Morgunblaðið - 12.08.1956, Blaðsíða 16
Veðrið
N kaldi. Léttskýjað.
182. tbl. — Sunnudagur 12. ágúst 1956
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9. —
Forn dys
í Skagafirði
Sauðárkróki, 11. ágúst.
SÍBASTLIÐINN fimmtudag,
voru vegagerðarmenn að taka
ofaníburð í veg úr meibarði
innan túngirðingar á Sól-
heimum í Sæmundarhlíð í
Skagafirði. Komu þeir þá nið-
ur á bein af mönnum o-r
hestum, sem virtust vera mjög
gömul. Jóhann Jóhannesson,
bóndi á Sólheimum lét þegar
hætta malartökunni, og ráð-
stafanir voru gerðar til að láta
þjóðminjavörð vita um fund-
inn. Þjóðminjavörður mun nú
vera á ferðalagi um Austur-
land, en ekkert verður hreyft
á staðnum fyrr en hann hefur
litið á fund þennan. — Jón.
SAMKVÆMT tilkynningu frá
norsku sendisveitinni í Reykja-
vík, hafa norsk stjórnarvöld
ákveðið að veita íslenzkum
stúdent styrk að fjárhæð kr.
4.000,00 norskar, til háskóla
háms í Noregi frá 1. september
til 15. júní n.k.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þenna sendi um-
sóknir til menntamálaráðuneyt-
isins fyrir 25. þ.m , ásamt afriti
af prófskírteini og meðmælum,
Leitar álits flokksbræðr-
aima á Norðurlönduin
Einn kraiinn enn floginn út.
IGÆRMORGUN flaug einn af ráðherrum hinnar nýju ríkisstjórr*
ar, Gyifi Þ. GísJason. til Norðurlanda. Er það engum vaíV
undirorpið að hann fer ferð þessa til þess að leita álits flokks-
bræðra sinna á Norðurlóndum á samvinnu Alþýðuflokksins xih
kommúnista og hinni nvju utanrikisstefnu, sem íslenzka stjórnin
hefur markað.
STANDA AB NATO-ALITINU
Alþýðuflokksmenn hér á landi
aru mjög órólegir yfir því, að
ríkisstjórnir jafnaðarmanna i
Noregi og Danmörku standa m. a.
að áliti því, sem Atlantshafsráðið
í París hefur nýlega sent íslenzku
jtjórninni á stefnu hennar í ör-
vggismálum íslands. Þess vegna
lenda Alþýðuflokksmenn nú
'rvern sendiboðann á fætur öðr-
ím á fund flokksbræðra sinna á
•íorðurlöndum. Fyrst fór Guð-
nundur I. Guðmundsson til Nor-
?gs, þá Benedikt Gröndal til Dan-
nerkur og nú Gylfi Þ. Gíslason.
Turnar hinnar nýju brúar hjá Iðu.
Brúin hjá Iðu mesfa brúar-
manigvirkið sem er í smíðism
BKÚIN yfir Hvítá hjá Iðu er nú mesta brúarmannvirkið sem i
smíðum er hér á landi. Verður þetta hengibrú og hefur Árni
Pálsson yfirverkfræðingur Vegamálaskrifstofunnar, ráðið gerð
brúarinnar. Þegar brú er komin á verður af því hin mesta
samgöngubót fyrir sveitirnar beggja vegna árinnar.
<»-
FRAMLAG ÚR BRÚASJODI
Brú hjá Iðu heíur löngum ver-
ið mikið framfaramál fyrir sveit-
irnar beggja vegna árinnar. Bisk-
upstungur og Skeiðin. Á Alþingi
barðist Eiríkur heitinn Einars-
son mjög fyrir máli þessu á sín-
um tíma. Er mannvírkið reist
íyrir fé úr Brúasjóði.
FULLGERD NÆSTA ÁR
1 fyrrahaust var lokið við að
steypa turnana beggja vegna og
þannig standa þeir í dag, eins og
myndin sýnir. Síðan hefur ekk-
ert verið að frekari smíðum unn-
ið, en nú er að því unnið að
eíniskaup fari fram í vetur og
það komi hingað fyrripart sum-
ars næsta ár og verði þá tekið á
ný til starfa við að fullgera
brúna.
109 METRA IIAF
Iðubrú veiður hengibrú sem
fyrr segir. Aðstæð'ur allar og
verkskostnaður verður þá veru-
lega minni. Hafið milli brúar-
turnanna er 109 metrar. Turn-
arnir eiga að bera uppi stál-
strengina, sem halda brúnni uppi.
Upp á brún turnanna af brúar-
gólfi verða 15 metrar, en eins og
þeir sjást á myndinni, frá
sökkli, rúmlega 20 metrar. Brú-
argólfið, sem verður úr járn-
bentri steinsteypu, verður rúm-
Jega 4 metrar á breidd. Brúin á
að gela borið samtímis einn 18
tonna vagn og annan 9 tonna, en
jafn þungi sá, er brúin á að þola,
er 350 kg. á hvern ferm. brúar-
gólfsins.
GJALDEYRISVANDRÆDI
HAFA HINDRAÐ
FRAMKVÆMDIR
Gjaldeyrisvandræðin hafa
valdið því að ekki heíur verið
hægt að festa kaup á stáli í
hengibrúna. Geta má þess, að
hengibrú þessi er mjög lik þeirri,
sem nú er komin á Jökulsá á
Fjötlum.
Óspektir líðar
á Raufarhöfn
MIKIÐ hefur verið um drykkju-
jskap og óiæti norður á Raufar-
jhöfn undanfarið. Hefur hin fá-
jmenna lögregla þar átt fullt í
Ifangi með að halda óróaseggjum
I í ske/jum og hafa lögreglumenn
: neyðzt til þess að beita kylfum
J sír.um til þess að koma á ró og
j spekt. Mjög erfitt er fyrir lög-
I regluna þar að halda uppi lögum
og reglu, því engin fangageymsla
er í kauptúninu, sem hægt er sð
einangra þá sem hættulegastir
eru öðrum og sjálíum sér, en
Xangageymslu þarf að bj'ggja á
þessum stað.
Unnið að endur-
byggmgu verksíæð-
isskálans á Seifossi
SELFOSSI, 10. ágúst: — Undan-
farið hefur verið unnið að því,
að' endurreisa skála þá sem
skemmdust i eldi er verkstæði
Kaupfélags Árnesinga brunnu í
sumar. Mun taka nokkurn tíma
að gera skálana vinnuhæfa.
Ekki er ennþá búið að rann-
saka til fulls, hvort nokkuð af
þeim vélum og áhöldum sem í
brunanum lentu eru vinnuhæf,
en að öllum líkindum mun vera
hægt að nota eitthvað af trésmíða
vélunum og ef til vill rennibekk-
ina. — Guðm. Geir.
Lítilfjörlog ikviknun
í Aburðarverksmiðjunni
'SÍÐASTLIÐNA nótt var slökkvi-
iiðið kvatt að Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi. Hafði vetnis- og
kcifnunarefnisblanda farið að
leka með þéttingu milli „flansa".
Lítilfjörlegur bruni varð, en
engar skemmdir.
Var hér ekki um neina hættu
að ræða, en starfsmönnum verk-
smiðjunnar þótti öruggara að
kalla slökkviliðið til.
Dæmt í próf máli
út af danarbótum
ef tir Garðar Þor-
steinsson alþm.
í UNDIRRÉTTI hefur verið kveð
inn upp dómur í prófmáli,' sem
frú Anna Pétursdóttir, ekkja
Garðars Þorsteinssonar alþingis
manns, höfðaði gegn Flugfélagi
ísiands til greiðslu dánarbóta, cn'
þingmaðurinn fórst með flugvél
frá félaginu í Héðinsfirði árið
1947, en í því flugslysi létu lífið
alls 17 farþegar og fjögurra
manna áhöfn flugvélarinnar.
Niðurstöður dómsins urðu þær
að undirréttur dæmdi Flugfél.
íslands til greiðslu á rúmum
105.000 kr. auk 6% vaxta frá des-
ember 1948. Fullvíst er talið að
Flugfélag íslands muni áfrýja
máli þessu til Hæstaréttar.
YFIRKLÓR
ALÞÝDUFLOKKSINS
Það' er eindæina htimskulcc;t
af Alþýðublaðinu að vera
stöðugt að klóra yfir og leyna
erindum þessara flokksmnnna
þess til Norðurlanda. Bæði
norsk blöð og dönsk hafa skýrt
greinilega frá heimsóknum
þessara manna og tilgangi
þeirra. Hvers vegna mega ís-
lendingar ekki vita sánnlcik-
ann um hann?
Gott veður
um helgino
GERT er ráS fyrir bjartviðri
hér á Suðurlandi nú um helg-
ina að sögn veðurstofunnar í
gær. Mun norðanáttin hald-
ast, en þó er talin hætta á
síðdegisskúrum með fjalla-
hlíðum og á það við um Suð-.
urland og Borgarf jörð.
Aftur á móti er spáð dumh-
ungsveðri á Norðurlandi með
rigningu og súld á anncsjum.
Hví er ekkert ukveðið um
hufnurgerð í Þykkvubæ ?
Þykkvabæ, 8. ágúst. — Frá fréttaritara Mbl.
OL L U M mælingum er nú lokið við rannsókn á hafnargerð í
Þykkvabæ, en ekkert heyrist frekar á mál þetta minnzt og það
þótt allar niðurstöður mælinganna hefðu verið iákvæðar. EruÞj'kkva
bæingar nú farnir að spyrja hvort á hina nýbökuðu ráðherra hafi
sigið eitthvert værðarmók í hinum hart sóttu, dúnmjúku stólum,
þvi að fyrir kosningar virtist mál þetta svo vel á veg komið.
VERKFRÆDINGAR
FRÁ HOCHTIEF
Fremur lítið heyrist nú talað
um hafnarframkvæmdir í
Þykkvabæ. Fyrrihluta sumars
komu hingað þrír verkfræðingar
frá hinu kunna þýzka fyrirtæki
Hochtief, þeirra á meðal yfir-
verkfræðingur hafnbygginga-
deildar fyrirtækisins, ásamt um-
boðsmanni sinum, Gisla Sigur-
björnssyni.
BEDID MED OÞREYJU
Erindi þeirra var að gera eins
konar lokayfirlit yíir aðstæður
allar. Töldu þeir að niðurstöður
mælinganna hefðu verið jákvæð-
ar. Aðeins væri eftir að rann-
saka eðlisþyngd sandsins við
ströndina. Vilyrði fyrir láni til
framkvæmdanna værj. einnig
fengið. Bíða menn þess hér með
óþreyju, að úr því verði skorið
hvort úr framkvæ'mdum vevður
að sinni.
Síldarfólkið
heldur lieim
SÍLDARVERTÍÐARFÓLK sem
svo hundruðum skipti leitaði
norður til Raufarhafnar í síldar-
vinnu á vertíðinni, er nú flest far-
ið þaðan heimleiðis, með góðar
tekjur af síldarvinnunni. Stað-
armenn hafa enn mikið að starfa
við síldina, ápökkun og pæklun
hennar. Um 20. þessa mánaðar
verður fyrsta síldin sem veidd
var í sumar send þaðan, alls um
6000 tunnur sem fara til Rúss-
lands.
Hún sló frum
tennurnur
úr munninum
ÞAÐ bar til tíðinda um dag-
inn norður á Raufarhöfn, að
maður nokkur vatt sér þar að
stúlku, sem var að vinna og
hafði í frammi við hana hót-
anir um að beita hana likam-
legu ofbeldi og viðhafði slikt
orðbragð við stúlkuna að nær-
stöddum blöskraði. Maðurinn
hafði sig þá ekki frekar í
frammi í það skiptið.
Um kvöldið bar það til á
dansleik þar, að maður þessi
hafði sig mjög í frammi við
þessa sömu stúlku. Hún gerði
sér þá lítið fyrir, sló manninn
af alefii beint á munninn, með
þeim afleiðingum, að báðar
framtennurnar brotnuðvi!
En málinu var þó ekki lokið.
Maðurinn mun hafa kært
stúlkuna fyrir likamsárás.
Englund - Akru-
nes unnuð kvöld
ANNAÐ kvöld leika ensku knatt
spyrnumennirnir sinn síðasta leik
hér að sinni. Mæta þeir nú liði
Akraness. Má gera ráð fyrir mjög
skemmtilegum leik. Er þess að
minnast að í landsleiknum á
dögunum, sem var jafn og tví-
sýnn, voru 9 Akurnesingar í
landsliðinu og sá 10., Jón Leósson
var meðal varamanna. Þetta er
því næstum endurtekning lands-
leiksins — nema það að Akur-
nesingar mæta nú í sínum gulu
peysum — en í þeim hafa þeir
unnið sína stærstu sigra.