Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 3

Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 3
Föstudagur 19. okt. 195? M O R C V N B L 4 Ð 1Ð 3 30—40 manns skáru mel- korn í Meðallandi fyrir sandgrœðslu ríkisins S L P U R Hinar vinsælu TEX-TON súpur eru til í átta mis- munandi tegundum. Máltíðin er ekki fullkomin fyrr en TEX-TON súpan hefir verið borin á borð. O.Jok nóon ÉjT* ^JJaaler Lf. TJNDANFARIN haust hefur ver- ið safnað lítils háttar af melkorni í Meðallandi, en nú í haust var þetta gert í langtum stærri stíl en áður. Voru að þessu starfi menn frá flestum bæjttm í Meðal- landi vestan Eldvatns. Auk þess kom margt manna utan úr Vík og nokkrir ofan úr Skaftártungu. Kornþörf Sandgræðslunnar er mikil, því að á næstu árum verð- ur sáð í stór landsvæði í Land- eyjum, Hólsfjöllum og e. t. v. víðar, eins og getið hefur verið í fréttum. fái eina mjöltunnu úr 40 hest- burðum af mel. Greinagóðar upplýsingar um meltekju og melferðir er að finna í bókinni Vestur-Skaftafells sýsla og íbúar hennar, sem séra Björn O. Björnsson gaf út 1930. Kaflinn um melinn í þeirri bók er skrifaður af Hannesi Hjartar- syni bónda á Herjólfsstöðum í Álftaveri. Þegar forsetahjónin í Costa Rica voru viðstödd er m.b. „Helgu“ var hleypt af stokkunum. Forsetiim ^og forsetafrúin skoða skipsmastrið. Eru þau til vinstri á myndinni. Forseti Costa-Rica við- 20—30 LESTIR Kornskurðarfólkið í Meðal- landi vann í ákvæðisvinnu. Korn- stöngin var skorin 1—2 þuml. neðan við axið. Greiðsla var 3 kr. fyrir kílóið og komust sumir upp í 100 kg á dag. Alls munu um 20—30 tonn af melkorni hafa aflazt á þessu hausti. Tíð var ó- venju hagsstæð til kornskurðar- ins, oftast hægviðri og blíða, lít- ið um úrkomu, en rigningin er einn versti óvinur melafólksins. VAR MIKIL, NYTJAJURT Til forna, raunar nokkuð fram yfir síðustu aldamót, var melur- inn mikil nytjajurt fyrir Bkaft- fellinga. Kornið var notað í brauð og grauta, melstöngin á þök undir torf og ræturnar í línur. Það er því næsta eðlilegt að í Ferðabók Eggerts og Bjarna sé tekið svo til orða: „Hinn alvitri, góði Guð, hefur blessað þessar ömurlegu, þurru sandsveitir með því að láta Þessa nytsömu plöntu vaxa þar, og fólkið þar skoðar hana einnig sem sérstaka Guðs gjöf“. En það kom sér vel að þá voru ekki uppi kröfur um Dags- brúnartaxta og framleiðsluverð. Það segir Eggert Ólafsson, að „af öllum störfum fslendinga er ekk- ert seinunnara né gefur minni eftirtekjur, en nýting melsins", því að menn séu ánægðir ef þeir Kennaraiélag Mið- Vesturlands stofnað FRAMHALDSSTOFNFUNDUR Kennarafélags Mið-Vesturlands var haldinn á Akranesi dagana 6.—7. október. Fundinn sóttu 35 kennarar víðs vegar af félags- svæðinu. Erindi á fundinum fluttu: Þór- leifur Bjarnason, námsstjóri: Sögukennsla í barnaskólum. Snorri Sigfússon námsstjóri: Upp eldi til ráðdeildar. Aðalsteinn Eiríksson, námsstjóri: Um fjár- mál skóla og launamál kennara. Dr. Broddi Jóhannesson: Starfs- löngun og þreyta. Var almenningi heimill aðgangur að þvi erindi og sóttu það margir. Meðal ólykana, er fundurinn gerði voru: I. Fundur í Kennarafélagi Mið- Vesturlands, haldinn á Akranesi 6. og 7. okt. 1956 telur útgáfu sorp- og æsirita hérlendis komna á það stig, að stórháski sé búinn íslenzkri æsku, verði ekki spyrnt við fótum hið fyrsta. Fundurinn þakkar þeim mönnum, sem í ræðu og riti hafa varað við þess- ari hættu, og heitir á stjórnar- völd landsins að hefta með öllu útgáfu og sölu rita þessara. II. Fundur í Kennarafélagi Mið Vesturlands haldinn á Akranesi 6. og 7. okt. 1956, fagnar nýjum lög- um um ríkisútgáfu nómsbóka og skipun skólamanns í fram- kvæmdastjórastöðuna. Jafn- framt telur fundurinn nauðsyn á að verzlun með skólavörur verði tengd útgáfunni. III. . Fundurinn þakkaði Snorra Sigfússyni, námsstjóra, langt og ágætt starf í þágu uppeldis og kennslu. staddur þegar ísl. bátur hleypur af stokkunum HINN 8. þ. m. var nýjum bót hleypt af stokkunum í Frederiks- sund. Var það mótorbáturinn Helga, sem nokkrir ungir Hús- víkingar hafa látið smíða. Er stærð bátsins 55 smálestir. Er í honum Alfa-díselvél 40—265 smál. að stærð. Af hálfu eigenda var við- staddur þessa athöfn Jón Ármann Héðinsson frá Húsavík. En hann og bræður hans fjórir eru kaupendur að bátnum. Þá var og viðstaddur forseti Costa-Rica, Jose Figueres og kona hans, ásamt háskólarektorn- um í Costa-Rica og forsetaritara. Ennfremur var viðstaddur við sjósetninguna Kungsted forstjóri frá Helsingfors. Forseti Costa- Rica er kvæntur danskri konu, Karen, fædd Olsen, og voru þau á ferðalagi um Sjáland þennan dag og notuðu tækifærið til að skoða skipasmíðastöðina í Frede- rikssund. einmitt þegar hinn ís- le-nzki bátur var settur þar á flot. KEMUR f LOK NÓVEMBER Hinn nýi bátur Jóns Ármanns Héðinssonar og bræðra hans er væntanlegur hingað til lands í lok nóvember. Verður hann í vetur gerður út frá Sandgerði. Skipstjóri á honum verður Marí- Boðsgestir á fundinum voru fræðsluráðsmenn Akraness, sókn- arpresturinn séra Jón Guðjónsson og skólastjóri gagnfræðaskólans, Ragnar Jóhannesson. _ í stjórn félagsins voru kosnir: Ólafur Haukur Árnason, skóla- stjóri, Stykkishólmi, Guðmundur Hansen, kennari Stykkishólmi og Sigurður Helgason kennari, Stykkishólmi. Ákveðið var að halda næsta fund í Stykkishólmi. Slátrun lokið BÚÐARDAL, 18. okt.: — Hér er nú lokið sauðfjárslátruninni. Alls var 6300 fjár slátrað. Fallþungi dilka reyndist með meira móti, og meðalkroppþungi 16,24 kg. Vænsti dilkur kom frá Núpi í Haukadal og vó hann 25% kg. Þá er slátrun einnig lokið að Brautarholti í Haukadai þar sem slátrað var 3500 kindum. Þyngsti dilkur þar vó 25 kg. og var hann frá Álftatröðum. Danslagakeppni SKT í Oóð~ lemplarahúsinu um helgina piREYMÓÐUR JÓHANNSSON hefur skýrt svo frá á fundi með fréttamónnum, að um næstu helgi færi fram danslagakeppni á vegum SKT. Er það hin sjöunda í röðinni, en SKT byrjaði með dans- lagakeppnir sínar arið 1950 og hafa þær verið á hverju ári síðan. MÖRG ÍSLENZK LÖG KOMIN FRAM Tilgangur þessarar danslaga- keppni er sá, að fá fram sem flest íslenzk dægurlög, sagði Freymóð- ur, en lítið var orðið um íslenzk dans- og dægurlög hér er til fyrstu keppninnar var efnt. Síðán hafa komið fjölmörg dægurlög fram & sjónarsviðið og margir nýir höf- undar. Hefur verið mikill fjör- UMF Keflavíkur frum sýnir Penelope í KVÖLD, föstudag, frumsýnir Ungmennaféiag Keflavíkur ensxa gamanleikinn Ftenelope, eftir Somerset Maugham. — Leikrit þetta er fyrsta verkefni UMK á þessu leikári, en félagið hefur undanfarið haft forgöngu um alla leiklist hér í bænum og er starfandi leiknefnd hjá félaginu, er velur viðfangsefni hverju sinni. Var síðasta verkefni félags- ins Þrír skálkar, er hlaut góða aðsókn. Leikendur Penelope eru flestir úr leikskóla Helga Skúla- sonar, er starfaði hér s.l. vetur. Hefur Helgi Skúlason sett leik- inn á svið og stjórnar honum. Aðalhlutverk leiksins leikur sem gestur félagsins frú Helga Backmann. Leikurinn fer fram í Ungmennafélagshúsinu. —• Ingvar. kippur í dans- og dægurlagahöf- undum fram að þessu. Frestur til að skila handritum var útrunninn 1. ágúst sl. og höfðu þá borizt 28 lög. Sérstök nefnd sér um val laganna, sem síðan er'u kynnt, að þessu sinni þrjár helgar í röð í Góðtemplarahúsinu, og hefst fyrsta kynningin nú á laug- ardags- og sunnudagskvöldið. Lög in verða að vera raddsett fyrir píanó er þau berast nefndinni, en síðar eru þau útsett fyrir hljóm- sveit. Þrjú lög eru ’valin hvert kvöld eftir atkvæðagreiðslu dans- gesta og áliti dómnefndarinnar. Þá verða einnig birtir atkvæðaseðlar f öllum dagblöðunum, svo að fólk eigi kost á að láta álit sitt í ljós um val danslaganna. VERÐI.AUN Verðlaunuð verða þrjú efstu lög hvers flokks, og hafa ýmis fyrir- tæki heitið verðlaunum. Hljóð- færaverzlun Sigríðar Helgadóttur mun gefa gítar fyrir bezta lagið, Fálkinn hf. hefur heitið óperu- verki á plötum, Flugfélag Islands mun gefa far til Kaupmannahafn- ar, og Orlof hefur heitið að kosta höfund bezta lagsins í vikutíma í Kaupmannahöfn og koma honum á framfæri með lag sitt þar. Þá mun SKT verðlauna efstu lögin í hverjum flokki með 500 kr. ot einnig verða veitt viðurkenningar- skjöl. Að keppninni íokinnl verfla úrslitin birt í Austurbæjarbiói. DANSKVÆÐAKEPPNI Þá efnir SKT einnig til dáns- kvæðakeppni. Hefur það gefið út hefti með danskvæðum á sama hátt og sl. ár. Er 500 kr. verð- launum heitið fyrir bezt gerða textann og fjallar sérstök dóm- nefnd um valið. GAMLIR OG NÝIR DANSAR Kynningin hefst eins og áður er sagt, næstkomandi laugardags- kvöld, með gömlu dönsunum, en á sunnudaginn eru nýju fíansarnir. Hljómsveit Carls Billich, sem er fimm manna hljómsveit, leikur, en söngvarar verða: Svava Þor- bjarnardóttir, Adda Örnólfsdótt- ir, Sigurður Ólafsson, Haukur Morthens og Jóna Gunnarsdóttir. Ungling vantar til blaðburðar Nesvegur Sími 1600 us Héðinsson, en vélstjóri Sig- urður Jónsson. M.b. „Helga“ hleypur af stokkunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.