Morgunblaðið - 25.10.1956, Side 12

Morgunblaðið - 25.10.1956, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 25. oVt. 1956 LOUIS COCHRAN: SONUR HAMANS Framhaldssagan 60 ®g allur hinn vöðvamikli líkami hans tútnaði út í stólnum. Haíi verið óljós og óvænt sam- úð í svip konunnar, þá veitti Lije því a.m.k. enga athygli. Hann heyrði aðeins grafarltuldann í orð lun hennar, sem bárust til hans með ákefð, sem ekki leyndi mein- ingu þeirra: „Ungi maður, ég hef enga löngun til að rökræða þetta meira. Þú ert sonur Nancy Smith «g Nancy Smith átti aldrei neinn eiginmann. Hér eftir mátt þú aldrei stíga fæti þínum inn í þetta hús. Nú....“ Þegar Lije fpratt á fætur „ekki að grípa fiam í fyrir mér. Ég hef reynt •ð hlifa þér, en þú neyðir mig til að segja það. Þú ert ekki neitt, verra en ekki neitt. Þú mátt ekki ekaprauna og óvirða dóttur mína framar með nærveru þinni“. Að svo mæltu benti hún unga i manninum á dyrnar. Hann starði á hana og hné hans •kulfu af hinni miklu geðshrær- ingu er hann fékk ekki ráðið við. Hefði hún verið karlmað- «r, skyldi hann hafa tekið í hnakkadrembið á henni og hrist hana, þangað til augasteinarnir hefðu hrokkið út og blóðið sprott- ið fram úr nösum hennar. En hann sagði ekki eitt orð, stóð bara hreyfingarlaus með andlit jafnnábleikt og það sem lá á púð- *num fyrir framan hann. „Mamma er góð kona“, fékk hann loks stunið upp. „Góð kona, •egi ég. Mikið betri en margar þúsundir af yðar líkum. ...“ „Viltu vera svo góður að yfir- gefa þetta hús“. Hann sneri sér hægt við og vöðvar hans voru ófúsir að hlýða vilja hans, eins og í martröð. Svo setti hann hattinn á höfuðið, stirð lega eins og sjálfhreyfivél og and artaki síðar bergmálaði þungt fótatak hans úti á ianga gangin- um. Æstur af djúpri reiði og niður- lægingu stikaði Lije áfram löng- um skrefum, en í eyrum hans UTVARPIÐ Fimmtudagur 25. október: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Á frívaktinni", sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlends- dóttir). 19,30 Tónleikar: Danslög (plötur). 20,30 „Lögin okkar“. — Högni Torfason fréttamaður •tjómar þættinum. 21,30 Útvarps sagan: „Októberdagur" eftir Sig- urd Hoel; XVI. (Helgi Hjörvar). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Kvöldsag- »n: „Sumarauki" eftir Hans Se- verinsen; XVIII. (Róbert Am- finnsson leikari). 22,30 Sinfónísk- ir tónleikar (plötur). 23,00 Dag- •krárlok. Föstudagur 26. október: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 19.10 Þingfréttir. 19,30 Tónleikar: Hamionikulög (plötur). — 20,30 ,Um víða veröld“. — Ævar Kvar •n leikari flytur þáttinn. 20,55 Islenzk tónlist: Lög eftir ýmsa höfunda (plötur). 21,20 Erindi: Um orsakir sálrænna erfiðleika hjá börnum (Kristinn Bjömsson •álfræðingur). 21,45 Náttúrlegir hlutir (Ingimar Óskarsson grasa fræðingur). 22,00 Fréttir og veð- urfregnir. — Kvæði kvöldsins. — 22.10 Kvöldsagan: „Sumarauki" •ftir Hans Severinsen í þýðingu Stefáns Jónssonar; XIX, — sögu- lok (Róbcrt Arnfinnsson leikari). 22,30 Létt lög (plötur). 23,00 Dag- •krárlok. hljómaði kuldaleg rödd þeirrar konu, er hafði auðmýkt hann svo mjög og sært af ásettu ráði. Einu sinni rak hann tána í snar- rótarbrúsk og sparkaði æðislega í hann. Einu sinni kreppti hann hnefana og tautaði: „Fjandinn hafi það“, milli samanbitinna tannanna. Hann gekk hratt, án þess að gera sér fulla grein fyrir stefn- unni og nam skyndilega og undr- aondi staðar, er hann varð þess var, að hann var kominn fast að hlið Martins Fortinberrys, sem stóð og formælti hinum sveittu, syngjandi svertingjum. Hann stóð í sömu sporum hreyfingarlaus, stundarkorn, en sneri sér svo hvatlega á hæl og tók stefnuna til Delta City, án þess að skeyta nokkru um skyld- urnar við hinn nýja vinnuveit- anda sinn og skynjaði aðeins hina brennandi löngun sína eftir því, að drekkja sársauka sínum og reiði í viskíinu hans Dinks gamla Malone. En Martin kallaði til hans, drynjandi rómi. „Heyrðu Lije. Komdu til mín hingað, eitt andartak“. Lije nam hikandi staðar, ófús til að standa andspænis þeim manni, sem svo mjög var tengd- ur konunum tveimur, er þannig höfuð komið inn í líf hans allt í einu. „Ég er á leiðinni niður í þorp- ið“, tautaði hann. Varir hans voru samanherptar og augun störðu önugleg til jarðar. „En hvað með vinnu þína hérna? Ég réði þig til að stjórna þessum niggurum, eða var það ekki svo?“ „Jú, en....“ „Hún hlýtur að hafa leyst held- ur betur frá skjóðunni". Rödd offurstans var full skilnings og samúðar. Hann gekk áfram, lagði höndina á öxl yngri mannsins og lækkaði svo róminn, að svert- ingjarnir heyrðu ekki orð hans: „Láttu það ekki fá of mikið á þig. Hún er nú svona, eins og þú veizt. Allar veikar konur eru svona. Og hún er búin að vera veik árum saman. Það hefur þurft að annazt hana eins og barn“. „Mér er fjandans sama“ hreytti Lije út úr sér. „Ég myndi ekki tala svona við svertingja“. „Ó, láttu það ekki á þig fá. En hvað var það svo sem hún sagði? Bannaði hún þér að stíga fæti þínum inn í húsið?“ Lije steig skref aftur á bak, svo að hönd Fortenberrys féll máttlaus niður af öxl hans og rödd hans skalf örlítið er hann svaraði eldri manninum: „Hún sagði verra og meira en það. Hún sagði að ég væri verra en ekki neitt. Hún sagði að mamma væri....“ Martin gamli Fortenberry roðn aði af geðshræringu og hann leit snöggt til dökku verkamannanna, til þess að vita hvort þeir væru að hlusta. „Segðu mér ekki meira um það. Taktu bara ekki of mikið tillit til orða hennar. Hafi hún bannað þér að koma í hús sitt, þá verðurðu sennilega að hlýða því. En ég er ekki á sama máli, Lije, og það vil ég að þú vitir. Ég álít að maðurinn sé það, sem hann gerir sjálfur. Það skiptir engu máli hvort maðurinn eða ætt hans hefur komið frá Virginíu eða ekki, eða hver er amma lians. Það sem mestu máli skiptir er það, hvernig einstakl- ingurinn er sjálfur. Mundu það drengur minn“. Hitinn í orðum gamla manns- ins gerði Lije unarandi, og and- litsdrættir hans mýktust við skyndilega vitneskju um vináttu sköllótta, litla mannsins, sem frammi fyrir honum stóð. Hún hafði gifzt niður fyrir sig, hafði hún sagt. Annað virtist Lije nú. „Ég skal sýna þessu bölvaða pakki það svart á hvítu, að því ferst ekki að lítilsvirða mig — eða mömmu“, sagði hann með einbeittan ásetning í rómnum. „Já, svona á maður að bregð- ast við mótlætinu, eins og sann- ur karlmaður". Martin Forten- berry var nú aftur orðinn róleg- ur í málrómi, næstum dapur. „Jæja, hvað sem öðru líður, þá held ég að ég hafi ekki þörf fyrir þig meira hér í dag. Á morgun verðum við tilbúnir að byrja á grunni byggingarinnar, held ég. Þú sérð um múrsteinana og sementið.. Farðu á veiðar.. Gerðu eitthvað.. Og mundu það, að frú Fortenberry er sjúk mann- eskja. Taktu ekki of mikið tillit til þess, sem hún segir“. „En ég ætla aldrei framar að stíga fæti mínum inn í það hús. Ekki eftir það, sem nú hefur skeð. Og ég sagði henni. ... “ „Já, það væri sennilega bezt fyrir þig“. Martin Fortenberry talaði eins og við sjálfan sig, þol- inmóður, of reyndur, lítill mað- ur, sem aldrei hafði fengið að gleyma ætt sinni og uppruna, fyrir konu sinni. „Þú talar við Silas Wren um þessa múrsteina og mætir svo hérna til vinnu snemma í fyrramálið". Hann sneri sér snögglega við: „Þið þarna, Sam, Zeke og Henry. Reynið þið að halda ykkur að verkinu. Haldið þið, að ég hafi ráðið ykkur til þess að standa og Vanti ydwr kápu eða kjál þá lítiÖ inn hjá GUÐRÚNU Nýkomið fjölbreytt úrval af ullarkjólum \Jerzlunin (jjiA,&rún Rauðarárstíg 1 Gluggaútstillingar Ung stúlka, sem lagt hefir stund á gluggaútstillingar erlendis, vill taka að sér slíkt starf fyrir verzlanir. Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgr. baðsins fyrir nk. þriðjudag, merkt: „Gluggútstilling“ —3040. BUÐARPLASS ásamt geymslu í miðbænum TIL LEIGU. — Tilboð merkt: „Miðbær — 3047“ sendist afgr. Morgunblaðsins. Kjólaefni (ullar-Shantung) Nýjustu þýzku efnin. 9 litir. Fást aðeins í ffleuéítœ M A R K Ú S Eftir Ed Dodd VOU SEE, MARk, I HAVENT ) AND FISH AND <TO, FONVILLE, ANVONE TO HELP ME. SOfSOTO A BOVS’ L. BUT I'M 1) — Markús, það er enginn sem hjálpar mér, svo að ég ætl- aði að biðja þig að talp við mömmu. 2) — Mig langar t«l að veiða i skógunum, bæði silunga og veiði- aýr, fara í drengjatjaldbúðir á sumrin. En mamma bannar mér það. Viltu hjálpa mér? — Það vildi ég feginn gera, en ég er hræddur um að ég geti ao litlu liði orðið. Þetta eru mál, sem mér koma ekkert við. 3) — Gerðu það, Markús. Þú ert eini maðurinn, sem ég þekki, sem getur hjálpað mér. — Eg skal íhuga það, Finnur. 4) — Um kvöldið í danssaln- um. — Frú Karolina, viljið þár dansa við mig?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.