Morgunblaðið - 12.08.1956, Síða 12
12
MORGVISBLAÐIÐ
Sunnudagur 12.ágúst 1956
LOUIS COCHRAN:
SONUR HAMANS
Framhaldssagan 2
sæti — smíðaðir úr trékössum,
sem sóttir höfðu verið niður í
borgina.
Framan við eldstóna var ullar-
brekán og er þá talið allt það í
stofunni, sem til húsmuna gat
talizt.
í herberginu hinum megin var
rúmfletið hans og hinar fáu flík-
ur, er hann átti.
Ungi maðurinn laut niður, tók
upp logandi hefilspón og skýldi
honum með hendinni, meðan
hann bar hann að tólgarkertinu
á borðinu.
Þegar fölur, flöktandi bjarm-
inn kastaði skímu um herbergið,
beindi hann athygli sinni að kon
unni, sem sat fyrir framan arin-
inn.
„Þarftu ekki betra Ijós,
mamma?“
Hann talaði með djúpum rómi
hins nærri fulltíða manns. — „Þú
getur ekki eldað matinn í svona
hálfrökkri."
Konan, grannleit og föl, gömul
fyrir aldur fram, sat framlút og
horfði til hans með þeirri ró, sem
var þeim báðum svo venjuleg. —
„Ég er vinur myrkursins, Lije“
svaraði hún. — „Og auk þess lýsir
arineldurinn mér alveg nógu vel.
Lije sagði ekki neitt, en gekk
yfir að bollaskápnum, tók út úr
honum tvo postulínsbolla og und-
irskálar og tvo diska, sem stungu
undarlega í stúf við litla her-
bergið, og lagði á bjálkaborðið.
Er því var lokið, settist hann
sjálfur framan við rjúkandi við-
areldinn, sem nú var vandlega
hlaðinn upp, svo að kornbrauðin
í öskunni skyldu bakast vel og
vandlega.
„Mamma, ég hef verið að
hugsa um það, að kannske ætti
ég ekki að vinna hjá Si frænda.
Ég er ekki neitt gefinn fýrir búð-
arstörf“.
„Það er samt betra en starfið
í veitingakránni, Lije. Mér geðj-
ast ekki að veitingakrám“.
Hann leit upp, við þessi orð
hennar, en renndi augunum jafn-
skjótt aftur niður fyrir sig.
„Getur verið“, samsinnti hann
dræmt. „Ég ætla nú samt ekki að
vera þar lengi“.
Hann leit til hennar með ró-
legri ákvörðun í svipnum. „Ég
ætla að verða voldugur landeig-
andi, mamma“.
Augu hans hvörfluðu aftur að
eldstæðinu. Svo tók hann litlu
járnskófluna og fór að snúa
brauðstykkjunum við með henni.
Þau myndu verða mjög bragð-
góð eftir örlítið meiri bakstur,
þegar öskunni hafði verið blásið
af þeim.
Konan herpti saman varirnar,
en gaf ekkert annað svar við
orðum hans. Hann var sonur
hennar í andanum, jafnvel þótt
útlitið og lífsþrótturinn væri frá
föðurnum og hún vissi hvað
hann var að hugsa um. Hann
ætlaði sér ?.ð verða mikill mað-
ur og fara einhvern góðan veður-
dag með hana aftur til New
Orleans, klædda silki og satíni.
Hún andvarpaði mjög lágt, en
samt heyrði sonur hennar það og
leit hvasst á hana. „Mamma“,
sagði hann og röddin var óeðli-
lega hrjúf. „Ég ætla mér að skilja
einhver merki eftir mig, hér í
þessum heimi, áður en lýkur“
„Ég veit að þú gerir það, Lije,
og mig tekur það svo sárt, að ég
skuli ekkert geta orðið þér að
liði, ekki hjálpað þér meira en
raun ber vitni. En síðan ég varð
fyrir þessu slysi, hef ég ekki ver-
ið fær til eins eða neins'*.
Lije reis á fætur, án þess að
svara móður sinni einu orði. —
Hann gekk út um bakdyrnar og
til brunnhússins, skammt frá. til
þess að þvo sér áður en þau sett-
ust að hinu fátæklega kvöld-
verðarborði.
Hann þekkti þá sögu út í yztu
æsar. Dink Malone hafði komið
með hana heim frá veitinga-
kránni, kvöld eitt síðla fyrir
mörgum árum, með brotinn fót-
legginn, sem hann hafði sjálfur
sett saman og vafið um, í dvín-
andi rökkri hins deyjandi októ-
berdags, án nokkurra deyfilyfja
eða áhalda. Og móðirin hafði
gefið frá sér skerandi sársauka-
stunur á milli samanherptra var-
anna, unz andlit hennar varð ná-
fölt og hún missti meðvitundina,
meðan hinn litli sonur hennar
hnipraði sig óttasieginn saman,
en með ákafan grun í brjósti,
grun um eitthvað ósýnilegt, sem
væri að kvelja hana. Minningin
um þessa hræðilegu nótt hafði
aldrei eyðst úr huga hans síðan,
enda þótt dagarnir og næturnar
næst á eftir, hefðu fyrir löngu
breytzt í martraðarkenndan
hrærigraut undarlegra atburða.
Síðan sagði móðir hans honum,
að hún hefði dottið í forarpolli,
enda þótt engin for eða aur hefði
sést á klæðum hennar.
Og Dink hafði ekki gefið nein-
ar útskýringar.
Við sólarupprás næsta dag
mætti Lije í verzlun og póststofu
Silas Wrens frænda, til þess að
byrja þar starf sitt sem skrif-
stofumaður.
Hann kunni vel við Silas
frænda, með drynjandi röddina.
litlu ístruna og kringlóttu, bláu
augun, en samt hugsaði hann
ekki til hins nýja starfa meiL
gleðiþrungnum eldmóði. Eins or
hann hafði sagt móður sinni, þú
áleit hann sjálfan sig alls ekl
fæddan til skrifstofustarfa.
En þótt hanp væri árla á fót
um, var Lije þö ekki árrisulli e.
vinnuveitandi hans. Þegar ham
gekk niður éftir hinu mjóa viðar
borði, sem kom í stað gangstétt-
arinnar, sá hann í fjarska að
dyrnar voru í hálfa gátt og gaí
sér þess til, að 'Si væri þegar bú
inn að opna. Ekki var Si héldu
sá eini, sem það hafði gert. Þaí
var þegar búið að opna fyrir al-
menningi þrjár af fimm veitinga-
kránum og hægt var að sjá veit
ingamennina fyrir innan, þai
sem þeir kepptust við að sópa c'
fægja, áður en viðskipti hins ný-
byrjaða dags hæfust.
Gylta með þrjá unga. sen
mókti hin ánægðasta á miðjun
veginum fyrir framan Greer
Eye, rýtti, þegar Lije gekk þai
framhjá og hann stjakaði í hana
með fætinum, þangað til hræt!
dýrið thljóp allt hvað af tók ú!
á akveginn með hrínandi afkvæm
in á hælum sér. Þetta var ali-
svínið hans Jim gamla Kili-
grews.
„Halló, Lije“, kallaði Silas
Leiguíbúð óskast
í haust e-ða vetur. Minnst 3 herbergi.
Tilboð óskast send afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m. merkt:
„Beykjavík — Hafnarfjörður •—3773“.
Masfer Mixfer
Vélinni fylgir:
Berjapressa,
Hakkavélar
Kökusprautur
Pylsustoppari
Þsytari og 2 skálar.
Einnig er hægt að fá:
Grænmetiskvarnir
Kaffikvarnir
Kartöfluskrælarar ofl.o.fl.
Heímilísvélar
Einkaumboðsmenn:
Ludvig Storr & Co.
Starfsstúlku
vantar í heimavist Laugarnesskólans.
Uppl. hjá forstöðukonunni. — Sími 5827.
Royal
lyftiduft
Heildsölúbirðir fyrirliggjandi í eftirtöldum umbúðum:
V2 punda dósir
10 — —
Agnar Ludvigsson, heildverzlun
Tryggvagötu 28 — sími 2134
ESekfrolux
Hrærivélar með berjapressu.
Ný sending af
hinum óviðjafnanlegu
elektkolu X—
hrærivélum,
bónvélum og ryksugum,
komnar til landsins.
Tökum á móti pöntunum.
Einkaumboðsmenn:
Kannes Þorsteinsson & Co.
Laugaveg 15 — Símar: 2812 — 82640.
Til leigu
Tveir samliggjandi bílskúrar, 50 fermetrar að stærð,
til leigu fyrir hreinlega vörugeymslu.
Tilboð merkt: „Geymsla*—3783“, sendist afgr. blaðsins
fyrir 15. þ. mán.
Starfsstúlkur
Tvær starfsstúlkur vantar í Veitingaskálann
við Hvítárbrú.
Upplýsingar á staðnum eða í síma 67, um Hvanneyri.
•>•>•:••>•>•>•>•:*•>•>•>•>•>•>•>•:••>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•>•:••>•:•
MARKÚS Eftir Ed Dodd
And l:ke all vdunssters,
THE BASY IN THE BAND
LIKES TO ROMP AND PLAY
SUDDENLY HE RUNS HEADLONS
INTO KUTUS GREAT HUNTINS NET 1
1) — f morgunsárið, þegar allt
er kyrrt og hljótt í tjaldbúðunum,
gengur Gorillu-fjölskylda eftir
skógarslóðanum.
2) Og eins og títt er hjá ung- | 3) Allt í einu er hann þrifinn
viði langar ungann til að hoppa upp og netið vefst í kringum
og skoppa. I hann.