Morgunblaðið - 19.10.1956, Blaðsíða 24
Veðrið
SA-kaldi. Víða skúrir.
JMimuittMftMfe
240. tbl. — Föstudagur 19. október 1956
Hún og Nasser
Sjá grein á bls. 12.
Stöðumælar settir upp við
flestar götur miðbæjarins
Bernhorð Steíónsson og Einur
Olgeirsson iorsetnr deildn
Frá Alþingi í gær
HámarksstöSu-
iíminn háMtími o&
kostar 2 krónur
Aukning bifxeiðastæða og athugun á
byggingu bifreiðageymsluhúsa í
miðbænum
AFUNDI bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær fylgdi Geir Hall-
grímsson bæjarfulltrúi frumvarpi að regiugerð um bifreiða-
stöðumæla í Reykjavík úr hlaði með ýtarlegri greinargerð um
málið. Gat Geir þess, að umferðarnefnd bæjarins hefði að undan-
förnu framkvæmt rannsókn um bifreiðastöður í bænum, og kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að til bóta mundi verða að koma upp
stöðumælum við flestar göturnar í miðbænum, þar sem umferðin
er þyngst og bifreiðastöður takmarkaðar að tímalengd.
BIFREIÐUM FER
SÍFJÖLGANDI
Verða tvær umræður um mál-
ið, og bíður endanleg afgreiðsla
bæjarstjórnarinnar næsta fund-
ar. Geir Hallgrímsson gat þess,
að bifreiðaaukningin í bænum
færi sífellt vaxandi og þar með
vandamálið um hvar geyma ætti
þær í Miðbænum.
1. janúar 1949 voru 5589 bif-
reiðir í bænum, en 1. jan. 1956
7802, og er það rúmlega 39%
aukning. í ár hefur bifreiðunum
fjölgað um 300.
KOSTIR MÆLANNA
Erlendis hefur verið gripið til
stöðumæla á helztu umferðargöt-
unum, og hafa þeir þótzt gefast
prýðilega. 1) f»eir miðla stæð-
unum. 2) Bílunum verður betur
lagt á götunum. 3) Þeir eru r£>kk
ur tekjustofn fyrir bæjarfélagið.
4) Auðveldara eftirlit verður á
því, hvort tímatakmörkum er
hlýtt.
Því hefur nú bæjarráff, að
tillögu umferðarnefndar, sam-
þykkt reglugerð um aff 274
slíkir mælar skuli settir upp
hér í Miðbænum. Er reglu-
gerðin byggð á 15. gr. lög-
reglusamþykktar bæjarins, en
þar segir að ákveða megi
gjald, sem rcnni í bæjarsjóð
fyrir bifreiðastæði á götunum.
Umferðarnefnd ákveður gerð
stöðumælanna, en bæjarverk-
fræðingur annast uppsetningu og
viðhald þeirra. Bæjarsjóður legg-
ur fram 650 þús. kr. úr bæjar-
sjóði, sem stofnkostnað, er end-
urgreiðist að % á fimm árum.
— Tekjur eru áætlaðar af mæl-
unum og verður þeim varið til
reksturs og viðhalds mælanna,
svo og til annarra umbóta í um-
ferðarmálum, þ.á.m. aukningu
bifreiðastæða.
Gjaldið er 1 kr. fyrir 15
mín, og 2 kr. fyrir 30 mín. á
flestum götum, og hámarks-
stöðutíminn hálftími.
Á bifreiðastæðunum á Hótel
Islands lóðinni, Kirkjutorgi og
við Skjaldbreið er gjaldið 1 kr.
fyrir 30 mín. og 2 kr. fyrir 60
mín., og er það hámarkstími þar.
Ef bifreiðirnar standa lengur en
þennan tíma, fellur á bifreiðirn-
ar sekt, sem eigandinn getur þó
leyst sig undan með því að greiða
20 kr. innan þriggja daga. —
Verða mælarnir í gangi frá kl.
9—19 virka daga og 9—13 laug-
ardaga.
Mælamir verða hið fyrsta sett-
ir upp á eftirtöldum götum: Aust
urstræti, Vallarstræti meðfram
Austurvelli, Thorvaldsensstræti
(vestan megin), Hafnarstræti,
Lækjargötu (austan megin að
Bókhlöðustíg — vestan megin að
Vonarstræti), Tryggvagötu (frá
Pósthússtræti til Kalkofnsvegar),
Bankastræti, Hverfisgötu, Lauga-
vegi, Skólavörðustíg. — Að auki
á bifreiðastæðunum, sem áður
voru talin.
Hver, sem leggur ökutæki á
stöðumælareit, þótt það sé að-
eins til að taka farþega, verður
að greiða stöðumælagjaldið,
nema um augnabliks stöðu sé að
ræða.
ÖRUGGARI OG GREIÐARI
UMFERÐ
Stöðumælunum er ætlað að
gera umferðina öruggari og greið
ari. Og að fenginni reynslu er-
lendis taldi umferðarnefnd rétt
að setja mælana strax upp í svo
ríkum mæli.
Hugsanlegt er, sagði Geir Hall-
grímsson, að öll bifreiðastæði
verði með tímanum bönnuð á
Laugavegi, Bankastræti, Austur-
stræti og Hafnarstræti, og tvö-
föld umferðarröð höfð um þær
götur. Verða þá stöðumælarnir
fluttir annað, enda er auðvelt að
flytja þá til.
Þá lagði G. H. áherzlu á nauð-
syn þess, að bifreiðastæðum yrði
fjölgað annars vegar vestan meg-
in miðbæjarkvosarinnar og hins
Kvöldvöku
Heimdallar
frestað
HINNI fyrirhuguffu Kvöldvöku Heimdallar, sem halda
átti í Sjálfstæffishúsinu í kvöld verður frestað vegna
óviðráðanlegra forfalla leikenda í Reykjavíkurrevíunni
„Svartur á nýjan leik“.
vegar austan megin, til að draga
úr umferð um Miðbæinn.
200-BÍLASTÆÐI
í tillögum umferðarmálanefnd
ar var einnig lagt til að gerð verði
hið fyrsta bifreiðastæði fyrir 200
bifreiðir á svæðinu fyrir suðvest-
an Hringbraut milli Njarðargötu
og Gamla Garðs.
Bæjarráð samþykkti að fela
skipulagsdeild að gera skipulags-
uppdrátt af svæðinu suðvestan af
Hringbraut, milli Njarðargötu og
Háskólalóðarinnar.
TVÆR BIFREIÐAGEYMSLUR
Þá rakti Geir Hallgrímsson og
þær tillögur umferðarnefndar að
hafinn verði þegar athugun á
byggingu tveggja bifreiða-
geymsluhúsa í Miðbænum eða
við hann.
Bæjarráð samþykkti að fela
formanni umferðarnefndar, fram
kvæmdastjóra, forstöðumanni
skipulagsdeildar; ásamt bæjar-
ráðsmönnunum Geir Hallgríms-
syni og Guðmundi Vigfússyni að
gera tillögur um bifreiðageymslu
húsin.
Loks ræddi Geir almennt um
verkefni umferðarnefndar og
verður nánar sagt frá því síðar.
Spilakvöld í Njarávík
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á
Suðurnesjum halda spilakvöld
í Njarðvík í kvöld kl. 20,30
stundvíslega.
Veitt verða há peningaverð-
laun. Að lokum verður stig-
inn dans. Góð hljómsveit leik-
ur.
IG Æ R var á venjulegum fundartíma Alþingis haldið áfram
þingsetningarfundi og hófst hann með því að kosning til
Efri deildar fór fram. Forseti tllkynnfci að stjórnarflokkarnir
myndu hafa kosningabandalag um kjörið.
Framsóknarmenn hlutu einnig 6
þingmenn, þá Bernharð Stefáns-
son, Karl Kristjánsson, Hermann
Jónasson, Sigurvin Einarsson,
Pál Zóphaníasson og Björgvin
Jónsson. Kommúnistar hlutu 3
þingmenn, þá Finnboga Rút
Valdemarsson, Alfreð Gíslason og
Björn Jónsson. Alþýðuflokks-
menn fengu 2 þingmenn, þá Har-
ald Guðmundsson og Friðjón
Skarphéðinsson.
EINAR OG BERNHARÐ
FORSETAR
Þessu næst hófust kjör for-
seta og ritara deildanna. Forseti
Neðri deildar var kjörinn Einar
Olgeirsson með 22 atkv., Jón
Sigurðsson fékk 11 atkvæði, en
forseti Efri deildar Bernharð
Scefánsson með 11 atkv. Sigurð-
ur Bjarnason hlaut 6 atkv. 1. og 2.
varaforseti neðri deildar voru
kjörnir Halldór Ásgrímsson og
Áki Jakobsson, en í Efri deild
Þeir Friðjón Skarphéðinsson og
Alfreð Gíslason. Skrifarar í Neðri
deild voru kosnir með hlutfalls-
kosningu þeir Páll Þorsteinsson
og Magnús Jónsson, en í Efri
deild þeir Karl Kristjánsson og
Sigurður Ó. Ólafsson.
Síðan var hlutað um sæti, en
þá lá ekki fleira fyrir þingfund-
um. í dag verða fundir í Samein.
þingi og deildum og verður þá
kosið í nefndir.
SJ. 6, FR. 6, KOM. 3, ALÞ. 2
Af þeim 17 þingmönnum, sem
sæti eiga í Efri deild fengu Sjálf-
stæðismenn 6 þingmenn, Þá
Gunnar Thoroddsen, Sigurð
Bjarnason, ' Jón Kjartansson,
Friðjón Þórðarson, Jóhann Þ.
Jósepsson og Sigurð Ó. Ólafsson.
á>------------------------------
Varffinn aff Áshildarmýri á Skeiffum, stendur skammt fyrir norffan
Skeiffaveginn á móts viff Kílhraun. Allir sem um veginn fara veita
þessa veglega minnismerki athygli, og margir leggja leiff sína aff
því. Varffann lét Árnesingafélagiff í Reykjavík reisa áriff 1946,
til minningar um þaff, aff liffin voru 450 ár frá því, er Áshildar-
mýrarsamþykktin varff gerff. Varffinn er 4)4 metri á hæff og sést
af nær öllum bæjum á Skeiðum og þó víffar. Framan á varffann,
sem er hlaffinn úr grjóti og steinlímdur eru festar þrjár slípaðar
steintöflur úr marmara meff mynd aff logandi kyndli og höggvinni
svofelldri áletrun: „Til minningar um Áshildarmýrarsamþykkt
1946 og þá Árnesinga, sem þar stóffu vörff um forn réttindi héraffs
síns, lands og lýffs, á örlagatímum. Árnesingafélagiff í Reykjavík
reisti varffa þennan 1946“. —Ljósm.: Gísli Bjarnason.
„Óyfirstíganlegir örbugleik-
ar' á fjáröflun til tcgarakaup-
anna - segir Tíminn
Ætlar Framsókn a<5 svikja abalstefnu-
skrármál ríkisstjórnarinnar ?
TÍMINN birtir í gær í forystugrein sinni yfirlýsingu, sem
varla verður skilin öðruvísi en að Framsóknarflokkur-
inn hafi þegar ákveðið að svíkjast frá því loforði stjórnar-
samningsins, að keyptir skuli til landsins 15 nýir togarar til
atvinnubóta úti um land. Er hér um að ræða fiu-ðulega
óskammfeilni og einstæða sviksemi.
Á sama tíma, sem ríkisstjórnin leggur fram frumvarp í
þinginu um togarakaupin lýsir höfuðmálgagn hennar því
yfir, að líklegast sé að úr þessum kaupum geti ekki orðið,
þar sem lán muni ekki fást til þeirra!!
„ÓYFIRSTÍGANLEGIF
ERFIÐLEIKAR“
í forystugrein Tímans í gær
er því fjálglega lýst, hversu vel
togarakaupamálið hafi verið
undirbúið af stjóminni . Síðan
kemur rúsínan í pylsuendanum.
Blaðið kemst undir lok forystu-
greinar sinnar að orði á þessa
leið:
„Þótt málið hafi þannig
verið rösklega undirbúið,
er að sjálfsögðu langt í
land fyrir hina nýju tog-
ara. Enn er eftir að útvega
lánsfé til kaupanna og
ganga frá samningum um
smíðina. Sennilegt er að
þar verði óyfirstíganlegir
örðugleikar.“
REIKNA MEÐ
EYÐILÖGDU LÁNSTRAUSTI
Þetta voru ummæli Tím-
ans í gær. Hann gerir ráð
fyrir því, að ríkisstjóm
Hermanns og Hannibals sé
þegar búin að gereyði-
leggja svo lánstraust ís-
lenzku þjóðarinnar að
„óyfirstíganlegir örðug-
leikar“ verði á vegi láns-
fjáröflunar til togarakaup-
anna!!
Það er vissulega ekki óeðlilegt,
að mörgum, sem lesa þessi um-
mæli Framsóknarmálgagnsins,
komi í hug, að Framsókn hafi
alltaf ætlað að svíkja fyrirheitið
um togarakaupin. Hins vegar
mun flestum koma á óvart þessi
hreinskilnislega yfirlýsing Tím-
ans um að hún ætli sér það.
En hvað segja samstarfsflokk-
arnir um þessa y.fírlýsingu Fram-
sóknarblaðsins?