Morgunblaðið - 24.10.1956, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.10.1956, Blaðsíða 1
43.árgangur 244. tbl. — Miðvikudagur 24. október 1956. Prentsmiðja Morgunblaðsins Ávarp Dags Hammarskjöids á degi Sameinuðu þjöðanna SÁ EINN metur frelsið og lifið, sem veit hvað hann vill hvern dag, sagði eitt af stórskáldum aldarinnar, sem leið. Það er vel til fallið fyrir okkur, sem metum frelsi og frið, að íhuga þessi orð á degi Sameinuðu þjóðanna. Við þekkjum öll til þeirra vandamála, sem að steðja á sviði alþjóðamála í dag. Hlutverk Sameinuðu þjóðanna til lausnar þeirra er mikilvægt. Látum sjá, að við séum þess megnug að mæta því kalli með djörfung og réttsýni. Þá mun oss takast, að skapa sterk samtök, sem nauðsynleg eru. Þá munum við upp- skera ávöxt af starfi okkar og öðlast það frelsi og það líf, sem við metum. Við skiljum á þessum degi, að það stoðar ekki að einblína á erfiðleikana eina heldur verðum við að sjá tækifærin, sem fyrir hendi eru. Með víðtækari þátttöku þjóða í samtökunum hefir stórt spor verið stigið í þá átt, að gera Sameinuðu þjóðirnar að alþjóða- samtökum, þar sem mismunandi 'sjónarmið koma fram og þar sem mismunandi hagsmuna gætir. Það ætti að leiða til þess að sameina meira en áður skoðanir manna til hags fyrir heildina. Aukin velmegun veldur því, að okkur er nú kleift að aðstoða hverir aðra betur en fyrri kynslóðir máttu. Okkur er ljóst, að þau ógnaröfl, sem með manninum búa og felast í náttúrunni og sem veita okkur vald til að eyðileggja má einnig nota til að græða. Mættum við á þessum degi Sameinuðu þjóðanna endurnýja ákvarðanir okkar um að snúa erfiðleikunum upp í frelsi og frið með reynslu okkar og baráttu. Mynd þessi var tekin af ritstjórum Morgunblaðsins í gær. Ern þeir í þessari röS, talið frá vinstrú Bjarni Benediktsson, Valtýr Stefánsson, Sigurður Bjarnason og Einar Ásmundsson. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Frelsisþráin grípur um slg í leppríkjunum: „Farðu til Síberíu, R.okos$ovsky" 200 þúsundir Ungver*a móimæía London, Varsjá og Búdapest, 23. október. Samkvæmt einkaskeytum frá Reuter og fregnum frá NTB. T ALLAN HINN vestræna heim velta menn nú fyrir sér þeirri spurningu — hvort heimsveldi kommúnismans sé að liðast í sundur. Atburðirnir í Póllandi eru talandi tákn um það, að pólska þjóðin er nú staðráðin í því að losa sig undan Moskvuvaldinu. í kjöl- far sigurs þess, er Gómúlka og hans menn unnu á Moskvumönnum og handbendum þeirra í pólsku stjórninni, hefur verið efnt til mikilla fjöldafunda á mörgum stöðum í landinu, og hafa Pólverjar lýst þar eindregnum stuðningi við gjörðir núverandi forystu- manna þjóðarinnar. Einnig hefur harðlega verið ráðizt að Rússum og þeim sýndur ótví- ræður f jandskapur. í óeirðum, sem stofnað var til í Wroclaw (Breslau) í gær voru rússnesk- ir fánar m. a. dregnir niður, en pólskir dregnir að húni. — Hin harðskeytta framganga Pólverja gagnvart Rússum og einhugur þjóðarinnar í frelsisbaráttunni hefur haft víðtæk áhrif. I dag söfnuðust um 200,000 manns saman í Budapest, höfuðborg Ungverjalands ■ og efndu til mótmælagöngu gegn núverandi stjórnarháttum. Lýsti múgurinn samúð sinni með pólsku þjóðinni í frelsisbaráttunni, og krafðist einnig, að Ungverjland yrði óháð Rússum — og lýðræði yrði komið á í landinu. Voru bornar fram kröfur um frjálsar kosn- ingar, málfrelsi og ritfrelsi til handa ungversku þjóðinni. Til fjöldafundarins í Budapest í dag var efnt að tilhlutan þekkts bókmenntafélags í borginni. Á skömmum tíma söfnuðust saman tugir þúsunda manna og áður en yfir lauk er talið, að um 200 þús. manns hafi tekið þátt í fundin- um, sem lýsti yfir eindregnum stuðningi við kröfur Pólverja um aukið frelsi. Um hádegi kom til- kynning frá innanríkisráðuneyt- inu þess efnis, að fundurinn bryti í bága við lög — og yrði að leysa hann upp hið skjótasta. Höfðu skipanir þessar engin áhrif á fundarmenn — og beittu stjóm- arvöldin ekki valdi til þess að framfylgja skipuninni. Um hálf- um klukkutíma síðar barst önnur orðsending frá innanríkisráðu- neytinu — og var fundarbannið þar upphafið. 4 Skönunu síðar hófst mótmæla T gangan. Var gengið um aðal- götur borgarinnar, umferð stöð.vuð, en ekki kom til neinna átaka, þar sem herlið skarst ekki í leikinn. Fóru stúdentar í broddi fylkingar. Margir báru ungverska fána, * en fréttaritarar segja, að hvergi hafi sézt rauður fáni. Múgurinn söng gamia ætt- jarðarsöngva og pólska þjóð- sönginn, sem fyrir löngu hafa verið bannaðir. Geta má nærri að kliðurinn hcfur verið mik- ill á götum Budapestar, er 200 þúsundir fólks sungu þar og hrópuðu, kröfðust aukins frels is. Einkum bar á kröfum um prent- og skoðanafrelsi, frjáls- ar kosningar, þar sem ölium yrði gert jafnt undir höfði i framboði. Krafðist múgurinn þess, að myndastyttur af Stalin, merki einræðis og kúgunar, yrðu fjarlægðar — og efnahagur landsins yrði byggður að nýju á öðrum grundveili. Krafizt var, að verzlunarsamningar við útiönd yrðu endurskoðað- ir. , Er mannfjöldinn streymdi um göturnar, hvarf fjöldi verka- manna, skrifstofumanna og verzlunarfólks frá störfum sinum til þess f jöldanum. að sameinast * Fréttaritari Reuters skýrir frá því, að fundi, sem átti að hefjast hjá miðstjórn æsku- lýðsdeildar kommúnistaflokks ins eftir hádegi, hafi verið skotið á frest til þess að með limirnir gætu tekið þátt í mót- mælagöngunni. Áður en fundi var frestað samþykkti mið- stjórnin einróma að senda pólskum æskulýð kveðjur og árnaðaróskir með það, sem þegar hefði áunnizt — og hvatningarorð — um að halda baráttunni áfram. ★ ★ ★ í Varsjárfregnum segir, að efnt hafi verið til f jölmennra mótmæla funda í pólsku borginni Wroclaw í gær, og voru það menntamenn, er fyrir þeim stóðu. Fundurinn var haldinn til þess að lýsa yfir stuðningi við Gomulka og stefnu hans gagnvart Rússum. Varð harðlega ráðizt að Rokossovsky, sem enn gegnir embætti land- varnaráðherra, og hann og lík- ar hans fordæmdir. Ritstjórn Morgunblaðsins ÍKVEBIÐ hefur verið að sú breyting verði á rit- stjórn Morgunblaðsins frá 1. nóvember að telja, að Bjarni Benediktsson alþingismaður verði aðalritstjóri blaðsins ásamt Valtý Stefánssyni, sem áfram verður ábyrgðarmaður þess, en ritstjórar verða Sig- urður Bjarnason alþingismað- ur og Einar Ásmundsson hæstaréttarlögmaður. Múgurinn hrópaði: „Farðu heim, Rokossovsky“, „Farðu til Síberíu, Rokossovsky", — „Lifi frjálst Pólland“. „Upplýs ið Katyn-f jöldamorðin" — var einnig hrópað. Auk þess var borin fram krafa um það, að hinn náni vinur Gomulka, Spychalski, sem nú hefur ver- ið skipaður aðstoðarvarnar- málaráðherra, tæki við af Rokossovsky. Þúsundir manna sóttu f jölda fund þennan, og af þeim völd- um stöðvaðist öll umferð i miðborginni. Ekki greip lög- regla þó inn í — og er allt sagt hafa farið fram árekstra- laust. Framh. á bls. 2. Með sömu þróun er hægt að útrýma húsnæðisskortinum á næstu 3 árum Ummœli Jóhanns Hafsfeins á þingi í gœr IGÆR fór fram í Neðri deild Alþingis 1. umræða um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismálastjórn, veðlán til íbúðabygginga og útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis. Urðu allharð- ar umræður um málið milli Jóhanns Hafsteins og félagsmálaráð- herra Hannibals Valdemarssonar. TILGANGUR FRUMVARPSINS Frumvarp þetta felur í sér þá breytingu að í húsnæðis- málastjórn skulu nú vera sjö menn í stað 5 áður, allir vald- ir af ráðherra. Ennfremur fel- ur það í sér að ráðherra til- nefni af þessum 7 mönnum 3 til þess að hafa á hendi stjórn allra framkvæmda á vegum hennar. Um þetta voru, sem kunnugt | er, sett bráðabirgðalög hinn 21. sept. s.l. eða nokkrum dögum áð- ur en að þing kom saman. Voru lög þessi sett vegna þess að fé- lagsmálaráðherra taldi að skyndi lega hefðu störf húsnæðismála- stjórnar reynzt svo umfangsmik- il, að nauðsyn bæri til að fjölga í stjórninni um tvo menn, en um leið að fela allar framkvæmdir aðeins 3 mönnum. Hannibal Valdemarsson fylgdi frumvarpinu úr hlaði og gaf þær skýringar á því að vegna stór- Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.