Morgunblaðið - 12.08.1956, Side 3
Sunnudagur12. ágúst lOSf
W O R C V K B rA Ð t Ð
3
ISTÆRSTA firðinum á Aust-
f jörðum eru tvö kauptún, Eskí-
f jörður og Búðareyri við Reyðar-
fjörð. Bæði lifðu þau blómaskeið
sitt á dögum Austf jarðasíldveið-
anna um síðustu aldamót. Við
skulum fyrst heimsækja stærra
og cldra kauptúnið, Eskifjörð.
BYGGT TJTAN UM
VERZLANIR.
Upphaflega er það byggt á lít-
illi jörð er Lambeyri heitir. Hinir
fyrstu, sem verzluðu á Lamb-
eyri voru Norðmenn og hét fé-
lagið Wallace og Sön og hóf verzl
un í þann mund er verzlun var
gefin frjáls hér á landi fyrir
þegna Danakonungs 1787. Síðan
verzluðu örum og Wulff á Eski-
firði og voru það þeir sem reistu
elzta húsið sem í dag stendur á
Eskifirði, Gömlu búðina, en hún
er nú veiðarfærageymsla togara-
félagsins. Hún mun hafa verið
flutt þangað frá Breiðuvík um
1811. Síðan rak verzlunina Carl
D. C. Tulinius frá því 1864 til
1903. Verzlun sú sem hér um
ræðir var nefnd Útkaupstaður,
en svo hóf önnur verzlun starf-
semi sína á öndverðri 19. öld og
var hún nefnd Framkaupstaður
og var eigandi hennar Kjartan
ísfjörð. Utan um þessar verzlan-
ir byggðist kauptúnið Eskifjörð-
ur.
VINALEGT SAMBAND
GAMALS OG NÝS TÍMA.
Þegar lcomið er yfir Hólmaháls,
blasir við okkur lítill, hlýlegur
fjörður girtur háum íjöllum á
þrjá vegu. Gegnt okkur norðan
megin fjarðarins mynda húsin
nærfellt samfellda röð meðfram
meginhluta strandarinnar og
skera sig ljósleit í síðdegissólinni
frá dökku landinu. Eskifjarðar-
kauptún er langt og mjótt, sund-
urskorið af fjórum ám, sem xalla
gegnum það og hafa stundum
veitt íbúum þess nokkuð harðar
búsifjar. Við höldum inn í kaup-
túnið, sem stendur nær allt í
brekkum, því undirlendi er næsta
lítið.
Þessi staður er vinálegt sam-
bland af gömlu og nýju. Meira
en aldargömul hús Standa rétt
við nýjar stórbyggingar.
Eftir að hafa virt fyrir okkur
umhverfið ofurlitla stund leitum
við uppi Þorleif Jónsson fram-
kvæmdastjóra togaraútgerðarinn
ar, sem er stærsta atvinnufyrir-
tæki staðarins, og leitum upplýs-
inga um líf og störf fólksins,
sem byggir þennan viðkunnan-
lega stað. Og Þorleifur svarar
spurningum okkar vel og greið-
lega.
TOGARAFÉLAG ÞRIGGJA
KAUPTÚNA.
Togaraútgerðin er það serr?
mesta atvinnu skapar á Eskifirði.
Við snúum okkur því strax að
henni. Togarinn „Austfirðingur“
var keyptur árið 1951 og var
hann skrásettur á Eskifirði, en
kauptúnin þrjú, Eskifjörður,
Búðareyri við Reyðarfjörð og
Búðir við Fáskrúðsfjörð eru stofn
endur og eigendur hlutafélags-
ins Austfirðings, sem nú á tvo
togara, þann sem fyrr getur og
„Vött“, sem áður hét „Keflvík-
ingur“ og keyptur var á þessu
ári og skrásettur á Fáskrúðs-
firði. Velflestir íbúar þessara
þriggja kauptúna hafa ásamt
hreppsfélögunum lagt fé í þetta
fyrirtæki, þótt að vísu séu hlutir
sumra smáir. Það er því fyrir
sameinað átak og góða samvinnu,
sem þetta þjóðþrifafyrirtæki er
sett á stofn öllum byggðarlögun-
um til hags og blessunar.
Þótt höfuðstöðvar togaranna
séu á Eskiíirði, leggja þeir afla
sinn upp á stöðunum til skiptis.
Eskfirðingar hafa hraðfrystihús
og fiskimjölsverksmiðju, svo og
megnið af útgerðarvörunum. í-
búar Reyðarfjarðar verka salt-
fisk og hafa nctaverkstæði í sam-
bandi við útgerðina. Fáskrúðs-
firðingar taka á móti afla til hrað-
frystingar. Þannig geta allir eig-
afrakstursins og atvinnunnar sem
þessi stórvirku tæki skapa.
HRAÐFRYSTIHÚS, VÉLBÁTAR
OG FISKIMJÖLSVERKSMIÐJA.
Hraðfrystihúsið á Eskifirði er
sameign íbúanna í hreppnum í
svipuðu formi og togarafélagið,
nema hvað það er einskorðað við
þetta eina kauptún. Ennfremur
er þar fullkomið vélaverkstæði,
sem annast getur viðgerð á tog-
urunum.
Á Eskifirði voru gerðir út
f jórir vélbátar, en eru nú gðeins
þrír, þar sem einn fórst með ’ á miðin. Á staðnum er fiskimjöls-
sviplegum hætti í vetur. Vélbát- verksmiðja, sem frystihúsið re>cur
arnir leggja lítið upp af afla í og um borð í Austfirðingi er unn-
sinni heimahöfn. Þeir eru á ver- ið fiskimjöl og mun það nú vera
tíð fyrir sunnan á vetrum og á! eini togarinn, sem það gerir.
Togarinn Austfirðingur.
Gamli og nýi tíminn. — Efri myndin sýnir elsta húsið scm enn
stendur á Eskífirði (t.v.), Gömiu búðina. T.h. er verzlunarstjóra
hús Tuliniusarverzlunar. Neðri myndin er að nýjum íbúðarhúsum.
síldveiðum fyrir norðan á sumr-
um. Það eru því togararnir og
frystihúsið sem megin atvinnuna
veita, því engin smábátaútgerð
endurnir beint og óbeint notið er á staðnum, of langt er að sækja
Séð yfir nokkurn hluta Eskifjarðar. Þessa mynd, og myndina af togaranum, tók Vilberg Guðnason,
Ijósm. á Eskifiiði, en hann mun vera eini ljósm. á Austurl. Aðrar rnyndir með grcininni tók Vignir. G. I Hráefniðeraðeins góðfiSáir^ýsai
Fiskimjölsverksmiðjan var end
urbyggð þsgar togarinn kom og
getur hún bæði unnið magran
íisk og feitan, t.d. síld. ísfram-
leiðsla er nokkur, en þó ekki
ngegileg, fyrir togarana og vantar
tilfinnanlega ísframleiðslutæki.
ENGINN LANDBÚNAÐUR.
Höfnin er góð í nærfellt öllum
veðrum og bryggja ágæt og er
þar bæði bryggjuvog og uppskip-
unarkrani.
Á staðnum eru 5 verzlanir þ.a.
2 félagsverzlanir. Verzlun nær
hverfandi lítið út fyrir sjálft I
kauptúnið. Landbúnaður er ekki
stundaður og mjólkurframleiðsla
því nánast engin á staðnum. Flest
ir kaupa mjólk sína frá bæjun-
um inní í firðinum, en þeir til-
heyra Reyðarfjarðarhreppi.
NÝ TEGUND AF HARÐFISKI.
Við skoðuðum sérkennilegt
fyriríæki skömmu áður en við
fórum frá Eskifirði. Heitir það
Sporður h.f. og geíur nafnið til
kynna að það vinni eitthvað úr
fiski. Hér er í fyrsta lagi um að
ræða hraðfrystihús, eða frystihús.
Húsið er ekki til annars ætlað
en frysta fisk, sem síðan er not-
aður til harðfiskgerðar. Er harð-
: fiskgerð þessi einstæð hér á landi
og sennilega í öllum heiminum.
steinbítur og lúða, sem flökuð eru
og hreinsuð og síðan fryst. Þá
eru þau aftur látin þiðna og skor-
in niður í smá bita eða ræmur,
sem síðan eru hraðþurrkaðar í
þurrkhúsi á einum sólarhring eða
svo. Þykir þetta lostæti mikið,
en framleiðslan er enn sem komið
er lítil og hefir að mestu verið
seld til Akureyrar. Fyrir þessu
fyrirtæki stendur Egill Karis-
son borinn og barnfæddur Esl:-
firðingur. Hefir hann ekki sér-
menntað sig í neinni grein, en
er hagleiksmaður á hverju sem
hann snertir. Hefir Egill verið
að prófa sig áfram við þetta
í 2 ár og er kominn á það stig að
geta framleitt góða vöru, en
miklu magni getur hann ekki
skilað enn, bæði sökum hráefn-
isskorts o.fl., því fiskurinn verð-
ur að vera ný og góð vara. Þurrk-
húsið er auk harðfiskverkunar-
innar notað til þess að þurrka
saltfisk.
NÝTT FÉLAGSIIEIMILI I
BYGGINGU.
Félagslíf er og hefir verið
fremur dauft á Eskifirði. Starf-
andi eru þó kvenfélag og slysa-
varnafélag. Vonir standa til bóta
með tilkomu nýs félagsheimilis,
sem hreppurinn og félögin á
staðnum eru að byggja. Sundlaug
er hálfbyggð á staðnum. En til
hennar vantar fé svo og rafmagn
til þess að hita hana upp, en á
staðnum er dieselrafstvið, sem
nægir til heimilisnotkunar og
iðnaðar. Áður var þar ein með
elstu vátnsaflsstöðvum landsins,
en hefir ekki verið starfrækt í 2
undanfarin ár og ekki talið svara
kostnaði að gera við hana. Fram-
haldsskóli er rekinn í 2 deildum
ásamt með barnaskóla og þurfa
þeir sem í framhaldsskólanurn
eru ekki að vera nema einn vet-
ur, t.d. á Eiðum, til þess að geta
lokið gagníræðaprófi. íþrótta-
kennsla er engin.
GRÓSKA í ATVINNULÍFINU
HEFIR SKAPAÐ FÓLKS-
FJÖLGUN.
Eins og fyrr segir var mesti
uppgangstími þessa staðar á tím-
um síldveiðanna. Ráku Norðmenn
þá umfangsmikla atvinnu á Eski-
firði eins og víðar á Austfjörðum.
Eru margar byggingar enn við
lýði frá þeim tímum. Síðan hrak-
aði kauptúninu á ný, en er nú
aftur komið á framfaraleið og
inu síðustu 4—5 árin og fólkinu
má þar mest þakka togurunum.
Hefir verið gróska í efnahagslii-
fjölgað, en þar búa nú um 740
manns.
Frh. á bls. 15.
K.R.R.
K.S.Í.
Islandsmótið
í kvöld klukkan 8,00 keppa KR — Víkingur.
Dómari: Guðmundur Sigurðsson.
Allt af eykst spenningurinn. — Komið og sjáið spennandi leik.
Mótanefndin.