Morgunblaðið - 25.10.1956, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.10.1956, Qupperneq 10
10 MORGV1SBLAÐ1Ð Flmmtudagur 25. okt. 1956 „SUPPER“ AMM-I-DENT tann pasta er framleitt eftir algerlega nýrri formúlu. Það er öðru visi en allt annað tannpasta. AMM-I-DENT inniheldur fluoride, Ammoni- ated og Anti-Enzyme (SLS), en þetta eru öll 3 viður- kenndu efnin, sem hindra tannskemmdir AMM-I-DENT er bragðgott og freyðir mátulega. — Biðjið um AMM- I-DENT tannpasta í rauðu pökkunum. Einkaumboð: KEMIKALÍA HF. Austurstræti 14, simi 6230. Gólfteppi fallégt úrval nýkomið Laugaveg 60 Sími 82031 Innheimta — lögfræðileg aðstoð Látið ekki kröfur yðar falla niður vegna vangeymslu. Kristinn Ó. Guðmundsson hdl. Hafnarstræti 16 — sími 82917 kl. 2—6 e. h. Sendisveinn óskast strax hálfan daginn (eftir hádegi) Verzlun O. Elllngsen H.f. Ný sending AmerásLIr kvenkjólar fjólbreytt úrval Hafnarstræti 4 — sími 3350 Kristián Eliasson yfirmatsmaður: Afríku-skreiðin Athugasemd við grein Þórodds Jónssonar I MORGUNBLAÐINU í gær birt- ist grein eftir Þórodd Jónsson, stórkaupmann, sem fjallar um „ófullnægjandi frágang og flokk- un“ á Afríkuskreið o. fl. Enda þótt Þóroddur sé nýlega kominn heim frá Nigeríu, virð- ist mér ýmislegt í nefndri grein vera byggt á misskilningi eða þekkingarskorti a.m.k. á fram- kvæmd skreiðarmatsins. Tel ég því rétt að upplýsa eftirfarandi: Sá úrgangsfiskur, sem að undanförnu hefir verið seldur og fluttur út úr landinu „OFFAL“ er frákast eða úrgang- ur úr þeirri skreið, sem að áliti Fiskmatsins er útflutningshæf til manneldis. Þessi úrgangs- skreið er algerlega hliðstæð við þann úrgang úr norsku skreið- inni, sem þeir kalla „Vrakfisk“. Svo sem nafnið bendir til er þetta safn af stórgölluðum fiski t.d. er það úldinn eða rotnaður fiskur, alsvartur fiskur af jarð- slaga eða slepju, sárafiskur, mar- inn eða rifinn fiskur, maðketinn fiskur, fiskpartar o.fl. þess háttar. Norðmenn senda sinn „Vrak- fisk“ ekki út úr landinu, heldur vinna þeir úr honum heima fisk- mjöl og refa- eða dýrafóður. Hér á landi hefir slík vinnsla úr þessum úrgangi ekki ennþá átt sér stað að neinu ráði, og þess vegna hafa skreiðarframleið- endur neyðzt til að selja hann úr landi, þótt mörgum þeirra sé það þvert um geð. Að sjálfsögðu hefir þessi úr- gangur verið greinilega merktur sínu rétta nafni — OFFAL. Við mat á Afríkuskreið eða III gæðaflokki hefir verið geng- ið svo langt sem fært hefir þótt í því að taka jarðsleginn og fros- inn fisk. Og ég vil sérstaklega taka það fram, að Fiskmat ríkis- ins hefir aldrei talið frosinn fisk vera úrgangsfisk fyrir það eitt að vera frosinn. „Breadfish" hefir því aldrei verið „stimplaður“ af skreiðarmatinu sem OFFAL, held ur sem Afríkuskreið. Hins veg- ar er okkur vel um það kunnugt, að frosin skreið er illa séð yfir- leitt, en sem betur fer hefir ekki verið um verulegt magn að ræða af henni hér. Ef tekin væri alvarlega uppá- stunga Þóroddar Jónssonar um að skifta Afríkuskreiðinni í tvennt, og selja síðan lægri gæða- flokkinn á lægra verði, myndi slíkt aðeins þýða verðlækkun fyrir framleiðendur. En flestir vildu þó líklega komast hjá því í lengstu lög. A.m.k. finnst mér það skrýtin hagfræði, að teiia fslendinga hafa tapað „offjár“ á því að hafa sloppið við það til þessa. Síðar í grein sinni ræðst Þór- oddur með sérstakri mælsku gegn hreinsun hnakkablóðs og spyrðu- banda á ísl. skreið. Telur Þór- oddur framkvæmd gildandi á- kvæða um þetta vera „beinlinis hættulegt framferði", og spyr: „Hver ber ábyrgðina á svona kjánaskap?" Ég skal upplýsa Þór- odd um þetta, ef hann ekki veit það. Árið 1935 réði Fiskimálanefnd í samráði við Atvinnumálaráðu- FASAN DURASCHARF rakvélablöðin hafa farið sann. kallaða sigurför um landið. Reynið FASAN DURASC- HARF rakvélablöðin og sannfærist um gæði þeirra. Einkaumboð: BJÖRN ARNÓRSSON, umboðs- og heildverzlun sími 82328 — Reykjavík mjög glæsilegt úrval Undirkjólar frá kr. 98.00 Buxur frá kr. 29.0C LARKAÐURINN Hafnarstræti 5 neytið hingað norskan sérfræð- ing til þess að leiðbeina um verk- un og mat á skreið. Þá strax var lögð áherzla á að hreinsa hnakka blóð úr öllum fiski og fjarlægja öll spyrðubönd. Þá strax og á næstu árum lögðu norskir fag- menn, sem störfuðu á vegum Fiskimálanefndarinnar grundvöll inn undir verkunar- og matsregl- ur þær, sem hér hafa gilt síðan, gilda ennþá, og hafa margsinnis reynzt vera réttar. Þeir síðustu, sem bera þessa „ábyrgð" eru líklega þeir menn, sem stóðu að samningu núgild- andi reglugerðar, en þar voru fulltrúar skreiðaiframleiðenda í meirihluta. Rök Þórodds eru þessi: „Það er óþarfi að hreinsa fasta hnakkablóðið úr ísienzku skreið- inni, því að Norðmenn gera það ekki“. I norsku reglugerðinni segir þó svo um þetta: „Blodflekker, slintrer og all urenhet skal fjærnes fra fisken. Det m& páses at nakkepartiet blir ordentlig rengjort for blod“. Engin staðfesting hefir fengizt á því frá Norðmönnum sjálfum, að þeir brjóti þessar reglur sínar, og ekki hafa þær heldur verið felldar úr gildi. Ég býst við, að flestum mönn- um, sem hafa þekkingu á þessum málum, beri saman um það, að kröfur neytenda hafi stórlega aukizt á s.l. 20 árum í flestum markaðslöndum okkar. Þetta á við um vörugæði, þrifnað og hvers konar vöndun í matvæla- framleiðslunni yfirleitt og þetta á líka við um skreiðina til Afríku. Það væri því í algerri mót- sögn við þessa þróun, ef við nú færum að slaka á þeim lágmarks kröfum, sem settar voru fyrir 20 árum og hafa gilt síðan bæði hér og í Noregi. Það væri a.m.k. ein- kennilegur sölumaður, sem færi að berjast fyrir því, að tekinn væri upp sá sóðaskapur hér, að fiskurinn væri sendur út óhreins- aður, — með blóðkleprum og snæradræsum hangandi á hverj- um fiski á sama tíma og allir kvarta yfir harðri samkeppni á skreiðarmörkuðunum. Ef framkvæmd íslenzka skreið- armatsins er slík, sem Þóroddur Jónsson gefur í skyn í þessari grein sinni, hvernig stendur þá á því, að íslenzka skreiðin er alltaf að vinna á í hinni hörðu margumtöluðu samkeppni við Norðmenn? En um þetta segir Þóroddur m.a.: „íslenzka skreiðin er stöðugt að vinna sér meiri vinsældir á Nigeriumarkaðnum, einkanlega í austurhluta landsins og er jafn- vel seld á hærra verði en sú norska enda þykir hún víða betri“. Mér finnst þetta ekki vera 1 samræmi við ádeilur þær, er koma fram um „ófullnægjandi flokkun“ o. fl. í greininni. Ef íslenzka skreiðin líkar svona vel, hvers vegna vill þá Þórodd- ur skifta Afríkuskreiðinni I tvennt, og selja sumt á lægra verði? Það er varla hægt að segja að „framferði" íslenzka skreiðaimats ins hafi verið „beinlíinis hættu- legt“ eða „bjánalegt“ á undan- förnum árum, ef skreiðin er allt- af að vinna á. Ef starfsreglur okkar og fram- kvæmd þeirra hefir reynzt svona vel, hvers vegna þá að ráðast gegn þeim og reyna að brjóta þær niður? Veitir okkur íslendingum nokkuð af því, að vinna ennþá betur á, og standast hina hörðu samkeppni á mörkuð- um okkar? Við matsmenn viljum gjarnan fá sem mest af réttum upp lýsing- um, en vanhugsaðar og illkvittn- islegar árásir gerum við ekkert með. Við þekkjum þá skyldu okkar að hafa það helzt í hverju máli, er sannast reynist, og munum leitast við að haga störfum okk- ar samkvæmt þvi og virða í hví- vetna fyrirmæli þau, er okkur ber að starfa eftir. Reykjavík, 21. okt., 1956. Kristján Elíasson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.