Morgunblaðið - 25.10.1956, Page 1

Morgunblaðið - 25.10.1956, Page 1
43. árgangur 245. tbl. Fimmtudagur 25. október 1956 Prentsmiðja Morgunblaðsina Hauða hernum sigað á ungverska aiþvðu Það byrjaði í Póllandi Hundruð Ungverja liggja nú í valnum eftir bardagana í Budapest s.l. sólarhring. Þeir hafa látið lífið í baráttunni fyrir frelsi Ungverjalands. Þeir féllu fyrir vopnum erlends herliðs, sem kallað var á vettvang til að halda óvinsælli kommúnistastjórn við völd. En hvernig voru upptökin? Saga Ungverjalands síðasta ára- tuginn er raunasaga. Það er saga um valdarán öfgamanna, sem byggt var á kosningasvikum. Þessir öfgamenn, auðsveipir þjón ar rússneskra heimsvaldasinna, hafa leitt ófrelsi, skort og kúgun yfir ungversku þjóðina. Fyrir nokkrum dögum mót- mæltu ungverskir stúdentar því, að rússneska væri skyldunáms- grein í ungverskum skólum. Það eitt kom fram, en annað og meira bjó undir. Þeir vildu frelsi. Og þegar Pólverjar stigu sitt „frelsis- skref“ vildu Ungverjar fá sitt frelsi. Þeir lýstu stuðningi við Pólverja og heimtuðu á útifund- um frelsi sér til handa. Hrun heimsveldis kommúnista hófst i Póllandi fyrir 3 dögum. Það held ur áfram í Ungverjalandi nú. Að mörgu leyti er skiljanlegt að þessi lönd verða fyrst til upp- reisnar. Ungverjar eiga eins og Pól- verjar í Gomulka sinn „þjóðern- islega“ kommúnista í Nagy. Þeir hafa báðir þolað fangelsi fyrir skoðanir sínar, — og báðir verið kallaðir til valda aftur nú á dög- unum til að tryggja áframhald- andi stjórn kommúnista í þessum löndum. Og ástæðan til þess að þeir eru kallaðir til þess er tví- þætt: 1) Þeir voru vinsælir hjá fólkinu vegna þess að þeir mót- mæltu ofstjórn kommúnismans. 2) þeir eru tryggir kommúnistar og þó þeir komi til valda er tak- Inu á löndunum ekki sleppc. Atburðirnir i Póllandi urðu til þess að kúgaðir Ungverjar heimt uðu frelsl og vildu leggja lífið i sölurnar. Uppþot þeirra varð svo alvarlegt að kommúnistaflokks- stjórnin varð slegin ótta. Stalin- istinn í forsætisráðherrastólnum var látinn víkja fyrir Nagy, sem settur var frá fyrir ári siðan. Hann átti að vera beitan fyrir fólkið, þó flestir eða allir aðrir í stjóruinni séu Stalinistar. Ung- verska stjórnin hefur því horfzt í augu við algera byltingarhættu. Þess vegna kallaði hún rauða herinn til þess að berja niður frelsisbaráttu ungverskrar al- þýðu. Nagy teflir á tvær hættur. Það er hann — „vinur fólksins“ — sem er látinn biðja um rússneska heraðstoð. Ef rússneski herinn heldur svo ekki heim, þegar búið er að bæla niður vilja fólksins, þá er Nagy hinn ábyrgi. Gomulka hafði meiri fyrirvara. Atburðirnir í Póllandi hófust með Poznan- Framh. á bls. 2. Fólkið bað um frelsi — en var svarað með rússneskum kúlum ¥ GÆR, á degi Sameinuðu þjóðanna, sem eiga að gæta frelsis og réttar allra manna, * brutust út í Ungverjalandi óeirðir sem í gærkvöldi var engan veginn séð fyrir um, hverjar afleiðingar hefðu. Hundruð manna hafa látið lífið fyrir vígvélum Rauða hers- ins rússneska, sem kallaður var til aðstoðar ungverskri kommúnistastjórn. Atburðirnir í Ungverjalandi sýna að til lengdar getur engin ríkisstjóm kommúnista setið við völd án stuðnings vopna og vígvéla. En menn athugi: Hvað hefði skeð ef tugþúsundir Ungverja á götum úti hefðu haft vopn. Þetta fólk var vopnlaust að mótmæla yfirgangi Rússa sem komið er fram með vopnavaldi. Er það táknrænt að þetta gerðist á degi Sameinuðu þjóð- anna? IMRE NAGY var settur af í fyrra. Hann var kallaður aftur í forsætisráðherra- stól s.l. nótt er bardagarnir voru sem blóðugastir í Ungverjalandi. Hann var látin biðja rauða her- inn um aðstoð. Moskvuútvorp- ið þogult LUNDÚNUM, 24. okt.: — Moskvu útvarpið hefur enn ekki sagt orð um atburði þá er gerzt hafa í Ungverjalandi. Margir atburðir í Póllandi hafa og orðið útundan hjá þeirri útvarpsstöð. — Reuter. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Seint i kvöld sagði Moskvu útvarpið fyrst frá atburðunum í Ungverjalandi. Sagði það, að „neðanjarðarhreyfing bylt ingarmanna hefði gert tilraun til að steypa af stóli stjórn fólksins“!!! LUNDÚNUM, 24. okt. — frá Reuter-NTB HUNDRUÐ MANNA hafa fallið í götubardögum í Budapest s.l. sólarhring. Budapestarútvarpið sagði í kvöld að bardagar væru svo til hættir — og að þeir hefðu hætt skömmu eftir að hinn „hreinsaði“ Nagy tók við forsætisráðherraembætti og til- kynnti að hann hefði beðið rauða herinn um aðstoð tii að brjóta á bak aftur uppreisnina. En ferðamenn frá Ungverjalandi, sem til Austurríkis komu í dag segja aðra sögu. Þeirra saga er, að rússneskir skriðdrekar hafi umkringt borgina en víðs vegar um hana séu brennandi byggingar og á götunum liggi lík hermanna sem óbreyttra borgara og þau vitni um hina hörðu bardaga sem fólkið hóf fyrir frelsi sínu. Staðfestar fregnir herma að skemmdarverk hafí verið unnin í mörgum iðnfyrirtækj- um í Ungverjalandi. ★ KALLAÐUR HEIM Imre Nagy fyrrv. forsætisráð- herra Ungverjalands, sem á s.l. ári var rekinn frá því embætti við skammir miklar og svika- ásakanir, var snemma í morgun kallaður aftur til embættisins eft- ir að óeirðirnar voru á skollnar. Þessar óeirðir hófust eftir götufundi stúdenta, en þar var krafizt aukins frjálsræðis og að Nagy kæmi aftur til valda. Óeirðirnar voru í upphafi að- eins stympingar, en er á leið þriðjudagskvöldið kom til blóð- ugra bardaga milli hervalds og borgaranna. Vígorð óeirðanna var í upphafi: Meira frjálslyndi í kommúnistastjórn landsins — en ^ baráttan varð mjög gegn öllum kommúnisma. ' Enda ber fréttamönnum saman um það, að þó lýðurinn hafi kraf- izt þess að Nagy tæki aftur við völdum, þá hafi á bak við búið ósk um það, að frá Stalinisman- um yrði horfið. En til þess að Nagy yrði aftur tekinn í embætti, varð Stalínisti að víkja úr sessi. Hann vék er óeirðirnar urðu alvarlegar. En þó vék hann aðeins úr stól forsætisráðherra. Hann er enn ritari kommúnistaflokksins og aðalvaldamaður hans. Undir hádegi í dag, mið- vikudag, voru óeirðirnar orðn ar svo alvarlegar, að stjórnin ákvað að biðja rússneska her- inn um hjálp til að koma á ró. Samtímis var skýrt fram tekið, að herinn myndi hverfa aftur úr landi er ró væri á komin. Herlög voru þá sett í landinu og dauða- refsiug við öllum glæpum Framh. á bls. 2 * , Avarp forseta Islands: Sam.ein.uBu /. Síirnar I FORSETI ÍSLANDS flutti eftirfarandi ávarp í út- varpið á degi Sameinuðu þjóðanna: DAG höldum vér upp á al- þjóðaafmæli. Um allan heim Gemkennúsklæúdir menn berja eg sporka í pélska unglinga VARSJÁ, 24. okt. Frá Reuter. TVÆR hópgöngur ungs fólks í Póllandi, sem hvor um sig taldi yfir 2000 unglinga, fóru með slagorðum um götur Var- sjár í dag. Þær stefndu að sama marki — rússneska sendi herrabúðstaðnum. Unga fólk- ið hrópaði and-kommúnisk slagorð. En þegar nálgaðist sendiráðs- byggingiuna mættu hópgöng- urnar mönnum í borgaraleg- um klæðum, en einkenndum með rauðu bandi umhandlegg Þeir réðust inn í hópgöngurn- ar og tvístnuðu þeim. i Þátttakendur í hópgöngunum sögðu, að menn þessir hefðu sparkað í unga fólkið og barið það með gúm- og trékylfum. • GÖTUBARDAGI Vegna þessara a .' ipta borg- aralegu klæddu mann:.,ma varð götubardagi, sem síóð í um það bil klukkustund. Hundruð her- manna komu á v .vang í bílum — en þeir gripu a.árei inn í óeirð irnar. Síðar um d?'ginn kom aftur til átaka hér og þar á milli manna með rautt band um handlegg og óbreyttra borgara. • ÁKAFT hylltur Fyrr um daginn hafði Gómúlka ávarpað þúsundir verkamanna á Stalintorginu. Hann fékk fá- dæma góðar viðtökur. Hann kvað það undir Pólverjum komið, hve lengi rússneskur her yrði í landinu. Þá skýrði hann frá því, að hann hefði fengið loforð Krú- sjeffs fyrir því, að rússneskar hersveitir yrðu komnar til bæki- stöðva sinna í Póllandi innan tveggja daga. er þess minnzt í sama anda. Véi minnumst óíriðarins mikla. Myrk ur og ógn grúfði yfir þjóðunum, en frii . úin fór vaxandi að sama skapi, og vonin um það, að koma mætti á friði og varð- veita hann, tók á sig mynd þeirr- ar stofnunar, sem vér minnumst í dag, Hinna sameinuðu þjcða. I ellefu ár, sem tæpast getur þó talizt ei.i sekúnda í lífi mann- kynsins, hefur þar verið unnið gott starí aí mikilli elju og þraut- seigju. Og. 1,. er er svo árangurinn? Ef ég rnan rétt, hefur nú verið beitt neitunarvaldi sjötíu og átta sinnum í mikilsverðum málum. Það væri auðvelt verk, að þylja raunir og rekja vonbrigði. En sá sem hefur búizt við eða heimtar, að aldrei verði vonbrigði í frið- arstarfi, þekkir ekki heiminn og hans höfðingja. Það er meiri ástæða til að minnast og gleðjast yfir því, sem vel hefur tekizt til. Ný ríki hafa verið sett á stofn, gömul varðveitt, og einu sinni hrundið árás með vopnum. Það hljómar máske eins og mótsögn, en friðurinn væri umkomuiítill, ef hann gæti aldrei giipið til vopna. Vér mundum jafnvel óska Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.