó-
vart hinn mikli hraði úrvalsins
í byrjun leiksins og varð hún
stöðugt að vera á varðbergi og
lék því aftar en í fyrri leikjun-
um, þó vel væri fylgt eftir, þeg-
ar liðið var í sókn. Framlínan
kunni betur við að fara upp
hægramegin og náði nú ekki
jafn samfelldum sóknarsamleik
og í hinum leikjunum vegna þess
að úrvalsliðið lét þá aldrei í
friði með knöttinn, stöðvaði
framrásina oft með prýði eða
komst óvænt inn á milli og
krækti í sendingar þeirra. —
Vindurinn háði og Kússunum
sýnilega, en heildarsvipur sam-
leiksins var samt fágaður og
fallegur.
Hið styrkta „Akraneslið" komst
betur út úr þessum leik en nokk-
ur hafði þorað að láta sig dreyma
um. Ríkharður var skipuleggjar-
inn og vann geysilega allan leik-
inn, þar til skórnir fóru að
kreppa að honum og hann varð
að fara af leikvangi, er um stund-
arfjórðungur var eftir af leik, og
framlínan sviplaus á eftir.
Það var ánægjulegt að sjá hve
liðinu í heild tókst að ná stutt-
um og fallegum samleik, sem var
eina vopnið á Rússana og kom
greinilega fram, að þeir hafa
ýmislegt lært af gestunum.
Innhei'jarnir og íramverðirnir
voru sterkustu menn liðsins. —
Þórður Jónsson átti og góðan
leik, þrátt fyrir misheppnuð skot
í fyrri hálfleik. Kristinn Gunn-
laugsson var sterkasti maður
varnarinnar og kom frammistaða
hans í miðframvarðstöðunni satt
að segja á óvart, því Kristinn
hefur átt mjög misjafna leiki í
sumar. Bakvarðaparið, Ólafur og
Árni, sluppu nokkuð vel frá
leiknum, en mega báðir þakka
framvörðum sínum dyggilega að-
stoð. Helgi markvörður átti og
góðan dag og verður ekki sak-
aður um mörkin.
Þessi leikur sýndi greinilega,
að það Sterkasta sem við eigum
til að senda fram sem úrvarlslið
í dag, verður að byggja á kjarna
beztu liðsheildarinnar. — Það
eru Akurnesingar. — Það kæmi
því engum á óvart þótt aðeins
'tvær breytingar yrðu gerðar á
þessu „landsliði" og því sem leik-
ur 7. ágúst.
Hannes.
Kaeliskápur
Til sölu kæliskápur, vegna sérstakra kringnumstæðna,
sama sem nýr, 10,5 teningsfet, Crossley gerð CAF, verð
kr. 10.000.00. Tilboð merkt: Kæliskápur —3643, sendist
afgr. blaðsins.
AIR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefni.
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÖLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími 81370
Hörður Olafsson
Smiðjustíg 4. Sími 80332 og 7073.
Mólflutnmgsskrifstofa.
BA8ILE þvotlavéíarnar
hafa hlotið einróma lof allra vegna
þess hve þær eru vandaðar, ódýrar
og sterkar.
Klukkurofi slekkur á vélinni að
þvotti loknum.
Þvottatíminn aðeins 4 mínútur.
Stór og góð stillanleg vinda.
Taka6% pund af þurru taui.
Þar sem hreyfingin á vatninu þvær
þvottinn, þá slíta þær ekkert tauið.
Fást einnig með 3000 vatta suðu-
elementi.
Ársáhyrgð. Afborgunarskilmálar.
Kynnið ykkur verð og gæði.
■InkaumboS:
ÞÓRÐUR H. TEITSSON
Grettisgötu 3 — Sími 80360.