Morgunblaðið - 08.08.1956, Side 3

Morgunblaðið - 08.08.1956, Side 3
Miðvikudagur 8. ágúst 1956 MO^r.rtvnT,4Ð1Ð 3 K. S. L K. R. — Englendingar keppa á íþróttavellinum á morgun (fimmtudag) kl. 8,30. — Aðgöngumiðar seldir á morgun frá kl. 1 í aðgöngumiðasölu íþróttavallarins. — Dómari: Hannes Sigurðsson. Komið og sjáið hvernig íslandsmeisturunum Jarnast á móti hinum snjöllu ensku knatt- spyrnumönnum. Móttökunefndin. sigurmarkið yfir íslandi LEIKMENN Englands og fslands voru vart komnir inn á leik- vanginn er „God shave the Queen“ og „Ó, Guðvors lands“ hljómuðu á íþróttavellinum. 15. landsleikur íslands í knattspyrnu hófst þegar síðustu ómar þjóðsöngvanna voru að dcyja út. Fyrir- liðar skiptust á oddfánum og danski dómarinn Aksel Asmussen flautaði til leiks. Það var barist frá fyrstu til síðustu mínútu og leikurinn var mjög jafn. Það voru aðeins tvenn úrslit er til greina komu — enskur sigur eða jafntefli. Jafntefli hefði ef til vill verið réttara, því okkar framherjar komust í betri tækifæri, en enska liðið sem heild lék betur og var því vel að sigrinum komið, þó ísl. piltarnir gerðu allt til að koma í veg fyrir sigur þeirra. En brezka heimsvcldið ætti þó að geta unnið ísl. lýðveldið. Enska liðið tók leikinn í sínar hendur í byrjun, með nákvæmari leik, fallegum skiptingum og hættulegum langspyrnum ef því var að skipta. Vörnin íslenzka átti í vök að verjast og framherjarn- ir fengu lítið sem ekkert að gera. ísl. liðið náði einu og einu snöggu upphlaupi, sem aldrei urðu hættu leg þarna á fyrstu mínútunum, en Englendingarnir voru hreyf- anlegri, fljótari og ákvenari. Það var eins og mark þeirra lægi í loftinu. Og það kom er 15 mín voru af leik. Það var upp úr einni af þessum þungu sóknarlotum Eng- lendinga. Knötturinn kom fyrir markið og hægri innherji, Bates, var fljótari Helga, og sendi fram hjá honum í netið. En smám saman tók leikurinn að breytast. Það var eins og ísl. liðið væri að „komast í gang“. Það voru fyrst og fremst Sveinn og Guðjón, sem breyttu svip leiks ins. Þeim tókst hægt og hægt að ná tökum á vallarmiðjunni — að breyta vörn í sendingar til fram- herjanna, sem tóku vel við og komust oft og einatt í góð tæki- færi. Þannig bjargaði enski mark- vörðurinn, Pinner, snilldarlega skoti hnitmiðuðu frá Ríkharði og öðru frá Þórði. Augnablik urðu í þessum síðari hluta mörg spennandi þegar framherjar okkar geyst- ust fram og tókst að komast ýmist með hröðum einleik eða með laglegum skiptingum í gegnum ensku vörnina. Það hékk oft á bláþræði að „kan- on“skotin ryðu af — en það var aðeins á bláþræði sem það hékk. Þau komu ekki. En oft urðu Englendingar að bjarga í horn og staðan í hornum breyttist úr 5 spyrnum gegn 1 Englendingum í vil á fyrsta stundarf jórðunginum í 6 spyrn >{ir gegn 5 íslendingum í vil það sem- eftir var hálfleiks. Það gefur góða hugmynd um gang leiksins. A 37. mín hefur Ríkharður upp- hlaup á miðjum vallarhelmirigi íslendinga. Hann leikur langt fram gefur vel út á vinstri og Þórðar Jónssonar, sem nýtti send inguna mjög fallega, lék af yfiv vegum nær marki og „dundraði" undir þverslána og inn án þess að enski markvörðurinn fengi nokkuð að gert. Nokkru seinna átti Þórður ann að svipað upphlaup, en spyrnan fór framhjá. Þannig lauk hálf- leiknum — 1:1. Hefði vel mátt vera 2:1 fyrir ísland ef tækifær- in, sem búið var að skapa, hefðu verið betur nýtt. Einkum var Donni mistækur. í síðari hálfleik var leikurinn framan af jafn. Það var skipzt á upphlaupum. Englendingar áttu það fyrsta. Lewis vinstri útherji skaut hátt yfir. Síðan komu all- mörg ísl. en án nokkurrar hættu fyrir Englendinga. En hraðinn í sókninni var yíirleitt alltaf meiri hjá okkar mönmam. Á svipstundu breyttu þeir stundum vörn í sókn. Á 10. mín. síð. hálfleiks geröist slíkt. Eftir fallegt upp hlaup komst komst Ríkharður framhjá enska markverðinum er hljóp út og tókst úr erfiðri stöðu að senda fram hjá bak- verði og í netið. — 2:1 fyrir ísland. Þetta leit vel út. Það var ekki liðin minúta er Eng lendingum tókst að leika í gegn á miðjunni — Helgi hljóp út til að grípa inn í leikinn, en Laybourne var fyrri til að senda í netið, — 2:2. Enn sóttu okkar menn fast og fengu m. a. 2 hornspyrnur á þremur mínútum — en án ár- angurs. En nú gerðust Englendingar hættulegri. Helgi Daníelsson fékk nóg að gera. Hann varði fallega gott skot frá Lewis af 20—25 m færi. Enn glæsilegar varði hann fast og hnitmiðað skot upp úr aukaspyrhu frá vítateig, en það skot var í bláhornið ef Helgi hefði misst. En heppinn var Helgi er vinstri innherji var kominn í dauðafæri en spyrnti hótt yfir. Staðreynd ir • Englendingar bjuggu yfir betri knatttækni og misstu knött- inn aldrei eins langt frá sér og íslendingar. • Englendingar sigruðu í skalla einvígum — þeir höfðu 7af hverj- um 10 háknöttum. • Sú „taktik“ Englendinga að leika ísl. framherjana rangstæða eyðilagöi margt ísl. upphlaupið. • Englendingar fengu ódýr mörk t.d. það fyrsta — og það síðasta þó fallegt skot væri, en Helgi var illa staðsettur. Mark- vörður þeirra bjargaði hins vegar stórhættulegum skotum. Þetta reið baggamuninn öðru fremur í þessum 15. landsleik íslands. — A. St, Og þar nokkru á eftir — er 35 mín. voru af síðari hálfleik — kom „dúndrið“. Englending ar voru með knöttinn um 30 m frá marki á vallarmiöju. Lewis hljóp af vinstri yfir til hægri, fékk knöttinn og spyrnti geysifallega efst í blá- hornið. Helgi sem var illa stað settur í hinu horninu, fékk ekkert að gert þessari löngu spyrniu. Úthald íslendinganna var búið og þegar þetta mark kom var eins og vonin hyrfi einnig. Þeir áttu veikar tilraunir — en þunginn var ekki fyrir hendi. England fór með sigur af hólmi. LIÐIN Enska liðið lék hina typisku ensku knattspyrnu, — að nota al'J.af þegar fæiri gefst löngu spyrnurnar yfir vörn og skapa hættu. Þeim tókst þetta bæði fyrst og síðast, en um miðbik leiksins gáfu Sveinn og Guðjón og innherjarnir þeim ekki tíma til slíks og það var þá sem ísland átti mest í leiknum. Enska vörnin var traust mjög — einkum var hún samhent því að leika ísl. framherjana rangstæða. Markvörðurinn mjög góður. Veikleiki í ensku vörninni var þó hægra megin og riað notuðu íslendingar sér tíma — t.d. fengu þeir skorað sitt íyrsta rnark þess vegna. Framverðirnir unnu mjög vel og framherjarnir áttu Fyrsta mark leiksihs Bates (8) skorar eftir fyrirgjöf frá vinstri. — Ljósm. Ól. K. M. samleik og góðar skiptingar mið- að við það að enginn samæfing er á liðinu fyrir þennan leik að sögn enska fararstjórans. Bezti maður enska liðsins var vinstri útherj- inn Lewis, stórhættulegur og skytta góð. fsl. liðið stóð sig með prýði Þeir áttu hraðan leik og góðan og gerðu allir sitt bezta — en það nægði bara ekki í þettá sinn. Nokkurs taugaóstyrks gætti eink um hjá Helga í markinu, en þó varði hann ágætlega mörg skot hættuleg. Vörnin var góð sem vörn — þ.e.a.s. þeir björguðu oft en byggðu ekki upp. Án hins ör- ugga stuðnings Sveins og Guðjóns hefði illa farið, en framverðirnir voru okkar beztu menn í vörn og uppbyggingu sóknar. Framherj- arnir notuðu vel það sem til þeirra kom. Þeir áttu allir góðan leik. Ríkharður vann geysilega og skipulagði margt fallega. Þórður Jónsson var leynivopnið — alltaf tilbúinn að hlaupa fram og mark- ið hans var sérstaklega vel undir- búið og framkvæmt. Helgi og Þórður Þórðar unnu og vel, sýndu góða dreifingu á samleik og skipt ingar, en Donni var síztur. Hann hafði knatttæknina en var of hæg ur í þessum leik. A. St. Mörkin: 0:1 Á. 15. mín eiga Englendingar hægt upphlaup vinstri kant. Lewis tekst að gefa fyrir, það verður nokkur þvaga við markið, en Bates hægri innherji (8) kem- ur fæti á knöttinn og sendir hann framhjá Helga í netið. ★ 1:1 37. mín Ríkharður veður upp gefur síðan út til vmstri til Þórð- ar bróður síns, sem tekur sér góðan tíma, leikur nær marki og „dúndrar" undir þverslá og inn — án nokkurra tækifæra fyrir enska markvörðinn. Þetta var fallegt ísl. upphlaup — ! bræðraupphlaup — sem hófst 70 | metra frá enska markinu — en hafnaði í því. ★ I 2:1 55. min. Sókn upp hægri. Knötturinn gengur frá Helga Björgvins til Donna til Þórðar Þórðar til Ríkharðs sem kemst framhjá úthlaupi markvarðar og tekst að koma knettinum í nctið framhjá bakverði. ★ 2:2 55. mín. England á hæga sókn upp miðju. Virðist hættu- lítil en Laybourne gefst ekki upp. Helgi hleypur móti knettinum en Laybourne var fyrri til og sendi framhjá honum í netið. ★ 2:3 Lewis er kominn út á hægri fær knöttinn og spyrnir liáu og fallegu skoti af um 30 m færi efst í hornið. Ilelgi var illa stað- settur og var of seinn tiL Er 80 mín. voru af leik skoruðu Englendingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.